Dagblaðið - 13.05.1981, Page 8
8
íbúðalánasjóður
Seltjarnarness
Auglýst er til umsóknar lán úr íbúðalánasjóði
Seltjarnarness. Umsóknir skulu sendar bæjar-
skrifstofu fyrir 1. júní nk.
Lán úr sjóðnum eru bundin við lánskjaravísitölu.
Vextir eru breytilegir samkvæmt ákvörðun
Seðlabanka íslands.
Umsóknareyðublöð fást á bæjarskrifstofunni.
Bæjarstjórinn Sehjamamesi.
Verzlunin
MRF
Húsvörður
Staða húsvarðar við Félagsheimilið á Blönduósi
er laus til umsóknar. Staðan veitist frá 1. ágúst.
Umsóknir sendist formanni rekstrarnefndar,
Sturlu Þórðarsyni, Hlíðarbraut 24 Blönduósi,
fyrir 1. júní nk.
Frá Fjórðungssjúkrahúsinu
Neskaupstað
Lækni vantar til afleysinga frá 1. júlí nk. til 15.
ágúst.
Upplýsingar í símum 97-7400 og 97-7402.
Fjórðungssjúkrahúsið Neskaupstað.
Tilkynning
til söluskattsgreiðenda
Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á því að gjalddagi
söluskatts fyrir aprílmánuð er 15. maí. Ber þá að skila
skattinum til innheimtumanna ríkissjóðs ásamt söluskatts-
skýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytið,
8. maí 1981.
Ægisgötu 7 Reykjavík
Sími sölumanns 1-87-85
Full búð af fallegum
sumarfatnaði. Komið,
skoðið og sannfærizt.
Raftækjaverzlun íslands h/f
Opið kl. 9 til 12 á
laugardögum.
Glœsibæ, Alfheimum 74.
Sími 33830.
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 19él.
I
Erlent
Erlent
Giscard kennir Chirac um ófarirnar:
Ætía aö stöðva
sigurgöngu Mitt-
errands á þingi
—mið ju- og hægrimenn í Frakklandi reyna að jaf na ágrein-
inginn í sínum rððum
Leiðtogar miðju- og hægrimanna,
sem hafa meirihiuta á franska þing-
inu, reyna nú að jafna ágreininginn i
sínum röðum eftir forsetakosning-
arnar um síðustu helgi. Ætla þeir sér
að koma í veg fyrir að Francois
Mitterrand, hinn nýkjörni Frakk-
landsforseti, fái kosinn meirihluta
vinstri manna á þingið í kosningum
sem hann hefur boðað til í lok júni.
Hinn 64 ára gamli sós íalisti,
Mitterrand, gerir sér vonir um að
vinstri menn fái meirihluta á þinginu
þannig að hann geti komið hinni
sósíalisku stefnuskrá sinni í gegnum
þingið.
Sigur hans yfir Valery Giscard
d’Estaing í forsetakosningunum sið-
ustu helgi hefur valdið mikilli ólgu í
röðum gaullista og stuðningsmanna
Glscard d’Estalng er að vonum
óánægður með kosningaúrslitin.
Giscard sem mynda núverandi þing-
meirihluta.
Giscard hefur sakað Chirac, leið-
toga gaullista, um að bera ábyrgð á
ósigri sínum þar sem stuðningur hafi
engan veginn verið heils hugar.
Mikið hrun hefur orðið á verð-
bréfamarkaöi í Frakklandi í kjölfar
kjörs Mitterrands og frankinn hefur
falUð svo í verði að hann hefur ekki
verið jafnlágt skráður í tíu ár.
Astæða þessa er fyrst og fremst ótti
manna við efnahagsstefnu Mitter-
rands.
Því munu miðju- og hægrimenn nú
reyna að jafna ágreininginn í sínum
röðum og einbeita sér að þvi að koma
i veg fyrir að Mitterrand fái meiri-
hlutaáþingi.
Leiðtogar borgaraflokkanna þriggja. Frá vinstri Ola Ullsten, Thorbjörn Fálldin og Gösta Bohman. Nú vill Bohman reyna
að mynda nýja stjórn borgaraflokkanna undir sínu forsæti.
Stjómarkreppan í Svíþjóð enn óleyst:
ALLIR VILJA ÞEIR
MYNDA STJÓRNINA
— Gösta Bohman kveðst reiðubúinn að mynda nýja stjórn
borgaraf lokkanna þriggja
Stjómarkreppan í Svíþjóð er enn
óleyst. í gær lýsti Gösta Bohman, for-
maður Hægri flokksins, því yfir að
hann væri reiðubúinn að mynda nýja
rikisstjórn borgaraflokkanna þriggja.
Hann segir að ef ráða eigi bót á efna-
hagserfiðleikum þeim sem sænska
þjóðin á nú við að stríða þurfi sterk
ríkisstjórn að halda um stjórntaumana
fram að kosningum 1982. Hann segir
að minnihlutastjórn Miöflokksins og
Þjóðarflokksins undir forsæti Thor-
björns Fálldin sé of veik til að ná
árangri i efnahagsmálunum.
Gösta Bohman, fyrrum fjármálaráð-
herra, sagði sig úr sænsku stjórninni
ásamt flokksbræðrum sínum fyrir
skömmu vegna ágreinings um skatta-
mál við hina tvo stjórnarflokkana. Nú
bendir hann á að eðlilegt sé að borgara-
flokkarnir reyni stjórnarmyndun að
nýju þar sem þeir hafi meirihluta á
þingi.
Áður hefur Thorbjörn Fálldin, frá-
farandi forsætisráðhera, lýst því yfir að
hann sé reiðubúinn að veita minni-
hlutastjórn Miðflokksins og Þjóðar-
flokksins forsæti. Gösta Bohman segir
ekki tímabært fyrir Hægri flokkinn að
taka afstöðu til slíkrar minnihluta-
stjórnar.
Loks hefur leiðtogi stjórnarandstöð-
unnar, Olof Palme, lýst sig reiðubúinn
að mynda minnihlutastjórn jafnaðar-
manna. Hann vill þó að slík stjóm hafi
það meginverkefni að boða til nýrra
kosninga sem allra fyrst. Þeir Thor-
björn Fálldin, formaður Miðflokksins,
og Ola Ullsten, formaður Þjóðar-
flokksins, eru hins vegar mjög á móti
því að nýjar kosningar veröi í sumar og
bera því við að mjög erfitt sé að halda
þær þá vegna þess hve margir kjós-
endur séu þá erlendis í sumarleyfum.
Sennilega er ástæðan þó ekki síður sú
að skoðanakannanir sýna að þessir
tveir flokkar myndu tapa miklu fylgi ef
kosningar færu fram en jafnaðarmenn
og hægrimenn myndu auka mjög fylgi
sitt.