Dagblaðið - 04.06.1981, Side 11
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ1981.
11
Hækkanir á fiskflökum á Bandaríkjamarkaði koma frystihúsunum sjálfum ad litlum notum. Þær gera litið meira en að bæta
stöðu Verðjöfnunarsjóðs, segir Gunnar Guðjónsson formaður stjórnar Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna.
Hækkunin á f reðf iski f USA
getur sparað Verðjöf nunar-
sjóði 65 milljónir króna
—en gengislækkunin breytir engu fyrir sjóðinn
—Tap f rystiiðnaðarins í maí 1,5-2%
„Þessi gengisfelling hefur engin
bein áhrif á stöðu verðjöfnunarsjóðs
fiskiðnaðarins, þar eð með lögum frá
1979 var ákveðið að öll verð, bæði
viðmiðunarverð og söluverð, skyldu
reiknast í dollurum. Ennfremur var
ákveðið að styðjast við viðskipta-
gengið en ekki fast gengi,” sagði
ísólfur Sigurðsson hjá Seðlabanka ís-
lands í samtali við DB i gær.
ísólfur sagði að 1. júni hefði átt að
ákveða nýtt viðmiðunarverð, en við-
miðunarverð var síðast ákveðið 1.
janúar sl. og var það þá haft 5%
hærra en markaðsverð á freðfiski. Þá
var viðmiðunarverð að meðaltali
113,53 bandarísk sent, en meðal-
markaðsverð á freðfiski var þá
108,12 sent. Munurinn er umrædd
5%. Bæði þessi verð eru miðuð við
aflasamsetninguna eins og hún var
1980, eða vog 1980 eins og það heitir
áfagmáli.
Markaðsverð nœr
jafnt viðmiðunarverði
Sé gert ráð fyrir því að aflasam-
setningin 1 ár verði hin sama og i
fyrra, þá ætti verðhækkunin á
Bandaríkjamarkaði nýverið, sem var
að meðaltali 5,1 % á freðfiski, að
þýða það að markaðsverð væri nú
0,1% hærra en viðmiðunarverð. Svo
er hins vegar ekki, þar sem á tímabil-
inu 16. febrúar tií 8. mai lækkaði
freðfiskur að meðaltali um 1/2% og
var kominn úr 108,12 sentum niður 1
107,89 sent. Með hinni 5,1% hækkun
er þvi markaðsveröið að meðaltali
heldur lægra en meðaltal viðmiðun-
arverðanna, þótt ekki muni miklu á.
Svo litið sé á hvaða áhrif verð-
hækkunin hefur á stöðu verðjöfnun-
arsjóðs, þá vantaði um síðustu ára-
mót 2,5 milljónir nýkróna upp á að
endar næðu saman. Rikisvaldið
hefur ábyrgzt greiðslu á þeirri upp-
hæð, hvernig það verður svo gert er
önnur saga.
Ákvörðun
viðmiöunarverös
Viðmiðunarverð er ákveðið fyrir
upphaf hvers árs eða framleiðslu-
tímabil sjávarafurða og „skal við
ákvörðun þess einkum höfð hliðsjón
af verðlagi þriggja undanfarinna ára,
svo og af mati á markaðs- og aflahorf-
ium fyrir næstu ár. Tekið skal tillit til
sérstakra - ástæðna svo sem óeðli-
legra breytinga á erlendum mörk-
uðum, gengisbreytinga og annarra
hliðstæðra atvika,” eins og segir í
lögum verðjöfnunarsjóðs fiskiönað-
arins. „Þá skal sjóðsstjórnin við
ákvarðanir slnar einnig líta til af-
komu viðkomandi sjávarútvegs-
greina eftir þvi sem það getur sam-
rýmzt tilgangi sjóðsins og raunveru-
legri verðjöfnun.” Sé viðmiðunar-
verð hærra en markaðsverð skal
greiða allt að 3/4 hlutum mismunar-
ins út úr sjóðnum, en sé markaðs-
verðið hærra, allt að 3/4 hlutum þess
mismunar inn 1 sjóðinn. Verðjöfnun-
arsjóðurinn skiptist 1 frystideild,
skreiðardeild, lýsis- og mjöldeild,
saltfiskdeild, saltslldardeild og stofn-
fjárdeild.
Áhrif verðhœkkunar-
innar á verðjöfnunar-
sjóö
Á þessu ári var gert ráð fyrir að 75
milljónir króna yrðu greiddar með
freðfiski úr verðjöfnunarsjóði, og
skiptust greiðslurnar þannig á árið,
að fyrstu fimm mánuði þess var
reiknað með að 30 milljónir yrðu
greiddar, en 45 milljónir seinni hluta
árs.
Að því tilskildu að verðhækkunin á
Bandarikjamarkaði standi undir sér
og aö viðmiðunarverð nú, 1. júní,
verði ákveðið óbreytt til áramóta,
liggur ljóst fyrir að 45 milljónirnar
sem áætlað var að greiða úr verðjöfn-
unarsjóði verða ekki greiddar. Á
sama hátt má reikna með að verulegur
hluti hinna 30 milljóna, sem greiða
átti úr verðjöfnunarsjóði, verði kyrr i
sjóðnum. Ástæðan er, auk þeirra
sem fyrr eru nefndar, að þótt verð-
hækkunin hafi ekki orðið fyrr en nú,
i lok maf, er ekki búið aö selja allan
fiskinn, sem verkaður var á fyrstu
fimm mánuðum þessa árs á gamla
verðinu, 107,89 sent. Stór hluti þess
freðfisks verður seldur á nýja verðinu
og má jafnvel reikna með að 15—20
milljónir umræddra 30 milljóna
komi ekki til greiðslu úr sjóðnum.
