Dagblaðið - 25.06.1981, Blaðsíða 27
31
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 1981.
Ci
Útvarp
ÚT í BLÁINN - útvarp kl. 14,00:
I
Sjónvarp
FERÐALOG OG UTILIFINNANLANDS
—ýmsar gagnlegar upplýsingar
Nýlega hóf göngu sína útvarpsþátt-
urinn Út 1 bláinn sem ætlað er að efla
ferðalög innanlands og stuðla þannig
að þekkingu okkar á eigin landi.
Stjómendur þáttarins eru þeir Sig-
urður Sigurðarson og örn Petersen.
örn sagði að þeir myndu miðla upplýs-
ingum frá þeim aðilum er tækju að sér
að sjá um skemmri og lengri ferðalög,
víðsvegar um landið. Þeir myndu jafn-
framt greina frá ástandi vega, t.d.
hverjir væru opnir og þá hverjir ekki,
líklegu veðurfari hverrar komandi helg-
ar (spáin fyrir síðustu helgi stóðst) og
ýmsu öðru er að gagni kynni að koma.
Þessu sinni sagði örn að gerður yrði
samanburður á verðlagi Eddu hótela
annars vegar og gisti- og matstaða í
einkarekstri hins vegar. Einnig verður
viðtal við Kjartan Lárusson, fram-
kvæmdastjóra Ferðaskrifstofu ríkisins,
og spjallað verður við Úlfar Jacobsen
um ferðaáætlanir hans í sumar. örn
sagði að m.a. yrði Úlfar með mjög at-
hyglisverðar 6 og 13 daga ferðir inn á
hálendið; sumarleyfisferðir, þar sem
ferðaskrifstofa hans leggur til tjöld og
mat á einstaklega hagstæðu verði.
Sitthvað fleira kann að skjóta upp
koilinum i Út í bláinn en hvað það
verður mun þátturinn leiða í ljós.
-FG.
KVÖLDTÓNLEIKAR - útvarp
kl. 23,00:
Fiðlusónata eftir
Sergei Prokof ieff
—eitt af mestu tónskáldum Rússa
Rússneska tónskáldið Sergei
Prokofieff (1891—1953) var eitt af
mestu og jafnframt afkastamestu
tónskáldum Rússa. Hann fæddist í
Sontzovka; þorpi i héraði er nú heitir
Dnepropetrovsk. Móðir hans kenndi
honum á píanó og hvatti hann til þess
að semja sjálfur. Um það leyti er
drengurinn var fimm ára gamall
samdi hann sín fyrstu verk og niu ára
gamall lauk hann fyrstu óperu sinni,
þriggja þátta verki er hann nefndi
Risann. Þegar Risanum var lokið
hófst drengurinn handa um næstu
óperu.
Fjölskylda Prokofieff fluttist til
Moskvu og hann hóf nám hjá tón-
skáldinu Gliére. Þrettán ára að aldri
innritaðist hann i tónlistarskólann í
St. Pétursborg (sem nú heitir Lenin-
grad) þar sem hann m.a. nam hjá
Rimsky-Korsakoff. Enginn efaðist
um óvenjulega hæfileika þessa nem-
anda en tónlist hans þótti skopast að
öllu alvarlegu og vera heldur ófyrir-
segjanleg. Þegar hann útskrifaðist,
1914, lék hann eigin píanókonsert.
Leikur hans og tónsmið þóttu frábær
og hann fór létt meö að hreppa fyrstu
verðlaunin, flygil.
Rússneska byltingin olli því að
Prokofieff yfirgaf föðurland sitt.
1918 fór hann i tónleikaför um Japan
og Bandaríkin og settist síðan að I
París. Þar framfleytti hann sér með
tónsmið sinni og tónleikahaldi.
Eftir fimmtán ára fjarveru sneri
tónskáldið heim til Rússlands aftur,
1933, og var óspart fagnað af þjóð
sinni. Heimkoman virtist milda hann
og taka broddinn úr skopi hans.
