Dagblaðið - 20.07.1981, Blaðsíða 15

Dagblaðið - 20.07.1981, Blaðsíða 15
DÁGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 20. JÚLÍ1981. 55 1/5 sn . . . 55 1/5 sn . . . 55 1/5 sn . . . Chuck Mangione: Tarantella Sveiflan situr í fyrirrúmi HaltJ: Tarantalla. Flytjandur Chuck Manglona ásamt hljómavah og gaatum mji. Dlzzy GlllespJa, Chlck Coraa, Stava Gadd o.fl. Útgefandi: A fr M Racords 1981. Draiflng: Kamabasr. Þegar „Fun And Games” kom út fyrir rúmu ári hugsaði ég sem svo að nú væri enn einn góður jazzleikari genginn yfir i poppbransann því þrátt fyrir góða spretti inn á milli var ekki laust við að maður fyndi aðeins fyrir þvi að þarna væri verið að gera fyrst og fremst góða söluplötu. En sem betur er var sá ótti ástæðu- laus því nú hefur Chuck Mangione sent frá sér aldeilis ágæta tvöfalda hljóm- leikaplötu þar sem sveiflan situr i fyrir- rúmi. Annars var tilurð þessa konserts dálítið sérstök. Hann var haldinn til styrktar fórnarlömbum jarðskjálftans mikla á ftaliu 1980. Og til að gera konsertinn sem eftirminnilegastan hafði Chuck Mangione fengið til liðs við sig ýmsa fræga vini sína úr heimi jazzins til að troða upp með sér og hljómsveit sinni. En svo við vikjum að plötunum frá þessum hljómleikum þá byrjar hlið 1 á gömlu ítölsku þjóðlagi, Tarantella, í útsetningu Mangione, og segir á plötu- umslaginu að Chuck Mangione hafi ásamt unnustu sinni stigið ítalskandans við undirleik hljómsveitarinnar i þessu lagi. Á eftir því kemur The Eleventh Commandmant, verk eftir Mangione og þar kemur fram i aðalhlutverki trommuleikarinn Steve Gadd, mjög svo tekniskur og um leið lýrfskur trymbill. Þrátt fyrir góð sóló og ágæta útsetn- ingu er verkið heldur I lengra lagi. Á hlið 2 eru þrjú lög, öll eftir Chuck Mangione, og hafa þau komið út á fyrri plötum hans, það eru lögin Legend of the One-Eyed Sailor, Bell- avia, sem er sérlega fallegt lag, og Hill Where the Land Hides þar sem hljóm- sveitin nýtur sin sérstaklega vel og gerir þetta lag að einu bezt flutta laginu á plötunni. Á seinni plötunni byrjar Chuck Mangione á því að kynna fyrir okkur gamlan kunningja, sjálfan Dizzy Gille- spie. Og eftir að Dizzy hefur látið nokkur gullkorn frá sér fara í töluðu máli er sveiflan strax tekin i nokkrum Gillespie standördum. Things to Come, Round Midnight og Manteca koma hvert á eftir öðru. Og ekki bregzt Dizzy frekar en fyrri daginn, alltaf jafnferskur á trompetinn. Sérlega er gott samspil þeirra Dizzy Gillespie á trompet og Chuck Mangione á flugel- horn í Manteca. Hlið 4 byrjar á gömlum slagara My One and Only Love, og það minnsta sem hægt er aö segja um þetta ágæta lag er að það fær svo sannarlega nýtt lif í meðförum þeirra félaga, Chuck Mangione og Chick Corea, en þeir tveir leika sér einir að þessari einföldu laglinu í tæpar tólf minútur og gera það að bezta og eftirminnilegasta lagi þessa albúms. Þessi konsert stóð i einar 8 klukku- stundir, endaði kl. 5 um morgun og það er þvi aðeins lítill hluti konsertsins sem kemst á þessar tvær plötur en allt endar og eins og á á konsertinum endar platan á jam-session í lagi Miles Davis All Blues og er varla að heyra þreytu- merki á hljóðfæraleikurunum þótt þeir hafi veriö búnir að leika i 8 tíma. Þessar plötur eru góðar f flesta staði, öll tæknivinna til fyrirmyndar og ágæt eign öllum jazzunnendum. 