Dagblaðið - 24.11.1980, Blaðsíða 20
20
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 24. NÓVEMBER 1980.
Veðrið
Búizt er við haogum vindi um ellt
iand, lumi ataðer varfle amá anfóél,
elnkum um euatenvart lendlfl, annara
verflur úrtcomubuat og bjartá Veatur-
landi. Froat varflur um alt land.
Kkukkan 6 var auatnorfleuatan 2J
láttakýjafl og -9 atig ( Reykjavlc,
auatan 3, akýjafl og —6 atig á Qufu-
akákan, auatan 3, láttakýjafl og -7
atfg A Qaharvlta, aunnan 2, látukýjafl
og —9 atig á Akureyri, auflvaatan 3,
akýjafl og —12 atig á Raufariiöfn,
norflan 2, akýjafl og -8 adg á Daia-
tanga, logn, alakýjafl og -3 atig á
Höfn og norflan 4, akafrennlngur og
—2 atig á 8tórhflf Ae.
( Þórahflfn var akýjafl og —1 atig,
akýjafl og 9 atig I Kaupmannahöfn,
láttakýjafl og -6 atig í Oeló, láttakýj
afl og vifl froatmark I Stokkhólml,
akýjafl og 14 atig (London, rignlng og
12 atig ( Hamborg, láttakýjafl og 7
atig ( Paria, heiflrikt og 2 atig I
Madrid, alakýjafl og 12 atig í Llaaebon
og alakýjafl og 8 atig fNaw York.
Andlát
*
Ásta Kristjínsdóttlr, Keflavík, sem lézt
8. nóvember sl., fæddist 9. nóvember
1914 í Holti, Keflavík. Foreldrar henn-
ar voru Guðrún Jónsdóttir og Kristján
Sveinsson. Framan af aldri vann Ásta
svo til eingöngu viö fiskverkun, einnig
vann hún við saumastörf. Um 1947
flutti hún til Reykjavíkur og bjó þar i
7—8 ár. Vann Ásta þá á Kirkjusandi,
annaðhvort við fiskverkun eða í
mötuneytinu. Árið 1965 hóf Ásta störf
á Keflavíkurflugvelli í mötuneyti hers-
ins. Ásta var gift Olgeiri Eggertssyni,
hann lézt fyrir ári.
Jóhanna Bjarnadóttir, sem lézt 12.
nóvembersl., fæddist 21. ágúst 1891 að
Efri-Miðvík i Aðalvík. Foreldrar henn-
ar voru Sigríður Kristjánsdóttir og
Bjarni Þorsteinsson. Árið 1922 giftist
Jóhanna Guðmundi Jóni Guðnasyni,
þau eignuðust 4 börn.
Ingólfur Ámason frá ísafirði, sem lézt
15. nóvember sl., fæddist 6. nóvember
1892 á tsafírði. Foreldrar hans voru
Árni Árnason og Halldóra Ólafsdóttir.
Ingólfur flutti með foreldrum sinum til
Bolungarvikur. Ungur réðst hann til
starfa hjá Ásgeirsverzlun á ísafirði.
Hann keypti jörðina Kleifar í Seyðis-
firði við fsafjarðardjúp og rak þar tals-
verðan búskap um árabii. Árið 1949
stofnaði hann hlutafélag ásamt
nokkrum öðrum og keypti fyrirtækið
Hraöfrystihúsið Norðurtanga. Varð
Ingólfur framkvæmdastjóri. Því starfi
gegndi hann í 12 ár. Áriö 1961 fluttist
Ingóifur til Reykjavíkur og bjó þar til
æviloka. Hann var kvæntur Ólöfu
Jónasdóttur og eignuöust þau 4 börn.
Ingólfur veröur jarösunginn í dag,
mánudaginn 24. nóv., kl. 15 frá Foss-
vogskirkju.
Jóhann Ferdinand Gunnlaugsson frá
Dalvik, Síðumúla 21, lézt i Landakots-
spítala 20. nóvember. Jarðarförin
verður auglýst siðar.
Sturla Snorrason, Goðalandi 2, iézt í
Borgarspitalanum 20. nóvember sl.
Sigriður E. HJartar frá Þingeyri lézt að
Hrafnistu 21. nóvember sl.
Magnús Hólmgelr Sveinsson frá Akur-
eyri lézt að heimili sínu 18. nóvember
sl.
Halldór Sigmundsson innheimtu-
maður, Grettisgötu 79, sem lézt i Land-
spítalanum 13. nóvember sl., verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánu-
daginn 24. nóvember kl. 13.30.
