Dagblaðið - 04.06.1981, Blaðsíða 6
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 1981.
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
Hvirfilbylur
í Colorado
Um fimmtiu manns særðust er
hvirfilbyljir fóru um Denver 1 Colorado
í gær. Hús skemmdust, rafmagnslínur
slitnuðu, tré rifnuðu upp með rótum og
bílar ultu um koll.
Páf inn er
kominn heim
Begin heldur áf ram árásum sínum á Schmidt kanslara:
&
&
;Æ
MEÐ S
Kosningabandalag vinstri manna í Frakklandi á erfitt uppdráttar:
Mikill ágreiningur só-
síalista og kommúnista
—einkum ágreiningur um utanríkismál—Marchais talinn verða að slaka á ef
möguleikar eiga að verða á samkomulagi f lokkanna fyrir þingkosningarnar
Mikill ágreiningur hefur komið í
ijós f tveggja daga viðræðum leiðtoga
franskra sósíalista og kommúnista
um hugsanlegt samkomulag þessara
flokka fyrir þingkosningarnar í
Frakklandi. Ágreiningurinn er
mestur um utanrikismál, segja heim-
ildir innan stjórnmálanna.
Samkomulag er þó ekki talið úti-
lokað ef Georges Marchais, leiðtogi
kommúnista, er tilbúinn að slaka á
kröfum sinum þegar viðræðunum
verður haldið áfram í dag.
Ef kosningabandalag tækist með
flokkunum væri mjög erfitt fyrir
Francois Mitterrand forseta að úti-
loka kommúnista frá ríkisstjórn
sinni.
Mitterrand hefur boðað til þing-
kosninga 14. og 21. júní næstkom-
andi, ( þeirri von að hnekkja 70 þing-
sæta meirihluta miðju- og hægri
manna. Honum er nauðsynlegt, ef
hann á aö eiga möguleika á að koma
hinni róttæku stefnu sinni í fram-
kvæmd, að fá meirihluta vinstri
manna kjörinn'áþmgið.
Skoðanakannanir sýna mjög
sterka stöðu sósíalista og er flokks-
formaðurinn, Lionel Jospin, sagður
hafa notfært sér þessa sterku stöðu
til hins itrasta i viðræðunum við
kommúnista.
Sósíalistar vilja að Marchais viður-
kenni viðtækt valdsvið forsetans,
einkum í utanríkismálum. Sósíalistar
hafa verið mjög gagnrýnir á tryggð
franskra kommúnista við Moskvu-
línuna. Sósialistar hafa fordæmt
mjög sterklega innrás Sovétríkjanna i
Afganistan, afstöðu þeirra til Pól-
lands og staðsetningu ss-20 eidflauga
i Austur-Evrópu.
Viðræðum flokksleiðtoganna
verður fram haldið f dag.
Jóhannes Páll páfi annar fékk að
fara heim af sjúkrahúsinu i gær og
svaf hann í ibúð sinni í Vatíkaninu i
nótt í fyrsta sinn síðan honum var
sýnt banatilræði á Péturstorgi fyrir
tæpum þremur vikum.
Páfinn virtist þreyttur en glaður
þegar hann sneri heim af Gemelli-
sjúkrahúsinu. Fjöldi ferðamanna var
við Vatíkanið þegar páfinn sneri
heim, þar á meðal um 300 póiskir
pílagrimar.
Ekki er talið óhugsandi að páfinn
muni mæta á fund kaþólskra biskupa
og kardínála sem haldinn veröur í j
Vatfkaninu um hvítasunnuna. ' sinum.
Mitterrand forseti. Skoöanakannanir sýna að staða sóslalista er nú mjög sterk
meðal franskra kjósenda.
