Dagblaðið - 09.04.1981, Blaðsíða 15

Dagblaðið - 09.04.1981, Blaðsíða 15
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1981 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1981 19 14 [C íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir ]] Frábær frammistaða en naumt tap fyrir Belgunum —Belgar, ein af átta beztu körf uknattieiksþjóðum Evrópu, mörðu 80-78sigur á íslandi „Ég held ég geti fullyrt að ég hafi varla séð islenzkt körfuknattleikslands- lið leika eins vel og i kvöld,” sagði Einar Bollason i samtali við DB eftir að Belgar, sem eru í hópi 8 beztu körfu- knattleiksþjóða Evrópu, höfðu marið sigur á íslendingum, 80—78. Sigur Belganna hékk bókstaflega á bláþræði þvf þegar S sek. voru eftir af leiktiman- um náðu íslendingar knettinum ogj Kiddi Jör. reyndi skot úr horninu. Boltinn skall ofan á körfuhringnum, en Torfi blakaði knettinum upp aftur — en hitti ekki. Jón Sigurðsson var svo með boltann í höndunum er flautanj gall. Leikurinn var framan af hreinlega í' eign íslendinga og kom það Belgunum greinilega í opna skjöldu. Jón Sig. gætti Theo Dilisses, sem valinn var í' Evrópuúrvalið í fyrra, eins og sjá- aldurs auga síns. Belginn skoraði enda ekki nema 8 stig allan leikinn. íslend-j ingar komust í 10—4 mjög fljótlega í fþróttir Stórskellur h já írunum Tveir leikir fóru fram í þeim hluta C- keppninnar í körfuknattleik sem fram' fer í Jersey á Ermarsundinu, í gær-i kvöld. Danir unnu þá Norðmenn 82—; 69 og Austurríkismcnn möluðu íra 91—40. leiknum og þegar staðan var 20—18; tóku strákarnir geysilegan kipp ogj komust í 32-20 um miðjan fyrri hálf- leikinn. Undir lok hans tókst Belgunum aðeins að rétta hlut sinn en staðan í hálfleik var 42—38 íslendingum í vil. Belgarnir náöu fljótlega að jafna metin í s.h. og síðan skiptust liðin á um að hafa forystuna. Munaði ekki nema 1—3 stigum allan tímann. þegar skammt var til leiksloka var staðan jöfn, 70—70, og síðan aftur 74—74, eni þá komust Belgarnir í 78—74. Kiddij Jör. lagaði stöðuna í 76—78, en Belgarj svöruðu um hæl, 80—76. Kiddij skoraði þá aftur með langskoti, 78—80j og þá voru 30 sek. til leiksloka. Belgar misstu síðan knöttinn eins og áður sagði er 5 sek. voru eftir, en það dugði^ því miður ekki. „Liðið lék allt geysilega vei,” sagði Einar, „en ég held ég halli ekki-á neinn þó ég segi að þeir Pétur, Jón Sfg. og Kiddi Jör. hafi borið nokkuð af. Pétur skoraði 30 stig og hirti 16 fráköst. Jón og Kristinn voru stórkostlegir í vörn- inni og gæzla Jóns á Dilisses var hreintj frábær.” Þeir Jón og Kristinn skoruðu 10 stig hvor, en þeir Símon og Torfi voru með 8 hvor. Símon átti einnig afar góðan leik og lenti í því að gæta bakvaröar,! sem var 2,02 m á hæð, og gerði það vel. Meðalhæð belgíska liðsins hefur líkast til verið um 1,98 metrar og aðeins tveir leikmanna náðu ekki þeirri hæð. „Ég held að við getum verið hæst- ánægðir með þessi úrslit og þau gefa. okkur byr undir báða vængi fyrir Evrópukeppnina sem hefst í Sion á sunnudaginn.” Óhætt er að taka undir