Dagblaðið - 07.05.1981, Blaðsíða 15
14
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 7. MAÍ1981.
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 7. MAÍ1981.
15
G
íþróttir
iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
iþróttir
Iþróttir
I
Jóhann Ingi Gunnarsson.
KR vill fá Jóhann Inga!
- „Ég verð áf ram hjá KR ef Jóhann Ingi verður ráðinn,” segir Alf reð Gíslason.
Breiðablik einnig í myndinni hjá landsliðsþjálfaranum fyrrverandi
„Tvö félög hafa haft samband vifl
mig undanfarið, KR og Breiðablik, og
reyndar hafa fleiri félög verið inni i
myndinni,” sagði Jóhann Ingi Gunn-
arsson, fyrrum landsiiðsþjiifari við DB
í gœrkvöld.
B-keppnin í körf u
Úrslit i leikjum i B-keppninni i
körfuknattleik i Tyrklandi i gœr urðu
þessi:
England — Finnland 91—80
Portúgal—Búlgarfa 78—73
Hoiland—Rúmenía 87—84
V-Þýzkaland — Svíþjóð 75—49
Grikldand — Belgia 90—78
Holland — Rúmenia 87—84
Eftir því sem blaðið hefur fregnað
munu KR-ingar mjög hafa leitað
hófanna hjá Jóhanni varðandi þjálfun
liðsins næsta keppnistimabil, en
Hilmar Björnsson er úr sögunni þar
sem hann var ráðinn þjálfari landsliðs-
ins. KR-ingar vildu ekki ráða Hilmar
með þeim skilyrðum að hann tæki
einnig að sér þjálfun landsliðsins.
,,Jú, það er rétt að KR-ingar hafa
haft samband við mig fyrir nokkru, en
enn sem komið er hafa ekki neinar
samningaumræður átt sér stað. Ég er á
fullri ferð í próflestri og þvi mun þetta
ekki koma endanlega í ljós fyrr en eftir helgi. Ég
er einnig með Breiðablik i sigtinu en vil að svo
stöddu ekkert segja af eða á.”
Dagblaðið hafði í gær samband við Alfreð
Gislason og spurði hann álits á því hvort hann
yrði áfram hjá KR. „Verði Jóhann Ingi ráðinn
þjálfari er engin spurning um að ég verð áfram
hjá KR,” sagði Alfreð. Stefán Halldórsson
hefur hins vegar beðið DB að taka það fram að
hann sé alls ekki að yfirgefa Val og ganga til liðs
við KR.
Það er því allt sem bendir 1 þá átt að Jóhann
Ingi taki við KR-liðinu næsta haust en að sögn
heillar Breiðabliks-liðið hann nokkuð. „Þetta er
mjög efnilegt lið og áhuginn mikill hjá forráða-
mönnum félagsins jafnt sem leikmönnum.”
Búast má því við harðri keppni félaganna um
landsliðsþjálfarann fyrrverandi því þar er á
ferðinni maður með mikla reynslu og kann meira
enlítiðfyrirsérifaginu. -SSv.
Preston f éll
Preston Nobby Stiies féll niður i 3.
deild i gær f ensku knattspymunni þrátt
fyrir sigur 1—2 i Derby. Á sama tima
gerðu Cardiff og West Ham jafntefli
0—0 i Wales. Það nægði Cardiff. Liðið
hefur 36 stig eins og Preston en betri
markamun. I 1. deild gerðu Leeds og
WBA jafntefli 0—0.
Reykjavikurmeistarar Fylkis i knatt-
spymu 1981. Efri röð frá vinstri: Lúð-
vik Andreasen, form. knattspyrnu—
deildar, Theodór Guðmundsson, þjálf-
ari, Hörður Antonsson, Grettir Gisla-
son, fyrirliði, Loftur Ólafsson, Ómar
Egilsson, Kristján Steingrímsson,
Bjami Óskarsson, Gunnar Gunnars-
son, Óskar Sigurðsson, og Lárus Lofts-
son, þjálfari. Fremri röð frá vinstri:
Guðmundur Bjarnason, Sigurður
Heigason, Þorkeil Ingimarsson, Ög-
mundur Kristinsson, Hörður Guðjóns-
son, Anton Jakobsson og Ingimundur
Helgason.
DB-mynd Sig. Þorri.
FYLKIR REYKJA-
VÍKURMEISTARI
í FYRSTA SINN!
Árbæjarliðið Fylldr, sem stofnað var fyrir 14
árum, vann sinn fyrsta stórsigur i gær, þegar lið
félagsins varð Reykjavikurmeistari i knattspyrnu
1981. Sigraði Ármann 3—1 og mörkin þrjú gáfu
Árbæingum aukastigið þýðingarmikla, sem
þýddi sigur f mótinu. Mjög óvænt úrslit. Fáir
hefðu spáð þvf, þegar mótið hófst að Fylldr yrði
meistari. Fylldr hlaut 11 st|g, Vfldngur varð i
öðru sæti með 10 stig og Fram i þriðja með 9
stig.
