Dagblaðið - 11.03.1981, Síða 14

Dagblaðið - 11.03.1981, Síða 14
 iwamammBm ■■MpWMPBMHH | o ‘Jjjfoji i £T -miwiffrniiTrfrT MHMflHBBiamBBn DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR ll.MARZ 1981. DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 11. MARZ 1981. J5 ' ý, ... einn sá stærsti i heimi. Rúmar 110 þúsund áhorfendur og rétt við hann er iþróttahöll Barcelona, þar sem lokaleikirnir i B-keppninni á Spáni i handknattleik voru háðir 1979. Risafélag Barcelona. Beðið fyrir Quini i litilli kapellu á athafnasvæði Barcelona-félagsins. Þar voru leikmenn félagsins og Allan Simonsen er lengst tii hægri. Kapellan er rétt við búningsherbergi leikmanna. Leikvangurinn er Knattspymuheimurinn nötrar vegna ráns Quini Knattspyrnuheimurinn nötrar nú vegna ránsins á miðherja Barcelona, Enrique Castro Quini. Alþjóðaknattspyrnusam- bandið hefur hótað knattspyrnusambandi Spánar, að Spánverjar verði sviptir heims- meistarakeppninni 1982. Þar spilar ekki eingöngu ránið á Quini inn i heldur það mikla upplausnarástand, sem vfða rikir á Spáni. Erfitt verði að gæta öryggis hinna hálaunuðu knattspyrnumanna á Spáni 1982. Það gæti orðið til þess að öfgaöfl sjái sér leik á borði. Reyni að ræna leikmönn- um og krefjast iausnargjalds. Spánska lögreglan hefur leitað dyrum og dyngjum að Quini síðan hann hvarf spor- laust sunnudaginn 1. marz. Hún er þó engu nær i dag en fyrir tíu dögum. Enginn veit hvar Quini er síðan hann hvarf úr bíl sínum, Ford Granada, eftir leik Barcelona og Hercules frá Alecante. Bíllinn fannst um kvöldið opinn en Quini var horfinn. Þetta er í fyrsta sinn, sem íþróttamanni hefur verið rænt á Spáni. Þeir hafa haft vit á því að skipta sér ekki af stjórnmálum. Raunverulega veit spánska lögreglan ekki hverjir rændu Quini. Margir hafa gert því skóna að þar standi öfgaöfl ETA að baki — það er þeir, sem stjórna her Baskahreyf- ingarinnar. Stjórnarmenn Barcelona- félagsins hafa fengið upphringingar frá einhverjum, sem kraflzt hafa lausnargjalds fyrir Quini. Algjör leynd hvilir þó yfir því máli. Ekki gefið upp, skiljanlega, hvar og hvenær á að greiða lausnargjaldið eða hve upphæðin er mikil. Hún á að greiðast í gömlum seðlum. Aðrir halda því fram, að lögreglan sé á eftir tveimur mönnum og konu, sem hafi rænt Quini. Símaklefinn, sem hringt var í til Barcelona, sé fundinn. Ekki hafa þessar fréttir verið staðfestar. Eftir að Quini var rænt hefur lögreglan gætt annarra leikmanna Barcelona eins og sjáaldurs auga síns. Tveir lögreglumenn fylgja til dæmis Allan Simonsen, litla Dan- anum, hvert sem hann fer. Simonsen fór alveg á tauginni eftir ránið. Vildi helzt yfir- gefa Spán strax, þar sem hann sagðist ótt- ast um líf sitt og fjölskyldu sinnar. En litli Daninn róaðist í umsjón lögreglumann- anna. Ýmsir forustumenn á Spáni hafa nýtt sér rán Quini til að vekja athygli á sjálfum sér. Eru tíðir gestir í sjónvarpi, útvarpi og blöðum meö hástemmdar yfirlýsingar. Kirkjunnar menn hafa lika látið ljós sitt skína og það var mikið fyrir tilstilli þeirra, að Atletico Madrid og Barcelona léku sl. sunnudag i Madrid. Atletico sigraði 1—0 í þeim leik og færöist með þeim sigri skrefi nær meistaratitlinum. Hefur nú fjögurra stiga forustu. Um tíma var