Dagblaðið - 23.02.1981, Blaðsíða 19
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 23. FEBRÚAR 1981.
19
Útvarpið samdi við leikara:
Ðtt élenzkt sjónvarpsleikrit í mánuði
,,Þetta var fyrst og fremst menn-
ingarpólitísk deila,” sagði Gisli Al-
freðsson, formaður Félags íslenzkra
leikara, um deilu félagsins við Ríkis-
útvarpið. Undanfarið hafa félags-
menn leikarafélagsins verið í verkfalli
vegna þessarar deilu og því hafa t.d.
engin útvarpsleikrit verið flutt.
Deilan leystist núna fyrir helgina.
„Við bárum fram þær kröfur að
íslenzk dagskrárgerð yrði aukin í
íslenzka sjónvarpinu. Við fengum
þessum kröfum framgengt en lækk-
uðum í staðinn endursýningargjald
úr 100% í 50% þannig að báðir aðilar
græddu nokkuð.
Ekki var um neina kauphækkun að
ræða en ýmsar lagfæringar á samn-
ingum okkar í heild við Ríkisútvarp-
ið,” sagði Gísli.
Hann var spurður um hvað hinn
nýi samningur þýddi í raun og veru
fyrir sjónvarpsáhorfendur.
„Samþykkt var að sýna eitt is-
lenzkt sjónvarpsleikrit í mánuði.
Mikill niðurskurður hefur undan-
farið verið á leiklistinni. Fyrstu árin
voru sýnd 10—12 leikrit en nú siðustu
árin aðeins 2. Við vitum eins og allir
að sjónvarpið á enga peninga en
okkur finnst óeðlilegt að það bitni
eingöngu á leiklistinni. Eðlilegra er
að það bitni jafnt á öllu efni og ef til
vill fyrst og fremst á erlendu efni.
Hitt er annað mál að við höfum
miklar áhyggjur af því að sjónvarpið
fær ekki það sem telja má eðlilega
hækkun á afnótagjöldum sinum,”
sagði Gísli.
- DS
Vopnafjörður:
Hreppnum gefin
25 m skíðalyfta
Ný skíðalyfta var tekin í notkun á
Vopnafirði 14. febrúar. Lionsklúbbur-
inn á Vopnafirði afhenti Vopnafjarðar-
hreppi hana að gjöf. Verðmæti lyft-
unnar er um 16 milljónir gamalla
króna.
Ungmennafélagið Einherji mun sjá
um gæzlu og rekstur lyftunnar fyrst um
sinn. Lyftan er 250 metra löng og
stendur í Vesturárdal gegnt bænum
Ljótsstöðum. Kristján Magnússon
sveitarstjóri veitti lyftunni viðtöku fyrir
hönd hreppsins en hana afhenti
Kjartan Björnsson formaður Lions-
félagsins.
Annað tíðinda frá Vopnafirði er
helzt að atvinnulíf er í þokkalegasta
lagi um þessar mundir. Unnið er að
bræðslu rúmlega 14 hundruð tonna af
loðnu sem borizt hafa á land.
- DS / JÁ, Vopnafirði.
Lyftan er ofan við bæinn Ljótsstaði og sést hann neðan við lyftuna á myndinni.
Knstján Magnússon sveitarstjóri (t.v.) veitir skfðalyftunni viðtöku frá Kjartani Björnssyni formanni Lionsfélagsins.
* ..
(T . .
* —
Séð upp eftir hinni nýju skiðalyftu.
DB-myndir Jóhann Árnason.
Cræddur er
gevmdu
m
Með verðtryggingu
sparifjár hefur þetta
gamla orðtak fengið
fullt gildi á ný.
Nú býður Lands-
bankinn þér að ávaxta
sparifé á 6 mánaða
reikningum, verð-
tryggðum og með 1 %
ársvöxtum að auki.
Þannig tryggir æskan
sér framtíð og aldraðir
öryggi.
Sparifé, sem verð-
bólgan vinnur ekki á.
Leggið inn í Lands-
bankann og tryggið
spariféð gegn verðbólg-
unni.
LANDSBANKENN
Baitki alhv landsmama