Dagblaðið - 04.06.1981, Blaðsíða 14

Dagblaðið - 04.06.1981, Blaðsíða 14
14 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 1981. DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 4. JCNÍ 1981. 15 D íþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Tíðindalítill leikur Vals og KA og markalaust jafntefli „Þetta var mikill baráttuleikur, mikið sparkað en knattspyrnan var ekld góð. Ég er ekki nógu hress með að vlð skyldum aðeins fá annað stigið,” sagði Dýri Guðmundsson, sem lék sinn 200. leik með Val eftir að Valur og KA höfðu gert jafntefli i 1. deild i gær- kvöldi á Fögruvöllum i Laugardalnum. Það var tiðindalftil! leikur og jafntefli að mörgu leytl sanngjörn úrslit. Einn af þessum dæmigerðu markalausu jafn- teflisieikjum. Það var barizt um hvern bolta og harka oft anzi mikil. Dómarinn, Guð- mundur Sigurbjörnsson, hefði átt að vera miklu strangari við leikmenn. Mildi að enginn slasaðist aivarlega en Þorvaldur Þorvaldsson, Val, varð að yfirgefa völlinn vegna meiðsla. KA var meira með knöttinn í fyrri hálfleik en það voru Valsmenn sem fengu betri marktækifæri. Þorvaldur fékk knöttinn frír á markteig eftir góðan undirbúning Þorsteins Sigurðs- sonar. Spyrnti knettinum beint i mark- vörð KA, Aðalstein Jóhannsson, sem var einn bezti maður liðs síns. Þá fékk Þorsteinn og gott færi en spymti yfir. Hinum megin var hætta eftir mistök Sigurðar Haraldssonar, markvarðar Vals, en Gunnar Gislason lyfti knettin- um yfir markiö.Enverra var þó hjá KA i siðari hálfleiknum eftir afar siæm mistök Sigurðar marí. varðar.sem hljóp úr marki sinu í vonlausri stöðu. Gunnar Biöndai fékk' knöttinn en spymti framhjá mannlausu Valsmark- inu. önnur færi i hálfleiknum vart merkjanleg og Ieikurinn litið augna- yndi allmargra áhorfenda. Hjá Val var Dýri áberandi bezti- maðurinn en annars réð meðalmennsk- an að mestu rikjum. Elmar Geirsson átti góða spretti hjá KA en varð mjög þreyttur þegar á leikinn leið enda átti hann oft i erfiðri baráttu við fyrirliða Vals, Grím Sæmundsen. Gunnar Gisla- son og Ásbjörn Björnsson léku allvel i liði KA og miðverðirnir Haraldur Har- aldsson og Eriingur Kristjánsson standa vel fyrir sinu. -hsim. Dýri Guömundsson lék sinn 200. leik með meistaraflokki Vals í gærkvöldi. DB-mynd S. JAFNTA SKAGANUM — Fram og ÍA skildu án marka á grasvellinum Frá Sigþóri Eirikssyni, Akranesi i gærkvöid: Frömurum tókst það sem þeir greini- lega ætluðu sér er þeir mættu Skaga- mönnum hér á grasveliinum 1 gær- kvöld. Að bafa með sér á brott annað stlgið. Það tókst þeim með þvi að leika stifan varnarleik meginhluta leiksins, svo stífan að sóknarleikurinn hreinlega gleymdist. Til marks um það má nefna að þeir fengu aðeins eltt færi 1 leiknum og það gat varla heitið þvi nafni. Markalaust jafntefli varð þvi niður- staðan þvl heimamönnum tókst aldrei að koma tuðrunni i netið þrátt fyrir góð tilþrif. Guðmundur Baldursson þurfti tvi- vegis að grípa inn 1 leikinn áður en Akurnesingar fengu sitt fyrsta færi. Ámi Sveinsson