Madrid-liðiö með sjö stiga forustu en Barcelona hafði brúað það bil niður i tvö stig fyrir leikinn á sunnudag. Vegna ránsins á Quini er heimsmeistara- keppnin 1982 í sviösljósinu. Vestur-Þýzka- land er varaland og FIFA hefur beðið Þjóðverja að setja sig í viðbragðsstöðu. Það verður áreiðanlega ekkert mál fyrir þá að annast umsjón HM 1982. Knattspymu- samband Vestur-Þýzkalands var einnig i sömu stöðu 1978. Lengi vel var óttazt að herstjórnin ( Argentínu gæti ekki tryggt ör- yggi erlendra leikmanna — eða allt þar til fyrsti leikur keppninnar hófst. Eftir það hvarf allt i skugga knattspyrnunnar i Argentinu. Ekkert annað komst að og Argentínumenn komust með miklum sóma frá framkvæmd keppninnar. -hsim. Enrique Castro Quini ásamt tveimur sonum sinum á knattspyrnuleík i febrúar. Qutnt er markhæstur i 1. deild á þessu leiktimabili á Spáni. Hefur skoraö 18 mörk. Sigurður Sverrisson _______tá____k______jjSShL m.—Itik Æhí--------------m±----------- Hér aö ofan er sigurliðiö úr firmakeppni Þórs á Akureyri sem lauk um sl. helgi. Liöið sem sigraði var sameiginlegt frá Sport- húsinu og Björgvin Leonardssyni. Að ofan frá vinstri: Jóhann Jakobsson, Ormar Örlygsson, Sigbjörn Gunnarsson (ásaml syni sinum) og Gunnar Gunnarsson. • SSv / DB-mynd GSv. Mario Kempes seldur til River Plate i gær. River Plate keypti Kempes frá Valencia ígær Valencia á Spáni seldi i gær- kvöld miðherja sinn og aðal- markaskorara, Mario Kempes, HM-hetju Argentinumanna frá þvi 1978. Engin skýring var gefin á sölunni og kemur hún vægast sagt verulega á óvart. Það er River Plate frá Buenos Aires i Argentinu, sem snarar á borðið upphæð sem svarar til 1,7 milljón sterlingspunda fyrir kappann, en Valencia keypti Kempes fyrir S árum á 350.000 sterlingspund. Að þvi hermt er mun Kempes leika sinn fyrsta leik með River Plate eftir viku i Libertadores keppninni. Argentinumenn ætla sér greinilega að reyna að ná sem flestum leikmanna sinna heim aftur fyrir HM á Spáni 1982 og m.a. hafa argentínsk félögsótzt eftir Daniel Bertoni, sem leikur með Fiorentina á Ítalíu. Hann hefur hins vegar ekki viljað fara. Þróttur ekki með í slagnum um 2. sætið — Þróttarar haf a tilkynnt HSÍ ákvörðun sína Eftir þvi sem DB kemst næst mun stjórn handknattleiksdeildar Þróttar hafa tilkynnt stjórn HSÍ þá ákvörðun sína að taka ekki þátt i aukakeppninni um 2. sætið og verður ekki haggað. Þróttarar munu vera óánægðir með þá ákvörðun HSÍ að láta leika um 2. sætið á íslandsmótinu en sú ráðstöfun kemur til vegna þess að næsta haust mun nýrri Evrópukeppni (eins konar UEFA keppni) verða hleypt af stokkunum. Þar sem engar reglur voru til hjá HSÍ varðandi þessa nýju Evrópukeppni ákvað Sambandið að láta keppa sér- staklega um það. Þróttarar telja hins vegar eðlilegt að þeir taki sæti i þessari keppni og i þvi tilliti gildi sömu reglur og f knattspyrnunni. ,,Við ætlum okkur bara að vinna bikarinn og kom- umst þannig f Evrópukeppnina,” sagði einn Þróttari við DB f gærkvöld en þrátt fyrir ítrekaöar tilraunir tókst ekki að ná tali af Hauki Þorvaldssyni, for- manni stjórnar handknattleiksdeildar Þróttar. -SSv. Ipswich og Wolves áf ram f undanúrslit — Miihren skoraði eina mark leiksins. Úlfarnir unnu Boro 3-1 Valur og FH slást