Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 11.03.1981, Qupperneq 2

Dagblaðið - 11.03.1981, Qupperneq 2
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 11. MARZ 1981. GÍSLI SVAN EINARSSON Kosningar í Háskóla íslands: Hagsmunamálum stúdenta stung- ið undir stól — meðan vinstri og hægri menn karpa Kristín Björnsdóttir, 5730-3328, skrifar: Ástæðan fyrir skrifum mínum hér er kjallaragrein Kristins Andersen er birtist í Dagblaðinu mánudaginn 2. marz. Eins og hann bendir réttilega á er alltaf margt sem miður fer í starfsemi Stúdentaráðs og útgáfu Stúdenta- blaðsins, en það er eins og gleymzt hafi hjá honum að vinstri menn sitja ekki einir i Stúdentaráði, heldur Vökumenn einnig, en því miður hefur starf þeirra þar ekki borið árangur sem skyldi, enda er sann- ieikurinn sá að mikið af dýrmætum tíma Stúdentaráðs hefur farið í póli- tískt þras þessara tveggja fylkinga meðan hagsmunamál stúdenta hafa legið í láginni. >ví skal engan undra þó þriðja framboðið, framboð Um- bótasinnaðra stúdenta, sé komið fram. En af skrifum Kristins má giöggiega sjá að hann veit ekkert um hvers eðlis þetta framboð er og hefði verið á allan hátt skynsamlegra af hans hálfu að lesa stefnuskrá þeirra er dreift var í HÍ þann 26. feb. sl. áður en hann kvartar undan því að stefnuna vanti. Nær hefði honum einnig verið að athuga hverjir standa að framboðinu áður en hann full- yrðir að hér sé um klofið framboð vinstri manna að ræða því þá hefði honum orðið ljóst að hér er um allra flokka menn og óháða að ræða, stúd- enta sem þreyttir eru á að hagsmuna- mál þeirra liggi undir stói meðan fylkingarnar tvær karpa um mál eins og kóka-kóla sem koma hagsmuna- málum stúdenta alls ekki við. Ég vona innilega að Kristinn sé aðeins einn af fáum stúdentum sem dæma Umbótasinnaða stúdenta að algerlega óathuguðu máli og reyndar treysti ég því að hinn almenni stúdent sé það ábyrgur að hann kynni sér málin sjálfur og dæmi síðan. — ^aiiiTrr* 1 dag fara fram kosningar i Háskóla islands. DB-mynd: Gunnar Örn. tslendingar hafa tamið sér ákaflega frumstæðar drykkjuvenjur. Bréfritari telur að þær geti ekki versnað með tilkomu bjórs. BJÓRINN OG SIDAPOSTULAR —að halda því fram að bjórinn gæti gert nokkuð annað en að bæta þessa skálmöld er að misbjóða skynsemi f ólks Einar Sigurðsson, Neskaupstað, skrifar: Skelfing er það fólk þreytandi sem stöðugt finnur hjá sér hvöt til að hafa vit fyrir öðrum. Til allrar óhamingju fyrir fólkið í landinu er eins og þessir siðapostular hafi lag á að pota sér í stöður þar sem þeir geta gert almenn- ingi lífið leitt. Tökum t.d. útvarp Reykjavík. í marga áratugi hefur lítill hópur manna, sem umgengst þessa stofnun eins og þeir eigi hana, reynt að troða ákveðnum tónlistarsmekk niður kverkarnar á öllum landslýð. Sin- fóníuplötur hafa verið gatspilaðar í 4—6 klukkustundir á dag, en ekki með betri árangri en svo að fjöldinn allur þolir ekki þessa ágætu hljómlist og gamall maður heyrðist kvarta að nú væru þeir enn að spila „spýtu eftir strák” (átti að vera svíta eftir Strauss). Sama er uppi á teningnum þegar hugsanleg sala á þeim milda og holla drykk (alla vega í samanburði við lút- sterkt brennivín sem börn og gamal- menni þjóra sér til óbóta) bjór kemst í sviðsljósið. Þá hleypur upp til handa og fóta alls konar lýður sem telur sig þess umkominn að stjórna lífsvenjum annarra. Venjulega eru þetta templarar eða gamlar kerlingar af báðum kynjum sem ekkert vita eða innsýn hafa í drykkju. Varnaðarorð alkóhólista Það kemur stundum fyrir.og hefur jafnan mikil áhrif, að gamlir alkóhól- istar (óvirkir) þeysa út á ritvöllinn og vara við bjórnum hræðilega. Það er í sjálfu sér rökvilla þegar venjulegt fólk lætur slíkt hjal vega þungt hvað varðar það sjálft. Sjálfsagt gæti bjór- inn reynzt áfengissjúku fólki skeinu- hættur og það á við um alla áfenga drykki. En að alkóhólistar séu ein- hvers konar sérfræðingar á þessu sviði er auðvitað fjarstæða. Er skíða- maður, sem fótbrýtur sig í fyrstu eða annarri skíðaferðinni, sjálfkrafa sér- fræðingur í þeirri íþróttagrein? Að lokum þetta: íslendingar hafa tamið sér ákaflega frumstæðar drykkjuvenjur þar sem fólk á öllum aldri þambar í sífellu 40—50% eld- vatn. Að halda því fram að bjórinn gæti gert nokkuð annað en að bæta þessa skálmöld er að misbjóða skyn- semi fólks. Bjórinn strax! Söngvakeppni sjónvarpsins: Eitt mesta tæknilega afrek sem sjónvarpið hefur unniö — menn geta verið þokkalega ánægðir með árangurinn Guflmundur hringdi: Ég vil lýsa ánægju minni með söngvakeppni sjónvarpsins. Ég er ánægður með að lag með Pálma skyldi vinna þó að ég hefði frekar viljað að lagið ,,Á áfangastað” með honum hefði unnið. Svo gerðist það sem var ef til vill mest gaman við þessa keppni að al- gjörlega óþekktur lagahöfundur kemur fram í sviðsljósið. Sigurveg- arinn, Guðmundur Ingólfsson, á ábyggilega eftir að láta frá sér heyra i framtíðinni. Þrátt fyrir állt og allt þá held ég að framkvæmd keppninnar hafi verið eitt mesta tæknilega afrek sem sjón varpið hefur unnið, þarna þurfti ekki mikið að klikka til þess að allt færi i vaskinn. Ég held að menn geti verið þokka- lega ánægðir með þessa söngva- keppni þegar á allt er litið. 4C Pálmi Gunnarsson kemur sterkur út úr söngvakeppni sjónvarpsins. Raddir lesenda V

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.