Dagblaðið - 03.04.1981, Side 2
Jóhannes Guflmundsson bifvélavirki:
Mér lízt bara ágætlega á þær. Ég græt
þær ekki.
Spurning
9
Hvað finnst þér um
síðustu verð-
hækkanir á áfengi
og tóbaki?
Linda Bolladóttir húsmóðir: Mér
finnst þærekki ná nokkurri átt.
Guflmundur Guðmundsson bilamálari:
Réttlátar. Mér finnst allt í lagi með
þær.
Hreiðar Stefánsson verkamaður: Mér
finnast þessar hækkanir i lagi.
Björn Arnar skrifstofumaflur: Mér er
nú nokkuö sama.
Hildur Björnsdóttir verzlunarmaður:
Mér stendur alveg á sama um þær.
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1981.
GÍSLi SVAN
EINARSSON
Raddir
lesenda
LANDSFUNDISJÁLFSTÆÐIS-
FLOKKSINS FRESTAÐ ÞAR TIL
STÓRGRIPASLÁTRUN HEFST
—þegar búið er að boða f und í þrið ja skipti verða þeir sem mæta að kjósa
sjálfa sig
Regina Eskifirði skrifar;:
Ég svaf illa í nótt, í gærkvöld
komu fimm blöð af Mogga og fjögur
blöð af DB til mín vegna slæmra
flugsamgangna undanfarna daga.
Ég fletti blöðunum og las þar að
fresta ætti landsfundi Sjálfstæðis-
flokksins til haustsins. Þessi frétt sló
mig illa því um sama leyti byrjar stór-
gripaslátrun hjá sláturhúsum
landsins.
Eftir hverju er Geirsbrotið að
bíða? Ætlar Geir Hallgrímsson enn
að láta Gunnar Thoroddsen for-
sætisráðherra flengja sig í þingsölum
Alþingis eins og Gunnar gerði nýlega
þegar Geir lá svo mikið á að tala utan
dagskrár á Alþingi.
Ég harma hve Geirsarmurinn hag-
ar sér illa. Sýnir getuleysi og
ábyrgðarleysi á öllum sviðum. Af
hverju er landsfundur Sjálfstæðis-
flokksins ekki haldinn þegar sól er
hæst á lofti, en ekki verið að biða
eftir vondu veðri og myrkri?
Þann 21. marz í fyrra dó Herdís
Hermóðsdóttir sem var formaður
Hringið í síma
Sjálfstæðisfélagsins hér pg ^mikill
kvenskörungur á öllum sviðum.
Fyrst í haust var boðað til fundar
til að kjósa stjórn í Sjálfstæðis-
félaginu hér. En of fáir mættu. Aftur
var boðað til fundar, sama sagan
endurtók sig, fimm manns mættu.
í þriðja skiptið var boðað til
fundar, mættu sex og þá var loks
kosin stjórn. Formaður Sigríður
Kristinsdóttir, ritari Ragnheiður
Kristjánsdóttir, gjaldkeri Georg
Halldórsson. Ragnheiður Hlöðvers-
dóttir og Úlfar Sigurðsson voru kosin
í meðstjórn.
Svona er áhugaleysið hér og
svona er þetta sennilega um allt land,
ekki hægt að kjósa stjórn vegna þess
að of fáir mæta á fundum.
Svo þegar búið er að boða fund í
þriðja skiptið, verða þeir sem mæta
að kjósa sjálfa sig.
Hvað er áhugaleysi ef þetta er ekki
áhugaleysi? Vill Geisbrotið í Sjálf-
stæðisflokknum hafa það svona á-
fram?
Sinnuleysi, áhugaleysi og getuleysi
svo ég noti orð Geirs Hallgrímssonar,
þegar hann var að tala um ríkis-
stjórnina nýlega.
Verkin tala svo með því að lands-
fundi var frestað fram á haust.
Gunnar Thoruddsen og Geir
Hallgrimsson á landsfundi Sjálf-
stæðisflokksins ’79.