um að fá að mæta Skagamönnum — bikarkeppni HSÍ í Höllinni íkvöld eftir leik Fram og Hauka Að loknum leik Fram og Hauka i kvöld mætast Valur og FH i bikarnum og ekki er að efa að þar verður um fjör- uga viðureign að ræða. Bikarkeppnin hefur farið anzi hljóðlega fram að þessu og litið borið á henni. Nú eru 1. deildarfélögin hins vegar komin á fulla ferð og athyglin tekin að beinast í auknum mæli að bikarnum. Það lið sem sigrar í kvöld mætir Akurnesingum. Sigri Valsmenn fer leikurinn fram á Akranesi en fari FH- ingar með sigur af hólmi fá þeir leikinn í Hafnarfjörð. Alls þurfti 5 leiki til að hreinsa út áður en 16-liða úrslitin gætu hafizt. Af þeim 5 er þremur lokið. ÍA sigraði Gróttu 25-18, Fylkir vann ÍR 24-19 og Stjarnan sigraði Þór, Akureyri 34-33 eftir framlengingu. Leikir Vals og FH og svo Þórs úr Eyjum og KR eiga að vera i kvöld. Drátturinn í 16-liða úrslitin lítur þá þannig út (leikdagar fylgja með þar sem svo hefur verið ákyeðið). Armann-Afturelding 17.marz Týr-Fylkir ? ÍBK-Þróttur 12. marz Haukar-HK ? í A-Valur/FH ? Stjarnan-Þór/KR ? Fram-UBK ? KA-Víkingur 17. marz Þá hafa einnig verið ákveðnir leik- dagar tveggja leikja í meistarafiokki kvenna. Ármann og FH mætast í Höll- inni 17. marz og Stjarnan og KR leika í Garðabæ á sunnudag kl. 22. Einn leikur fór fram í bikarkeppni mfl. kvenna fyrir luktum dyrum eigi alls fyrir löngu. Víkingur sigraði þá Þór í Réttarholtsskólanum en ekki vitym við tölurnar úr þeim leik. -SSv. Enn f restað íEyjunum Enn varð að fresta leik Þórs og KR i bikarnum er hann átti að fara fram i Eyjum i gærkvöld. Þar var þá versta veður og ekki nokkur möguleiki á að fljúga. KR-ingar munu gera lokatilraun að sinni til að komast til Eyja i dag og ef þeir ná alla leið verður leikið kl. 20. Ef ekki verður að fresta leiknum f tals- verðan tíma þar sem kcppnin um fallið í 1. deildinni hefst einnig í kvöld. -SSv. Þremur liðum færra en f fyrra Ipswich og Wolves tryggðu sér sæti i undanúrslitum enska bikarsins i gær- kvöld er þau lögðu Forest og Middles- brough að velli i aukaleikjum 6. um- feröar. Ipswich átti i hinu mesta basli með Forest, sem lék skinandi vel, og Paul Cooper mátti hafa sig allan við að verja skot frá Francis, Frank Gray, Needham, sem lék i stað Anderson, og Walsh. Ipswich-liðið var afar lengi í gang og greinileg þreyta er nú komin í liðið, sem berst harðri baráttu á þremur víg- stöðvum. Mtlhren og Gates sluppu naumlega í gegnum læknisskoðun fyrir leikinn. Eftir hlé tók Ipswich-liðið loks al- mennilega við sér og á 67. mínútu skor- aði Arnold MUhren markið, sem reynd- ist vera sigurmark leiksins. Mick Mills hóf sóknina, renndi upp kantinn til Frans Thijssen, sem gaf fyrir markið. Þar kom Paul Mariner aðvífandi og Kogler vann stökksigur Armin Kogler frá Austurríki vann sigur i heimsbikarskeppninni i skíða- stökki í Falun i Sviþjóð og tók um leið forystu i keppninni um heimsbikarinn. Norðmaðurinn Roger Ruud var fyrstur fyrir keppnina f gær, en varö ekki á meðal þriggja efstu og tapaði af efsta sætinu. Kogler fékk 263,1 stig fyrir stökk sin, Kanadamaðurinn Horst Bulau 250,2 og Norsarinn John Sætre 250,1. Forest haft tögl og hagldir. Ipswich mætir Everton eða Manchester City í undanúrslitunum. í