orð Einars og greinilegt er að körfu- knattleikslandsíiðið hefur skorið upp íj samræmi við sáninguna i vetur. Qeysi- lega mikill og góður undirbúningur og! vonandi tekst strákunum að sýna sínar beztu hliðar í Sviss. - SSv. Evrópukeppni bikarhafa: Tbilisi og CaH Zeiss Jena með góðastöðu —en draumur Feyenoord um að komast í úrslitin er búinn að vera Pctur Pétursson og félagar hans hjá Feyenoord voru hreinlega yfirspilaðir er þeir mættu Dinamo Tbilisi á heima- velli þeirra síðarnefndu í Sovétríkjun- um. Tbilisi sigraði 3—0 og hafði algera yfirburði i leiknum. „Ég sá fyrri hálf- leikinn i sjónvarpinu og Feyenoord átti aldrei möguleika þar,” sagði Karl Þórðarson er við ræddum litillega við hann í gærkvöld. Tbilisi undir frábærri stjórn fram- herjans Kipiani réð lögum og lofum í leiknum strax frá fyrstu mínútu. Vörn Feyenoord hélt þó aftur af sóknar- þunganum framan af en tvívegis munaði ekki nema hársbreidd að skot Tbilisi-leikmanna rötuðu rétta leið. Loks á 23. mín. tókst Sovétmönnunum að skora mark. Eftir fallega fyrirgjöf kastaði Sulakvelidze sér glæsilega fram Yfirburðir hjá Ipswich en aðeins eitt mark —Ipswich vannKöin 1-OíUEFAog AZ’67 stefnirþar íúrslit „Ipswich-liðið virkaði mun betra en Kölnarliðið og hefði átt að vinna stærri sigur,” sagði gamli Arsenal-fyrirliöinn, Frank McLintock, fréttamaður. BBC nú, eftir að Ipswich hafði sigrað Köln 1—0 í fyrri leik liðanna i UEFA-keppn- inni að viðstöddum 24.780 áhorfendum í Ipswich í gærkvöld. Hvort þaö nægir Ipswich, þegar liöin leika á ný í Köln ■ 22. april er önnur saga. Peter Withe skoraði mark Villa. Ipswich var með alla sína beztu menn með á ný og lék skínandi vel í fyrri hálf- leik. Eitt það bezta, sem liðið hefur sýnt á leiktimabilinu. En uppskeran var aðeins eitt mark. Fyrirliðinn Mick Mills lék upp hægri kantinn og gaf langsend- ingu inn í vítateiginn á John Wark, sem skallaði í mark. Það var á 33. mín. og 33ja mark Wark á leiktímabilinu. En þrátt fyrir góða takta Ipswich urðu mörkin ekki fleiri í leiknum. Vörn Kölnar varð sterkari eftir því, sem á leikinn leið. Ipswich tókst ekki að nýta- fjölmargar horn- og aukaspyrnur. Þrisvar munaði þó hársbreidd að Ips- wich skoraði. Köln varð fyrir áfalli á 5. mín. þegar meiðsli tóku sig upp hjá Gerd Strack og hann varð að yfirgefa völlinn. Thomas Kroth kom í stað hans. 12 mín. fyrir leikslok sendi Bobby Robson, stjóri Ipswich, þá Kevin Beattie og Kevin O’Callaghan inn á í stað Steve McCall og Allan Brazil en það breytti litlu.Köln ar-liðið átti sárafá tækifæri í leiknum. Helzt þegar Pierre Litbraski spyrnti á markið en knötturinn fór af varnar- manni í horn. Liðin. Ipswich: Cooper, Mills, McCall (Beattie), Thijssen, Miihren, Wark, Osman, Butcher, Gates, Mari- ner og Brazil (O’Callaghan). Köln: Schumacher, Prestin, Konopka, Strack (Kroth), Gerbert, Cullmann, Littbar- ski, Botteron, Muller, Engels, Wood- cock. Mark Wark var hans 12. í UEFA- keppninni. í hinum leiknum í undanúrslitum UEFA-keppninnar gerðu Sochaux, Frakklandi, og