Dagblaðið - 11.03.1981, Blaðsíða 18
18
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 11. MARZ 1981.
/*
Veðrið
Gert er ráð fyrír heldur batnandi
veðri alls staðar á landinu. Hœg aust-
anátt vorður vfðast hvar, þó verður
enn nokkuð hvasst nyrzt á landinu.
Dálftil rigning vorður um sunnan- og
austanvert landið en úrkomulaust að
mestu fyrir vestan og norðan.
Klukkan 6 í morgun var hœgviöri í
Roykjavik og tveggja stiga hiti,
slydda og tveggja stiga hiti á Gufu-
skálum, snjókoma var á Galtarvita og
hiti við frostmark, á Akureyri slydda
og tveggja stiga hiti, austan 6 vind-
stig voru á Raufarhöfn og hiti við
frostmark, á Dalatanga austan 3 vind-
stig og eins stigs hiti, hœgviðri og
skýjað var á Höfn en fimm stiga hiti
og á Stórhöföa mœldust 8 vindstig,
rigning og 4 stiga hiti.
í ÞórshÖfn ( Fœreyjum var rigning
og 7 stiga hiti, f Kaupmannahöfn
slydda og 0 stig, —4 stig í Osló og
skýjað, —4 stig og lóttskýjað f Stokk-
hólmi, 11 stiga hhi f London, skýjað, f
Hamborg var 11 stiga hiti en rigning,
15 stiga hiti f Parfs en skýjað, heið-
skfrt og 7 stig f Madríd og f New York
var heiöskfrt og 6 stiga hiti.
Björn Þorkelsson, sem lézt 9. febrúar
sl., fæddist 9. maí 1914 að Sveina-
görðum í Grímsey. Foreldrar hans voru
Þorkell Árnason og Hólmfríður
Guðmundsdóttir. Mestan hluta ævi
sinnar stundaði Björn sjó og sjóstörf,
t.d. var hann formaður á mb. Pétri
Jónssyni í átta vertíðir í Sandgerði.
Árið 1948 kvæntist Björn Kristjönu
Þórhallsdóttur og áttu þau 3 syni.
Sigríður Guðmundsdóttir, sem lézt 22.
febrúar sl., fæddist 18. september 1897
i Reykjavík. Foreldrar hennar voru
Guðmundur Stefánsson og Vigdis Vig-
fúsdóttir. Sigríður vann í Kexverk-
smiðjunni Frón lengst af.
Björn Eiriksson flugmaöur lézt i gær,
10. marz, tæplega áttræður að aldri.
Björn lét flugmál snemma til sín taka
og var annar íslendingurinn til að öðl-
ast réttindi til farþegaflugs. Björn var
einn af þeim sem stóð að Flugfélagi
íslands númer tvö sem starfaði á ár-
unum 1928—31 Björn stofnaði málm-
húðunarfyrirtæki í Reykjavík sem
hann rak fram á síðustu ár.
Eftirlifandi eiginkona Björns er
Laufey Gísladóttir.
Rósa Daviðsdóttir lézt 1. marz sl. Hún
var fædd 11. marz 1902, dóttir Davíðs
Jónssonar hreppstjóra á Kroppi.
Rósa var gift Gísla Árnasyni, en
hann lézt 1971, og fluttist hún þá til
Sviþjóðar til einkadóttur þeirra hjóna
sem þar er búsett.
Útför Rósu fer frant í dag i Svíþjóð.
Brynjólfur Önfjörð Steinsson járn-
smiður lézt 1. marz sl. Hann var fædd-
ur á ísafirði 20. janúar 1921, sonur
hjónanna Ólafar Guðmundsdóttur og
Steins Sigurðssonar.
Brynjólfur fluttist til Reykjavíkur
um 1940 og lauk námi sem járnsmiður
1953, hjá Stálsmiðjunni. Hann vann
hjá Stálsmiðjunni fram til 1961, en
stofnsetti ásamt öðrum eigið járn-
iðnaðarfyrirtæki. Þeir félagar ráku
þelta fyrirtæki saman i nokkur ár en
fluttust síðan yfir til Stálvíkur hf. árið
1966. Brynjólfur var trúnaðarmaður
Félags járniðnaðarntanna hjá Stálvík í
14 ár.
Brynjólfur kvæntist eftirlifandi konu
sinni, Huldu Steinþórsdóttur , árið
1946 en þeim varð ekki barna auðið
Brynjólfur verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju i dag klukkan 13.30.
