Dagblaðið - 25.06.1981, Side 8
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 1981.
Erlent Erlent Erlent Erlent jj
—-—- - ——-— —
Awacs-flugvél. Miklar deilurstanda nú i Bandarikjunum varðandi réttmæti þcirrar ákvörðunar Reagans forseta að selja fimm slíkar vélar til Saudi-Arabíu. Israelsmenn
hafa reynt að telja Bandarikjamenn af þeirri ákvörðun.
Vilja ekki aö A wacs-þotur
veröi seldar til S-Arabíu
—Meirihluti bandarískra þingmanna stendur gegn áformum Reagans um sölu á
Awacs-þotum til Saudi-Arabíu
Rikisstjórn Bandarikjanna heldur
fast viö þau áform sin aö selja Awacs-
Pakistanar
áforma ekki
smíði kjam-
orkuvopna
Ráðamenn i Pakistan hafa lýst
þvi yfir við bandarisk stjómvöld
aö þeir áformi ekki aö koma sér
upp kjarnorkuvopnum. Emb-
ættismenn í bandaríska utanríkis-
ráðuneytinu segja að Mohammed
Zia-UI-Haq, forseti Pakistan,
hafi fullvissaö bandarlsk stjórn-
völd um þetta.
Lengi hefur leikiö grunur á aö1
Pakistanar væru færir um að
smiða kjarnorkuvopn og hefðu
jafnvel þegar haftð smiði þeirra.
flugvélar til Saudi-Arabíu þrátt fyrir að
meirihluti bandarískra þingmanna sé
því nú mótfalUnn.
Ljóst er að meirihluti þingmanna,
b'æði i öldunga- og fulltrúadeild þings-
ins eru andsnúnir þessari sölu. Það má
þvi búast við þvi að þingið geti þessi
áform stjórnarinnar að engu er
atkvæöagreiðsla um vopnasölumál fer
fram í þinginu siðar i sumar, ef ríkis-
stjórninni tekst ekki að telja þingmönn-
um hughvarf.
Embættismenn stjómarinnar segjast
þó bjartsýnir á að af sölunni verði.
,,Við emm bjartsýnir á að þegar fmm-
varpið verður i heild sinni lagt fyrir
þingið muni þingmenn faUast á þá
skoðun forsetans að þessi sala er i þágu
allra Miðausturlanda.”
ísraelsmenn hafa sem kunnugt er
verið mjög andsnúnir þvi að Banda-
ríkjamenn selji Saudi-Arabiu hinar
fullkomnu Awacs-flugvélar sem meðal
annars eru búnar óvenjufullkomnum
ratsjám. Bandaríkjastjórn hefur ætlað
Tórínóklæðin í sviðsljósi
Tölvugreining á myntförum i
Tórinólikklæðunum svonefndu, sem af
ýmsum em taUn vera líkklæði Krists,
sýnir að myntin er frá tima krossfest-
ingar Krists.
Tórinó-likklæðin hafa að geyma
svipmynd af manni sem haft hefur
myntpeninga yfir báðum augum. Séra
Francis FUas, prófessor við Loyola há-
skólann í Chicago, telur að peningarnir
hafi verið settir yfir augun til að halda
þeim lokuðum.
Áður höfðu nýlegar visindalegar
rannsóknir sýnt að myndin á klæðun-
um gæti ekki hafa verið máluð og
treystu visindamenn sér ekki til að full-
yrða hvemig hún væri tUkomin.
Baháíar
ofsóttir
ílran
Talsmenn aðalstöðva bahái-
safnaðarins i Bandarikjunum
hafa hvatt tU þess að gripið verði
til skjótra aðgerða til bjargar
áhangendum baháí-trúarinnar í
Iran. Fréttir hafa borizt um að
bahál-menn sæti miklum ofsókn-
um þar i landi og séu unnvöfpum
tekniraflífi.
FuUyrt er að fimmtíu baTiáíar
hafi verið teknir af lifi i íran á
síðastliðnu ári þar sem leiðtogar
islamska-klerkaveldisins telji trú
þeirra mjög alvarlega vUlutrú.
Williams talinn eiga
sök á stórum hluta
Atlantamorðanna
Wayne B. Willlams.
„Ekki er ósennUegt að WUliams
eigi sök á stórum hluta morðanna,”
var í gær haft eftir alríkislögreglu-
manni í Bandaríkjunum sem unnið
hefur að rannsókn Atlanta-morð-
anna svonefndu, sem valdið hafa
mikilli skelfingu I Atlanta I tæplega
tvöár.
Embættismenn þar í borg segja að
innan mánaðar megi búast við að
ljósmyndarinn Wayne B. WUliams
verði ákærður fyrir að hafa myrt 27
ára gamlan mann, Nathaniel Carter.
Lík hans fannst I Chattahoocheeánni
I siðasta mánuði og var hann talinn
28. fómarlamb Atlanta-morðingjans
svonefnda.
