Dagblaðið - 17.10.1980, Page 24
HUCMYNDAFRÆMUG-
UR ÁGRBNINGUR
- öllu frekar en persónulegur innan Sjálfsfæðisf Sokksins, segir form. Heimdallar
„Það var gaman að þessum fundi
og Ólafur G. Einarsson formaður
þingflokksins horfir björtum augum
til framtíðarinnar vegna þess sam-
komulags sem varð við nefndakjör á
Alþingi,” sagði Pétur Rafnsson, for-
maður Heimdallar, í morgun. í gær-
kvöldi var fundur í fulltrúaráði
Heimdallar og var formaður þing-
flokks Sjálfstæðisflokksins gestur
fundarins.
„Ólafur taldi nefndakjörið upphaf
að meiri samstöðu innan þingflokks-
ins,” sagði Pétur. „Menn eru að
reyna sættir og allir, eða að minnsta
kosti sumir, af vilja gerðir að reyna.
Það var a.m.k. á Ólafi að heyra að
hann væri maður sátta.
En það var fleira rætt, t.d. hug-
myndafræðileg vandamál innan Sjálf-
stæðisfiokksins. Hvort vandinn
innan flokksins væri kannski ekki
síður hugmyndafræðilegs eðlis en á-
greiningur um menn. Menn voru
frekar á því, enda augljóslega tals-
verður ágreiningur- um hugmynda-
fræði innan svo breiðs flokks.
Þá voru ræddar ýmsar tillögur
flokksins í vetur og afstaða hans til
ýmissa málaflokka, sem snerta ungt
fólk, húsnæðismál, skólamál og enn-
fremur samgöngumál og kjördæma-
málið.
Það var sett fram ósk um að þing-
fiokkurinn bætti samstarfið við
ungliðahreyfinguna. Samkomulagið
við hana hefur verið ágætt, en hún
ekki nýttsem skyldi.”
-JH.
Landsbankamálið:
Málflutn-
ingur tef st
vegna
veikinda
dómara
— uppgjör deildarstjór-
ans fyrrverandi viö
bankann hef ur að
einhverju leytifarið
fram
Mál Hauks Heiðars fyrrum
deildarstjóra í Landsbanka islands
mun nú tilbúið til flutnings í Saka-
dómi Reykjavíkur. Var mikið kapp
lagt á könnun og undirbúning máls
hjá embætti rikissaksóknara i vor,
en þeim undirbúningi lauk ekki fyrr
en svo nálægt réttarfríum að mál-
flutningi var frestað til haustsins.
Það sem nú tefur flutning máisins
eru veikindi annars meðdómara
Gunnlaugs Briem saksóknara. Með
honum í dómnum eru tveir sérfróðir
menn, annar um bankastörf og hinn
löggiltur endurskoðandi.
Ekki mun enn ljóst, að því er DB
Itefur fregnað, hvort uppgjörá því fé
sem ákærða er gefið aö sök að hafa
dregið sér hefur að einhverju eða öllu
leyti farið fram, eða hvort krafa um
það kemur inn í hina opinberu
ákæru.
-A.St.
Flugleiða-
menn sáttir
viðfrumvarpið
Efni Flugleiðafrumvarpsins, sem
fjármálaráðherra leggur fram á Al-
þingi eftir helgina var kynnt Erni Ó.
Jolin •<’ui og Sigurði Helgasyni á fundi
meö samgönguráðherra Steingrími
Hermannssyni, fjármálaráðherra
Ragnari Arnalds og Friðjóni Þórðar-
syni dómsmálaráðherra, í gærmorg-
un.
Urðu Flugleiðamenn ásáttir um
gerð frumvarpsins í aðalatriðum. í
því er að finna heimildarákvæði fyrir
ríkisstjórnina til þess að auka hlutale
sitt úr 6% í allt að 20%. Heildar-
hlutafé eftir aukninguna, sem hlut-
hafafundur samþykkti hinn 8. októ-
ber, er 3.5 milljarðar króna. Hluta-
bréfakaup ríkisins, ef heimildin
verður notuð, nema þá um 460
milljónum króna.
Þá er heimildarákvæði fyrir ríkis-
sjóð til þess að veita bakábyrgð fyrir
lántökum vegna Atlantshafsflugs.