AZ ’67 Alkmaar, Hol- landi, jafntefli 1—1 í Sochaux að við- stöddum 20 þúsund áhorfendum. Arntz skoraði fyrir hollenzka liðið á 14. mín. Genghini; jafnaði á 23. mín. og fleiri urðu mörkin ekki. Alkmaar- liðið ætti nú að hafa alla möguleika á að komast í úrslit. - hsím. og skoraði með skalla fram hjá Joop van der Hiele í markinu, sem gat engum vörnum við komið. Aðeins sjö mínútum síðar lá knötturinn aftur í markinu hjá Feyenoord er Gutsayev komst einn í gegnum vörnina hjá Hol- lendingunum og renndi knettinum inn- anfótar undir Hiele í markinu er hann reyndi að verja. Feyenoord dró sig aftar eftir þetta mark og ætlaði greinilega að koma í veg fyrir að fleiri mörk yrði skoruð. Það tókst þó ekki og á 52. mínútu bætti Tbilisi þriðja markinu við og var þar að verki Sulakvelidze með skalla. Varnarmenn Feyenoord heimtuðu rangstöðu á Rússann en allt kom fyrir ekki. Aðeins kraftaverk getur. nú bjargað Feyenoord í síðari leiknum. Lið Feyenoord var þannig skipað: Hiele, Stafleu, Nielsen, Troost, Budding, Bouwens, Notten, Van Dein- sen, Pétur Pétursson, Vermeulen og Vijnstekers. Áhorfendur voru 80.000 í Tbilisi. í hinum undanúrslitaleiknum sigraði Carl Xeiss Jena Benfica frá Portúgal nokkuð örugglega 2—0 og á gullna möguleika á að komast í úrslitin. Undarlegt þegar haft er í huga að leik- menn Jena máttu hafa sig alla við til að ryðja enska 3. deildarliðinu Newport úr vegi í 8-liða úrslitunum. Ekki voru liðnar nema 8 mínútur af leiknum í Jena er heimaliðið náði for- ystu með marki Bilau eftir sendingu Brauer. Tólf mínútum síðar hafði Jena skorað aftur. Lutz Lindemann sendi þá geysilega langa hásendingu inn að víta- teig Benfica. Þar stökk Raab upp og skallaði yfir Bento, markvörð Portú- galanna, sem kominn var of langt út úr markinu. í lið Car Zeiss Jena vantaði fjóra lykilmenn og kom sigurinn því verulega á óvart og það verður erfitt fyrir Benfica að vinna þennan mun upp. Jón Sigurðsson átti frábæran leik I vörninni og gætti bezta manns Belga af snilld. Glæsilegt nýtt íslandsmet í kúluvarpi kvenna: „Sannkallaður KR-kraftur í Guðrúnu að undanfömu” —sagði Valbjöm Þorláksson eftir afrekið Guðrún Ingólfsdóttir, KR, setti i gærkvöld nýtt glæsilegt íslandsmet í kúluvarpi innanhúss er hún varpaði leðurkúlunni hvorki meira né minna en 14,07 metra og bætti þar með eigið met um 55 cm. Guðrún hefur æft geysivel að undan,- förnu undir leiðsögn Hreins Halldórs- sonar, einkum og sér í lagi, og árangur- inn hefur ekki látið á sér standa. ,’,Við gerum okkur jafnvel vonir um að hún nái að kasta hátt á 15. metrann áður en útimótin fara að byrja,” sagði Val- björn Þorláksson í gærkvöld. „Það hefur verið sannkallaður KR-kraftur í Guðrúnu að undanförnu og við getum vænzt stórra afreka hjá henni á næstu mánuðum, ” bætti hann við. - SSv. Möguleikar La Louviere úr sögunni „Við fengum Ijótan skell í hausinn og töpuðum 0—3 hér á heimavelli,” sagði Karl Þórðarson, er við spjöll- ■ uðum við hann í gærkvöld. La Louviere lék um sl. helgi við efsta