Dagblaðið - 11.03.1981, Side 13

Dagblaðið - 11.03.1981, Side 13
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 11. MARZ 1981. hið nýja skólakerfi og hefja til vegs gömlu skólana. Sem sagt: Morgun- blaðið, sem hóf umræðurnar, sem leiddu til gjörbreytts skólakerfis er nú að birta frétt til þess að vega að þessu sama kerfi og upphefja það sem var og blaðið barðist á móti fyrir rúmum áratug! Hvílík speki eða hitt þó heldur.” Leiðarahöfundi Morgunblaðsins virðist mjög í mun að hvítþvo málgagn sitt af allri niðurrifsstarf- semi og telur réttmætt að hirta mig og væntanlega alla aðra, sem talið hafa að Morgunblaðið hliti nú um stundir annarri og íhaldssamari leiðsögn í skólamálum en fyrir ára- tug. Ég skal fús undir vöndinn ganga, ef blaðið lætur hér saman fara orð og efndir. Morgunblaðið hefur vakið vonir um að það taki nú á raunhæfan og sanngjarnan hátt, „að meta árangur þess, sem gert hefur verið síðustu 10 árin, þannig að menn geti gert sér grein fyrir því, hvort nauðsynlegt sé að gera einhverjar verulegar breyting- ar á því kerfi, sem nú hefur verið byggt upp.” Kjallarinn Jón Böðvarsson Og blaðið getur veitt góðum málum liðsinni á fleiri vegu. Kristján Gunnarsson, fræðslustjóri Reykjavíkurborgar, erí enn í fremstu röð skólamanna. Frá „Mikill munur virðist því á skoðunum kennsiustjórans og Morgunbiaðs- ms.... honum má sem fyrr vænta góðra tillagna. Morgunblaðinu væri sómi að því að styðja hann í starfi jafn heils hugar og fyrir áratug. Ég lýk orðum mínum um leiðara Morgunblaðsins 6. mars 1981 með því að lýsa yfir að reynisf afstaða blaðsins söm og þar segir munu aðrir en ég beina að því spjótum í skóla- málaumræðum. Afstaða kennslustjórans 15. febrúar sl. birtist í Morgunblaðinu viðtal við Halldór Guðjónsson, kennslustjóra Háskóla íslands, ásamt „leiðréttri töflu sem hann hafði gert um árangur fyrsta árs nema i Háskóla íslands 1979—1980. Viðtalið einkennist af furðulegum sveiflum: staðhæfingum og fyrir- vörum á víxl. Virðist gæta togstreitu milli fræðilegra vinnubragða og per- sónulegra skoðana sem Morgunblaðið mun eiga að útbreiða, en Halldór sýnist vilja skjóta sér undan að bera ábyrgöa.Semdæmi um skynsamlegan fyrirvara hafðan eftir Halldóri kýs ég að tilgreina þennan: „Vitaskuld ber að álykta varlega af upplýsingum sem þessum. Þær eru ekki það tæmandi. En það er jafn- framt alger fásinna að taka ekki tillit til þeirra. Við getum sagt, að upplýsingarnar úr þessari könnun séu ekki mikið efni til umræðna, en afturámóti ágætt tilefni. Og því tilefni eiga menn ekki að sóa í stór- yrði og stríðsyfirlýsingar.” Ég tel sjálfsagt að taka tillit til upplýsinga Halldórs Guðjónssonar, og það hefur þegar verið gert að nokkru hér sunnan Straums. Ég kynnti niðurstöður hans við skólaslit 19. desember 1980, nokkru áður en blaðaskrif hófust um málið. Einnig hef ég tekið þær til umræðu á skóla- nefndarfundi, kennarafundi og almennum fundi með nemendum skólans. Greinargerð um helstu máls- atriði mun ég senda öllum sveitar- stjórnarmönnum á skólasvæðinu vegna þess að áfangakerfi er sú skólaskipan sem best hentar í dreif- býli. Vanhugsaðar árásir á hið nýja skólahald skoðast því sem alvarlegt mál utan höfuðborgarsvæðisins. Upplýsingar Halldórs hafa þegar orðið tilefni umræðna og þeim er hvergi nærri lokið.