Dagblaðið - 23.02.1981, Qupperneq 14
14
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 23. FEBRUAR 1981.
fyrsta leik eftir meiðslin
—mark hans á 11. mínútu dugði þó Dortmund ekki til sá&ms gegn Schalke 04
Frá Hilmari Oddssyni,
fréttaritara DB i Miinchen:
Atli Eðvaldsson kom svo sannarlega,
sá og sigraði er Borussia Dortmund og
Schalke 04 skildu jöfn, 2—2 á heima-
velli Dortmund. Þetta var fyrsti leikur
Atla eftir tveggja mánaða fjarveru
vegna meiðsla og hann lét sig ekki
muna um að skora fyrsta mark leiksins
strax á 11. minútu. Kom það af stuttu
færi eftir skallafyrirgjöf Manny Burgs-
muller. Stórstjarna Schalke 04, Klaus
Fischer, jafnaði síðan metin fyrir lið
sitt á 52. minútu eftir skalla Kurt Jara.
Það var svo Burgsmúiler sjálfur sem
kom Dortmund yfir á 80. minútu, en
dýrðin varð ekki langvinn því Siewert
jafnaði fyrir Schalke fjórum mínútum
siðar og þar við sat. 2—2. Atli fær
góða dóma fyrir leik sinn í blöðum og
varla gat hann fengið betri byrjun eftir
meiðslin.
Úrslitin í Bundesligunni:
Bayern — Bielefeld 5—1
Uerdingen — Leverkusen 3-0
Dússeldorf — Karlsruhe 1—2
Dortmund — Schalke 04 2—2
Köln — 1860 Múnchen 4—1
Ásgeir í leik-
bann hjá UEFA
Ásgeir Sigurvinsson, Standard Liege,
var einn sex leikmanna, sem fengu eins
leiks bann i UEFA-keppninni, þegar
aganefnd Knattspyrnusambands
Evrópu (UEFA) kom saman til fundar i
Zurich i Sviss á föstudag. Ásgeir hafði
tvívcgis fengið að sjá gula spjaldið hjá
dómurum í UEFA-leikjum Standard.
Hinir lcikmennirnir voru Daninn
Preben Larsen (Lokeren), Yannick
Stopyra (Sochaux, Frakklandi),
Roland Hattenberger, Stuttgart, og
Diego Alvarez og Robert Lopez-
Uefart, báðir Real Sociedad. Ásgeir
missir þvi fyrri leik Standard gegn Köln
í 8-liða úrslitum.
Aganefndin daemdi Nottingham
Forest í 16.000 dollara sekt fyrir að
vera með auglýsingar á búningum leik-
manna í úrslitum „stórbikars” Evrópu
gegn Valencia í leiknum á Spáni 17.
desember. Þýzki leikmaðurinn Frank
Mill fékk sekt fyrir að hrækja á linu-
vörð í leik við Búlgariu, leikmenn 21
árs og yngri. Einnig þjálfari Water-
schei, M. Brom, fyrir að stökkva af
bekknum og skipta sér af dómgæzlu í
leik Dússeldorf og Waterschei. Þá
fengu Torino á ftalíu og Sochaux smá-
sektir.vegna láta í áhorfendum.
Ásgeir Sigurvinsson i leikbanni.
NUrnberg—Duisburg 1—0
Frankfurt — Hamborg 1—1
Gladbach — Stuttgart frestað
Kaiserslautern — Bochum frestað
Hamborg lendi í meiri háttar vand-
ræðum gegn Frankfurt. Troðfull stæði
áhorfenda, 40.000 manns voru á leikn-
um, og það var gamla kempan Bernd
Hölzenbein sem kom heimaliðinu yfir
á 47. mínútu. Frankfurt var mun sterk-
ari aðilinn allan tímann en 7 mínút-
um fyrir leikslok fékk Hamborg ákaf-
lega umdeilda vítaspyrnu. í sjónvarpi
var ekki að sjá að þar væri um víta-
spyrnu að ræða, en Manfred Kaltz
skoraði örugglega úr henni og bjargaði
stigi fyrir sína menn.
Bayern fór létt með Bielefeld á
heimavelli sínum að viðstöddum 20.000
áhorfendum. Rummenigge skoraði
strax á 7. mínútu úr víti og mínútu
síðar bætti Janson öðru marki við.
Niedermayer skoraði síðan tvö mörk á
40. og 43. mínútu áður en Sackewitz
Titillirai blasir við FH
eftir sigur á Fram
'Björg Gilsdóttir átti mjög góðan leik gegn Fram og skorar hér annað tveggja marka sinna.
DB-mynd S.