lið 2. deildarinnar, Tongeren, og átti aldrei möguleika. „Þeir voru miklu betri en | jvið,” sagði Karl. Þar með eru Imöguleikar la Louviere um að komast i 1. deildina endanlega úr sögunni. - SSv. Guðrún Ingólfsdóttir. Evrópukeppni meistaraliða: Bayem Munchen með pálmann í höndunum —eftir jafntef li íLiverpool ígær. Real Madrid vann Inter 2-0 í Madrid íEvrópubikamum „Bayern-liðið er mjög sterkt lið og lék agaða knattspyrnu. Mikið öryggi i varnarleiknum. Það kom mér ekki á óvart þó Liverpool, án nokkurra lykil- „Handboltamaður ársins” á meðal leikmanna Virum —danska 2. deildarliðið kemur hingað til lands í boði Haiiianna í dag kemur danska 2. deildarliðið Virum SH til landsins i boði Hauka i Hafnarfirði. Virum var í miðjum marz- mánuði i 2. sæti 2. deildarinnar og átti gullna möguleika á að koamst f 1. deildina, en vegna prentaraverkfalls í Danmörku að undanförnu höfum við ekki fengið neinar nánari upplýsingar um gengi liðsins söku dagblaðaleysis. Virum er 40 ára gamalt félag og hefur aðeins einu sinni leikið í 1. deild, Undanúrslitin íkvöld Undanúrslitin í bikarkeppni HSÍ verða i Laugardalshöllinni i kvöld kl. 20. Leika þá annars vegar Vikingur og Fram og hins vegar Þróttur og HK. Flestir munu veðja á Víking og Þrótt í þessum viðureignum en ekki er að vita nema Fram og HK veiti þeim harða keppni. HK-liðið er i vigahug eftir sigur i 2. deild ofan á bikarsigra gegn Haukum og KR fyrír skemmstu. keppnistímabilið 1974—1975. Dvölin í 1. deildinni virtist hafa siæm áhrif á féiagið, sem féll síðar niður í 3. deild. Á siðasta ári náði það hins vegar að vinna sig á ný upp í 2. deild og er sem stendur i toppbaráttunni þar. Liðið er skipað ungum leikmönum, en fremstan þeirra má hiklaust telja Hans Henrik Hatte- sen. „Hatte” eins og hann er kallaður hefur leikið 32 landsleiki fyrir Dani á sl. 15 mánuðum og var í fyrra út- nefndur handknattleiksmaður ársins í Danmörku. Þjálfari liðsins er Erik Jacobsen sem áður hefur m.a. þjálfað Helsingör IF Sv með góðum árangri. Síðast þegar hann þjálfaði Virum var það árið sem félagið vann sig upp í 1. deildina. „Jacob”, eins og hann er nefndur, er góðkunn- ingi margra Haukanna þar sem góð samskipti hafa verið á milli Hauka og Helsingör í mörg ár. Danirnir koma hingað til landsins í dag eins og fyrr sagði og í kvöld leika þeir vináttuleik við Haukana í íþrótta- húsinu í Hafnarfirði kl. 20. Á morgun veðrur leikmönnum félagsins síðan haldið hóf í Skiphóli og á laugardag liggur leið þeirra til Akureyrar. Þar verður leikið við KA kl. 14 á laugardag og síðan við Þór á sama tíma á sunnu- dag. Að þeim leik loknum halda leik- menn Virum til Seyðisfjarðar sem er vinabær Lyngby-Taárbæk en félagið kemur þaðan. Heimsókninni lýkur svo á mánudag með leik gestanna við FH í íþróttahúsinu i Hafnarfirði kl. 20. SSv manna, tækist ekki að sigra það,” sagði Dennis Law hjá BBC eftir að Liverpool og Bayern Munchen höfðu gert jafntefli 0—0 á Anfield í gær- kvöld. Það var fyrrí leikur liðanna í Evrópubikarnum og þýzka