Jóhanna Benedlktsdóttir, Hrafnistu,
áður Samtúni 30, lézt 20. nóvember sl.
Steinn Ingi Árnason, sem lézt af slys-
förum 18. nóvember sl., verður jarð-
sunginn frá ísafjarðarkirkju miðviku-
daginn 26. nóvember kl. 14. Minn-
ingarathöfn var i Fossvogskirkju í
morgun kl. 10.30.
Holgeir P. Clausen kaupmaður lézt í
Kaupmannahöfn 20. nóvember sl.
Páll Steinsson, Háteigsvegi 11, verður
jarösunginn frá Fossvogskirkju þriðju-
daginn 25. nóvember kl. 15.
Inger Wikström
í Norræna húsinu
Hinn þekkti .sænski pianólcikari Ingcr Wikström
heldur tónleika i Norræna húsinu mánudaginn 24.
nóvember kl. 20.30.
Ingcr Wikström stundaði nám i pianóleik i Stokk
hólmi. Vinarborg og Lundúnum. Aðeins sextán ára að
aldri koni hún fyrst fram með Filharmóniuhljómsveit
Stokkhólms og kusu áheyrendur hana einleikara
ársins 1961. Hún kom fyrst fram i London 1959 og i
New York 1963 viðgóðanorðstiroghefursiðan farið
í langar hljómleikaferðir til flcstra Evrópulanda.
Bandarikjanna. Sovétrikjanna. Suöur Ameriku. Isra
cls og Kina. Hún hcfur leikið á tónlistarhátiðum i
Stokkhólmi. Dubrovnik. Spolcto og Vin. Árið 1977
stofnaöi hún norrænan tónlistarskóla í österskár.
utan viðStokkhólm.
Inger Wikström er gift menntamálaráðherra Svi
þjóðar Jan Erik Wikström scm er nú hér í opinberri
hcimsókn í boði menntamálaráðherra. Ingvars Gisla
sonar.
Þetta er i fyrsta skipti sem Inger Wikström kemur
frant á Islandi og á tónlcikununi i Norræna húsinu
leikur hún sónatinu eftir sænska tónskáldið Erland v.
Koeh og verk eftir Círieg og Sjostakovitsj og eftir hlé
lcikur hún ýnts þekktustu verk C'hopins.
Miðar veröa seldir i kaffistofu Norræna hússins og
viðinnganginn.
Nassti fræðslufundur Fuglaverndarfélags Islands
verður haldinn i Norræna húsinu miövikudaginn 26.
hóvcmber kl. 20.30.
Skarphéðinn Þórarinsson liffræðingur talar um
starrann. lifshætti hansogsýnir litskyggnur.
ölluni heimill aðgangur.
Kirkjustarf
Ásprestakall
Fyrst um sinn verður sóknarpresturinn Árni Bergur
Sigurbjörnsson til viðtals að Hjallavegi 35 þriðjud —
föstud. kl. 18—19. sími 32195.
Einhverfi drengurinn
f íslenzku sfldarplássi
Litli einhverfi drengurinn er mér
efst í huga eftir að hafa horft á sjón-
varpið þessa helgina. Hvílíkt krafta-
verk er hægt að gera ef tími, fé og
fyrirhöfn er næg. Þýðandi myndar-
innar um drenginn sagði viö mig að
þetta myndu íslenzkar konur vinn-
andi i síld ekki geta gert. Ég held
varla að nokkur annar i okkar þjóð-
félagi hefði tíma til þess að standa í
svona nokkru, til þess er lífsgæða-
kapphlaupið of mikið. Ein spurning
vaknar þó að lokum, hvernig eru þær
aöstæður sem þjóðfélagið hér býður
einhverfum börnum? Eru þær eitt-
hvað líkar því sem við sáum á hælinu
sem foreldrar drengsins heimsóttu.
Viðtalið við Vigdísi forseta er ann-
að sem mér er minnisstætt af helgar-
efninu. Eins og Ingva Hrafns var von
og vísa átti hann alveg frábært viðtal
við forsetann og hefur án efa fært
hann mun nær þjóð sinni. Gott hjá
þeim báðum.
Þátturinn Á bókamarkaönum og
tónlistarrabb Atla Heimis vöktu
mesta athygli mína af útvarpsefni
helgarinnar. Nú fannst mér gaman að
hlusta á Atla Heimi þegar hann var
að fjalla um tónlist sem mér þykir
gaman aö. Þátturinn Á bókamark-
aðnum kemur mér alltaf í visst jóla-
skap og ég fór að hugsa um hvar ég
hefði sett jólasmákökuuppskriftirnar
mínar. Þær bækur sem lesið er úr eru
vitaskuld eins misjafnar og þær eru
margar, margarvekja áhuga á að lesa
meira en ugglaust líður langt þar til
ég snerti aðrar.
