Dagblaðið - 07.05.1981, Blaðsíða 12

Dagblaðið - 07.05.1981, Blaðsíða 12
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 7. MAÍ1981. HMEBUUUO frfáJst, ahað daghlað Útgefandi: Dagbiaðið hf. Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjóifsson. Ritstjóri: Jónas Kristjánsson. Aðstoðarritstjóri: Haukur Helgason. Fróttastjóri: Ómar Valdimarsson. Skrifstofustjóri ritstjórnar: Jóhannes Reykdal. íþróttir: Hallur Símonarson. Menning: Aðalsteinn Ingólfsson. Aðstoöarfróttastjóri: Jónas Haraldsson. Handrit: Asgrímur Pálsson. Hönnun: Hilmar Karlsson. Blaðamonn: Anna Bjarnason, Atli Rúnar Halldórsson, Atli Steinarsson, Ásgeir Tómasson, Bragi Sig- urðsson, Dóra Stefánsdóttir, Elín Albertsdóttir, Gísli Svan Einarsson, Gunnlaugur A. Jónsson, Inga Huld Hákonardóttir, Kristján Már Unnarsson, Sigurður Sverrisson. Ljósmyndir: Bjarnleifur Bjarnleifsson, Einar Ólason, Ragnar Th. Sigurðsson, Sigurður Porri Sigurðsson og Sveinn Þormóðsson. Skrifstofustjóri: ólafur Eyjólfsson. Gjaldkeri: Þráinn Þorleifsson. Auglýsingastjóri: Már E.M. Halldórs- son. Dreifingarstjóri: Valg^rður H. Sveinsdóttir. Ritstjóm: Siðumúla 12. Afgreiðsla, áskriftadeild, auglýsingar og skrifstofur: Þverholti 11. Aðalsími blaðsins er 27022 (10 linur). Lokið stuttrí ævi írski skæruliðinn og brezki þing- maðurinn Bobby Sands er látinn í Maze-fangelsi eftir 66 daga hungur- verkfall. Hann var 27 ára og hafði verið næstum samfleytt í fangelsi frá 19 ára aldri fyrir aðild að vopnuðum að- gerðum skæruliða. Hin stutta ævisaga Sands er dæmigerð fyrir hinn óleysanlega norður-írska vanda, að fjölmenn miðstétt mótmælendatrúarmanna og fámennari undirstétt kaþólskra manna standa andspænis hvor annarri, gráar fyrir járnum. Kaþólsk fjölskylda Sands hraktist úr hverfi mótmæl- enda, þegar ruslatunnu var varpað inn um gluggann að næturlagi og skotið að húsinu. Slíkt hafa margar fjöl- skyldur mátt reyna, beggja vegna trúarmúrsins. Sands hraktist svo sjálfur úr vinnu í strætisvagna- verksmiðju, þegar honum var hótað lífláti, ef hann hefði sig ekki á brott. 1 sumum stéttum og fyrirtækj- um Norður-írlands sitja nefnilega eingöngu mótmæl- endatrúarmenn að vinnu. Þannig varð Sands félagi í írska lýðveldishernum og gerðist skæruliði. Fyrst var hann dæmdur árið 1973 í fimm ára fangelsi fyrir aðild að tveimur vopnuðum ránum og síðan árið 1976 í fjórtán ára fangelsi fyrir vopnaburð og átök við öryggissveitir. Sands er þrettándi írinn, sem lætur lífið af völdum hungurverkfalls í fangelsi á þessari öld. í þetta sinn, alveg eins og í fyrsta sinn, lá að baki krafan um með- höndlun eins og á pólitískum stríðsfanga, en ekki venjulegum glæpamanni. Frá íslandi séð er einkar erfitt að meta, hvað sé glæpur, hvað sé pólitík og hvað sé stríð á Norður- Irlandi. Hitt er ljóst, að enginn maður sveltir sig til bana án þess að meina það, sem hann segir. Meðan Sands var í hungurverkfalli var hann kosinn á brezka þingið i aukakosningum í Fermanagh og Suður Tyrone, þar sem kaþólskir menn eru í naumum meirihluta. Hann sópaði til sín svo að segja öllum kaþólskum atkvæðum. Eftir þessa kosningu er ekki lengur hægt að halda því fram, að umdeildar baráttuaðferðir írska lýðveldis- hersins njóti lítils stuðnings hjá kaþólskum almenn- ingi. Sands hefur sameinað hann undir merkjum skæruliða. Margir lögðu hart að sér við að leita málamiðlunar, allt frá Mannréttindaráði Evrópu yfir í Jóhannes Pál páfa. Allt kom fyrir ekki og Sands dó sem venjulegur glæpamaður, mest fyrir þrjózku Thatcher forsætisráð- herra. Að vísu nýtur járnfrúin stuðnings stjórnarandstöð- unnar í þessu máli. Eftir lát Sands sagði Michael Foot, formaður Verkamannaflokksins, að Bretar mundu aldrei samþykkja, að skæruliðar íra fengju sömu með- ferð og pólitískir fangar. Ýmis sjónarmið geta verið gild í máli þessu. En upp úr stendur þó, að Breti r fafa gert sig seka um hrika- leg, söguleg mistök. Kaþóiskir menn á Norður-írlandi styðja nú eindregið samtök skæruliða, sem hafa boðað grimmilegar hefndir. Miklir fjármunir streyma nú til skæruliða frá írskættuðu fólki í Bandaríkjunum, sem er bæði fjöl- mennt og valdamikið. Hinn írskættaði Reagan forseti segir kannski ekki margt, en þingið i New Jersey sam- þykkti stuðning við Sands. Hinn gífurlegi viljastyrkur írska skæruliðans og brezka þingmannsins Bobby Sands hefur i bili espað andstæðurnar og