liðið ætti nú að hafa góða möguleika á að komast i úrslit. Liverpool sótti þó miklu meira í leiknum og það var fyrst og fremst frá- bær markvarzla Walter Junghans, varamarkvarðar Bayem, sem kom í veg fyrir sigur enska liðsins. Hann kom i markið á síðustu stundu í stað Manfred Muller, sem gat ekki leikið vegna meiðsla. Strax á fjórðu mín. varði hann frábærlega hörkuskot Kenny Dalglish af 25 metra færi og á 22. mín. hafði hann heppnina með sér, þegar Dalglish átti skot á markið af stuttu færi eftir snjallan samleik við Phil Thompson og Ray Kennedy. Junghans varð raun- verulega fyrir knettinum frekar en að verja af eigin getu. Eftir því, sem á leikinn leið náði Bayern betri tökum á leiknum án þess þó að ógna marki Liverpool verulega. Þó komst Karl-Heinz, knattspyrnu- maður ársins 1980, einn í gegn í síðari hálfleik eftir að hafa leikið auðveldlega á Alan Hansen. Ray Clemence varði ihins vegar snilldarlega frá honum og Rummenigge hristi höfuðið eins og hann tryði ekki sínum eigin augum. „Liverpool er með allt of marga menn i sókninni, þetta gengur ekki,” sagði Peter Jones, sem lýsti leiknum — Mistök Batson færðu Villa sigur — Liðið nú þremur stigum á undan Ipswich. Allan Evans í tveggja leikja bann Hroðaleg mistök litla svarta bak- varðarins, Brendan Batson, tveimur minútum fyrir leikslok' í leik Aston Villa og WBA í gærkvöld, færðu Villa bæði stigin í þessum þýðingarmikla leik. Batson, aleinn með knöttinn á 88. mfn. og enginn mótherji nálægt honum, ætlaði að senda knöttinn aftur til markvarðar sins, Tony Godden. Spyrnan var hins vegar allt of laus. Miðhcrjinn stóri og sterki, Petcr Withe, náði knettinum og lyfti honum yfir Godden f markið, þegar mark- vörðurinn hljóp út gegn honum.17. mark Withe á leiktímabilinu. Þetta var eina markið í afar slökum leik á Villa Park í Birmingham að við- stöddum 47.998 áhorfendum. West Bromwich útborg Birmingham. Leik- urinn átti að vera nk. laugardag en var færður fram vegna leiks Ipswich og Man. City í undanúrslitum, sem verður á Villa Park á laugardag. _ Áhorfendur bjuggust við miklu af þessum liðum, sem eru í 1. og 3. sæti í 1. deildinni ensku og því urðu von- brigði mikil með þá knattspyrnu sem . liðin sýndu. Mikið um hlaup en lítil kaup. Hvorugt liðið verðskuldaði að hljóta sigur að áliti fréttamanns BBC. Fyrir utan mark Withe átti Villa aðeins eitt skot á mark WBA, sem hægt var að nefna því nafni. Dennis Mortimer á 85. mín. WBA var lítið betra. Peter Barnes fór illa með gott færi. Spyrnti yfir þver- slá. Eftir þessi úrslit er Aston Villa þremur stigum á undan Ipswich með 55 stig en hefur leikið einum leik meira eða 37. Miðvörðurinn sterki, Allan Evans, hjá Villa var í gær dæmdur í tveggja leikja bann. Missir því leikinn þýðingarmikla við Ipswich á Villa Park á þriðjudag og einnig leikinn við Nott- ingham Forest laugardaginn 18. apríl. Leikurinn á þriðjudag kemur senniiega til að ráða úrslitum og vissulega eru möguleikar Aston Villa að verða Eng- landsmeistari í fyrsta sinn