Dagblaðið - 23.02.1981, Blaðsíða 6
6
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 23. FEBRÚAR 1981.
C"rr,l,L,2Mv.r.t«lu-
Bílasýnxng » Amer*«
Fawcett og
Smurbrauðstofan
BJORNINN
Njáísgötu 49 — Simi 15105
MÓTORSPORT
l.TUL.t
BátablatSur-Gufuvagnar
rr'W1SÍnS
Erlent
Re>nsUu.k»iurl-»n«r
l600ogSuxuk»Lj
SMOanhurfurveteWS*.
Atc(icCal.Ski-a«».
Yamaha, KawasaU*
/. tbl. 2. árg. er
komið
á blaðsölustaöi
Fjölbreytt og skemmti-
legt efni fyrir unga
jafnt sem aldna.
•
Getum í takmarkaðan
tíma útvegað fyrri tölu-
blöð
Áskrifta-, auglýsinga- og
dreifingarsími 34351 kl. 15—18 virka daga.
Gengíð féll um
35,2% síðasta ár
—viðskiptahallinn 2,5 présent af
framleiðslunm
Gengi erlendra gjaldmiðla gagn-
varl íslenzku krónunni hækkaði frá
ársbyrjun 1980 til ársloka um 54,3
prósent, en það þýðir 35,2 prósent
lækkun krónunnar.
Fyrstu þrjá mánuði síðastliðins árs
varð lítil breyting á gengi krónunnar,
en 31. marz var gengið fellt um 3 pró-
sent og eftir það var um að ræða
stöðugt og nokkuð jafnt gengissig.
Viðskiptajöfnuður við útlönd varð
óhagstæður um 32 milljarða gamal-
króna en hafði verið óhagstæður um
9,9 milljarða árið áður. Tölur ársins
1979 hafa I þessum samanburði verið
umreiknaðar til sambærilegs gengis.
Mikil aukning varð á útflutningi frá
fyrra ári, en jafnframt varð aukning
á birgðum af útflutningsvörum um
tæpa 9 milljarða króna. Aukning
innflutnings varð heldur meiri en út-
flutnings, og munar þar mestu um
stóraukin flugvélakaup. 1980 varð
vöruskiptajöfnuðurinn við útlönd
óhagstæðari en árið áður, svo að
munar tveimur milljörðum króna,
þegar reiknað er á sama gengi. Ann-
að kemur út, ef vöruskiptajöfnuður
þessara ára er „leiðréttur” vegna
breytinga á birgðum á útflutnings-
vörum, sem til voru i árslok, og
sveiflna í innflutningi sérstakra fjár-
festingarvara (svo sem flugvéla). Þá
reynist vöruskiptajöfnuður rúmlega
14 milljörðum króna hagstæðari
1980en hann var árið áður.
Vaxandi
viðskiptahalli
Þjónustujöfnuður virðist hafa
orðið óhagstæður á síðasta ári um 43
milljarða króna, sem er 20 milljörð-
um verra en árið áður. Munar þar
mestu um óhagstæða þróun sam-
gangna og auknar vaxtagreiðslur.
Að öllu samanlögðu er viðskipta-
hallinn 1980 talinn hafa orðið 2,5
prósent af þjóðarframleiðslu en var
0,9 prósent árið áður.
Miklar lántökur erlendis valda því,
að greiðslujöfnuður við útlönd varð
hagstæður árið 1980. Innkomin lán
eru talin hafa numið 105 milljörðum
króna og afborganir 42 milljörðum,
þannig að nettóaukning langra lána
hafi orðið 63 milljarðar á meðalvið-
skiptagengi ársins, samanborið við 44
milljarða á sama gengi árið 1979,
Vegna lánanna varð greiðslujöfn-
uður hagstæður um 26,9 milljarða á
síðasta ári, á móti 23,6 milljörðum
áriðáður.
Gjaldeyrisstaða bankanna, nettó,
batnaði (gjaldeyrissjóður), og varð í
árslok jákvæð um 98,7 milljarða á
móti 71,1 milljarði 1979, reiknað á
gengi í árslok 1980.
- HH
FATNAÐUR
SEMVEKUR
ATHYGLI
AFBORGUNARSKILMÁLAR
GRÁFELDUR HF. #V
BANKASTRÆTI SÍMI26540.
Vigdis Finnbogadóttir ætlar að færa Margréti Danadrottningu dýrmætt djásn þegar hún fer til Danmerkur i vikunni. I djásn-
inu á að vera þriggja mm þunn plata af hrafntinnu. Hrafntinnan er slipuð af Páii Sophaniassyni, sem hérna á myndinni sést
vera að afhenda hana til gullsmiðanna. Þeir eru Áslaug Jafetsdóttir og Hjördis Gissurardóttir (lengst til hægri), sem nú
leggja nótt við dag til að smiðinni verði lokið á réttum tima. DB-mynd Sig. Þorri.
Heimsókn Vgdísar eitt
helzta umræðuefnið
— mannaá meðal íKaupmannahöfn
Frá Eiríki Jónssyni, fréttamanni DB í
Kaupmannahöfn:
Opinber heimsókn Vigdísar Finn-
bogadóttur, forseta íslands, til Dan-
merkur siðar i þessari viku er nú eitt
helzta umræðuefni manna á meðal í
Danmörku. Hafa umræður um heim-
sóknina tekið við umræðum um at-
vinnuleysi, verðbólgu og fíkniefna-
vandamálið þar í landi.
Mikill undirbúningur fyrir heini-
sóknina er nú í gangi. Á miðvikudaginn
— og þar til heimsókninni lýkur á
föstudagskvöld — munu íslenzkir og
danskir fánar blakta á öllum opinber-
um byggingum, skipum og ferjum i
Kaupmannahöfn og nágrenni.
Væntanleg heimsókn Vigdisar hefur
vakið miklu rpeiri athygli en aðrar
heimsóknir erlendra þjóðhöfðingja.
Dansa sjónvarpið hefur tvisvar á stutt-
um tíma sýnt klukkustundar langa
sjónvarpskvikmynd um forseta
íslands. Dönsku blöðin hafa á undan-
förnum vikum sagt frá heimsókninni í
einstökum atriðum og birt stórar
myndir af Vigdísi með öllum fréttum.
íslendingar í Kaupmannahöfn fylgjast
spenntir með heimsókninni og má telja
víst að mjög fjölmennt verði í boði for-
setans fyrir íslendinga á einu fínasta
hóteli Evrópu, Hótel d’Angleterre, við
Kóngsins nýja torg.
Ýmsar uppákomur tengjast heim-
sókn forsetans. Kvikmyndin Land og
synir verður frumsýnd í vikunni i
stærsta kvikmyndhúsi Kaupmanna-
hafnar, Palads, og um helgina var
opnuð sýning á verkum ungra íslenzkra
listamanna. Meðal þeirra eru Tryggvi
Ólafsson, Jón Gunnar Árnason og Al-
freð Flóki.
-ÓV