Dagblaðið - 11.03.1981, Side 3
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 11. MARZ 1981.
3
Vetrarbúnaður bfla oft
ákaflega lélegur
—alltaf nokkrir bflar í algjörlega óökuf æru ástandi —■ ekki nóg að skafa
smáblett áframrúðu
Bílstjóri hringdi:
Alveg er ég yfir mig hissa á sam-
borgurum minum, margir hverjir
virðast ekkert hugsa um hvað þeir eru
að gera þegar þeir leggja af stað í
vinnuna á morgnana.
Vegna veðurfarsins að undanförnu
hefur það komið mjög vel í Ijós hve
mjög misjafnlega bílar hér á Reykja-
víkursvæðinu eru búnir til vetrarakst-
urs.
Þegar ég er á leiðinni í vinnuna
mæti ég alltaf nokkrum bilum sem
má segja að séu ekki í ökufæru
ástandi, bæði hvað varðar útbúnað
hjóla og útsýni bílstjóra.
Það er nefnilega ekki nóg að skafa
snjóinn af smábletti á framrúðu. Það
verður að hreinsa allar rúður bílsins
vel, annars skapa þessir bílar stór-
hættu í umferðinni. Sama má segja
um hjólabúnað, það er alltof algengt
að sjá bíla spóla og festa sig svo að
þeir tefja eðlilega umferð þeirra sem
betur eru búnir.
Bílstjórar ættu að taka þessi mál til
alvarlegrar íhugunar. Annars verður
lögreglan að blanda sér í málið og
sekta þá ökumenn sem valda töfum í
uniferðinni vegna vanbúnaðar.
n
Betra er að hreinsa vel af bilnum áður
en lagt er af stað á morgnana.
DB-mynd Einar Ólason.
Ríkisútvarpið stendur ekki f stykkinu
— Er ekki kominn tími til að fleiri aðilar fái að reyna sig við útvarpsrekstur?
Þröstur Guðlaugsson skrifar:
Ég var að lesa það í blöðunum að
Útvarpssagan:
Góður
þáttur á
röngum
tíma
Soffía hringdi:
Ég vil finna að flutningstíma mið-
degissögunnar. Það er góðra gjalda
vert að útvarpið skuli hafa hafið
aftur flutning á miðdegissögu, en það
er bara tíminn sem er afleitur.
Á þessum tíma stendur yfir heim-
sóknartími á spítölunum og sjúkl-
ingar geta ekki hlustað því að það er
ekki hægt að vera að hlusta á útvarp-
ið með öðru eyranu þegar ættingj-
arnir koma í heimsókn.
Ég skora því á útvarpið að flytja
söguna ágamla tímann, kl. 14.30.
það eigi að fara að stytta útsend-
ingartíma sjónvarps.
Finnst ykkur þetta vera hægt,
finnst fólki ekki vera kominn tími til
að taka i taumana?
Fyrst Ríkisútvarpinu er ókleift að
rækja menningarhlutverk sitt er þá
ekki kominn tími til að aðrir fái að
reyna sig? Það eru örugglega margir
sem eru tilbúnir að reka útvarp og
senda út jafngóða eða jafnvel betri
dagskrá en nú er send út í Ríkisút-
varpinu. Afnotagjöldin þyrftu ekki
að hækka og það þyrfti ekki að
byggja einhverja skrauthöll fyrir þá
til þess að vinna í.
Ef fleiri aðilar fengju að komast að
þá skapaðist samkeppni og það er
einmitt það sem þarf á svo mörgum
sviðum í þjóðfélagi voru.
Raddir
lesenda
GISLI SVAN
EINARSSON
FERÐAÞJÓNUSTA Á ÍSLANDI
RÁÐSTEFNA
Á HÓTEL LOFTLEIÐUM 12. MARZ1981
DAGSKRÁ
Sliinnrímur
Kl.
12.15—13.00 Hádegisverður í Víkingasal
13.00—13.30 Ávarp:
Steingrímur Hermannsson,
samgönguráðherra.
Kristalssalur:
13.30— 14.00 Skilyrði til ferðaþjónustu á
íslandi: Steinn Lárusson, for-
maður FÍF.
14.00—14.30 Þáttur ferðaþjónustu í þjóðar-
búskap íslendinga: Bjarni Snæ-
björn Jónsson, hagfræðingur
Ví.
14.30— 15.30 Framtíð ferðaþjónustu —
möguleikar Íslands sein ferða-
mannalands: Heimir Hannes-
son, formaður Ferðamálaráðs,
Sigurður Helgason, forstjóri
Flugleiða hf„ Áslaug Alfreðs-
dóttir, formaður SVG.
15.30— 17.30 Kaffi.
Almennar umræður.
Ályktanir.
17.30 Ráðstefnuslit.
Sigurdur
Ásbuu
Vinsamlegast tilkynn-
iö þátttöku til Verzl-
unarráðs íslands í
síma 11555.
FEL. ÍSL.
FERÐASKRIFSTOFA
VERZLUNARRÁÐ
ÍSLANDS
dagsins
iS-------------------------4
Hefurðu komið
til Grænlands?
Skúli Jóhannesson sjómaður: Nei, og
mig langat ekki heldur þangað.
Inga Ólafsdóttir afgreiðslustúlka: Nei,
en ég vildi gjarnan fara þangað.
Kristján Guðmundsson, nemi i HÍ:
Nei, ég hef aldrei komið til Grænlands.
En ég hef hugsað mér að fara þangað
og er ekki ósennilegt að það verði af því
i sumar.
Bjarki Þórlindsson, nemi i HÍ: Já, það
var bara gaman, ég gæti vel hugsað mér
að fara þangað aftur.
Ásgerður Tryggvadóttir hjúkrunar-
fræðingur: Nei, ég gæti vel hugsað mér
að fara þangað, það er fallegt landslag
þarna.
Aðalheiður Gunnarsdóttir húsmóðir:
Nei, en það væri ábyggilega mjög
gaman að koma þangað.