Dagblaðið - 25.06.1981, Side 10
10
I
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ1981.
Brlent
Erlent
Erlent
Erlent
I
KJ ARNORKUSLYSIJAPAN
dælu viö einn tankinn sem geymir
geislavirk efni. 30 starfsmenn voru
sendir inn til aö gera viö röriö og þeir
sem skiptu um það fengu 100 milli-
rema skammt af geislun á aöeins 6
sekúndum sem er hámarks dag-
skammtur sem starfsmenn kjarn-
orkuversins mega verða fyrir. Sumir
starfsmennirnir uröu fyrir 1118 milli-
rema geislunarskammti meðan á
viðgerð stóð eöa rúmlega 11 sinnum
hærri en leyfilegt er. Eins'og áður
var ekkert tilkynnt um atburðinn.
Reiri
kjarnorkuver
byggð
Nýlega lauk hinni opinberu
rannsókn þessa máls og var ákveöið
af viðkomandi ráðuneyti að kjarn-
orkuverinu skyldi lokað í 6 mánuði í
refsingarskyni og að starfsmenn þess
skyldu sendir á endurhæfmgarnám-
skeið svo svona mistök endurtækju
sig ekki. Taldi ráðuneytið að þessi
lokun væri áhrifaríkari refsing en að
draga forráðamenn fyrirtækisins
fyrir dómstóla. En ráðuneytið nefndi
ekki aðra ástæðu. Málaferli hefðu
aukið umræðu meðal almennings um
notkun kjarnorku og heföu getað
tafið fyrir framkvæmd kjamorku-
áætlunar ríkisstjórnarinnar, en hún
hefur fullan hug á að byggja enn
fleiri kjamorkuver til þess að þjóðin
verði ekki eins háð oliuinnflutningi
og nú er. Það verður þó erfiður róður
þvi sífellt fleiri Japanir em að snúast
gegn byggjngu kjarnorkuvera.
að yfirvöldum væri tilkynnt um at-
burðinn. Einnig kom 1 ljós síðar að
mun alvarlegri atburður haföi skeð
1975, þegar rör gaf sig sem tengir
— Hylmt yf ir leka geisla virks vatns hvað eftir annað
Japanska kjarnorkuveriö i Tsuruga.
ekki fyrsta slysið sem skeð hafði i
Tsuruga kjamorkuverinu. í desem-
ber sl. og aftur í janúar lak geislavirkt
vatn út frá verinu i sjóinn og án þess
Það sem geröist 1 Tsuruga kjarn-
orkuverinu er gott dæmi um kæru-
leysi, slæleg vinnubrögð og litinn
skilning á því hve alvarlegur atburð-
urinn var.
Starfsfólk sent á
geislavirkt svœði
Lekinn átti sér stað i byggingu sem
hýsir tanka fyrir geislavirkt úrgangs-
vatn. Talið er að gleymzt hafi að
skrúfa fyrir loku sem notuö var til að
hreinsa burtu óhreinindi sem settust
fyrir í tönkunum. Lekinn uppgötv-
aðist ekki fyrr en 3 tímum seinna og
hafði þá svo mikið geislavirkt vatn
flætt út aö 30 cm hár veggur, sem
umkringdi tankana, gat ekki hindrað
vatnsflauminn i að renna út i ganga
byggingarinnar og komast þannig
niður í skolpræsakerftð gegnum
niðurföllin. Deilt er um hve mikið
magn komst þannig út í flóann, en
nefndar hafa veriö tölur frá 4
tonnum upp í 40 tonn.
Til að leyna atburðinum voru 56
starfsmenn sendir inn með venjulegar
plastfötur og gólfklúta til aö hreinsa
upp geislavirka vatnið og urðu þeir
þvi fyrir óeðlilega mikilli geislun.
Fyrirtækið segir að hámarksskammt-
ur, sem starfsmaður hefði getað
orðiö fyrir meðan á hreinsun stóð, sé
aðeins 155 millirem en margir telja
það allt of lága tölu sé tekiö mið af
þvl magni sem mældist i flóanum.