33 1/3 sn . . . 33 1/3 sn . . . 33 1/3 sn . . . Útvarpið með LB/MB og FM-stereó segu/band auto reverse. Verð aðeins kr. 2.430.- Þetta er afleins eitt af mörgum tækj- Fagmenn sjá um ísetningu ó um sem vifl bjöflum í bílinn ásamt staflnum. Komtð þar sem úrvalið er mikiu úrvali af hátölumm, mögn- og verðifl er hagstætt umm og loftnetum. Altt til hljómflutnings fyrir: HEIMILID - BÍLtNN OG DISKÓTEKIÐ PÓSTSENDUM D |. ■ I fxaaio i r ARMULA 38 (Selmúla megin) 105 REYKJAVÍK SIMAR; 31133 83177 POSTHOLF 1366 23 Sænskir dagar Sænskir dagar verða á matstofu Náttúru- lækningafélags íslands, Náttúrunni, að Laugavegi 20 B, 22., 23. og 24. júlí. Opið frákl. 11.00—19.00. Hárskerar Til leigu er góð rakarastofa úti á landi í fullum rekstri. Áhöld gætu fengizt keypt. Tilboð sendist DB merkt „Hárskerar” fyrir 25. júlí. Námskeið ímat- reiðslu jurtafæðis Náttúrulækningafélag íslands heldur þriggja til fjögurra daga kvöldnámskeið í matreiðslu á jurtafæði sem hefst 22. júlí. Kennarar verða frá Svíþjóð. Upplýsingar i síma 16371 alla virka daga. Vakin er athygli á nýju veiðisvæði, sem er Staðará á Snæfellsnesi fyrir landi Staðastaðar, en þar verður veitt á 4 stangir samtímis og mega tveir vera saman um stöng. Lax- og sjóbirtingsveiði. Verð veiðileyfis kr. 250. Frá Akranesi er um 2ja klst. akstur að Staðará. Athugið að enn eru nokkrar stangir lausar á Lýsuvatnasvæðinu sem er í nassta nágrenni við Staðará. Gisting að Hótel Búðum, á félagsheimilinu að Lýsuhóli eða að Görðum. Tjaldstæði fyrir þá sem þess óska. Upplýsingar á skrifstofu SVFR, Austurveri, sími 86050 eða 83425. Stangaveiðifélag Reykjavíkur ORDSENDING TIL UNGS FÓLKS UM SKYLDUSPARNAÐ Munið að skyldusparifé yðar er að fullu verðtryggt með lánskjaravísitölu og ber auk þess 2% vexti. Skyldusparnaður er nú ein hagstæðasta ávöxtun sparifjár og getur orðiðmikilvæg hjálp til íbúðarkaupa. Fylgist því vel með því að tilskilinn hluti launanna fari inn á skyldu- sparnaöarreikning yðar hjá Byggingarsjóði ríkisins sem er í vörslu veðdeildar Landsbankans. # Husnæðisstofnun rikisins LAUGAVEGI 77 • 101 REYKJAVÍK Orðsending til launagreiðenda Launagreiðendur, sem nota skýrsluvélar við greiðslu launa og hafa undanþágu frá sparimerkjakaupum, skulu samkvæmt 1. 51/1980 og reglugerð nr. 193/1981 greiða andvirði sparifjárins þegar að lokinni tölvu- vinnslu til veðdeildar Landsbankans. Dráttarvexti skal reikna hafí greiðsla ekki borist 5 dögum eftir gjalddaga launa. Aðrir launagreiðendur skulu greiða skyldusparifé í sparimerkjum. Spari- merkjabækur eru til afhendingar ókeypis I öllum pósthúsum og póstaf- igreiðslum. #» Husnæðisstofnun rikisins LAUGAVEGI 77 • 101 REYKJAVÍK

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.