Dagblaðið - 04.06.1981, Side 16

Dagblaðið - 04.06.1981, Side 16
16 DAOBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 4. JÚNl 1981. DUGNAÐARFORKAR í FJÖLBR AUTASKÓLA SUÐURNESJA Óli Þór Kjartansson nemandi og kennarí ísenn: GUMDIVID FRONSK- UNA í 11ANNIR „Franskan var Iengi búin að vera mér að fótakefli. Samtals var ég bú- inn að glima við hana i 11 annir," sagði Óli Kjartansson nýstúdent, þegar við hittum hann fyrir utan skólann, með hvita kollinn lang- þráða. , ,Ég var á sinum tíma á eðlis- fræðibraut og hvildi mig á frönsk- unni i eitt og hálft ár, Sinotti kennara til mikillar hrellingar. Siðan gekk mér illa að ná málinu aftur og franskan var því fagið, sem stúdentsprófiö strandaði á i allt of langan tíma.” Óli hafði samt sitthvað annaö fyrir stafni en frönskunám, hann starfaöi sem kennari við gagnfræðaskólann i Keflavik og tók auk þess slag og slag i bridgefélaginu. En hvað er svo fram- undan hjá nýstúdentinum og kennar- anum? „Hugur minn stefnir til Bandarikjanna f auglýsingatækni- nám eða auglýsingasálfræði. Tómir vasar og létt pyngja valda því hins vegar, að ég hyggst kenna næsta vetur og afla mér námseyris,” sagði Óli, „svo ég verð einn vetur enn með minum nemendum, sem ég hef haft mjög mikla ánægju af að umgangast og bundizt traustum böndum.” -emm Óll Þór KJartansson: „Stefni á Bandarikin i augiýsingatækni efla auglýsingasálfræði.” í FÓTSPOR MÖMMU Epliö fellur sjaldan langt frá eik- inni segir máltækið. Á myndinni eru þær Ásta Magnúsdóttir, t.v. og Elsa Dóra Oisladóttir, t.h. ásamt mæðrum sínum, sem báðar hafa lokið stúdentsprófi. Hólmfriður Ólafsdóttir, móðir Ástu, frá Verzlunarskóla íslands, 1962 og Védis Elsa Kristjánsdóttir, móðir Elsu Dóru, frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja i fyrra, þar sem hún hlaut hæstu einkunn. Þær Ásta og Elsa Dóra eru heldur óráðnar um framtiðina. Ásta er farin að vinna í frystihúsi i Garðinum, en fer i hálfsmánaðar ferð til Frakk- lands i sumar, en er að igrunda lög- fræöinám eða málvisindi þegar fram i sækir. Elsa Dóra er komin vestur i Staðarsveit til langömmu sinnar að hjálpa til við vorverkin. Helzt langar hana til að bregöa sér út fyrir lands- steinana í eitt ár og sjá sig svolitið um i veröldinni,yáður en hún ákveður hvaða grein hún velur sér i háskóla. -emm Horfir björtum augum framáveginn ______ Fjölbrautaskóli Suðurnesja hefur nú lokið fimmta starfsári slnu. Skóla- meistari hefur frá upphafi verið Jón Böðvarsson og er það mál manna að honum hafi farið það vel úr hendi við erfiðar aöstæður, þröngan húsakost og oft á tiðum erfiðan fjárhag. AJlt stendur þó til bóta. Skólinn hefur fest kaup á rúmgóðu húsnæði sem leysir húsnæöisvandamáliö vonandi að fullu og varla láta þeir sem með pen- ingamálin fara þetta æösta mennta- setur Suðurnesja liða fjárhagslegt svelti i framtíðinni. Jón skólameistari horfir þvi, eins og aðrir Suðurnesja- menn, björtum augum fram á veg- inn i málefnum fjölbrautaskólans. -emm Helga Björk Þorsteinsdóttir: „Alls ekki viss um að mér tækist að ná báðum á- föngum f frönskunni.” DB-myndir: Magnús Gislason. Nýstúdent númer 100 — Helga Björk hugsar um barn og heimili — og fékk stúdentshúfuna lánaða á síðustu stundu Likt og í öðrum framhaldsskólum kemur það fyrir að ungt fólk ruglar saman reitum sinum og hefur búskap samhliða náminu. Nú, og samkvæmt lögmáli lifsins fjölga þau mannkyn- inu, en þá fer málið að vandast. Útgjöldin aukast og erfinginn þarfn- ast umönnunar. Hjónakornin þurfa að leggja meira á sig til að geta haldið heimili og stundað námið. Þannig hittist á að hundraöasti stúdentinn sem brautskráðist frá Fjölbrauta- skóla Suðurnesja var búandi og móðir, Helga Björk Þorsteinsdóttir, sem á tveggja ára dóttur, Sigurrósu aðnafni. „Ég varð aö fá lánaða stúdents- húfuna hjá vini mínum Ómari Jóns- syni, sem var stúdent númer eitt frá F.S., vegna þess að ég var alls ekki viss um að mér tækist að ná báðum áföngunum í frönskunni,” sagði Helga Björk i stuttu spjalli eftir brautskráninguna, „en þaö hafðist, svo maðurinn minn, Kristinn Arnar Guðjónsson, getur andað léttar og snúið sér að þvi að ná sama áfanga.” Helga, sem var á félagsfræðibraut, sagðist hafa slegið náminu á frest i eitt ár þegar dóttirin fæddist. Kristinn nam á meðan við skólann, en fór siðan að vinna til að sjá fjöl- skyldunni farborða, en getur nú tekið til við námið, „því ég hyggst ekki fara í skóla í haust. Þetta er gott í bili, en helzt stefnir hugurinn til þroskaþjálfanáms ef aöstæður leyfa. Annars vil ég að það komi fram, að auðvitað mæðir námið alltaf meira og minna á fjölskyldum viökomandi aðila. Skólagangan hefði verið okkur um megn ef tengdaforeldrarnir hefðu ekki létt undir með okkur i ýmsumefnum.” -emm \

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.