þmmaði þá framhjá í ágætu færi eftir sendingu Kristjáns Olgeirssonar. Á 21. min. fengu Skaga- menn gott færi er Árni stakk glæsilega inn á Sigþór. Hann lyfti hins vegar yfir þverslána. Þremur minútum siðar komst Guðbjörn Tryggvason einn i gegn en Guðmundur varði vel með út- hlaupi. Það sem eftir lifði fyrri hálfleiksins og framan af þeim síðari var ieikurinn frekar daufur, aðeins eitt færi skap- aðist. Það var á 49. minútu er Gunnar Danir unnu ítaliíHM Danir stóðu fyrir einhverjum óvæntustu úrslitunum i riðla- keppni HM i knattspyrnu, þegar þeir sigruðu ítalfu 3—11 Kaupmannahöfn i gær. Þrátt fyrir sigurinn eru sáralitlar likur á að Danir komist i úrslita-' keppnina á Spáni, ítalia og Júgóslavia hafa þar alla mögu- leikaiS. riðlinum. Ekkert mark var skorað i fyrri hálfleik en á 58. mín. náðu Danir forustu, þegar Per Rönt- ved skoraði eftir hornspyrnu hjá Dino Zoff, hinum fræga markveröi ítaliu. Hann hafði haft mikið að gera I markinu. Á 61. min. komust Danir I 2—0, þegar Frank Arnesen, Ajax, skoraði beint úr aukaspyrnu. Á 68. ' min. skoraði Francesco Graziani fyrir Ítalíu og smávon vaknaði hjá ítölum að bjarga stigi. Þeir sóttu stift en vörn Dana stóð vel fyrir sinu og skyndisóknir þeirra voru hættu- legar. Fjórum mfn. fyrir leiks- lok skoraði Lars Bastrup þriðja mark Dana og guiltryggði sigur- inn. Áhorfendur á Idretsparken voru 35.600 og staðan i riðlin- um ernúþannig: Ítalía 5 4 0 1 9-3 8 Júgóslavía 4 3 0 I 12-4 6 Grikkland 5 3 0 2 6-7 6 Danmörk 6 3 0 3 8-6 6 Luxemborg 6 0 0 6 1-17 0 SAMNINGAR AÐ NÁST H JÁ BAYERN 0G STANDARD Framkvæmdastjórar Stand- ard Liege og Bayem, Miinchen, Petit og Uli Höness, voru á tveggja Idukkustunda fundi 1 gærmorgun i Brússel ásamt Ás- geiri Sigurvinssyni. Petit var þar miklu jákvæðari en áður i sam- bandi vlð félagasldpti Ásgelrs og aliar iíkur eru nú á að hann geri samning vlð Bayera f næstu viku. Vel gekk i samningum hjá framkvæmdastjórunum og þeir þurfa nú að bera samkomulagið undir stjórair félaga sinna. BEZTIHEIMS- TÍMIHJA C0E Sebastian Coe, Englandi, náði bezta heimstimanum á móti i Lundúnum i gær i 800 m hlaupi. Hljóp á 1:44.06 min. Garry Cook, Englandl, varð annar á 1:46.04 og Julien Michiels, Belgiu, þriðji á 1:46.70 min. Þetta var í landskeppni í hlaupum. England sigraöi með 76 stig. Eþiópía hlaut 57, USA 46 og Belgía 43. Steve Ovett, Englandi, sigraði í 3000 m hlaupi á 7:54.11 mín. Emile Puttemans, Belgiu, varð annar á 7:54.92 min. og Axel Hagel- steen, Belgíu, þriðji á 7:55.12 min. Alfons Brijdenbach, Belgiu, sigraöi i 400 m hlaupi á 46.68 sek. Fred Taylor, USA, I 200 m á 20.70 sek. og Mo- hammed Kedir, Eþiópiu, i 10000 m hlaupi á 28:07.35 min. Ólympíumeistarinn Yifter komst ekki i lið Eþiópfu. í aukakeppni i miluhiaupi sigraði Steve; Cram, Bretlandi, á 3:53.82 mín. írar féllu á vítaspyrnu Vonir Norður-íra að komast i úrslit HM á Spáni i knattspyrn- unni næsta ár urðu nánast að engu i gær i Stokkhóimi. Þá töpuðu þelr fyrir Svíum 1—0 að viðstöddum 21.431 áhorfanda. Eina