Þóra D. Stephensen lézt á Minni-
Grund 9. marz.
Böðvar Árnason frá Hrauni i Grinda-
vík, Hvassaleiti 20, Reykjavík lézt 7.
marz.
Guðrún Einarsdóttir lézt að Hátúni
10B 10. marz.
Guðrún Lárusdóttir, Lynghaga 8,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni
12. marz kl. 13.30.
Marta Haraldsdóttir, Kleppsvegi 120,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
13. marz kl. 15.
Þorsteinn Brandsson fv. vélstjóri
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
12. marz kl. 15.
Afmæll
Pétur Pétursson Mosgerði 21 Reykja-
vík er 60ára í dag, 11. marz.
Bæjarmálafundur
verður i Alþýðuhúsinu í Hafnarfirði miðvikudaginn
ll.marznk.frákl. 20.30-22.00.
Fundarefni: Skipulagsmál í Hafnarfirði. Framsögu
maður FriðþjófurSigurðsson.
Norðan jökla og sunnan
Þriðjudagsvaktir yfir sjónvarpi
hafa hingað til verið fremur vinsælar
hér á stassjóninni, þá standa menn í
biðröðum og biðja um að fá að fjalla
um útvarp og sjónvarp. Ástæðan er
líkast til sú að á það kvöld veljast
jafnan nokkuð góðir þættir af engil-
saxneskum toga. Gærkvöldið var í
áttina en endaði þó illa fyrir áhorf-
andann.
Gamlar ljósmyndir eru alveg rakið
sjónvarpsefni. í kringum þærerhægt
að fílósófera um þjóðlíf fyrr á tím-
um, myndefnið og sjálfa ljósmynda-
tæknina. Og veitir ekki af hér úti í
Dumbshafi. Breskur þáttur um sögu
ljósmyndunar brást ekki vonum mín-
um. Þar ræddi snarborulegur Skoti
um stríðsljósmyndir og þar kom fram
hve einkennilegur ættbálkur stríðs-
ljósmyndarar eru. Allir telja þeir sig
vera að sýna alheiminum hve voða-
legt stríðið sé, en rómantísera það
endalaust og kompónera með dauða
hermennina til að fá út „góða”
stríðsmynd.
Þessi þáttur hefði einnig átt að
minna okkur á hið mikla og lítt not-
aða magn gamalla ljósmynda sem til
er hér á landi. Jafnvel á verstu niður-
skurðartímum ætti sjónvarpið að
geta notað það efni án óhóflegs
kostnaðar.
Ég hef orðið var við að margir hafa
saknað sakamáiaþátta — lögreglu-
mála og uppljóstrunar af einhverju
tagi, enda er þetta alveg sérlega ró-
andi efni. Francis Durbridge er góð-
vinur sjónvarpssjúkra um allan heim
og vel þekktur hér. Úr læðingi er
alveg sérhannaður Durbridge og
lúmskur þáttur að því leyti, að í hvert
sinn sem eitthvað mikilsvert skeður,
er klippt á. Við verðum t.d. að bíða
fram í næstu viku til að fá á hreint
hvort frú Margaret Randall er flagð
undir fögru skinni eður ei. Ég veit
ekki hvort ég afber þessa spennu í 10
vikur.
Síðast á dagskrá átti þátturinn
Byggðin undir björgum að vera, en
henni var hnikað fyrir Byggðinni
norðan jökla og virkjunarmálum
hennar. Þetta var leiðinlegur þáttur
og allur leikur var þar viðvanings-
legur. Lifi Basilio frændi . . .
- Al
IOGT St. Verðandi nr. 9
Fundur i kvöld, miðvikudag. kl. 20.30. Sig|x>rs
minning.
i/si
Frá Sálarrannsóknar-
félaginu Hafnarfirði
Fundur verður í kvöld. miðvikudaginn II. marz. i
Cióðtcmplarahúsinu og hefst kl. 20.30. Dagskrá:
Erindi dr. phil. Erlcndur Haraldsson. Einsöngur Ing
veldur Hjaltestcd. Upplestur Ester Kláusdóltir.
Kvennadeild Flugbjörgunar-
sveitarinnar
heldur fund miðvikudaginn 11. marz kl. 20.30. Spiluð
vcrður félagsvist. Takið með ykkur gesti.