Hálf finnst mér nýjum stjórnend-
um þáttarins í vikulokin hafa mis-
heppnazt að ná til áheyrenda. Þau
eru svo skelfing alvarleg öll fjögur að
maður þorir varla að hlusta á þáttinn
með öðru eyranu eins og vanalega,
annaðhvort er að setjast niður og
hlusta alveg eða sleppa því. En þar
sem laugardagssíðdegið erekki bezti
tími vikunnar til þess að setjast niður
vill síðari kosturinn oft verða fyrir
valinu, að minnsta kosti hjá mér. Þó
hlustaði ég á sumt á laugardaginn,
meðal annars viðtal við gamlan
starfsfélaga, Ragga Lár.
Ég verð að játa að gærkvöld sjón-
varps og útvarps fór alveg framhjá
mér þar eð ég fór að fylgjast með
verðlaunaafhendingu í isupp-
skriftakeppni DB og EmmEss. Hefði
ég þó gjarnan viljað sjá nýja þáttinn
um landnemana, því mér leizt vel á
fyrsta þáttinn í þessum flokki, svo og
spurningaþátt Jónasar Jónassonar.
En það verður víst ekki á allt kosið i
þessu lífi.
- DS
Spilakvöld
Framsóknarvist
í Reykjavík
Framsóknarfélag Reykjavikur gengst fyrir spilakvöldi
aö Rauðarárstig 18, Hótel Heklu, í kvöld kl. 20.
Mjöggóð verðlaun.
Kaffiveitingar i hléi. Allir velkomnir nieðan húsrúm
leyfir. Miðapantanir i sima 24482.
Stjórnmélafundir
Sjálfstæðiskvennafélagið
Vörn, Akureyri
Aðalfundur félagsins verður haldinn i kvöld. 24. nóv..
kl. 8.30 i Kaupvangsstræti 4.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Gestur fundarins verður Sigurður Sigurðsson bæjar
fulltrúi.
Landsmálafélagið
Fram, Hafnarfirði
heldur aðalfund sinn í kvöld, 24. nóv., kl. 8.30 i Sjálf
stæðishúsinu.
Fundarefni:
1. Venjulegaðalfundarstörf.
2. Kjördæmamálið i Ijósi stjórnmálaviðhorfsins.
Frummælandi Ellert B. Schram ritstjóri.
3. Almennar umræður.
FUS í Mýrasýslu
Aðalfundur Félags ungra sjálfstæðismanna i Mýra
sýslu verður haldinn á Hótel Borgarnesi í kvöld kl.
20.30.
Dagskrá:
1. Venjulegaðalfundarstörf.
2. Kosning fulltrúa á landsfund.
3. önnur mál. ,
Tiíkynmngar
Systrafélagið Alfa
Fataúthlutun verður þriðjudaginn 25. nóvcmber að
Ingólfsstræti 19 kl. 14.
Kvenfélag Neskirkju
Afmælisfundur félagsins verður haldinn mánudaginn
24. nóvember kl. 20.30 í safnaðarheimilinu.
39. Fiskiþing
hefst i dag, mánudaginn 24. nóvember 1980, i húsi
Fiskifélagsins, Höfn við Ingólfsstræli, og verður sett
kl. 14 af Má Elíssyni fiskimálastjóra. Áætlað er að
þingiðstandi til föstudag 28. nóvember.
Frá fjórðungssamböndum og deildum Fiskifélags-
ins munu 22 fulltrúar sitja þingið og frá sérsambönd
um sjávarútvegsins 11 fulltrúar, en auk þess á fiski
málastjóri sæti á þinginu.
Sjávarútvegsráðherra, Steingrlmur Hermannsson.
mun ávarpa þingiö.
Mörg mál verða lögð fyrir þingið og má þar helzt
nefna: Stjórnun fiskveiða, afkoma sjávarútvegsins.
öryggismál, fræðslumál og skýrslur hinna ýmsu
starfsdeilda Fiskifélagsins.
Fyrsta Fiskiþing var haldið 1913 og hafa þau verið
haldinn reglulega siðan. 1 byrjun voru þau haldin ann
að hvert ár. stóðu i tvær vikur, en seinni ár hafa þau
veriö haldin árlega og standa eina viku.
Þá skal þess getið að Fiskifélag Islands verður 70
ára 20. febrúar nk.