Hann samdi nú jafnvel verk fyrir
böm, Pétur og úlfinn; ævintýri fyrir
sinfóníuhljómsveit og sögumann.
Prokofieff var mikill afkasta-
maður og það dró ekkert úr sköpun-
argleðinni að þjóð hans hóf hann í
æðra veldi við heimkomuna; hann
varð einn virtasti og einnig tekju-
hæsti þegn hennar.
Hann samdi átta óperur, sjö ball-
etta, sjö sinfónfur, fimm planókon-,
serta, tvo fiðlukonserta, tíu pianó-
sónötur, tvær sónötur fyrir fiðlu, tvo
strengjakvartetta, ótal aðrar sónötur
og verk fyrir klarínettu, strengi og
pianó, auk tónlistar fyrir balletta,
kvikmyndir og óperur.
Á dagskrá í kvöld verða Fiðlusón-
ata nr. 1 í D-dúr op. 94a, eftir Sergei
Prokofieff, Itzhak Perlman og Vladi-
mir Ashkenazy leika.
Síðan verður Tríó i g-moll op. 63
fyrir flautu, selló og píanó eftir Carl
Maria von Weber. Roswitha Staege.
Ansgar Schneider og Raymund
Havenith leika.
-FG.
4C
Rússneska tónskáldlð, Sergei Proko-
fleff.
Stjórnendur þáttarins Út í bláinn, þeir Sigurður Sigurðarson og Örn Petersen.
INGEBORG—útvarp kl. 20,30:
Ingeborg virðist búa
í farsælu hjónabandi
—en þá kemur Peter
Leikritið 1 kvöld verður Ingeborg
eftir þýzka leikarann og rithöfundinn
Curt Goetz. Þýðandi og leikstjóri er
Gísli Alfreðsson en leikendur eru
Helga Bachmann, Helgi Skúlason,
Rúrik Haraldsson, Guðrún Stephen-
sen og Ámi Tryggvason. Leikritið
var áður flutt 1 útvarpi 1968 og tekur
eina og hálfa klukkustund.
önnur leikrit Curt Goetz, sem flutt
hafa verið í útvarpi, em: Hundur á
heilanum 1960, Erfingjar í vanda,
1962, Haust og Hokus pokus, 1963,
Dr. med. Job Prátorius og Fugl í
hendi, 1964, og Einn spörr til jarðar,
1969.
Ingeborg virðist búa í farsælu
hjónabandi. Hún er ung og lífsglöð
og gift auðugum manni. Frænku
hennar finnst samt Ingeborg
ganga aö lánsemi sinni sem heldur
sjálfsagðri og kunna hana litt að
meta. Þá kemur ungur maður Peter
Peter i heimsókn og verður hrifinn af
Ingeborg.
Curt Goetz (1888—1960) fæddist í
Mainz. Leikferill hans hófst 1 Rostock
1907. Síöan lék hann í Nllrnberg og
Berlín þar til 1922. Ásamt konu sinni,
Valerie von Martens, kom hann þá
upp ferðaleikflokki. Auk leikstarf-
semi sinnar á sviði lék Goetz í kvik-
myndum og samdi kvikmyndahand-
rit auk leikrita. Ingeborg var meðal
fyrstu leikrita hans, frumsýnt 1922,
en síðar urðu þau fjölmörg og hafa
verið leikin á sviði og flutt í útvarpi.
Endurminningar Goetz komu út
1960, árið sem hann lézt í St. Gallen í
Sviss.
-FG.
»
Gisll Alfreðsson leikarl er þýðandl og
leikstjóri leikritsins i kvöld: „Inge-
borg”.
Útvarp
I
Fimmtudagur
25. júnf
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Til-
kynningar.
12.20 Fréttlr. 12.45 Veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
14.00 Út i bláinn. Sigurður Sigurð-
arson og örn Petersen stjórna
þætti um ferðalög og útillf innan-
lands og leika létt lög.