í g lek undir þau ummæli Halldórs að stóryrði og stríðsyfirlýsingar hæfi ekki málefna- legum umræðum um einkunna- samanburð, en hvers eðlis eru þær staðhæfingar hans sjálfs, sem fram komu í Morgunblaðsviðtalinu? Þar fullyrti hann að „leiðrétta taflan” væri marktæk könnun og sagði síðan: „Upplýsingar sem þessar skipta svo miklu máli fyrir skólana, nemendur og kennara þeirra, svo og foreldra og forráðamenn nemenda.” (Orðrétt „málsgrein” úr Morgun- blaðinu). Meginstoðum hefur verið kippt undan fullyrðingu hans um að könnunin sé marktæk, og ályktanir sem hann dregur af henni eru naumast lengur til umræðu, — en ofangreind tilvitnun sýnir glöggt að fyrir honum vakir að brýna fyrir nemendum og aðstandendum þeirra að velja fremur gömlu skólana en hið nýmótaða skólahald i áfanga- skólum. Vanþóknun sinni til á- réttingar segir hann síðan: „Það er mikill Ijóður á íslensku skólakerfi, þetta að gera ekki skipulagðar tilraunir áður en ráðist er i róttækar breytingar.” Síðastgreindu ummælin lýsa að vísu minni þekkingu um þróun mála á framhaldsskólastigi en ætla mætti kennslustjóra Háskóla íslands, en meginatriði er að í um- mælum þessum felst sú staðhæfing að breytingar á skólaskipan síðasta áratug hafi verið frumhlaup. Mikill munur virðist því á skoðunum kennslustjórans og Morgunblaðsins — þótt blaða- manninum J.F.Á. hafi orðið það á að láta líta svo út sem þær séu samstiga. í síðustu grein minni um þetta efni mun ég haga orðum mínum í samræmi við það. Jón Böðvarsson, skólameistari í Keflavík. allífsins eins og við náúm að skynja það? Þvi skulum við sveilla okkur úr vídd skipsins sem um var rætt að framan og inn í vídd landsins og fólksins. Þá erum við stödd á eyju í Atlantshafi — sem okkur er sagt að Norðmenn nokkrir sem voru á flótta undan nýrri vidd í heimalandi sinu hafi flúið til endur fyrir löngu og yfir- tekið það, segja sumir, af írum nokkrum sem höfðu yfirgefið gamla vídd í írlandi — og nú byggja þetta land afkomendur þessara tveggja kynflokka eftir að þeir hafa þolað súrt og sætt saman í þúsund ár og einu hundraði betur. Nú er bezt að athuga þessar um- ræddu víddir og þennan súr og þennan sæti. Það var Írum súrl að þola yfirtöku Norðmanna á landi sem þeir höl'ðu bvggt um nokkurn tíma að nýkristnum sið (þeirra nýja vídd), og þá var það Norðmönnum að sama skapi sætt að ná tökum á landi og fénaði landsmanna — það gerði stóran mismun að því leyti að það var takmarkað hvað þeir gátu flutt með sér sjálfir af kvikfénaði frá Noregi — og þeir gátu næstum því tekið upp fyrri háttu hvað snerti lífs- venjur og viðurværi (þeirra gamla vídd — kóngar í ríki sínu og hirð- menn þeirra). En svo kom babb í bát- inn, einnig hjá Norðmönnum, og þá þótti þeim súrt í broti. Þeir höfðu að vísu stigið djarft skref til að halda með sér lögum og reglu og það var að setja öllum þessum kóngum og hirð- fólki þeirra lög til að fara eftir. Þá varð bara eftir mergð af fólki, þ.e. ír- arnir, sem ekki gátu aðhyllzt þau lög. Það fólk hafði ekki reynt það að lifa innan slíkrar víddar sem rúmaði hug- takið goði og blót — og það kerfi innan slíkrar víddar hentaði ekki og samrýmdist ekki þeirra lífsmáta. Nú voru þessir tveir kynflokkar staddir á eyju langt norður í hafi og ekki margra kosta völ annað en finna leið til að halda friðinn — og greinilega voru írarnir máttarmeiri eða samningsaðstaða þeirra sterkari að veigamiklu leyti því lausnin í bili var sú að hluti landsmanna