Leikmenn Fylkis byrjuðu með miklum krafti i
gær og eftir aðeins átta mínútur hafði knöttur-
inn tvívegis hafnað í marki Ármanns. Hörður
Guðjónsson skoraði fyrra markið — Grettir
Gislason það siðari. Verulegur þungi í sókn
Fylkis undan norðangolunni í f.h. en óvænt
tókst Ármanni að minnka muninn í 2—1 á 25.
mín. Bryngeir Torfason skoraði gullfallegt mark
— hörkuskot efst i vinkilinn frá vitateig.
I síðari hálfleiknum sótti Fylkir mun meira og
Gunnar Gunnarsson skoraði þriðja markið þýð-
ingarmikla á 70. mín. Sanngjarn sigur í höfn og
Reykjavíkurmeistaratitillinn. Til hamingju
Fylkir. -hsím.
STORSIGURIPSWICH
Ipswich vann góðan sigur, 3—0, á hollenzka
liðinu AZ ’67 Alkmaar f fyrri úrslitaleik liðanna i
UEFA-keppninni f Ipswich í gærkvöld. Lék
beittan sóknarieik frá byrjun og aldrei var vafi á
þvi hvort liðið var betra. Leikmenn AZ ’67 áttu
varla skot á mark, sem hægt var að nefna þvi
nafni. Yfirburðir Ipswich voru óvænt miklu
meiri en reiknað hafði verið með. Liðið hafði nú
öllum beztu mönnum sfnum á að skipa.
'Enska liðið hóf leikinn með miklum hraða og
fljótlega komst John Wark í opið færi, sem hann
misnotaði. Pressan var mikil á vörn AZ ’67 og á
28. mín. handlék Hugo Hovenhamp knöttinn
innan vitateigs eftir markskot Alan Brazil. Þetta
virtist óþarft hjá hollenzka varnarmanninum en
dómarinn dæmdi auðvitað umsvifalaust vita-
spyrnu. Úr henni skoraði Wark — 13. UEFA-
mark hans á leiktímabilinu. Fleiri mörk voru
ekki skoruð i fyrri hálfleiknum en vissulega
hafði Ipswich möguleika á þvi. Áhorfendur
vildu fá vítaspyrnu, þegar Eric Gates lék inn í
vítateig á 2. mín. en var felldur á grófan hátt af
Richard van der Meer. Tékkneski dómarinn
Adolf Trokop var ekki á því að dæma víti — en
hikaði ekki á 28. mín.
Strax á fyrstu mín. s.h. skoraði FranzThijssen
annað mark Ipswich eftir mikið einstaklingsaf-
rek og á 51. min. skoraði Paul Mariner þriðja
markið eftir góðan undirbúning Brazil. Fleiri
urðu ekki mörkin í leiknum. Leikmenn AZ ’67
áttu ekki tækifæri en fengu mörg og Eddy Treyt-
el, markvörður, var bezti maður Uðs síns þrátt
fyrir mörkin þrjú. Áhorfendur 27.532 og Ips-
wich ætti nú að hafa góða möguleika á að sigra í
UEFA-keppninni. Síðari ieikur liðanna verður i
Alkmaar 20. mai. -hsim.
Skíðamót í Hveradölum
—á vegum Skíðafélags Reykjavíkur í kvöld
Innanfélagsmót Skiðafélags Reykjavikur
verður haldið i Hveradölum i kvöld og hefst kl.
19:30. Starfsemi félagsins stendur nú með
miklum blóma og hefur gert i vetur.
Um síðustu helgi hélt félagið göngumót i sam-
vinnu við Félag áhugamanna um skíðagöngu.
Gengið var í námunda við Bláfjöll, alis um 5 km
leið. Var keppt í átta aldursflokkum karla og
kvenna. Helztu úrslit urðu sem hér segir:
Björgvin hyggur
á þjálfaraferil
Nokkrar hræríngar virðast vera yfirvofandi i
handknattleiksheiminum og leikmenn kunna að
skipta um félög i rikari mæli en áður.
Við höfum fregnað að næsta vist sé að Ár-
menningurinn Friðrik Jóhannesson gangi til liðs
við Val og þá hefur heyrzt kvittur um að Jens
Einarsson, sem í vetur var hjá Tý, muni ganga i
Fram. Björgvin Björgvinsson kvað hyggja á
þjálfaraferil og höfum við frétt það að hann hafi
undanfarið verið að viða að sér bókum um hand-
knattleiksþjálfun. -SSv.
Karlar
21—40 ára: sigurvegari Eiríkur Stefánsson
41—45ára: sigurvegari Pétur Pétursson
46—50 ára: sigurvegari Pálmi Guðmundsson
51—55 ára: sigurvegari Hermann Guðbjörnsson
(bezti timinn)
56—60ára: * sigurvegari Haraldur Pálsson
60 áraog eldri: sigurvegari Tryggvi Halldórsson.
Konur
16—40 ára: sigurvegari Sigurbjörg Helgadóttir
41—50 ára: sigurvegari Lilja Þorleifsdóttir.
Keppt var um verðlaun sem verzlunin Sportval
gaf til keppninnar. Þótti mótið takast hið bezta
og er reiknað með að fleiri slík verði haldin i
framtíðinni — jafnvel þegar i sumar, verði
nægur snjór. -ÓV.
Aðalfundur
Víkings
Aðalfundur Knattspymufélagsins Vikings
verður haldinn i kvöld i félagsheimilinu við
Hæðargarð og hefst kl. 20.30.
\Va
%y°<
%