Stelpurnar úr Haukum unnu afar
þýðingarmikinn sigur gegn KR i 1.
deild kvenna um helgina og með hon-
um eiga þær þar með möguleika á að
bjarga sér frá falli i deildinni. Hauk-
arnir hafa nú 6 stig eins og Akranes, en
eiga mun erfiðari leiki eftir. Haukar
eiga eftir að mæta Fram, Val og FH en
Akranes á Viking, KR, Þór og Fram
eftir. Möguleikar Akranesstúlknanna
þvi öllu meiri á að bjarga sér. En
snúum okkur aftur að leiknum á
laugardag.
Það er skemmst frá því að segja að
eftir jafnan fyrri hálfleik tóku Haukar
öll völd 1 jieim sfðari og sigruðu 13—7
Staðan í
1. deild kvenna
Eftir leiki helgarinnar er staðan i 1.
deild kvenna þannig:
Haukar—KR 13- -7
FH — Fram 12- 10
FH 11 9 1 1 208- -140 19
Valur 11 7 2 2 171- -131 16
Fram 10 7 0 3 177- -131 14
Víkingur 10 4 3 3 134- -131 11
KR 10 4 1 5 123- -138 9
Haukar 11 2 2 7 128- -147 6
Akranes 10 2 2 6 107- -171 6
Þór, Ak. 11 1 1 9 148- -207 3
lagaði stöðuna aðeins fyrir Bielefeld á
52. mínútu. Rummenigge var svo aftur
á ferðinni 20 míh. fyrir leikslok og
tryggði sigurinn. Breitner lék ekki með
Bayern.
Köln fór á kostum gegn 1860
Miinchen í upphafi ieiksins. Dieter
Muller skoraði strax á 3. mínútu og á 5.
mín. skoraði Bonhof. Muller bætti
siðan þriðja markinu við mínútu síðar
og Bonhof sínu öðru marki við á 19.
mínútu. Nastase lagaði stöðuna fyrir
Munchenarliðið á 36. mínútu og þar
við sat. Aðeins 9.000 áhorfendur sáu
leikinn, sem þótti slakur.
Staðan í Bundesligunni:
Hamborg 22 15 4 3 51—24 34
Bayern 22 14 6 2 55—29 34
Stuttgart 21 10 6 5 41—29 26
Frankfurt 22 10 6 6 41—35 26
Kaiserslautern 20 10 5 5 38—34 25
Köln 22 9 6 7 40—34 24
Dortmund 22 8 7 7 46—39 23
Bochum 21 6 10 5 35—28 22
Atli Eðvaldsson.
Karlsruhe 22
Gladbach 21
Duisburg 22
NUrnberg 21
Leverkusen 21
DUsseldorf 22
Uerdingen 22
Schalke04 22
1860 Milnchen21
Bielefeld 22
6 10 6 32—39 22
8 5 8 37—41 21
6 7 9 28—35 19
7 4 10 32—36 18
4 9 8 28—34 17
5 7 10 38—47 17
6 5 11 34—43 17
5 6 11 33—59 16
5 5 11 30—44 15
3 6 13 30—49 12
eftir að hafa leitt 5—4 í hálfleik. Það.
var fyrst og fremst sterkur varnarleikur
svo og góð markvarzla hjá Sóleyju Ind-
riðadóttur sem gerðu útslagið. Hún
varði hvað eftir annað meistaralega og
KR-stúlkurnar áttu erfitt með að ftnna
leið framhjá henni í markinu — nema
þá í vítaköstum. Þar sýndi Kristbjörg
Magnúsdóttir óvenjulegt öryggi.
Haukar komust í 3—1 og síðan var
5—4 í hálfleik. KR tókst svo að jafna,
5—5, en í kjölfarið fylgdu' fimm
Haukamörk í röð og sigurinn var í
höfn. Guðrún Gunnarsdóttir skoraði
laglega úr hornunum og tvívegis sendi
Ragnheiður Júlíusdóttir knöttinn í
netið með miklum tilþrifum. KR-liðið
virkaði áhugalaust með öllu og Krist-
björg bar af i liði þeirra. Hinum megin
var frammistaðan mun jafnari. Sóley,
Kolbrún, Guðrún, Ragnheiður og
Svanhildur áttu allar góðan leik.
Mörkin. Haukar: Svanhildur Guð-
laugsdóttir 5/4, Guðrún Gunnarsdóttir
3, Ragnheiður Júlíusdóttir 2, Hólm-
fríður Garðarsdóttir, Sesselja Frið-
þjófsdóttir og Elva Guðmundsdóttir
eitt hver. KR: Kristbjörg Magnúsdóttir
5/4, Hjördís Sigurjónsdóttir og Birna
Benediktsdóttir eitt hvor.
