Dagblaðið - 08.07.1981, Page 28
EBE-menn komnir tll viðræðna hér:
„Staða bandalagsins
byggist á hótunum"
— segir Pétur Guðjónsson formaður Fél. áhugamanna
um sjávamtvegsmál
„Ennþá einu sinni eru fulltrúar rík-
ustu iðnríkja heims komnir til fátækl-
inganna á íslandi til að heimta úr hendi
þeirra hlutdeild í þeirri einu auðlind,
sem gerir lff á fslandi mögulegt,” sagði
Pétur Guðjónsson, formaður Félags
áhugamanna um sjávarútvegsmál, í
viðtali við DB í morgun um viðræður
við Efnahagsbandalagið, sem hér fara
fram.
„Málið er allt auðvirðilegt, þar sem
þessir aðilar eru að ráöskast með auð-
lindir Grænlendinga sér til handa til að
komast aftur inn i íslenzka landhelgi.
Enginn nema íslendingar geta nýtt haf-
svæðið milli fslands og Grænlands á
eðlilegum efnahagsgrundvelli, vegna
fjarlægðar frá heimahöfnum og ill-
viðra. Samningsstaða EBE byggist á
hótunum um fjáraustur i óarðbæran
atvinnuveg, sem á að hræða íslendinga
til að þola afarkosti. Efnahagsbanda-
lagið verður að láta af þessari.kröfu-
gerð á sama tima og við gefum þjóðum
þess hér varnaraðstöðu á vegum Nato.
Ef EBE lætur ekki af þvi, liggur beinast
við fyrir fsiendinga að krefjast endur-
mats á allri varnaraðstöðunni,” sagði
Pétur.
Hannes Hafstein, formaður fslenzku
samninganefndarinnar, sagði f morg-
un, að „enn” hefði lítið verið rifizt í
viðræðum við EBE en að því gætí
komið. Reynt væri að semja um,
hvernig fiskstofnunum skyldi skipt
milli EBE og fslands og gera ramma-
samning um fiskverndun fyrir framtíð-
ina. Um væri að ræða karfa, rækju og
loðnu að nokkru leyti. EBE-menn
komu f gær. Ekki tókst i morgun að ná
tali af formanni samninganefndar
þeirra. . HH
Akureyri:
Skellinaðra og bíll í árekstri
Skellinaðra og bifreið rákust saman kvartaði um eymsli í handlegg og var
á Tryggvabraut á Akureyri móts við fluttur á sjúkrahús. Ekki er talið að
Esso-Nesti laust eftir kl. 21 í gær- meiðsli hans séu alvarleg.
kvöldi. Piltur, sem ók skellinöðrunni, -KMU
Tveir merktir hrafnar gera sér dælt við íbúana að
Langagerði 19:
GESTIRNIR GODIR EN
DVÖLIN FULL LÖNG
Á vetrum er ekki óalgengt að hrafnar
leiti til byggða í leit að æti, en öllu
sjaldgæfara er að þeir geri sér ferð á
mannanna fund um hásumarið. Tveir
hrafnar tylltu þó niður fæti á húsi
númer 19 við Langagerði á sunnudag
og þar hafa þeir haldið sig síðan. Þeir
eru merktir á fótum og líklega hafa þeir
sloppið úr gæzlu einhvers, því spakir
eru þeir með eindæmum. Hrafnarnir
fljúga gjarnan stutta stund um ná-
grennið og setjast á nærliggjandi þök
og reykháfa, en leita ávalít til sama
hússins aftur. Þótt hjónunum í númer
19, Stefáni Guðbergssyni og Sigríði
Hjartar, sé vel til gestanna er þeim
farin að þykja dvöl þeirra helzt til löng.
Meira að segja börnin eru hætt að
kippa sér upp við hrafnana og veita
þeim litla athygli. Það er helzt að
krummi minni á sig þegar hann dritar
fram af húsinu. Þá er eins gott að vera
ekki fyrir neðan.
-SA/DB-mynd Sig. Þorri.