AA-samtökin
í dag. miðvikudag. verða fundir á vcgum AA
samtakanna sem hér segir: Tjarnargata 5b kl. 12
(opinn). 14. 18 og 21. Grensáskirkja kl. 21. Hallgrims
kirkja kl. 21. Akranes. Suðurgata 102 (93-2540) kl. 21.
Borgarnes Læknamiðstöðin kl. 21. Keflavík Klappar
stigur 7 (92-1800) kl. 21, Neskaupstaður Kaffistofa
Netagerðarinnar kl. 21 og Fáskrúðsfjörður. Félags
heimili kl. 20.30.
í hádeginu á morgun. fimmtudag. verða fundir seni
hér segir: Tjarnargata 5 b kl. 14.
Hörgshlíð
Samkoma í kvöld kl. 8.
KFUK Hafnarfirði
Kvöldvaka í kvöld. miðvikudaginn 11. marz. kl. 8.30 i
húsi félaganna að Hverfisgötu 15. Kristin Múllcr.
formaður KFUK i Reykjavík. og Hclga Magnúsdóttir
kennari tala.
Kristniboðsvikan
Samkoma i kvöld kl. 20.30 i húsi KFUM og K að
Amtmannsstíg 2B. Nokkur orð: ingveldur Einars-
dóttir. Upphaf kristniboðs á Islandi: Jónas Gislason.
Söngur: Æskulýðskór KFUM og K. Ræða: Jónas
Þórisson. Tekið verður á móti gjöfum til kristni-
boðsins. Allir velkomnir.
Farfuglar:
Félagsvist
verður haldin föstudaginn 13. mar/ kl. 20:30 i Far
fuglahcimilinu Laufásvegi 41.
Ráðstefna um ferðaþjónustu
12. marz 1981
Fimmtudaginn 12. niarz mun Félag isl. fcrðaskrifstofa
og Vcrzlunarráð íslands gangasl fyrir ráðstcfnu um
ferðaþjónustu á íslandi. Vcrður ráðstcfnan haldin i
Kristalsal Hólcls Loftlciða. Hefsl hún kl. 12.15 með
léttum hjádcgisvcrði i Vikingasal. þarscm Slcingrimur
Hcrmannsson samgönguráðherra mun flylja ávarp.
Tilgangur ráðstefnunnar er að ræða skilyrði lil
fcrðaþjónustu á Islandi og mögulcika landsins. scm
ferðamannalands. Einnig cr ætlunin að varpa Ijósi á
vaxandi þýðingu ferðaþjónuslu scm alyinnugrcinar
og ræöa hvcrnig mcgi skapa þcssari grcin cðlilcg
vaxtarskilyrði. þannig að mögulcikar landsins á |iessu
sviði fái noliðsin.
ALFA-nefnd á Sauðárkróki
I tilefni af alþjóðlegu ári fatlaðra. ALFA 81. var i
janúar sl. skipuð ALFA nefnd á Sauðárkróki eins og i
fjölmörgum öðrum kaupstöðum.
Verkefni nefndarinnar er m.a. að vinna að
upplýsingamiðlun í héraðinu í saniráði við ALFA
nefnd félagsmálaráðuneytis. Þar aðauki mun ncfndin
vinna ýmis smærri verkefni i sambandi við
aðbúnaðarmál fatlaðra í Sauðárkróksbæ.
I ALFA nefnd Sauðárkróks eiga eftirtalin sæti:
Sigurlina Árnadóttir og Helga Hannesdóttir frá félags-
málaráði. Lára Angantýsdóttir frá Sjálfsbjörgu.
Aðalheiður Arnórsdóttir frá félagsstarfi aldraðra. og
cr hún jafnframt ritari nefndarinnar Formaður ALFA
nefndar Sauðárkróks er Friðrik Á. Brekkan. félags-
málastjóri.
Hf. Skallagrimur
ÁÆTLUN AKRABORGAR
í janúar, febrúar, mars, nóvember og
desember:
Frá Akranesi Frá Reykjavík
Kl. 8,30
— 11,30
— 14,30
— 17,30
Kl. 10,00
— 13,00
— 16,00
— 19,00
I apríl og október verða kvoldferöir a sunnudogum. — í
mai, júní og september veröa kvökíferöir á föstudogum
og sunnudögum. — I júli og ógúst veröa kvöldferðir alla
daga, nema laugardaga.
Kvöldferðir eru fró Akranesi kl. 20,30
og frá Reykjavík kl. 22,00.