frá 1910 góðir. Villa hefur sex sinnum orðið Englandsmeistari. Úrslit í ensku deildakeppninni í gæi og fyrrakvöld urðu þessi: 3. deild Barnsley — Coichester 3—0 Chesterfield — Swindon 2—2 Gillingham — Burnley 0—0 Huddersfield — Chester 5—0 Hull — Fulham 0—1 Newport — Walsall 1—1 Sheff. Utd. — Chester 2—0 4. deild Torquay — York City 1 —2 - hsím. Virum-liðið, sem kemur til landsins síðar i dag f boði Hauka i Hafnarfirði, leikur fjóra leiki hér á 5 dögum. allt of mikil örtröð við og í vítateig Bayern. Þjóðverjarnir vörðust léttilega og þegar þeir fengu knöttinn „róuðu þeir spilið niður. Einkum þó Paul Breitner. Undir lokin hljóp greinilega örvænting í leik Liverpool-liðsins. Langskot reynd án árangurs og 44.543 áhorfendur voru allt annað en ánægðir. Þá öskruðu þeir heldur betur \íl tékkneska dómarann, þegar Dalglish féll innan vítateigs. Ekkert dæmt og Dennis Law treysti sér ekki til að dæma um hvort um vítaspyrnu var að ræða. Bayern hefur nú góða möguleika á að komast í úrslit Evrópubikarsins í París 27. maí. Liverpool hlýtur að hafa áhyggjur af því hve Rummenigge lék sér að Hansen. Þá var Bayern óheppið í 'leiknum á 36. mín. þegar Kurt Nieder- mayer átti hörkuskot í þverslá. Liver- pool var án Graeme Souness þó reiknað hefði verið með í gær að hann mundi leika. Löppin hélt ekki í upphit- un fyrir ieikinn. David Johnson var heldur ekki með og Ian Rush gat engan veginn ráðið við stöðu hans. Terry McDermott meiddist fljótlega og yfir- gaf völlinn rétt fyrir hálfleik. Steve Heighway kom í hans stað. Liðin voru annars þannig skipuð: Liverpool: Clemence, Neal, Alan Kennedy, Thompson, Hansen, Ray Kennedy, McDermott (Heighway), Case, Lee, ‘Dalglish og Rush. Bayern: Junghans, Dremmler, Horsmann, Weiner, |Augenthaler, Kraus, Dúrnberger, Breitner, Hoeness, Niedermayer og Rummenigge. Real Madrid vann í hinum leiknum í undanúrslitum sigraði Real Madrid Inter Milano 2—0 iað viðstöddum 100 þúsund áhorf- endum í Madrid. Santillana skoraði fyrra mark Real á 28. mín. og á 47. |mín. skoraði Juanito það síðara. Fleiri urðu ekki mörkin þrátt fyrir umtals- verða yfirburði spánska liðsins. Það getur þó ekki talið sig öruggt með að komast í úrslit. Fyrir ári sigraði Real Madrid Hamburger SV 2—0 í fyrri leik íliðanna í undanúrslitum í Madrid. ^Tapaði svo 5—1 í Hamborg. - hsím. Benf ica og Porto berjast Það verða gömlu fjendurnir Benfica og FC Porto sem berjast um mcistara- tignina í Portúgal rétt eina ferðina. Eftir 25 leiki hefur Benfica hlotið 44 stig en Porto 41. Næsta lið, Sporting, hefur 31 stig. Um helgina malaði Benfica Marítimo do Funchal 6—0 á sama tima og Porto sigraði Amora á útivelli 3—1. Allir gegn öElum — nýttfyrirkomulag íkeppninni, sem gefur þriðja Evrópusætið íhandboltanum Nú er Ijóst að keppnin um Evrópusætið margum- talaða i handknattleiknum verður ekki háð fyrr en eftir páska. Þróttarar hafa dregið sig til baka og um tíma höfðu Fylkismenn einnig gert það en munu hfa ákveðið að verða með. Fyrirkomulaginu hefur einnig