KAUP STARFSMANNA Á ARN-
ARFLUGIHF. ER ÚR SÖGUNNI
lokaákvöröun tekin á fundi á morgun
Kaup starfsmanna Arnarflugs hf. á
fyrirtækinu eru úr sögunni sam-
kvæmt heimildum DB. Þeir, sem
áhugasamastir voru um þessi kaup
meðal starfsmanna á sfnum tima,
hafa skoðað málið frá ýmsum
hliðum. ,,Ég hygg að það sé sam-
dóma álit aö ennþá sé talið mjög
vafasamt hvernig bezt sé að þróa
þetta,” sagði Magnús Gunnarsson
framkvæmdastjóri Amarflugs hf. i
viðtali viö DB. Þrir eða fjórir val-
kostir hafa einkum verið kannaðir í
sambandi við kaup starfsmanna á
félaginu og þykir enginn fýsilegur.
Fyrsta alvarlega fyrirstaðan, sem
menn virtust ekki hafa gert sér ljósa
fyrirfram, var varahlutaeign, sem
Flugleiðir hf. töldu eðlilegt að fylgdi
kaupunum ef úr þeim yrði.
Eignarhlutföllin í Arnarflugi eru
talin verða þannig að hlutur Flug-
leiða hf. verði 40% og hiutur Sam-
bandsfyrirtækja verði einhvers staðar
á bilinu 22—30%. Samvinna þessara
aðila tryggi Flugleiðum tvo menn í
stjórn og verði annar þeirra stjórnar-
formaður. Hlutafjáreign starfs-
manna og annarra hluthafa verður þá
áhrifalitil um stjórn og rekstur.
Flugleiðir hf. gera ekki kröfu til
þess að varahlutalagerinn verði eign
Arnarflugs hf., heldur áfram í eigu
Flugleiða hf. sem þá annist allt við-
hald fyrir Arnarflug hf.
Engin alvarleg samkeppni af hálfu
Amarflugs hf. við Flugleiðir hf. er
inni i þessu dæmi. Þá em Flugleiðir
hf. með þessu lausir frá skilyrðum
um sölu til starfsmanna Arnarflugs
hf. sem á sinum tíma var sett meðal
annarra.
Fundur verður um málð annað
kvöld og er talið að þar verði form-
lega tekin ákvörðun um að starfs-
menn vilji ekki kaupa Arnarflug hf.
- BS
fijálst, úháð dagblað
MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ1981.
Tómata-
verðstríð
Verðstríð virðist vera hafið á tómöt-
um í Reykjavík. Sölufélag garðyrkju-
manna auglýsti um heigina nýtt heild-
söluverð á tómötuin. Lækkaöi það þá
um nærri helming eða 40% rúm, úr 30
krónum í 17. Var jafnframt tilkynnt að
verðlækkunin stæði aðeins i nokkra
daga. Síðan þá hafa. verzlanir og gróð-
urhús verið að lækka verðið til skiptis.
Þannig greindi útvarpið frá því á
mánudag að verðið væri þetta 22—26
krónur fyrir kilóið. Gróðrarstöðin
Akur kom óðar með athugasemd og
sagði að hjá sér kostaði tómatakílóið
aðeins 20 kr. 1 allan gærdag dundu svo
auglýsingar i útvarpi frá Blómavali við
Sigtún um að þeir seldu tómatana á 19
krónur kflóið. Álagning á tómötum er
frjáls þannig að haldi svona áfram gæti
verðið komizt niðrundir heildsöluverð
seinast f vikunni.
DS.
ÍDAG
ER SPURNINGIN:
í hvaða dálki, á hvaða blaðsfðu er
þessi smáauglýsing f blaðinu i dag?
Pallur og sturtur. Vörubflspailur
og sturtur i góðu ásigkomulagi
fyrir 10 hjóia bfl óskast til kaups.
Uppl. í sfma 98-1805.
Hver er auglýsingasimi Dagblaðs-
ins?
sjA nánarAbaksíðu
BLAÐSINS Á M0RGUN
Vinningur
vikunnar:
Tíu gíra
reiðhjól frá
Fálkanum hf.
Vinningur I þessari viku er 10
gira Raleigh reiöhjói frú Fálkan-
um, Sudurlandsbraut 8 í Reykja-
vlk.
í dag er birt á þessum staö i
biaðinu spurning, tengd smáaug-
lýsingum blaðsins, og nafn heppins
áskrifanda dregið út og birt l smá-
auglýsingadálkum á morgun. Fylg-
izt vel með, áskrifendur, fyrir
nœstu helgi verður einn ykkar
glœsilegu reiðhjóli rtkari.
hressir oetur.