Alvarlegri
slys
Fljótlega kom i ljós að þetta var
Baldur Hjaltason
skrifar frá Japan
Fyrir nokkrum mánuðum siðan fór
aö bera á óeölilega hárri geislavirkni í
sjávarseltu og sjávargróðri, sérlega
þangi, 1 Uraoka flóanum í Fukui hér-
aðinu i Japan. Nánari rannsókn
leiddi i ljós að sökudólgurinn var
Tsuruga kjarnorkuverið sem er stað-
sett þar skammt frá. Haföi umtalsvert
magn af mjög geislavirkum úrgangi
komizt i niðurföll og holræsakerfi
kjarnorkuversins sem eingöngu var
ætlað fyrir ógeislavirkan úrgang. Hér
var um að ræða versta slys í sögu
kjarnorkuvera i Japan og það sem al-
varlegra var, var að stjórn kjarnorku-
versins reyndi að leyna þvi hvað gerzt
hafði og tilkynnti þvi ekki japönsk-
um yfirvöldum um atburöinn eins og
lög mæla fyrir.
Ekkert lát á mótmælasvelti IRA-fanganna í Belfast:
Tveir nýir IRA-menn
hefja mótmælasvelti
vikulega á næstunni
Um helgina hóf enn einn fangi í
hinu fræga Maze-fangelsi á Norður-
frlandi mótmælasvelti í sama skyni
og aðrir fanganna: að þvinga brezku
stjórnina til að veita þeim réttindi
pólitiskra fanga.
Af 440 félögum úr IRA, sem sitja í
Maze-fangelsinu, hafa fjórir þegar
látið lífið af völdum mótmælasveltis.
Hinn 29 ára gamli Paddy Quinn er sá
sjötti sem nú neitar að borða. IRA
hefur boðað aukið hungurverkfall á
næstunni. Tveir nýir fangar munu á
hverri viku bætast í hóp þeirra sem
svelta sig. Hundrað IRA-fanganna
hafa þegar lýst sig reiðubúna að taka
þátt í þessum aðgeröum.
Paddy Quinn afplánar nú fjórtán
ára fangelsisvist fyrir morðtilraun,
ólöglegan vopnaburð og fyrir að vera
félagiiIRA.
Af föngunum sex sem nú eru 1 mót-
mælasvelti hefur Joe McDonneU
fastað lengst eða\j rúma fjörutfu daga
og búizt er við að hann verði sá næsti
sem lætur lífið af völdum sveltisins.
Það ætti að verða einhvers staðar ná-
lægt 12. júli en um það leyti eru ár-
legar mótmælagöngur mótmælenda i
Belfast og má af þeim sökum búast
við meiri óeirðum en ella. Um það bil
hálfum mánuði síðar gera skipuleggj-
endur mótmælasveltisins svo ráð
fyrir að Kieran Doherty látið lífið en
hann var í síðustu viku kjörinn á
brezka þingið. Þá ætti lífið einnig að
fjara út hjá Martin Hurson.
Um svipað leyti stendur brúðkaup
Karls Bretaprins og lafði Diönu
Óttazt er að til aukinna ócirða komi kringum brúökaup Karls prins og lafði
Diönu Spencer. Um það leyti cr reiknað meö dauða tveggja IRA-manna af
völdum mótmælasveltis ef brezka stjórnin hefur ekki gengið að kröfum þcirra.
Bobby Sands fylgt til grafar. Hann var fyrsti IRA-fanginn til að svelta sig til bana
í Ma/.e-fangelsinu. Síðan hafa þrir félagar hans látið líflð og ekkcrt lát er á mót-
mælasveltinu.
Spencer yfir í London og öryggis-
verðir hafa þá væntanlega i nógu að
snúast af ótta við hermdarverk.
Það eins sem virðist geta komið 1
veg fyrir áframhaldandi eða vaxandi
ólgu á Norður-írlandi á næstunni er
að brezka stjórnin verði við kröfum
fanganna. Ekkert bendir til að svo
verði.
írski lýðveldisherinn hefur lýst því
yfir að hann hafi nýverið gert mis-
heppnaða tilraun til að ráða Elísa-
betu Englandsdrottningu af dögum
og IRA segist einnig hafa staðið á
bak við misheppnaða tilraun til að
sprengja Gardiner lávarö 1 loft upp
fyrir utan Queens háskólann í Belfast
er hann hélt þar ræðu.
„Gardiner lávarður var dauða-
dæmdur vegna þess að hann átti hug-
myndina að glæpapólitík brezku
stjórnarinnar gagnvart IRA og að
byggingu H-blokkar Maze-fangels-
isins,” sagði 1 tilkynningu IRA.