„Þannig á að tala við
liðsforingja nasista”
— sagði Begin í gær er hann ftrekaði að Schmidt kanslari og þýzka þ jóðin bæru
ábyrgð á „helför” gyðinga í síðari heimsstyr jöldinni
Menachem Begin, forsætisráð-
herra ísraels, endurtók í gær árásir
sinar á Helmut Schmidt, kanslara V-
Þýzkalands. Hann kallaði kanslar-
ann fyrrverandi nasista sem bæri
ásamt allri þýzku þjóðinni ábyrgð á
„helför” gyðinga i síðari heimsstyrj-
öldinni.
ustueið.”
Han sagðist hafa svarað Schmidt á
þann hátt sem forsætisráðherra ísra-
els ætti að svara þýzkum kanslara og
liðsforingja nasista.
Begin sagðist ekki kippa sér upp
við þau mótmæli sem urðu i V-
Þýzkalandi í kjölfar ummæla hans
um kanslarann. „Þaö er ekki satt að
orð min hafi skaðað hagsmuni tsraels
og þau juku ekki á einangrun okk-
ar,” sagði hann.
„Þau sár sem þýzka þjóðin særði
gyðinga munu jafnvel ekki gróa f tíu
kynslóðir,” sagði Begin.
Lokað á laugardögum
Kaupmannasamtök íslands og Verzlunar-
mannafélag Reykjavíkur beina þeim til-
mælum til viðskiptavina verzlana að gera
Kaupmannasamtök íslands
Marargötu 2
innkaup sín tímanlega, þar sem verzlanir
verða lokaðar á laugardögum frá 1. júní til
1. september.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
Hagamel 4
Begin endurtók þessar árásir sinar
á Schmidt í ísraelska þinginu,
Knesset, í gær er hann svaraði gagn-
rýni stjórnarandstöðuflokksins
Shinui. Þingmenn Shinui-flokksins
höfðu haldið því fram að árásir
Begins á Schmidt i siðasta mánuði
hefðu skaðað hagsmuni ísraels-
manna.
í umræðum i Knesset í gær sagði
Begin: „Schmidt var trúr liðsforingi
þýzka ríkisins. Hann sór Hitler holl-
Menachem Begin.
Adolf Hitler.
Astralíumenn
fagna
ákvörðun
Mitterrands
Ástralfumenn, sem hafa verið and-
vígir kjarnorkuvopnatilraunum Frakka
í Kyrrahafi, hafa fagnað þeirri ákvörð-
un Mitterrands, hins nýja Frakklands-
forseta, að fresta frekari tilraunum.
Anthony Street, utanrikisráðherra
Ástralíu, sagðist um helgina vona að
þessi ákvörðun ætti eftir að leiða til
þess að kjarnorkuvopnatilraunum
Frakka við Mururoa kóralrifin yrði
hætt með öllu.
Frakkar tilkynntu i síðustu viku að
frekari kjarnorkuvopnatilraunum yrði
frestað meðan endurskoðun færi fram
á kjarnorkuvopnaáætlun þeirra.
Helmut Schmidt.
Norður-írland:
Erkibiskupinn
styður brezku
ríkisstjórnina
Dr. Robert Runcie, erkibiskup af
Kantaraborg, sem nú er í heimsókn á
Norður-frlandi, kvaðst i gær styðja þá
stefnu brezku stjórnarinnar að láta
fangelsuðum skæruliðum á Norður-
Irlandi i té réttindi pólitískra fanga.
Fjórir lýðveldissinnar i Maze fang-
elsinu á Norður-írlandi hafa þegar svelt
sig til bana og fjórir til viðbótar eru nú
í mótmælasvelti.
Dr. Runcie, sem er leiðtogi ensku
biskupakirkjunnar, sagði á blaða-
mannafundi i gær að hann gæti ekki
fallizt á mótmælaaðgerðir sem leiddu
til ofbeldis og ykju á ofbeldislegar til-
hneigingar.
Erkibiskupinn kvaðst hins vegar
þeirrar skoðunar að innleiða mætti
nýjar reglur i fangelsunum sem nálg-
uðust að vera eins og þær reglur sem
pólitiskir fangar byggju við.
REUTER
FILMUR OG VELAR S.F.
SKÓLAVÖRDUSTÍG 41 - SÍMI20235.