Dagblaðið - 03.04.1981, Qupperneq 1
7
7. ÁRG. — FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1981 — 79. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTl 11,—AÐALSÍMI 27022.
Yfírheyrðurnakinn á trébekk ogreyttíhann einogein spjörá meðan:
Dómsmálaráðuneytið bið-
ur um skýringar frá RLR
- vegna fréttar Helgarpóstsins - „Dæmigerður kjaftaskur,” segir rannsóknarlögreglustjóri ríkisins
„Ætli þetta sé ekki týpískur
kjaftaskur. Það er mikil reisn yfir
kjaftaski íslands. Meira hef ég ekki
um þetta mál að segja,” sagði Hall-
varður Einvarðsson rannsóknar-
lögreglustjóri er blaðamaður DB
innti hann álits á frétt Helgarpóstsins
um aðferðir í yfirheyrslu hjá Rann-
sóknarlögreglu ríkisins.
í frétt Helgarpóstsins segir að við
rannsókn frímerkjamálsins
svonefnda hafi rannsóknarlögreglan
beitt mann einn, qr talinn var tengjast
málinu, miklu harðræði við yfir-
heyrslu. Hafi manninum verið haldið
linnulaust í yfirheyrslu i 13 klukku-
stundir þótt ekki megi halda mönn-
um lengur í yfirheyrslu en 6 klst. í
einu. Einnig hafi maðurinn verið ber-
háttaður við yfirheyrslu og skipað í
sturtu. Hann hafi síðan verið settur
allsnakinn á trébekk og yfirheyrslum
haldið áfram yfir honum og reytt í
hann ein og ein spjör. Að sögn
Helgarpóstsins mun maðurinn hafa
fengið bæði snert af hjarta- og tauga-
áfalli og þurft að fara inn á sjúkrahús
fáeinadagaáeftir.
DB hafði í morgun samband við
þann mann sem þarna á að hafa átt
hlut að máli en hann kvaðst alls ekki
vilja ræða málið. Að sögn Helgar-
póstsins vill maðurinn ekki gera
meðferðina sem hann sætti að fjöl-
miðlamáli en hann hefur í hyggju að
rekja það á öðrum vettvangi.
Hjalti Sóphóníasson hjá dóms-
málaráðuneytinu sagði í samtali við
DB í morgun að ráðuneytið hefði af
þessu tilefni beðið um skýrslu frá
RLR. Hann sagðist þó fyrirfram
þeirrar skoðunar að þetta væri alveg
rakalaust og spurning væri hversu
langt ætti að ganga í að elta ólar við
fleipur blaðanna. „En við ætlum að
sjá, hvort einhver fótur er fyrir
þessu,” sagði Hjalti.
Stundakennararí
Háskólanum búasttil
langvarandi átaka:
Verkfalls-
vakt, verk-
fallssjoður
— allsherjarverkfall
stúdenta
á þridjudaginn
Kjaradeila stundakennara i Há-
skólanum og ríkisvaldsins harönar
stöðugt og er engan bilbug að sjá á
aðilum. í dag tekur til starfa verk-
fallsvakt kennaranna í Félagsstofn-
un, simi 28699. Og í gær stofnuðu
þeir verkfallssjóð til að safna aurum
til hinna mögru daga sem framundan
eru, dragist verkfallið á langinn.
Stundakennarar eiga ekki aðgang að
öðrum verkfallssjóðum af neinu tagi.
Ólafur Jónsson, samningamaður
stundakennara, sagðist í morg-
un vonast til að ráðamenn í fjár-
mála- og menntamálaráðuneytum
færu að „gera upp við sig hvort þeir
vilja semja. Við gerum þá sjálfsögöu
kröfu að þeir viðurkenni rétt samtaka
okkar til að semja um kjör stunda-
kennara.”
Starfsemi t Háskólanum er með
minnsta móti, enda annast stunda-
kennarar yfir 50% kennslunnar.
Stúdentar í mörgum deildarfélögum
hafa lýst fullum stuðningi við baráttu
þeirra. Búizt er við að stúdentar boði
allsherjarverkfatl á þriöjudaginn og
stúdentar í íslenzku, bókmennta-
fræði, málvísindum og dönsku í
heimspekideild hafa samþykkt að
mæta ekki til kennslu hjá fastráðnum
kennurum fyrr en ríkið hefur samið
við stundakennarana.
Itrekað var í morgun reynt að ná
sambandi við Þorstein Geirsson í
fjármálaráðuneytinuog Þröst Ólafs -
son, aðstoðarmann fjármálaráð-
herra, aðaltalsmenn ríkisins i málinu
— en árangurslaust. í kvöld þrefa
Þröstur og Ólafur Jónsson um
stundakcnnarakröfurnar í Frétta-
spcgli sjónvarps.
- ARH
Aukið hemadar-
bröltálanda-
mærum Póllands
— sjá erlendar fréttir
á bls. 8-9
Regnhlífin er þarfaþing helgarinnar
íbúar við sunnan- og vestanvert
landið verða að klæðast rigningar-
galla um helgina ætli þeir sér út fyrir
hússins dyr án þess að blotna. Veður-
stofan spáir að hvassir vindar úr
suðri til vesturs leiki um landið um
helgina og að því fylgi slydda eða
rigning á suðvestanverðu landinu.
íbúar Norður- og Austurlands geta
hins vegar gert sér vonir um skárra
veður. Þar verður að mestu þurrt og
ekki eins hvasst. Landsmönnum til
huggunar skal þess getið að hiti
verður á bilinu 4—7 stig og reyndar
verður bærilegasta veður suðvestan-
lands inn á milli. En er annars
nokkur ástæða til að kvarta undan
rigningu? Hún skolar óhreinu göt-
urnar og virkjunarlónum á hálendi
kvað ekki veita af smávætu.
- KMU / DB-mynd Einar Ólason.
BMEBUWB
Helgardagbók:
Útvarps- og sjónvarps-
dagskránæstuviku
La Bohéme frumsýnd
íÞjóóleikhúsinu
Menningarvaka í
Hafnarfiröi
Bók vikunnar: Gíslarí
444daga
Hljómplata vikunnar:
LögJóns Múla
Árnasonar
Aukþess:
Messurumhelgina
Málverkasýningar
íþróttír
Skemmtistaöir
Matsölustaöir
— ogmargtfleira
— sjá Helgardagbók
DBábls.13,14,15,
16,17,18,19,
og 20