ákvað að ganga inn í nýja vídd sem snerti — að því að þeir héldu — aðeins hluta af tileinkaðri vídd — og létu kristnast í orði (rétt eins og við urðum 1944 lýð- veldi — í orði) en héldu goðorðsvöld- um sínum um stund — því jarðnesk umsvif voru í frumkristni aðskilin andlegum umsvifum forráðamanna kristni. Þetta varð undarleg blanda mis- stórra vidda og misvirtra eftir því hver í hlut átti — og vegna þessarar misvirðingar fór sem fór, þ.e. for- feður okkar, sem þá byggðu ísland, misstu landsráðin — þ.e. þau jarð- nesku — úr höndum sér en aftur á móti hljóp ofvöxtur í andlegu um- svifin svo að úr varð andlegt krabba- mein í þjóðarlífi og eru mörg dæmi um það hversu blekkingavefur for- ráðamanna kristni firrti fólk skyn- semi svo það blindaðist í skilningi sínum á þeirri vídd sem það hreyfðist í. Mýmörg dæmi eru um þetta og hvernig meðvitund fólks varð undir- lögð eins konar geðveilu. Það er engin furða þótt hinn kommúnistiski áróður nútímans hafi í sókn sinni gert orðið trú að þess konar tjáningu á tungu fólks sem fyrrum helg trúar- athöfn breyttist í á meðal íslendinga áður fyrr, eða orðið blót. Trú — það er viðhorf fólks til guðdómsins — hins æðsta máttar alheimsins — þetta orð varð að tákni um mestu skynvillu — og er þá djúpt sokkið i vídd — nánast niður í þrengsli sem er and- staða víddar. Nú, þetta vaxandi krabbamein sem minnzt var á að ofan var skorið burt með hálshöggi Jóns Arasonar og landsmenn gátu andað léttara en á annan máta á eftir, og þeir gengu nú inn í nýja vídd, lúterskuna, en einungis á and- lega sviðinu því kóngur vor náði auðvitað eignum katólskunnar sem nú var köllúð. Þegar hér er komið erum við orðin að íslendingum öll sömul, og svo hélzt um aldaraðir unz kom að síðari heimsstyrjöld og við leystumst úr þeirri ánauð að lifa við vídd föður- legrar náðar Danakóngs, og enginn lét sér detta í hug fyrr en seint og síðar meir að hægt væri að hlaupa úr þeirri vídd. Enda kom það i ljós við þjóðaratkvæðagreiðslu — merkilegt fyrirbæri sem þyrfti að fjalla um — að sumir vildu ekki styggja blessaðan kónginn og var nokkuð hent gaman að slikri fastheldni, og þó með vorkunnsemi. Við erum búin að sofa ofurdofa í stofukofa síðan, við íslendingar, síðan við urðum að lýð- frjálsu landi — nei, þjóð, fyrirgefið. Engan hugtakarugling úr þessu. Nú ætla ég sem sé að sýna ykkur inn í nýja vídd og vænti ég þess að margir vilji ekki styggja blessaðan kónginn og er þeim nokkur vorkunn nú sem fyrr. Farþegar niðri í lest? Svo er mál með vexti að á döfinni hefir verið um nokkur ár að endur- skoða og jafnvel breyta — hugsið ykkur bara — Stjórnarskrá Lýðveldisins íslands (skynvilla nr. 1) og er undarlegt hve lítið hefir heyrzt um það mál frá fólkinu, íslendingum sjálfum, á hvern hátt þeir vilja láta breyta henni. Skyldi þeim finnast þeir vera farþegar niðri í lest? En staðreyndin er sú að þetta plagg, sem þarf þjóðaratkvæða- greiðslu um — eða svo ætti að vera ef við erum ekki bara farþegar — er okkar farseðill til farsældar í þessu landi og getum við þá kallazt far- þegar ef við viljum en við fáum þá væntanlega eitthvað fyrir snúðinn, þ.e. fargjaldið. Ef litið er á þá nútímavídd sem við búum við er hún margföld, það er vídd heimilisins, vídd byggðarlagsins, vídd héraðsins, vídd landsins. Lands- víddin er okkur öllum sameiginleg, héraðsvíddin er svo að miklum hluta minni, eftir