Wayne B. WUUams er 23 ára
gamall. Hann var handtekinn um síð-
ustu helgi en hafði þrívegis áður verið
yfirheyrður og hefur verið undir
stöðugu eftirUti lögreglunnar síðast-
liðnar fjórar vikur.
Williams er af mönnum sem til
þekkja mjög mikUI „fjölmiðlaáhang-
andi”. Hann keyrði um með
lögreglutalstöð og kom jafnan á vett-
vang þegar eitthvað markvert gerðist.
Auk þess rak hann „hæfileikaskrif-
stofu” sem reyndi að hafa upp á efni-
legum piltum úr hinum svörtu
„gettóum” Atlanta-borgar.
Kastljós lögreglunnar beindist að
honum hinn 22. mai síðastliðinn.
Vörður sem var viö brúna yfir
Chattahoochee-ána vegna þess að
mörg fórnarlambanna höfðu fundizt
i ánni heyrði hljóð frá brúnni eins og
eitthvað hefði verið látið faUa þaðan
niður í ána. Rétt á eftir kom Williams
akandi út af brúnni og voru ljósin á
bifreið hans slökkt. Hann var stöðv-
aður og yfirheyrður.
Williams var látinn laus nokkrum
tímum síðar. Hann var síðan yfir-
heyrður á ný daginn eftir og settur
undir stöðugt eftirlit eftir aö lík
Carters fannst I ánni.
Tautrefjar úr uUarteppi á heimili
WiUiams og hár af hundi fjölskyldu
hans koma heim og saman við trefjar
og hár sem fundizt hafa á 10—12
fórnarlambanna. WiUiams hefur oft
sézt á þeim stöðum þar sem ýmis
fórnarlambanna voru vön að halda
til. Þessar ástæður hafa nú leitt til
þess að hann hefur verið handtekinn
og foreldrar í Atlanta bíða spenntir
eftir að sjá hver framvinda þessa
máls verður því þeir hafa óttazt að ný
morðalda ætti eftir að ríða yfir þegar
börnin þyrpast út á göturnar er skóla-
fríin byrja.
Erlendar
fréttir
Kunggagn-
rýnir
kaþólsku
kirkjuna
Að páfanum einum undanskildum er
hann sagður þekktasti talsmaöur ka-
þólsku kirkjunnar. Það er guðfræðing-
urinn Hans KUng, sem þetta er sagt
um. Hann er nú staddur i Svíþjóð þar
sem hann hefur verið ófeiminn við að
láta skoðanir sinar I ljós, skoðanir sem
leiddu tU þess að honum var vikið úr
embætti prófessors við hinn þekkta
TUbingenháskóla.
„Aðalvandamál kaþólsku kirkjunn-
ar er það að hún á svo erfitt með að
laga sig að nýjum aðstæðum. Kirkjan
segist aUtaf hafa á réttu að standa eins
og aðrir segja að flokkurinn hafi aUtaf
á réttu að standa,” segir KUng.
sér að selja Saudi-Aröbum fimm slikar
flugvélar.
Kínverjar
vilja ekki
sjá Tang
Kínverjar hafa svipt hinn 73 ára
gamla Tang biskupsembætti I Kanton
eftir að Jóhannes PáU páfi annar hafði
skipað hann erkibiskup i Klna. Mæltist
sú ráðstöfun páfa þegar I stað Ula fyrir I
Kína enda hefur rómversk-kaþólski
söfnuðurinn þar I landi ekkert vUjað
hafa saman við páfagarð að sælda.
Páfi hafði skipað Tang erkibiskup 6.
júni síðastUðinn, ári eftir að hann var
látinn lausúr fangabúðum kommúnista
þar sem hann hafði setið 122 ár.
Olesen
fékk
hjarta-
áfall
Hinn 48 ára gamU utanrikisráðherra
Danmerkur, Kjeld Olesen, fékk alvar-
legt hjartaáfall um siðustu helgi og var
þegar í stað fluttur á sjúkrahús þar sem
hann liggur enn. Þetta er I annað skipt-
ið sem Olesen fær hjartaáfall. í febrúar
í fyrra fékk hann einnig áfall i kjölfar
þess að vinur hans og samráðherra,
Niels Mathiasen, lézt óvænt.
Olesen hafði átt mjög annríkt i síð-
astliðinni viku og er talið að streita sé
meginástæða áfallsins.
Veröur
Nabavi
forsœtis-
ráðherra?
Verði Mohammad AU Rajai for-
sætisráðherra kosinn forseti Irans í for-
setakosningunum 24. júU næstkom-
andi eins og allar líkur eru taldar á, er
Behzad Nabavi talinn lfklegasti eftir-
maður hans I embætti forsætisráð-
herra.
Nabavi var aðalsamningamaður
írans í hinni langvinnu gísladeUu við
Bandaríkin og var því þá spáð að vegur
hans ætti eftir að vaxa mjög innan
skamms sökum ákveðinnar afstöðu
hans gagnvart Bandarikjunum. Hann
hefur að undanförnu gegnt embætti
dómsmálaráðherra írans en er talinn
hafa haft meiri áhrif en embættið gerir
ráð fyrir.