fjarlægt hugsanlegar lausnir. Þangað til menn byrja að reyna að skilja. byggjum í VATNSMÝRINNI og fljúgum frá Keflavík Um þessar mundir fer fram próf- mál á það hvort nýjar og góðar hug- myndir sem settar eru fram í þjóðfélagi okkar- skuli ætið vera ofurseldar tregðulögmálinu sem lætur okkur stöðugt hjakka í sama farinu jafnvel þó sýna megi fram á að breytingarnar séu til hins betra. Próf- máliö snýst um það hvort ráðamenn borgar og þjóðar séu menn til að krefjast breytinga og framkvæma þær. Breytinga á borð við þær að Reykjavíkurflugvöllur verði lagður niður og landsvæðið notað til bygg- ingar og hvort hægt sé að fá sveitar- félögin á höfuðborgarsvæðinu til að sameinast. Það er blóðugt fyrir Reykvíkinga að horfa upp á borgina þenja sig yfir margfalt landsvæði á við það sem milljónaborgir erlendis standa á. Ein leið til að sporna við þessu er sú þétting byggðar” sem nú er haftn. Auk þeirra svæða sem nú er rætt um að byggja á, þyrfti þéttingin að ná til skipulagningar á byggð á núverandi flugvallarstæði í Vatnsmýrinni. Borgarskipulag Reykjavíkur hefur nú þegar gert úttekt á peningalegum sparnaði sem í þvi er fólginn að byggja i Vatnsmýrinni, en flytja flug- völlinn á brott. Það eitt sér ætti að nægja til að ráðist verði í byggingar á svæðinu. En ekki er síður um vert það tækifæri er hér gefst til upplífg- unar á borgarlífinu í Reykjavík. Hluti Vatnsmýrarinnar gæti orðið framhald af hinum gamla miðbæ Reykjavíkur, skipulagt með það fyrir augum hvernig sem mest mætti gæða þann staö lífi, jafnt daga sem nætur. Hljómskálagarðurinn væri vel kominn að sneið úr mýrinni og síðast en ekki síst, þá mætti e.t.v. hanna byggingarnar er stæðu næst Fossvogi með tilliti til til þess að þær drægju úr vindstrekking í gegnum miðbæinn og gerði þar með Hljóm- skálagarðinn íveruhæfan sumarsem haust. Landspítalinn og Háskólinn fengju sinn skerf mýrarinnar til áframhaldandi þenslu þeirra bákna og ef vel tækist til með íbúðabyggð á r svæðinu ættu þeir íbúar stutt að fara í öskjuhlíð og njóta útiveru þar. Sameining sveitarfólaga Á meðan að byggt væri í Vatns- mýrinni væri a.m.k. um stundarsakir komist hjáað byggðin þenjist langt út frá núverandi borgarkjarna. Til að draga megi úr þeim órafjarlægðum sem eru að verða milii byggðar á höfuðborgarsvæðinu væri auðvitað eðliiegast að ReykjavUc, Seltjarnar- nes, Hafnarfjörður, Kópavogur, Garðabær og Álftanes kæmu sér saman um sameiginlegt heildarskipu- lag. í því heildarskipulagi væri vel hugsanlegt að ekki yrði meira byggt innan núverandi marka Reykjavíkur- borgar, heldur að öll sveitarfélögin á Reykjavikursvæðinu kæmu sér saman um aukna byggð er stytti vega- lengdirnar innan höfuðborgarsvæðis- ins. En það mundi likast til þýða að i framtíðinni yrði mest byggt i Kópa- vogi, Garðabæ, Hafnarfirði og á Álftanesi. Raunhæf stefna f skipastólsmálum í stað yf irklórs og undansláttar Stærð skipastólsins og innflutn- ingur á togurum hefur verið mjög til umræðu að undanförnu og æ fleirum áhyggjuefni. Vaxandi skilningur er á nauðsyn þess að móta raunhæfa heildarstefnu í þessum málum. í þessu sambandi er vert að benda á nokkur grundvallaratriði. 1. Einungis með markvissri heildar- stjórn veröur frambúðarafrakstur á auðlindum hafsins tryggður. 2. Hver einstakur útgerðaraðili sækist vitaskuld eftír sem mestu í sinn hlut og hefur m.a. tiihneig- ingu tíl að vilja auka sóknarmátt sinn þótt það verði einungis á kostnað annarra þegar fiskimiðin eru þegar fullnýtt. Þess vegna verða stjómvöld að takmarka heildarsókn og þar með fjárfest- ingu í nýjum skipum. 3. Of stór fiskiskipastóll þýðir aukna skömmtun, minna í hvern hlut og verri afkomu fyrir sjómenn, út- gerð og þjóðina í heild. 4. Það skömmtunarkerfi í fiskveið- um sem nú er beitt, er til marks um það að fiskiskipastóllinn sé of stór, miðað við afrakstursgetu fiskistofnanna. 5. Til þess að takmarka stærð fiski- skipastólsins og draga úr henni er það til ráða að sjá til þess að viðbætur á hverjum tíma verði minni en brottfall úr flotanum. Fjögur stefnumark- andi frumvörp Á fyrstu mánuöum þessa árs lögðum við þingmenn Alþýðuflokks- ins fram fjðgur stefnumarkandi frumvðrp til laga í skipastólsmálefn- um: 1. Frumvarp er flutt um afnám heimildar fyrir ríkisstjórnina til að veita ríkisábyrgð á lánum tíl

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.