Dómarar voru Stefán Arnaldsson og
Ólafur Haraldsson og komust i heild-
inavel frá leiknum.
-SSv.
FH varai Fram 12-10 í slagsmálaleik ítoppuppgjöri 1. deildar
FH-stúlkurnar tryggðu sér næsta
örugglega íslandsmeistaratitilinn í
handknattleik er þær sigruöu aðal-
keppinautinn, Fram, öðru sinni á
keppnistímabilinu i slagsmálaleik þar,
sem ekkert var gefið eftir, i Hafnarfirði
á laugardag. Sigur FH var sanngjarn
þó svo lánið hafi ekki leikið við Fram-
dömurnar lengst af. Þær áttu nokkur
skot í þverslá og fengu t.d. aðeins 1
vitakast á móti 6 hjá FH. Lokatölur
urðu 12—10 FH I vil eftir að staðan
hafði verið 7—6 i hálfleik fyrir Fram.
Það var einkum og sér i lagi einkafram-
tak Margrétar Theodórsdóttur i siðari
hálfleiknum sem gerði útslagið, þvi hún
gerði 5 af 6 mörkum FH i hálfleiknum.
FH hóf leikinn betur og það var ekki
fyrr en siðari hluta fyrri hálfleiksins,
sem Fram komst upp að hlið þeirra og
seig síðan fram úr. FH hóf síðari hálf-
leikinn með miklum látum og eftir 7
minútna leik var staðan orðin 9—7
þeim í vil og rétt á eftir varði Kolbrún
vitakast Margrétar. Þetta varð Frömur-
um hvatning. Guðríður skoraði loks
utan af velli, 9—8, og Margrét Blöndal
jafnaði síðan, 9—9. Kristjana skoraði
sitt eina mark úr vítakasti, 10—9, og á
eftir tóku Framarar hana og Margréti
úr umferð. Það bar tilætlaðan árangur
því sóknin riðlaöist illa hjá FH. Á móti
kom hins vegar að sóknarleikur Fram
var fumkenndur og vörn FH gaf sig
hvergi. Margrét skoraði 11—9 úr
hraðaupphlaupi, en Sigrún minnkaði
muninn, 10—11, fyrir Fram rétt áeftir.
Lokaorðið átti svo Margrét úr vítakasti
og sigur FH var í höfn og íslands-
meistaratitillinn nokkuð örugglega
líka.
Fimm ára sigurganga Fram er því á
enda og FH á nú alla möguleika á titlin-
um í fyrsta skipti í 30 ár. FH hefur einu
sinni orðið íslandsmeistari, 1961, en
síðan 1964 hafa aðeins Valur og Fram
unnið titilinn. Ekkert nema kraftaverk
getur nú komið í veg fyrir sigur FH-
stúlknanna og ekki leikur vafi á að þær
hafa bezta liðinu á að skipa.
Eins og oftast áður í vetur var
Margrét Theodórsdóttir i aðalhlutverki
hjá FH. Hún stjórnar öllu spili iiðsins
og skorar langflest mörkin þótt ekki sé
nýtingin alltaf e.t.v. upp á það ailra
bezta. Á iaugardag áttu þær Björg
Gilsdóttir og Sólveig Birgisdóttir góðan
leik svo og Gyða i markinu. Hildur,
Katrín og Kristjana sáust lítið og Krist-
jana var tekin úr umferð stóran hluta
leiksins. Hjá Fram voru þær Guðríður,
Margrét, Oddný og Sigrún ásamt Kol-
brúnu í markinu mest áberandi. Af
þeim kom Sigrún bezt út. Oddný
byrjaði vel, en dalaði er á leikinn leið,
Guðriður var utan við sig lengst af og
Margrét var allt of bráð og eigingjörn.
Hending ef hún gaf boltann til baka úr
hægra horninu. Uppskar samt aðeins
eitt mark úr ótai tilraunum.
Mörkin. FH: Margrét Theodórsdótt-
ir 7/3, Björg Gilsdóttir 2, Kristjana
Aradóttir, Katrín Danivalsdóttir og
Sólveig Birgisdóttir eitt mark hver.
Mark Kristjönu úr víti. Fram: Guðrið-
ur Guðjónsdöttir 4/1, Oddný Sigsteins-
dóttir 3, Sigrún Blómsterberg 2,
Margrét Blöndal 1.
Dómarar voru Stefán Arnaldsson og
Ólafur Haraldsson og sluppu vel frá
þessum annars óvenju harða kvenna-
leik þar sem hvergi var gefinn þuml-
ungureftir.
- SSv.
íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir
Atli skoraði strax í
STORSIGUR HAUKA
KVEIKIR NEISTA
—en erfiðir leikir ílokin gætu orðið
Hafnarfjarðarliðinu um megn