því hvort um fjórðungs- eða sýsluskiptingu væri að ræða; byggðarlagsvíddin er svo aftur að miklum mun minni og nær yfirleitt ekki yfir nema einn hrepp, kaupstað eða borgarhverfi, og skiptingin aftur inn í heimilisvíddina er margbreytileg í hlutföllum. Það er í þessari heimilis- vídd sem við getum hegðað okkur eins og hinir fornu kóngar og drottn- ingar sem við vorum í eina tíð, þar er okkar alríkisvídd. Aftur á móti er umsvifavídd okkar i liyggðarlaginu háð vilja þeirra sem með okkur byggja. Og þetta er sviðið sem máli skiptir í daglegri önn okkar allra. Það er þetta svið sem þarf fyrst og fremst að fjalla um i nýrri stjórnarskrá lýð- veldis íslendinga. Til skýringar á þessari nýju vídd skulum við virða fyrir okkur þær víddir sem við vitum að berjast um yfirráð á meðal þjóðar okkar. Sjálfstæðismenn segja: allir þeir sem geta eiga að eignast eins mikið og þeir geta náð sér i. Alþýðu- fiokkurinn æmtir: — ja, það verður að reyna að jafna þeta einhvern veg- inn. Hin kommúnistiska skakklína segir; ríkið á að eiga allt og fólkið ekkert — og framsóknarflokkur — bændur — er drjúgur með sig og segir; ja, við eigum þetta allt og þið getið bara dregið ykkur fisk úr sjó ef þið viljið ekki kaupa mjólk og aðrar afurðir á því verði sem við setjum upp. Nýja uppúrstefnan segir: Fólkið á allt og ríkið á ekki neitt. Hér legg ég svo fyrir sjónir ykkar kjarnauppkast að nýrri stjórnarskrá Lýðveldis fslendinga þar sem valdið er i höndum lslendinga, hvers eins og einasta þeirra sem kominn er til vits og ára: — og eru þetta þó einvörð- ungu bollaleggingar á þessu stigi: Stjórnarskrá Lýðveldis íslendinga 1. Fólkið skal eiga allt — ríkið ekki neitt. 2. Til að tryggja lýðræði skulu settir upp almennir þingdagar og málþing haldin reglulega í hverj- um hreppi, kaupstað og hverfum borga. 3. Hver þingeining skal saman- standaaf minnst lOOmanns. 4. Allir íbúar byggðarlaga, 16 ára og eldri, eru kjörgengir í trúnaðarstöður samfélags sins og hafa atkvæðisrétt á málþingum og rétt til hlutakaupa. 5. Trúnaðarmenn, kjörnir árlegri leynilegri kosningu, skulu í upp- hafi starfsárs síns gera úttekt á stöðu samfélagsins á þeirri stundu og skýra fyrir þingfólki og stýra síðan umfjöllun mál- efna samkvæmt dagskrá sem málþing samþykkir. 6. í fjölmennari byggðarlögum, þar sem þingsalir rúma ekki mál- þingið, skal málþing haldið með sjónvarpsflutningi og atkvæða- greiðslu hagað frá heimatæki viðtakandi þingmanna á viðeig- andi tæknilegan hátt. 7. í upphafi þingfundar skal ganga úr skugga um að þing sé lög- mætt. 8. Kostnaðaráætlanir við uppbygg- ingarframkvæmdir skulu sam- þykktar af þar til gerðu trúnaðarmannaráði og sá kostn- aður greiddur með frjálsu fram- lagi atkvæðisbærra manna sem til þess gefast bæði á málþingi og síðar, og skal kvittun slíkrar greiðslu taka fram hundraðs- hlutaeign og atkvæðismagn sem hlutaeigninni fylgir. 9. Hvað snértir eldri starfandi framkvæmda-mannvirki byggð- arlagsins skal dómur settur á stofn fyrir hvert einstakt til- felli, kjörinn leynilegri kosningu á málþingi, er geri úttekt á virði þess, eignarhluta hins fyrrver- andi úrelta ríkis og eignarhluta byggðarlagsins, og kveði á um fyrirkomulag á lýðkaupum hluta. 10. Hlutakaupsskyld fyrirtæki eru meðal annarra: hita- og rafveit- ur, sjúkrahús, skólar, götur, hafnir og annað það er málþing ákveður. 