Námskeið í stillingu
hitakerfa
Námskeiö í stillingu hitakerfa verða nú að minnsta
kosti sex. Tvö hafa verið i Reykjavik og það þriðja
verður haldiðdagana 1. og 2. desember nk.
Námskeiö var i iönskólanum á lsafirði 15. og 16.
nóvember og verður á Egilsstöðum í dag og á morgun.
Eftir áramótin er fyfirhugað að halda námskeið á
Akureyri.
Það má minna á það hér að 20° stofuhiti er talinn
asskilegur með tilliti til hollustuhátta og reksturskostn
aöar. Hver gráða fram yfir 20° eykur reksturskostnað
húsnæðis um 7% í olíukyntu húsi en um 10% á hita-
veitusvæði.
Ef hitakerfi er rétt hannað. faglega vel unnið, ein-
angrun hússins góð, er hægt að spara verulega í upp-
hitunarkostnaði með þvi að stilla hitakerfin. Talið er
að lækka megi upphitunarkostnaðaðjafnaði um 25—
35% og í einstaka tilfellum allt að 200%.
Magnús fær starfslaun
Eins og komið hefur fram i fréttum hlaut Magnús
Tómasson myndlistarmaður starfslaun Reykjavikur-
borgar fyrstur manna. Starfslaunin nema mánaðar-
launum menntaskólakennara ieitt ár.
Meðfylgjandi mynd var tekin á fundi stjórnar Kjar-
Snyrtistofan Ásýnd
hóf starfsemi sina laugardaginn 8. nóv. að Garða-
stræti 4.1 Ásýnd starfa þær Ingunn Þórðardóttir. sem
jafnframt er eigandi stofunnar.og Vilborg Aradóltir.
Báðar lærðu snyrtingu i Englandi.
Ásýnd leggur sérstaka áherzlu á hárcyðingu mcð
hátíðnirafstraumi sem er eina þekkta aðfcröin i dag!
sern raunverulega eyðir hárvexti. þar sem vax og
plokkun hára cyðir alls ekki hárvexti.
valsstaða á dögunum er Sjöfn Sigurbjörnsdóttir. for
maður stjórnarinnar afhenti Magnúsi tilkynningu um
starfslaunin.
Talið frá vinstri: Jón Reykdal. Sjöfn Sigurbjörns
dóttir, Þorgerður Ingólfsdóttir, Magnús Tómasson,
Þóra Kristjánsdóttir, Guðrún Helgadóttir, og Alfreð
Guðmundsson.
Ásýnd vinnur fyrst og fremst úr og selur hið trausta
franska snyrtivörumerki Sothys sem er ákaflega við
feðmt merki og hefur m.a. sérstaka linu fyrir húö nicðs
háræðasliti. Sothys hefur einnig ýmsar sérhæfðar
meðferðir seni eingöngu eru fiamkvæmdar á stofu.
„t.d. „lifting". strekking fyrir húð seni byrjuð er að
slakna.
Auk þessara sérstöku meðferða býður ÁsýnJ að
sjálfsögðu upp á alla venjulega snyrtistofuþjónustu.
Simanúmerið hjá Ásýnd er 29669.
GENGIÐ
GENGISSKRÁNING Ferðamanna
Nr. 223 — 20. nóvember 1980 gjaldeyrir
Eining kl. 12.00 •■Kaup Saia Sala
1 Bandarfcjadolar 673.00 574.40 631.84'
1 Starilngspund 1367.80 1371.10 1508.21
1 KanadadoMar 483.15 484.35 530.78
100 Danskar krónur 9780.25 9804.15 10784.57
100 Norskar krónur 11448.55 11476.55 12624.21
100 Sasnskar krónur 13322.45 13355.05 14890.56
100 Finnsk mörk 15219.20 15256.30 16781.83
100 Franskir frankar 12897.76 13019.05 14320.96
100 Belg. frankar 1873.75 1878.35 2066.19
100 Svissn. frankar 33440.35 33522.05 36874.25
100 Gyllini 27781.80 27849.70 30634.67
100 V.-þýzk mörk 30126.20 30199.80 33219.78
100 Ltrur 83.22 63.37 69.16
100 Austurr. Sch. 4244.40 4254.80 4680.28
100 Escudos 1105.65 1108.35 1219.29
100 Pesatar 748.00 749.80 824.78
100 Yen 269.55 270.21 297.23
1 írskt pund 1122.50 1125.20 1237.72
1 Sérstflk dróttarréttindi 734.39 736.19 j
* Breyting fró slflustu skráningu. Simsvari vegna gengisskráningar 22190.