Ráð er gert fyrir því að viðunandi
veðtrygging fáist hjá fyrirtækinu.
Þá er gert ráð fyrir heimild fyrir
rikisstjórnina til að ábyrgjast rekstar-
lán, ef nægileg trygging fáist, allt að
6 milljarðar króna.
-BS.
Sól með sólskinsbros
Hún íris Hreinsdóttir kom fram með sólskinsbros í lok snyrtikynningar sem haldin var á Hótel
Sögu í gœrkvöldi. Ætlunin var einmitt að láta hana líta út sem glampandi sól. Það er að vísu ekki
ætlazt til að þú farðir þig á þennan hátt, aðeins verið að sýnafram á möguleikana. Sýningin var
mjög vel heppnuð og voru gestir margs vísari um snyrtivörur er heim var haldið eftir margvíslega
fyrirlestra.
- ELA /DB-myndSig. Þorri
frfálst, óháð dagblað
FÖSTUDAGUR I7.ÓKT. 1980.
Fyrirhugað Sambands-
stórhýsi við Sundin blá:
„Myndi spilla
útsýni og
náttúru”
— Mótmælasamtök
stof nuð og ef nt til að-
gerða á sunnudaginn
Samtök áhugafólks um verndun út-
sýnis yfir Sundin og verndun náttúr-
unnar við þau verða stofnuð á fundi í
Þróttheimum við Holtaveg á sunnu-
daginn kl. 14.
Dagblaðið hefur áður greint frá því í
fréttum að mörgum íbúum við Sundin í
Reykjavik hafi hitnað í hamsi vegna
fyrirhugaðrar byggingar stórhýsis Sam-
bands isl. samvinnufélaga við Elliða-
voginn skammt frá Holtagörðum.
Segja fundarboðendur að bygging
hússins „myndi ekki einasta spilla út-
sýni, sem ekki verður aftur tekið,
heldur og náttúrufegurð”. Ennfremur
hafi bygging háhýsis við Sundin í för
með sér „víðtækar breytingar á skipu-
lagi svæðisins”.
Aðstandendur fundarins í Þrótt-
heimum standa sömuleiðis að tákn-
rænni aðgerð í fundarlok. Verður af-
hjúpað mótmælaskilti á fyrirhuguðum
byggingarstað með viðhöfn kl. 15.30 á
sunnudaginn. -ARH.
Stefnuræð-
unniútbýtt
Forsætisráðhera lét í gær dreifa
stefnuræðu sinni meðaí þingmanna.
Ræðan verður flutt næstkomandi
fimmtudag.
Lítið er um fréttapunkta í ræðunni.
Forsætisráðherra leggur þar áherzlu á
að jafnvægi þurfi að skapast í efna-
hagsmálum en nefnir ekki til hvaða
aðgerða þurfi aðgrípa. -HH.
Homafjörður:
máttu sín lít
ils gegn síld
Enginn má við margnum. í gær-
kvöldi var fyrirhugaður almennur
stjórnmálafundur á Höfn í Horna-
firði. Frummælendur áttu að vera
Geir Hallgrímsson formaður Sjálf-
stæðisflokksins og Egill Jónsson
alþingismaður Sjálfstæðisflokksins.
Fundinum varð að fresta þar sem
Hornfirðingar eru á kafi í síld.
Brauðstritið gengur fyrir þjóðmála-
baráttunni. En vonandi verður hægt
að funda í næstu brælu.
-JH.
Sjálfstæðismenn:
Átakalítið íaustur-
bæogNorðurmýri
Félag sjálfstæðismanna í austurbæ
og Norðurmýri hélt aðalfund sinn í
gærkvöldi. Fundurinn fór friðsamlega
fram og varð ekki vart átaka milli arma
innan Sjálfstæðisflokksins. Hverfið er
gróið og lítið um sviptingar. Stjórnin
var endurkjörin, en formaður er Snorri
«Halldórsson, forstjóri Húsasmiðj-
unnar. -JH.
LUKKUDAGAR:
17. OKTÓBER 26954
Skáldverk Gunnars Gunnars-
sonar 14 bindi frá A.B.
Vinningshafar hríngi
í sima 33622.
Shhhibbi