Dagblaðið - 07.05.1981, Blaðsíða 3

Dagblaðið - 07.05.1981, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 7. MAl 1981. 3 Ekkert kerf i er verra en það fólk sem við það starfar —er fólkið þá orðið að ómannlegum vélum án hæfileika til að hugsa sjálfstætt? P. J. Þórshöfn hringdi: Ég vil taka undir það sem G.S. sagði í bréfi sem birtist á lesendasíðu DB 29. apríl sl. Ég hef svipaða sögu að segja, en þó ekki alveg jafn slæma, ég hef fengið ca ein mánaðarlaun greidd síðan í desember. Ég er hissa, þetta „kerfi” virðist vera mjög ómannúðlegt. Ég hef alltaf staðið i þeirri trú að kerfið geti ekki verið verra en það fólk sem starfar við það. Ef það er rétt, er fólkið þá orðið að ómannlegum vélum án hæfileika til að hugsa sjálfstætt? fyrirvinna sex manna fjölskyldu: Ekki fengiö krónu í laun síöan 1. desember —ogfær ekki á næstunni því skatturinn hiröir allt kaupið Ið htfur hln ðll Uun mln upp I reyna hafa hjálpuhdlur mlnar oa irihluu alpuigltmanna hlýtur að fjðlikyldu minnar, vonast tt til að dnfdtv^amil. tóra ,a t*» dm. að ééua ^ M Kon« min oi *«°* **■>!= <*kar *ra t, hefi nú raiö.Með þaJtUáuun’ hiu OðgurjiðB það «Wild göðra manna huga td þdrra Sia*örtndm*a, acm miIUndinuaíuþarImdrihii Bréfrítarí vill taka undir meö G.S. Skagaströnd sem skrifaði í DB þann 29. apríl sl. SATT-hljómleikar: Nauðsynlegt innlegg f annars dauft tónlistarlíf okkar mörlanda vonandi verður framhald á þessu Garri skrifar: SATT stóðu fyrir miklum hljóm- leikum laugardaginn 18. apríl sl. Þar komu fram ftmm hljómsveitir sem voru hver annarri betri. Sjálfur komst ég þvi miður ekki á hljómleik- ana en hef heyrt að þeir hafi verið fjandi góðir. Vonandi sjá SATT sér fært að standa fyrir fleiri slíkum uppákomum í framtíðinni því svona nokkuð er alveg nauðsynlegt innlegg í annars dauft tónlistarlíf okkar mörlanda. Sigurður Sverrisson blaðamaður Raddir lesenda hjá DB hefur oft skrifað um tónlist í DB og hef ég haft mikla ánægju af lestri greina hans. Vona ég að Sigurður haldi sem lengst áfram að skrifa um tónlist í DB. „Horft af brúnni” hét páska- skemmtiþáttur sjónvarpsins og beið ég eins og fleiri eftir honum með eftirvæntingu en vonbrigðin voru mikil því þátturinn var alveg ferlega lélegur. Einu Ijósu punktarnir í honum voru þeir Ómar Ragnarsson og Guðni Koibeins en þeir stóðu sig mjög vel. Hvenær ætlar sjónvarpið að koma meö almennilegan islenzkan skemmtiþátt? Við eigum fullt af ungum efnilejum skemmtikröftum, hvernig væri að gefa þeim tækifæri? .......... Ekkert mál, ég vinn næstu þeysu á þessum. Ómar Ragnarsson, fréttamaður m.m. DB-mynd Sig. Þorri. Samúel: Ættuðlíkaað birta myndir af fáklæddum karlmönnum Jafnréttissinnaður karlraaður (1586—2335) skrifar: Alveg var mér nóg boðið þegar ég las af gömlum vana afþreyingarrit unga fólksins, Samúel. í þessu siðasta blaði er tylft mynda af berrassa kvenfólki en ein af fáklæddum karlmanni svona rétt til að sýnast. Vita ritstjórar Samúels ekki að kvenfólk er í meirihluta á íslandi? Væri ekki sjálfsagt að birta jafn- margar myndir af fáklæddum karl- mönnum og stúlkum ef birta á slíkar myndir á annað borð? Erlend blöð sem Samúel reynir ef- laust að líkja eftir bera á forsíöu orðin „entertainment for men”. Legg ég til að að þeir geri hið sama hjá Samúel ella breyti þeir sinni stefnu, svo að bæði kynin hafi gaman af. Kjötbúð Suðurvers kynnir eigin fram/eiðs/u límfíífidR tegundir af bjugum: Kindabjúgu, folaldabjúgu, hrossabjúgu. tegundir afkjotfarsi: Nýtt fars, saltkjötsfars, heilsufars |án hvíts hveitis) grófhakkað saltkjötsfars (eins og heimalagað). ham borgarreykt fars (uppskriftir fylgja). Allar tegundir á sama verði. tegundir afsaltkjöti: Lambasaltkjöt, folaldasaltkjöt. saltað hrossakjöt bein laust. saltað nautabrjóst beinlaust. saltaðar lamba siður, saltir grísaskankar. saltaðar lambabringur. tegundir af kjotaleggi: Hangikjöt, rúllupylsa, malakoff. skinka, spægipylsa. nautatunga, skinkupylsa. lifrarkæfa. kindakæfa. Verzhð hjá v/ður- kenndum kjötiðnaðarmönnum Spurning dagsins Hvað f innst þór um kjara- baráttu fóstra? Pálina Björnsdóttir, sjúkrallði: Mér finnst hún eiga fullan rétt á sér. Gerður Kristjánsdóttir, húsmóðir: Þetta er ábyrgðarmikið starf sem fóstr- ur gegna og ég tel aö það eigi aö launa það vel. . Fjóla Rut Rúnarsdóttir, sjúkraliöl: Mér finnst að kjarabarátta fóstra eigi fullan rétt á sér. Saevar Kristjánsson, vélstjóri: Mér fínnst að öli kjarabarátta eigi rétt á sér. Kristin Þórflardóttir, húsmóflir: Mér finnst að hún eigi fullan rétt á sér. Þórir Leifsson, vlnnur hjá Olis: Auðvitað hef ég samúð með kjarabar- áttu þeirra.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.