mark leiksins skoraði Hasse Borg úr vitaspyrnu á 50. min. Leikurinn var í 6. riðli og fyrsti sigur Svía þar. Von þeirra að komast i úrslitin er lítil sem engin. Það var Man. Utd. leik- maðurinn Jimmy Nicholl, sem felldi Jan Svensson innan víta- teigs og italski dómarinn, Paolo, Bergamo, dæmdi um- svifalaust víti. Fyrir vítið hafði Thomas Ravelli bjargað Svíum með snjallri markvörzlu. MikiII harka færöist i leikinn og tveim- ur leikmönnum vikið af velli, Borg og Terry Cochrane. Staðan i riðlinum. Skotland 5 3 2 0 6-2 8 N-frland 6 2 2 2 5-3 6 Rúmenar efstir — eftir sigur á Norðmönnum Rúmenia náði forustu i 4. riðii HM í Evrópu i gær. Sigr- aði þá Noreg 1—0 að viðstödd- um 60 þúsund áhorfendum i Búkarest. Rúmenar sóttu mjög i leiknum en tókst þó ekki að skora á 67. min. Það var vara- maðurinn Ticleanu. Fleiri urðu mörkin ekld. Norðmenn fóru sjaldan yfir miðju en voru þó hættulegir i skyndisóknum án þess þó að þeim tældst að skora. Staðan í riðlinum er nú þann- lg: Rúmenfa England Ungverjai. Sviss Noregur 5 2 2 5 2 1 3 2 1 4 1 1 5 11 14-3 6 2 8-5 5 0 5-3 5 2 6-7 3 3 4-9 3 Portúgal Svfþjóð ísrael 4 2 114-15 5 1 2 2 2-5 4 6 0 3 0 2-8 3 Ágúst meistari Ágúst Ásgeirsson, ÍR, varð íslandmeistari f 10000 m hlaupi á MÍ á Laugardalsvelli i gær. Hljóp vegalengdina á 32:11.5 mfn. Gunnar Snorrason, UBK, varð annar á 33:43.2 min. Hans bezti tími. Einar Sigurðsson, UBK, nýr hlaupari, varð þriðji á 34:14.3 min. og var ekki langt frá drengjameti Sigfúsar Jóns- sonar, ÍR. Það er 33:51.8 min. Magnús Haraldsson, FH, varð fjórði á 35:41.0 og síðan komu sundgarparnir gömlu, Leiknir Jónsson, Á, á 36:11.8 — hans bezta — og Guðmundur Gísla- son, Á, á 36:15.2 min. -hsim. Jónsson átti firnafast skot að marki Fram. Guðmundur var hins vegar vel á verði að vanda. Síðasta stundarfjórðunginn færðist fjör i leikinn að nýju. Á 74. min. komst Ástvaldur Jóhannesson I gegn en Guðmundur varði með úthlaupi. Tveimur min. siðar kom svo sfðasta færi leiksins að heitið gat. Eftir innkast barst knötturinn manna á milli unz hann hafnaði fyrir framan fætur Gunnars Jónssonar. Hann þrumaði hins vegar yfir í upplögöu færi. Heimamenn vildu margir hverjir fá dæmda vitaspymu er knötturinn hafnaði í hendi Sighvatar Bjarnasonar á 63. mínútu innan vítateigs en ágætur dómari leiksins lét slíkt eiga sig. Hefði enda verið um strangan dóm að ræða. Beztur Skagamanna var Árni Sveins- son en þeir Sigurður Lárusson og Guðjón Þórðarson áttu báðir góðan leik. Hjá Fram var Guðmundur beztur i markinu en einnig var Marteinn Geirs- son góður. Áhorfendur voru um 600 talsins. Ágætur dómari leiksins, Þorvarður Björnsson, bókaði tvo leikmenn, þá Ársæl Kristjánsson og Sighvat Bjarna- son, Fram. Sovét í úrslit Sovétrikln sigruðu ísrael 112—84 á Evrópumeistaramótinu i körfubolta i Prag i gær og hafa tryggt sér sæti i úr- slitaleiknum á föstudag. Þá sigraði Júgóslavfa Spán 95—72 og allar líkur eru nú á að það verði heimsmeistarar Júgóslavfu, sem leika við Sovét i úr- slitalelknum. Staðan í keppninni um 1.