hinum aukaleiknum sigruðu Úlf- arnir Middlesbrough 3-1 eftir fram- lengdan leik. Það var Mel Eves sem kom Úlfunum yfir strax á 12. minútu og þannig stóð fram til 72. mínútu að David Hodgson jafnaði metin. Fram- lengja þurfti því leikinn og þá skoruðu Úlfamir tvívegis án svars. Fyrst John Richards á 95. mínútu og síðan Norman Bell á 110. mínútu. Úlfarnir mæta Tottenham í undanúrsbtunum en Lundúnaliðið er nú efst á blaði hjá öll- um veðmöngurum í Englandi. -SSv. Dan Halldors- soná US masters Dan Halldorsson, kanadíski kylf- ingurinn sem á rætur að rekja að Fróni, verður meðal keppenda á hinu geysi- sterka bandaríska golfmóti US Masters, sem fram fer dagana 9.—12. april næstkomandi. Að þessu sinni fer mótið fram i Augusta f Georgiu-fylki. Er þetta i fyrsta skiptið sem Dan keppir á móti þessu og er hann einn fjögurra nýliða. Spánverjinn Sevrino BaUesteros er einn 11 útlendinga sem þátt tekur í keppninni, en hann sigraði í fyrra og varð þar með yngsti sigurvegari keppn- innar frá upphafi, 23 ára. Aukakeppnin um annað fallsæti 1. deildar hefst íkvöld: skallaöi niður til Múhren, sem sendi knöttinn í netið — hans 7. mark á keppnistímabiiinu. Skömmu síðar varð Alan Brazil að vikja af velU vegna meiðsla og hinn ungi Kevin O’Callag- han kom í hans stað. Eftir markið sótti Ipswich í sig veðrið og tvívegis mátti Peter Shilton hafa sig allan við til að forðast mark. Sigur Ipswich var því öruggur i lokin þótt framan af hafi Framarar Axelslausir Úr leik f bandarisku knattspyrnunni. Þama er leikið á gervigrasi og það eru þeir Julio Cesar Romero úr Cosmos (t.v.) og Tim Clark úr Minnesota Kicks sem kljást um knöttinn. —þegar bandaríska knattspyrnutímabilið hefst. Þrjú lið til viðbótar hafa skipt um naf n og eigendur Undanfarin ár hafa áugu manna i auknum mæli beinzt að bandarisku knattspyrnunni. Mikill fjöldi þekktra leikmanna frá Evrópu hefur látiö freistast af gylliboðum þeirra Banda- rfkjamanna og margir hafa endað feril sinn í sólinni og dollurunum þar vestra. Nú eru aðeins rétt rúmar tvær vikur i að keppnistímabiUð hefjist í Bandarikj- unum og deildin verður þremur félögum fátækari en í fyrra. Að auki hafa þrjú félög tekið allt sitt hafurtask og flutzt til annarra staöa og leika undir nýjum nöfnum. Þau sem gáfu upp öndina eru Washington Diplomats, Houston Hurricane og Rochester Lancers. Það aö Washington' hætti vakti verulega athygli því ekkert félaganna í NASL (North American Soccer League) gat státað af eins ríkulegri áhorfendaaukn- ingu og Diplómatarnir. Meöal- áhorfendafjöldi á leikjum þeirra var 19.205 á siöasta keppnistímabili en var 11.907 árið áður. Þegar farið er yfir aðsókn að leikjun- um í Bandarikjunum kemur berlega í ljós að New York Cosmos „trekkir” langbezt allra Uöanna. Meðaltal á heimaleikjum liðsins i fyrra var 42.804. Næst kom Tampa Bay Rowdies með 28.345, þá Vancouver Whitcaps með 26.833, Seattle Sounders með 24.247. önnur félög náðu ekki yfir 20.000 manns að meðaltali á heimaleiki sína. Af félögunum 24 í deildinni i fyrra, voru aðeins 11, sem gátu sýnt fram á áhorfendaaukningu. Það dugði þó til þess að lyfta meöaltali ársins í fyrra upp fyrir árið þar á undan. í fyrra voru áhorfendur á leiki NASL að meðaltali 14.427 en