Skora á þá
að skríða út úr
holum sínum
Menntun fangavarða
— er væntanlegt f rumvarp um menntun
alþingismanna?
Kjósandi hringdi:
Á Alþingi er komið fram, að
menntun fangavarða þurfi að
betrumbæta verulega. Þetta er
vafalaust hið þarfasta mál og sætir
furðu að það skuli ekki fyrr fram
komið. Nú halda sumir að
væntanlegt sé frumvarp um menntun
alþingismanna. Þeim mönnum sem
setja lögin eru nefnilega engin
skilyrði sett um menntun.
í bilaviðskiptum er oftiega iánað og þetta hafa óprúttnir náungar notfært sér.
Víxilviðskipti geta verið vafasöm:
Bæta verður þetta
gat í réttarkerf inu
— víxill ekkert merkilegri pappfr en þeir menn
sem skrifa nöfn sín á hann
Einn reynslunni rikari hringdi:
Ég vil taka undir með Helga
Þórðarsyni sem skrifaði i DB þann
25. marz sl. þar sem hann lýsir
reynslu sinni af viðskiptum við
óprúttna náunga, sem stunda það að
kaupa bíla á víxlum sem reynast svo
vera verðlausir pappírar.
Fólk verður að fara að átta sig á
því að víxill er ekkert merkilegri
pappir en þeir menn sem skrifa nöfn
sínáhann.
Þetta er galli í réttarkerfinu eða
eins og Helgi sagði, það er furðulegt
að engin lög skuli ná yfir svona
menn. Þetta verður að laga og það
fyrr en seinna.
— svo firra megi íslenzka kirkjugesti þeim smán-
aráburði að slíkar verur leynist meðal þeirra
Oþolandi
ésiðúr
klerks
Tvelr samdóma kirkjugestir skrlfa:
Viö höfum lengi staöið í þeirri trú, I
aö altarið væri helgasti staður hvers I
musteris, og þvi bæri aö sýna óbrigö-1
ula viröingu. Þess vegna sárnar
okkur að horfa upp á það ótrúlega i
fyrirbæri, sem lengi hefir blasaö við
sjónum, en viö ekki getað trúað að
fullu fyrr en við nú í fyrri viku sann-
færðumst, þegar þetta átti sér stað í
sjónvarpinu frammi fyrir alþjóð. I
Einn þekktasti orðhákurinn í I
prestastétt landsins — þjónandi
sóknarprestur hér i Reykjavik lét |
sig sem sagt hafa það að liggja upp
viö altarið í idrkju slnni, svona rétt
cins og þegar kjaftatarnirnar voru
teknar á krambúðarborðunum hér i
—»™|a daga. Og þetta hefur verið við-
m siður þessa manns. Okkur
rar langlundargeð safnaðarins.
kki er að sjá á göngulagi viðkom-
i prests, aö fótfúi hrjái hann. Qg
ívo væri ætti hann þá ekki heldur
verða sér úti um sérbyggða stoð
til uppihalds og stuðnings? Fram-
ií hans er óþolandi, að okkar
, því það ber svo augljósan vott
Séra Sig. Haukur Guðjónsson
skrifar:
Inn á síður Dagblaðsins, 26. marz
sl., læðast einhverjar bleyður til
hælabits. Ég skora á yður að hvetja
þetta skuggalið til þess að skríða út
úr holum sínum, svo firra megi
islenzka kirkjugesti þeim smánará-
burði, að slíkar verur leynist meðal
þeirra.
Ég bið yður að hafa agnið
girnilegt, svo að snjáldrin komi í ljós,
og blaði yðar verði forðað frá þeirri
hneisu, að næst noti þeir síður þess
til þess að glefsa til einhvers í hjóla-
stól. Vlst veit ég að árið 1981 er
helgað fötluðum, og allir vilja allt
fyrir þá gera, en samt — samt hljóta
að vera takmörk fyrir þvl, eins og í
öðru, hversu langt ber að ganga.