verið breytt og munu allir leika gegn öllum i stað tveggja riðla, sem áður höfðu verið ákveðnir. Verða leiknir þrír leikir á kvöldi — alls sjö leikkvöld ef gert er ráð fyrir að 7 1. deildarlið verði með i slagnum. Félögin hafa frest til kvölds til að tilkynna þátttöku sina endanlega og greiða þátttökugjaldið. í leiðinni má geta þess, úr því á annað borð er verið að ræða um handknattleik og undanúrslita- leikirnir i bikarkeppni 2. flokks karla fara fram um helgina. FH mætir þá KR kl. 15.30 í Firðinum á laugardag og Grótta mætir Fram kl. 20.30 á Nesinu á mánudag. - SSv. Óvænt hjá ísraelum ísraelar komu verulega á óvart í gær er þeir unnu Rúmena 2—1 í vináttulandsieik í kanttspyrnu, sem fram fór í Tel Aviv. Strax á 3. mín. skoraði Sinai (þó ekki eyðimöfkin fræga) en aðeins 2 min. síðar hafði Sando svarað fyrir Rúmena. Sigurmarkið skoraði svo Mizrahi tveimur mín. fyrir leikslok. Úrslitíbikarkeppni kvennanna í nánd Þrir leikir fóru fram i bikarkeppni meistaraflokks kvenna i handknattleik i gærkvöld. Valur sigraði Breiðablik 19—13 að Varmá og í Hafnarfirði sigraði FH Þrótt 32—13 áður en Víkingur lagöi Hauka að velli. Ekki vitum við lokatölur þar því leiknum var ekki lokið um kl. 23.15 i gærkvöld. Staðan var þá 19—12 fyrir Víking og öruggur sigur i höfn. Þá sigraði Fram ÍR 25—15 fyrr í vikunni, en ÍR og Þróttur eru þau lið, sem koma upp í 1. deildina næsta vetur i stað Hauka og Þórs. Fram, FH og Víkingur hafa því tryggt sér sæti í undanúrslitum keppninnar. Fjórða liðið verður ann- aðhvort Valur eða KR, en þau lið mætast kl. 22 á föstudagskvöldið i Höllinni. Vonazt er til að hægt verði að Ijúka undanúrslitunum um helgina en úr- slitaleikurinn verður að bíða fram yfir páska. - SSv. Stefán f ékk gull- spaðann hjá BTI Stefán Konráðsson, Víkingi, tryggði sér í gær- kvöld gullspaðann, sem veittur er fyrir beztan ár- angur (fleta punkta) yfir veturinn. Annað sætið i Víkingsmótinu dugir til að tryggja honum gripinn, sem hann er vel kominn að. Tómas sterkastur á Víkingsmótinu í gær Víkingsmótið í borðtennis fór fram í gær og var keppt í 5 flokkum. í meistaraflokki karla sigraði Tómas Guðjónsson, KR, Stefán Konráðsson, Vík- ingi, í úrslitaleiknum. Leikið var með tvöföldum út- siætti og þegar kom að viðureign þeirra var Tómas með eitt tap — gegn Gunnari Finnbjörnssyni — en Stefán ekkert. Tómas sigraði 17—21, 21—17 og 21—19 og urðu þeir þá að mætast aftur þar sem hvor var með eitt tap. Sigraði Tómas þá aftur eftir hörkuleik 19—21, 21—19 og 21—8. í 2. flokki karla sigraði Agúst Hafsteinsson, KR, Kristin Má Emilsson, KR í úrslitum. í 1. flokki karla sigraði Kristján Jónasson, Víkingi, Jóhannes Hauksson í úrslitum. í mfl. kvenna sigraði Ragn- heiður Sigurðardóttir, UMSB. Önnur varð Ásta Urbancic, Erninum, og þriðja Guðbjörg Stefáns- dóttir, Fram. í 2. flokki kvenna sigraði Sigrún Bjarnadóttir, UMSB. Önnur varð Erna Sigurðar- dóttir, UMSB og þriöja Arna Sif Kærnested, Vik- ingi. - SSv.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.