11. Málþing ákveður hvort leyfa skuli að þjónustufyrirtæki séu í einstaklingseigu. Setja má slik mál til umfjöllunar inn ádagskrá málþings hvort heldur sem er þegar þau koma fram eða að sér- stakir þingdagar séu fastsettir fyrir slíkar ákvarðanir. 12. Málþing kýs árlega fulltrúa, og einn til vara, á héraðsþing (fjórðungsþing?) 13. Héraðsþing (fjórðungsþing) fer með sameiginleg málefni sam- félaga innan sinna viðja og setur upp dóma er dæma í héraðamái- um. 14. Héraðsþing (fjórðungsþing) kjósa til þjóðþings, 1 fulltrúa í þann málaflokk er þjóðþing fjallar um, eftir að forkosningar hafa farið fram í byggðarlögum. 15. Þjóðþing skal haldið að Þing- völlum ár hvert í júní og skal Ijúka með þjóðhátíð. 16. Þjóðþing setur reglur varðandi utanríkisstörf, kýs fulltrúa þjóðar á erlendri grund eftir for- kosningar í byggðarlögum er fara með umboð þjóðarinnar og standa skil á störfum sínum og erindum á reglubundinn hátt. Þjóðþing tekur ákvarðanir um hver mál skuli fá þjóðarat- kvæðagreiðslu af þeim málum sem héraðsþing senda inn til umfjöllunar. Þjóðþing setur upp hæstarétt og setur honum starfs- reglur. 17. Þjóðþingi er stýrt af forseta íslendinga. 18. Forseti íslendinga skal kjörinn þjóðkjöri og skal starfa þann árafjölda sem þjóðþing ákveður. 19. Hæstiréttur dæmir um brott- vikningu forseta úr embætti. Hérna var þá innsýn i nýja vídd. Gætu fleiri gamnað sér við að gera uppdrátt að nýrri stjórnarskrá. Hvaða mögulegar breytingar á lifs- háttum fólks gæti framkvæmd og út- færsla slíkrar uppúrstefnu haft i för með sér? Það myndi gjörbreyta aldarandanum því viðhorf fólks til gildis síns sem samfélagsþcpns rg til ástands byggðarlags síns nivndi vakna af dvala og taka að vaxa og þróast. Ef við teyndum að selja upp hug- læga mynd af slíkri vídd gæti hun orðiðeitlhvað þessu lík: „Maðurinn: Ég kem ekki heim fyrr en seint því eftir að ég hef setið hlut- hafafund í gatnagerðinni þarf ég að fara á nefndarfund vegna könnunar á stöðu hitaveitunnar, hvort hún verður byggðarfélag, héraðsfélag eða Iandsfélag, því sú ákvörðun er á dag- skrá næsta málþings og við verðum að skilaáliti. Konan: Já, en ég á eftir að veita þér atkvæðisumboð fyrir gatna- gerðarfundinn, því ég ákvað að greiða inn hiut ■ þeim fr inkvæmdum. Ég er á móti malbikun Hafnargöt- unnar að sinni. Það eru önnur meira aðkallandi verkefni fyrirliggjandi. En ég verð líka sein i kvöld því ég þarf að mæta sem ráðgjafi á fyrsta fund hjákaupfélagskönnunarnefndinni. Maðurinn: Já, kaupfélagið, það verður spennandi að sjá hvað kemur út úr því. Konan: Það getur nú tekið tímann sinn, þó liggur nú á að afgreiða það svo fljótt sem unnt er.” Það er fyrirsjáanlegt að slik stefna sem þessi myndi ryðja burt algerlega því kerfi sem ríkjandi er, ef hægt er að kalla það ríkjandi í merkingunni stjórnarvald, því auðvitað búum við öll við óstjórn þegar „kerfið” er orðið í hugum fólks sem tröll, jafnvel óvættur eða draugur sem ríður húsum manna. Hvað með það, öll erum við sam- ntála um að breytinga sé þörf og að þær þurfi að vera róttækar í eigin- legri merkingu þess orðs. Ýmsar fleiri bollaleggingar mætti prjóna við þetla en læt mál að linni að sinni. Erla Guðmundsdóttir Keflavik. Q „Auðvitaö búum við öll við óstjórn þegar „kerfið” er orðið í hugum fólks sem tröll, jafnvel óvættur eða draugur sem ríður húsum manna....”

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.