Verðhækkunin gæti þvi sparaö verð-
jöfnunarsjóði 60—65 milljónir, með
þeim fyrirvara þó, að viðmiðunar-
verð haldist óbreytt frá því sem nú er
til áramóta.
Útreikningar þessir eru allir byggð-
ir á þeirri forsendu að aflasamsetn-
ingin í ár verði hin sama og 1 fyrra.
Veiðist meira 1 ár en í fyrra af verð-
mætari físktegundunum, svo sem
þorski, og minna af öðrum verð-
minni fiski, hækkar meðalverð mark-
aðsverða meðan meðalverð viðmið-
unarverða stendur í stað.
Verðhækkun á fiski
upp úr sjó
Að endingu er rétt að athuga hver
áhrif væntanleg verðhækkun á fiski
upp úr sjó hefur á freðfisksverðið.
Að sögn Rósmundar Jónssonar hag-
fræöings hjá Þjóðhagsstofnun, mun
láta nærri að hækki fiskverð um 8%,
svo dæmi sé tekið, aukist rekstrar-
kostnaður frystihúsa um 4%. Þessum
aukna kostnaði er hægt að mæta á
tvennan hátt, annars vegar með
gengisfellingu upp á 4% og hins
vegar með verðhækkun á freðfiski á
Bandarikj amarkaði.
Tap frystiiðn-
aðarins 1,5—2%
Fiskseijendur nú hafa gert kröfu
um 8% fiskverðshækkun og þvi gæti
virzt, sem vel væri svigrúm til þeirrar
hækkunar. En verðhækkunin á
Bandaríkjamarkaði fór, eins og að
framan getur, öll i að rétta hag
frystiiðnaðarins gagnvart verðjöfn-
unarsjóði. Þá er eftir hin nýafstaðna
gengislækkun og mætti ætla að hún
dygði til að vega upp í kröfur fiskselj-
enda um 8% hæickun. En hér er
gengiö að því visu að frystiiðnaður-
inh sé rekinn á sléttu, þ.e. hvorki með
halla né tapi. Tap frystiiðnaðarins í
maí nam hins vegar 1,5—2% á vog
ársins 1980. Og þar stendur hnifurinn
i kúnni. -SA.
Deila Kennaraf élags Reykjaness og
f ræðsluskrif sfofunnar í umdæminu:
„Fullyrðing
Ernu er röng”
—segir Helgi Jónasson f ræðslust jóri
vegna ummæla f ormanns Kennara-
félagsins í Dagblaðinu
„Skólar fá ákveðinn fjölda stunda til
að kenna á hverju skólaári. Starfið ber
síðan að skipuleggja innan þess tima-
ramma. Standi stjórnendur einhvers
skóla frammi fyrir því að tfmakvótinn
sé ófullnægjandi ber að hafa samband
við okkur og við reynum undantekn-
ingarlaust að kippa málunum i lag,”
sagði Helgi Jónasson fræðslustjóri í
Reykjanesumdæmi í gær. Hann vildi
koma á framfæri athugasemd vegna
ummæla Ernu Guömundsdóttur for-
manns Kennarafélags Reykjaness í
blaðinu á þriðjudaginn. Erna sagði
þar: „Þá kom fyrir að fræðsluskrif-
stofan breytti vinnuskýrsium á miðju
skólaári án fyrirvara og skar þannig
niður yfirvinnu viðkomandi. ”
„Einn skóli í umdæminu skilaði inn
vinnuskýrslum kennara með fleiri
stundum en heimild var fyrir,” sagði
Helgi.
„Skýrslurnar voru afgreiddar með
fyrirvara en stjórnendum -kólans jafn-
framt bent á að viðkomandi sveitarfé-
lag yrði að greiða umframstundii nar
— eða að skera yrði n ður stundaljoiu-
ann.
Umræddur skóli valdi þann kost-
inn að leysa málið með niðurskurði
stunda og sendi okkur skýrslu því til
staðfestingar. Fullyrðing Ernu er því
röng hvað varðar þátt fræðsluskrifstof-
unnar í málinu.”
-ARH.
Grilliö
um hvítasunnuna
\
Tilvalið á útigrillið:
Lambakótelettur
Lamba-lundir
Lamba-geiri
Lambarif marineruð
Nautagrillsteik
Nautabógsteik
Nauta-T-bone
Nauta-sirloinsteik
Nauta-hamborgarar
Svína-snitzel
Svína-kótelettur
Kjúklingar
Kjúklinga-bringur
Kjúklinga-læri
Leyfilegt verð pr. kg. Okkar verð
48,70 41,70
100,30 78,00
95,30 69,00
— 28,60
50,70 39,00
50,70 39,00
84,10 64,00
67,40 56,00
7,00 stk. 4,70 stk.
121,00 89.00
137,00 107,50
68,50 48,00
76,90 59,50
76,90 59,50
\
Ath.: í sumar verður opið í
hádeginu á fimmtudögum og föstu-
dögum. Lokað á laugardögum.
CS^^TTD^DO®©Tr^l)D[R£l
Laugalæk 2, Reykjavik, simi 86511
BENIDORM 9 JUNH
Þriggja vikna ferð til Benidorm a suð-austurströnd Spánar. Góð hótel og íbúðir, með eða án fæðis. Islenskt leiguflug alla leið í sólna og sjóinn
Bferða
MIÐSTOÐIN
AÐALSTRÆTI9 S 28133