Dagblaðið - 07.05.1981, Blaðsíða 27

Dagblaðið - 07.05.1981, Blaðsíða 27
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 7. MAl 1981. 27 Sinfóníuhljómsveitin leikur á tónlistarhátfðinni í Wiesbaden i Þýzkalandi 15. mai næstkomandi. SINFÓNÍUTÓNLEIKAR - útvarp kl. 20,30: íslenzkt tónverk og píanókonsert —Sinfóníuhljómsveitin til Wxesbaden ínæstu viku Norski pianóleikarinn Kjell Bække- lund verður einleikari á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar íslands í Háskólabíói i kvöld. Fyrri hluta tón- leikanna verður að venju útvarpað en á efnisskrá hans eru Minni íslands eftir Jón Leifs og Píanókonsert eftir norska tónskáldið Edvard Grieg. Efnisskrá tónleikanna verður sú sama og hljómsveitin leikur á tónlistar- hátíðinni í Wiesbaden i Þýzkalandi 15. maí næstkomandi en þangað hefur hljómsveitinni verið boðið til að halda eina tónleika. Aðalstjórnandi Sinfóníuhljóm- sveitarinnar, Jean-Pierre Jacquillat, stjórnaríkvöld. Einleikarinn, Kjell Bækkelund, er fæddur í Osló árið 1930. Aðeins ftmm ára að aidri byrjaði hann að læra á píanó og átta ára gamall lék hann einieik með Fílharmóníuhljómsveitinni i Osló. Hann hefur ferðast víða um heim til að halda tónleika; um 'flest lönd Evrópu, Norður- og Suður- Ameriku og Austurlönd. Hann hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenn- inga, meðal ánnars var hann kjörinn píanóleikari ársins í London árið 1953. -KMU. Kjell Bækkelund, einleikari á tónlcikun- um í kvöld. FIRMALOSS POS TVERZL UNIN HE/MA VAL Box 39 Kópavogi PÖN TUI\IA RS/MI 44440 FJALLAÐ VÍTT 0G BREITT UM STARFSEMIRAUÐA KROSSINS ★ Næg vítamfn, steinefni og prótein ★ Eitt glas - fullgild næring ★ Utilokar megrunarþreytu ★ Eðlileg leið til megrunar ★ Góður árangur Með Firmaloss getur þú haldið þér grönnum / grannri án gremju. Frimaloss protein plan frá Weider opnar mönnum þægilega leið ti! að ná af sér aukakílóum. Þú býrð þér til brágðgóðan mjólkurhristing með súkkulaði bragði þegar þú hrærir 2 kúfuðum matskeiðum af duftinu í glas af nýmjólk. Drykkurinn er saðsamur og kemur í staðinn fyrir einhverja eða einhverjar af máltiðum dagsins. Firmaloss er skynsamlega gerð fu! fiid „ntáltið" sem bætt er með 12 vita minum, 10 steinefnum og nægjanlegum piuteinum. GRENNINGARDUFTIÐ MEGRUN ÁN MÆÐU Höfuöstöðvar alþjóOaráOs RauOa krossins i Genf í Sviss. taldir munu ýmsir fleiri koma við sögu í Rauði krossinn var stofnaður árið þættinum. 1862 af Henry Dunant. Sá var Sviss- lendingur og hafa samtökin ætíð verið tengd því landi. T.d. er merki Rauða krossins eins og fáni Sviss nema litirnir eru öfugir. Rauði krossinn skiptist í tvo hluta; alþjóðaráð sem eingöngu er skipáð Svisslendingum og alþjóðasamband sem 126 félög i jafn mörgum löndum eiga aðild að. -KMU. Þáttur um hjálparstarf Rauða kross- ins í umsjón Jóns Asgeirssonar, deildarstjóra hjá samtökunum, verður i útvarpinu í kvöld. Er hann gerður í til- efni alþjóðadags Rauða krossins sem er ámorgun. Þátturinn er byggður upp á viðtölum við aðila sem tengjast Rauða krossin- um á einn eða annan hátt. Eggert Ásgeirsson framkvæmdastjóri Rauða krossins ræðir vítt og breitt um sam- tökin, Auður Einarsdóttir segir frá undirbúningi námskeiðs sem haldið er um þessar mundir í Munaðarnesi fyrir einstaklinga sem áhuga hafa á hjálpar- starfi erlendis, Matthea Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur segir frá hjálpar- starfl i Thailandi, Björn Friðfinnssor, Jón Ásgeirsson, deildarstjóri hjá RauOa krossinum, er umsjónarmaOur þáttarins. sem annaðist komu flóttamannanna frá Víetnam í fyrra, fjallar um þann þátt í starfi Rauða krossins, Sigurður Magnússon, fyrrum blaðafulltrúi Loft- leiða, gerir grein fyrir þvi sem Rauði krossinn er að gera í öldrunarmálum hérlendis en hann vinnur að þeim málur.t i hlutastarfi. Ólafur Mbca læknir, stjórnarformaður Rauða krossins.segir frá helztu verkefnum sem framundan eru hjá Rauða krossinum en auk þeirra sem hér hafa veriö upp- f " < HJÁLPARSTARF RAUÐA KROSSINS — útvarp kl. 23,00: s

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.