voru árið áður 14.1%. Þetta er í raun ekki svo slæm útkoma ef tekið er tillit til þess hversu takmörk- uðum rótum knattspyrnan hefur náð að skjóta á þeim tæpum áratug, sem hún hefur verið stunduð af einhverjum krafti í Bandaríkjunum. Þó svo sums staðar sé áhorfenda- fjöldinn vel viðunandi á Evrópumæli- kvarða er ekki laust við að tómarúms- andrúmsloft riki á völlum eins og t.d. hjá Los Angeles Aztecs. Leikvangur þeirra hýsir 105.000 manns en meðaltal áhorfenda þar í fyrra var ekki nema 12.057 og hafði minnkað um tæp tvö þúsund frá árinu áður. Tvö félaganna frá í fyrra hafa verið seld með húð og hári, ef svo má að orði komast. Philadelphia Fury var selt til Montreal og mun keppa undir nafninu Montreal Manic á þessu keppnistíma- bili. Þá var lið Memphis Rouges selt til Calgary, sem er sögufræg borg, með svipuðum íbúafjölda og Edmonton (500.000 manns). Eigendur New Eng- land Tea Men-liðsins seldu þó ekki sitt hafurtask en fluttu allt dótið til Jack- sonville í Flórída í von um betri tíð og blóm í haga. Jóhannes Eðvaldsson og félagar hans i Tulsa Roughnecks fengu að meðaltali rétt tæplega 20.000 manns á leiki sína i fyrra, þrátt fyrir afleitt gengi síðari hluta keppnistímabilsins. Búbbi og Uð hans er eitt 11 Uða, sem leika á venjulegum grasvöllum, en 10 Uð leika á gervigrasi. Greinilegt að gervigrasið hefur ekki einu sinni vinninginn í „heimalandi” sínu. -SSv. Árnold Miihren skoraði sigurmark Ipswich gegn Forest I gærkvöld. gegn Haukum í kvöld — KR-ingar án Alf reðs gegn Fram á föstudag ef ekki verður flogið til Eyja ídag Keppnin um annað fallsætið I 1. deildinni i handknattleik hefst i kvöld kl. 20 er Fram og Haukar mætast i Laugardalshöllinni. Framarar verða, sem kunnugt er, án Axels Axelssonar, sem gengið hefur til iiðs við Griin Weiss Dankersen á nýjan ieik og vafa- lítið munar um minna fyrir þá. Eftir því sem DB hefur komizt næst hafa öll liðin þrjú, KR, Fram og Haukar, æft mjög stíft allt frá þvi landsliðið hélt til Frakklands og aðeins einn leikmaður úr þessum þremur félögum var úti með landsUðinu, Atli Hilmarsson. Það má því gera ráð fýrir að viðureignir félaganna verði hníf- jafnar eins og raunin varð á í vetur. Framarar unnu báða leikina gegn Haukum, fyrst 20-17 og síðan 21-20 í æsispennandi leik í Hafnarfirði. Framarar unnu síðari leik sinn gegn KR 26-25, en töpuðu þeim fyrri 26-30. Haukar unnu hins vegar báða leiki sína gegn KR, fyrst 22-20 í Hafnarfirði og síðan 18-17 i Höllinni. Af þessu má sjá að liðin eru ákaflega áþekk að getu. HSÍ hefur raðað leikj- um félaganna niður semhérsegir: Fram—Haukar i kvöld Fram—KR 13.marzkl. 19 Haukar—KR 18.marzkl.20 Haukar—Fram 20. marz kl. 20 KR—Fram 24.marzkl.20 KR—Haukar * 27. marzkl. 20 Alfreð Gíslason hlaut fyrir nokkru eins leiks bann og KR-ingar ætluðu sér að láta hann taka það út i bikarnum gegn Eyja-Þór. Leik KR og Þórs hefur verið tvífrestað til þessa og ætlunin er að gera lokatilraunina að sinni í kvöld. Takist ekki að koma leiknum á í kvöld leikur Alfreð ekki með KR gegn Fram á föstudagskvöld. Hvert stig er dýrmætt í þessari fallbaráttu og því munu KR- ingar vafalitið reyna allt hvað þeir geta tilaðkomasttilEyjaídag. -SSv.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.