—6. sæti er nú þannig: Sovétrikin 5 5 0 537—424 10 Spánn . 5 3 2 421-441 8 Júgóslavia 4 3 1 384—355 7 Tékkósl. 4 2 2 339—350 6 tsrael 4 0 4 337—383 4 ítalfa 4 0 4 324—383 4 í keppninni um 7.—12. sæti vann Grikkland Tyrkland 72—64 og Frakk- land vann V-Þýzkaland 83—70 i gær. Staðan þar er þannig: Frakkland 5 4 1 407-379 9 Pólland 4 4 0 361—317 8 Sigurður Sverrissori V-Þýzkaland Grikkland England Tyrkland 4 2 2 272—273 6 4 1 3 293—303 5 3 1 2 188—205 4 4 0 4 250—294 4 Öskar Jakobsson hjá honum i gær. Frábær árangur Óskars - átti þrjú köst yf ir 62 m Óskar Jakobsson, ÍR, náði frábær- um árangri f kringlukasti á innanfélags- móti ÍR á kastsvæðinu i Laugardal i gær. Kastaði lengst 62.92 metra en Islandsmet Eriendar Valdimarssonar er 64.32 m. Kastsería Óskars var glæsiieg. Hann byrjaði á 60.82 m. Síðan 62.60 m — þá 62.92 og að lokum 62.84 m. Tvö köst hjá honum voru ógild, bæði um 62 m. Óskar á bezt 63.24 m en greinilegt að hann stefnir i stórárangur i sumar. Hreinn Halldórsson, KR, varð annar með 49.02 m og Ólafur Unnsteinsson þriðji með 36.50, sem er gott hjá 42 ára manni. i kúluvarpinu náöi Hreinn 19.40 m fris Grönfeldt, UMSB, setti á þriðjudag nýtt islandsmet i spjótkasti á móti (Borgamesi. Kastaði 47.00 m. Ragnar Mar. kominn heim — ogleikurmeð ÍBK eftirmánuö Ragnar Margeirsson, sem lék með Homburg f 2. deildinni i V-Þýzkalandl f vetur, er kominn heim og mun leilu með ÍBK i sumar. Fyrsti leikur hans verður 6. júnf, þegar ÍBK og Reynir, Sandgerði, leika i Keflavfk. Hann verður sem sagt gjaldgengur eftir mánuð. Ragnar kom mánuði fyrr heim en reiknað hafði verið með. Homburg tókst ekkl að tryggja sér sæti i 2. deild áfram — er fyrir neðan miðju i suður- deildinni. Næsta keppnistimabil verður ein deild með tuttugu liðum, og tiu efstu liðin i hvorri deildinni nú sldpa þá 2. deild. Hin leika f 3. deildunum. Bjóðum stoltir PENTAX MV, MV-1, MX, ME-super og LX myndavélar PENTAX linsur, flösh og fylgihlutir. Góð greiðslukjör! Landsins mesta úr val af Ijósmyndavörum ld: 35 gerðir myndavéla, 50 gerðir af linsum, 35 gerðir af töskum, 85 gerðir af filterum og um 100 gerðiraf filmum m —eitthvað fyrir alla! Verslið hjá Æé* * faqmanninum LJÓSMYNDAÞJÓNUSTAN S.F. LAUGAVEGI 1 78 SIMI 85811 MONSTER MUDÐER — DUALMATIC - JACKMAN BEAVER ACME JEPPAEIGENDUR NÝ SENDING FRA USA MONSTER MUDDER hjólbarðar JACKMAN felgur OVIDJAFNANLEGT GRIP Stærðir: L78X 15, 10x 15, 12x 15.14/35/15,15/38. 5x15, 17/40x15, 10x16, Q78X16. 12x16, 14/35x16, 10x16,5. HAGSTÆTT VERÐ 0G KJÖR stærðir STERKAR 0G FALLEGAR 15x7, 15x8, 15x10, 16x8, (5,6og8gata) EINNIG: blæjur, varadekks- og brúsafestingar, gluggafilmur, þaklúgur, KC-ljóskastarar, driflæsingar, rafmagnstogvindur og margt fleira. ÚR FIBER-PLASTI: hús, á pick-up bifreiðar og Willys CJ5 ogCJ7. Bretti, hliðar, húdd, toppar, bretta- kantar á Bronco og Willys. Sendum ipóstkröfu MART Vatnagarðar 14, Rvík. Sími: 83188. Opið 9-7.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.