Dagblaðið


Dagblaðið - 20.07.1981, Qupperneq 3

Dagblaðið - 20.07.1981, Qupperneq 3
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 20. JÚLÍ1981. 3 Hvergi dýrara að gista ogborðaen á íslandi VíOförull skrifar: í Dagblaðinu hinn 4. og 5. júní sl. mátti lesa upplýsingar sem hafðar voru eftir víðlesnu ferðatimariti fyrir kaupsýslumenn undir fyrirsögninni „Hvergi ódýrara að gista og boröa en áfslandi”. Sennilega hefur heimildablaðið verið brezkt þar sem verð var fyrst gefið upp í sterlingspundum — og svo í myntum viökomandi landa. Ekkert er við grein þessa að athuga í sjálfu sér og eru upphæðir að því er virðist sjálfum sér samkvæmar, a.m.k. er það svo um fsiand sem kemur út á gkr. 46.200 fyrir gistingu ogmatádag. Sennilega eru þessar tölur teknar saman að vetri til, og þá sl. vetur, sem einnig getur staðizt, þvi í dag kostar gisting í eins manns herbergi hér í Reykjavík kr. 430 (gkr. 43.000) t.d. á Hótel Loftleiðum, án nokkurra máltíða, og getur þá hver maður gizkað á hvað gisting og matur kostar samanlagt. — Ætli sú upphæð yrði mikið undir 320 kr. (gkr. 32.000)? Þetta verða þá um 75.000 gkr. — sem er auðvitað stórfé — og miklum mun hærra verð en víðast hvar í Banda- ríkjunum. í Bandarikjunum er sennilega lang- ódýrast að halda sér uppi hvað varðar verð á hótelum en síður hvað varðar verð á máltíðum. Auðvitað er ekki sama hvort gist er á dýrustu hótelum eða þeim sem flokkast undir miðlungshótel. En þá er þess að gæta að miðlungs- hótel vestra, svo og öll mótel og hót- elhringir (t.d. Holiday Inn, Best Western, Marriott o.fl.) eru margfalt betur búin að öllu leyti en hótel í Evrópu. T.d. eru flest þessi hótel með sundlaug, sjónvarpi og úrvali af mis- munandi veitingasölum pg öðrum þægindum, þegar komið er út fyrir New York, að ekki sé nú talað um suðurríkin eða Flórída, eða annars staðar. Ég hef fyrir framan mig hótelbók frá Bandaríkjunum og er verð á gist- Endar ná tæp- lega saman er bezt lætur —hvað þá að viðbættri kaupskerðingu ingu á flestum „resort hótelum” þetta $26—40 fyrir tveggja manna herbergi og allt niður i $16—25 fyrir eins manns herbergi — á góðum hótelum. Ef fólk fer til Bandarikjanna á eigin vegum og gengur inn á hótel í Flórída (Miami eöa annars staðar) eru þessar verðupphæðir í gildi. AIls staðar er hægt að fá inni, hvort sem er um sumar eða vetur, því þetta er „iðnaður” í Bandarikjunum og hótelin skipta þúsundum og aftur þúsundum og hvergi neitt vandamál að fá inni, eins og í Evrópu. Máltíðir eru hvergi betri og hvergi ódýrari en í Bandaríkjunum og það vita allir sem þangað hafa ferðazt. Stórar safarikar steikur eru þar á boðstólum á almennum veitingahús- um fyrir 6—8$ og kjúklingar (sem hér eru verðlagðir eins og nauta- steikur) kosta vestra þetta 4—5$ á veitingahúsum, ennþá minna á kaffiteríum. Ekki eru síðri kaup í áfengum drykkjum og bjór þar vestra ($1,50—2,00 drykkurinn) og fleira í þessum dúr. Hins vegar hafa íslenzkir ferða- menn farið flatt á því að kaupa „pakka” með allri þjónustu innifal- inni hér heima áður en fariö er til út- landa, jafnvel til Bandaríkjanna, og auðvitað gera hótel þar enga athuga- semd við þau viðskipti úr því ferða- langar vilja frekar hafa þann hátt á. En því er ekki að neita að fari menn í ferðalag til Bandaríkjanna komast þeir mun betur af þegar þeir kaupa farið eingöngu en sleppa öðrum „fjárfestingum”, t.d. hótelum og mat, og sjá um slíkt sjálfir. En varla verður þvi í móti mælt að ísland er með dýrari feröa- mannalöndum á jörðinni. Guðni Björnsson verkamaður, ^ Hafnarflrði, skrifar: Ég vil taka undir orð Hrafnkels Jónssonar á Eskifirði og þakka honum fyrir þá gagnrýni sem hann hefur sent frá sér á forustu verkalýðs- flokksins, þ.e.a.s. Alþýðubandalags- ins. Sú gagnrýni á rétt á sér. Ég undrast hins vegar viðbrögð þeirra sem flokknum stýra og virðast ekki geta tekið réttmætum ábending- um heldur snúa út úr og telja menn ruglaða. Ég vil benda Svavari Gests- syni ráðherra á það að þá erum við orðnir anzi margir sem höfum rugl- azt, að hans áliti, og tökum undir orð Hrafnkels. Tel ég að Alþýðubandalagiö ætti að leggja meiri rækt við verkalýðinn, kjör hans og gerða samninga og bregðast ekki ókvæða við sanngjörn- um ábendingum. Við finnum fljótt hvort kaupið rýrnar þegar endar ná tæplega saman er bezt lætur, hvað þá þegar um viðbótarkaupskerðingu er að ræða. RAUN ER Alltaf^P eitthvað nýtt og spennandi T0R0NT0 S. ágúst (vikuferðj, laus sæti. Verðfrékr. 2290,00 12. ágúst biðlisti. WINNIPEG 28. júií, 3ja vikna ferð, örfá sætí laus. P0RT0R0Z 22. júií, örfá sætí laus, i 11 eða 22 daga. 2., 12. og 23. ágúst, biðiistí. 2. sept, biðiistí. RIMINI 22. júií, örfá sœtí laus, í 11 eða 22 2., 12. og 23. ágúst biðlistí. 2. sept, 4 sœtí laus. Samvinnuferdir - Landsýn AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899 «1 f «§* ■ ■ S íí ii’ Guðnl Björnsson verkamaður vill benda Svavari Gestssynl ráðherra á sltt af hverju. FALKIN N SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670 dagsins ^------------------------------’i Hver er uppáhalds- hljómsveitin? (Spurt á Kópaskeri). Slgrún Kristjánsdóttir: Start, hljómsveitin sem Pétur Kristjánsson er L Hiédis Gunnarsdóttir: Engin sérstök! Indriði Þröstur Gunnarsson: Clash. Einar Atli Helgason: Abba (aö sögn barnfóstrunnar). Hjólum ávallt hægra megin — sem næst vegarbrún hvort heldur/ við erum í þéttbýli eða á þjóðvegum^ ||UMFERÐAR

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.