15.10 Mlðdeglssagan: „Læknlr segir
frá” eftir Hans Killian. Þýðandi:
Freysteinn Gunnarsson. Jóhanna
G.Möller les (8).
15.40 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðurfregnir.
16.20 Sfðdeglstónlelkar. Kjell
Bækkelund leikur Píanósónötu
op. 91 eftir Christian Sinding /
Kirsten Flagstad syngur „Huliðs-
heima", lagaflokk op. 67 eftir
Edward Grieg; Edwin McArthur
leikur með á pianó.
17.20 Lltli barnatimlnn. Heiðdis
Norðfjörð stjórnar barnatima frá
Akureyri.Efni þáttarins er allt um
ömmur. M.a. les Tryggvi
Tryggvason kvæðið „Blóm til
ömmu” eftir Kristján frá Djúpa-
læk og stjórnandi þáttarins les
kafla úr bókinni „Jón Oddur og
Jón Bjarni” eftir Guðrúnu Helga-
dóttur.
17.40 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvölds-
ins.
19.00 Fréttlr. Tilkynningar.
19.35 Daglegt mál. Helgi J. Hall-
dórsson flytur þáttinn.
19.40 Avettvangl.
20.05 Pianólelknr I útvarpssal.
Hólmfrlður Sigurðardóttir leikur
planóverk eftir Joseph Haydn,
Frédéric Chopin og Olivier Mess-
iaen.
20.30 Ingeborg. Leikrit eftir Curt
Goetz. Þýðandi og leikstjóri: Gisli
Alfreðsson. Leikendur: Guðrún
Stephensen, Helga Bachmann,
Rúrik Haraldsson, Helgi Skúlason
og Árni Tryggvason. (Áður útv.
1968).
22.00 Smárakvartettinn á Akureyri
syngur. Jakob Tryggvason leikur
með á píanó.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dag-
skrá morgundagsins. Orð kvölds-
ins.
22.35 Þjark á þingi. Halldór
Halldórsson velur úr hljóðritun-
um frá Alþingi siðastliðinn vetur.
Greint verður frá umræðum milli
deildarforseta og einstakra þing-
manna um það hvort taka eigi til-
tekið mál á dagskrá og um vinnu-
álag á þingmenn.
23.00 Kvöldtónlelkar. a. Fiðlusón-
ata nr. 1 1 D-dúr op. 94a eftir
Sergej Prokofjeff. Itzhak Perlman
og Vladimir Ashkenazy leika. b.
Tríó i g-moll op. 63 fyrir flautu,
selló og pianó eftir Carl Maria von
Weber. Roswitha Staege, Ansgar
Schneider og Raymund Havenith
leika.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
Föstudagur
26. júní
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn.
7.15 Leikflmi.
7.25 Tónleikar. Þulur velur og
kynnir.
8.00 Fréttir. Dagskrá. Morgunorð.
Ingibjörg Þorgeirsdóttir talar.
8.15 Veðurfregnir. Forustugr.
dagbl. (útdr.). Tónleikar.
8.55 Daglegt mál. Endurt. þáttur
Helga J. Halldórssonar frá
kvöldinu áður.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund bamanna.
„Geröuri’ eftir W.B. Van de
Hulst. Guðrún Birna Hannesdótt-
ir les þýöingu Gunnars Sigurjóns-
sonar (5).
9.20 Leikflml. 9.30 Tllkynningar.
Tónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
10.30 Islensk tónlist.
11.00 „£g man það enn". Skeggi
Ásbjarnarson sér um þáttinn. ,,Á
Dvergasteini fyrir rúmum 80 ár-
um”, kafli úr endurminningum
Matthíasar á Kaldrananesi; Þor-
steinn Matthiasson skráði og les.
11.30 Morguntónlelkar. Walter og
Beatrice Klien leika fjórhent á
pianó Valsa op. 39 eftir Johannes
Brahms. / Janet Baker og Dietrich
Fischer-Dieskau syngja lög eftir
Felix Mendelssohn. Daniel Baren-
boim leikur með á pianó.