Afgreiösla Akranesi simi2275
Skrifstofan Akranesi sími 1095
Afgreiðsla Rviksimi 16050
Símsvari í Rvík simi 16420
Talstoðvarsamband við skipið og algreiðslur á Akranesi og Reykja-
vik FR -bylgja, rás 2. Kallnúmer: Akranes 1192. Akraborg 1193,
Reykjavik 1194.
1. hefti Samvinnunar
1981 er komið út
í þessu fyrsta hefti ársins 1981 er ýmislegt efni. t.d.
svarar Erlendur Einarsson forstjóri spurningum um
helztu atburði siðasta árs. Sigriður Haraldsdóttir
skrifar um neytendamál. Grunnvara á grunnverði.
Hjalti Pálsson framkvæmdastjóri segir frá. Grein i
tilefni af alþjóðaári fatlaðra sem nefnist Tiundi hver
niaður er fatlaður. Minnzt er áttræðisafmælis
Tómasar Guðmundssonar skálds. Einnig eru fastir
þættir i blaðinu, svosem krossgáta. vísnaspjall og sniá
saga. Ritstjóri Samvinnunnar er Gylfi Gröndal.
Upplýsingar vantar um:
Innbrot á
Nesbala42
Brotizt var inn I vinnuskúra við Nes-
bala 42 á Seltjarnarnesi í fyrri viku og
stolið þremur veiðistöngum, flugu-
stöng og tveimur spinnstöngum. Enn-
fremur veiðitösku með alls kyns veiði-
tólum. Þetta er ekki i fyrsta sinn sem
slíkur verknaður er framinn þarna, því
um áramótin var líka brotizt inn í skúr-
ana og stolið kaffivél og verkfæratösku
með smíðaverkfærum. Tjón eigandans
er tilfinnanlegt og hann biður þá sem
hugsanlega vita um afdrif þýfisins að
láta vita. Upplýsingar veitir Guðni
Sigfússon, Bollagörðum 19, sími
23770. -ARH.
Kvennadeild Slysavarna-
félagsins í Reykjavík
Aðalfundur verður haldinn fimmtudaginn 12. mar/
kl. 20 i húsi SVFÍ Grandagarði. Kosið verður i stjörn
og nefndir, ársreikningar verða lagðir fram og lögin
rædd. Skemmtiatriði. kaffi. Konur fjölmennið.
Borgfirðingafélagið
heldurárshátíðsina í Domus Medica laugardaginn 14.
marz kl. 19.30.
Miðasala á sama stað fimmtudag og föstudag kl. 17—
19. Uppl. í sima 86663.
Útivistarferðir
BorgarOörður um næstu hclgi. góð gisting i Brautar-
tungu. sundlaug. gönguferðir, einnig á skiðum.
Fararstjóri Jón 1. Bjarnason. Farseðlar á skrifst.
Útivistar, s. 14606.
Páskaferðir:
Snæfellsnes, gist á Lýsuhóli.
Norður-Svlþjóð, ódýr skiða og skoðunarferð.
GENGIÐ
GENGISSKRÁNING Ferðamanna
NR. 47 - 9. MARZ 1981 gjaldeyrir
Einingkl. 12.00 Kaup Sala Sala
1 Bandarfkjadollar 6,582 6,600 7,260
1 Storlingspund 14,378 14,418 15,860
1 Kanadodollar 5,490 5,505 6,058
1 Dönsk króna 0,9818 0,9845 1,0830
1 Norsk króna 1,2103 1,2136 1,3350
1 Sœnsk króna 1,4112 1,4151 1,5566
1 Finnskt mark 1,6073 1,6117 1,7729
1 Franskur franki 1,3082 1,3118 1,4430
1 Belg.fronki 0,1881 0,1886 0,2075
1 Svissn. franki 3,3668 3,3760 3,7136
1 Hollenzk florina 2,7890 2,7966 3,4763
1 V.-þýzkt mark 3,0835 3,0919 3,4011
1 itölsk Ifra 0,00638 0,00640 0,00704
1 Austurr. Sch. 0,4359 0,4371 0,4808
1 Portug. Escudo 0,1155 0,1158 0,1274
1 Spánskur pesotj 0,0756 0,0758 0,0834
1 Japanskt yen 0,03174 0,03183 0,03501
1 IrsktDund 11,300 11,331 12,641
SDR (sórstök dróttarróttindi) 8/1 8,0388 8,0615
* Breyting fró sfðustu skráningu. Simsvari vegna gengisskróningar 22190. |