Dagblaðið - 20.07.1981, Síða 6

Dagblaðið - 20.07.1981, Síða 6
6 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 20. JÚLÍ1981. LJÓSMYNDIR: , BJARNLEIFUR B.------------ Þjóðveidisbærinn var að sjálfsðgðu skoðaður og & eftir röðuðu ferðalangamir sár fyrir framan bælnn að beiðni Bjamleifs Ijósmyndara. Elns og sást á myndlnni var það enginn smá- hópur sem þama var á f erð. Hin áríega sumarferð starfsmanna Dagblaðsins og Hilmis: A fbragösstemmning í sumarferöalaginu Það er orðinn árviss atburður hjá starfsmönnum Dagblaðsins og Hilmis og fjölskyldum þeirra að fara i sumarferðalag í boði fyrirtækjanna. Sumarferðalagið var að þessu sinni sfðastliöinn iaugardag. Á annað hundrað manns tóku þátt i ferða- laginu, jafnt ungir sem gamlir, og höfðu allir jafngaman af, þrátt fyrir aö veðurguðirnir væru ekki hag- stæðir. Úrheliisrigning var á leiðinni í Þjórsárdalinn, þangað sem ferðinni var heitiö. En þegar stansað var reyndist hið ákjósanlegasta veður, nema hvað sólina vantaði. í Þjórsár- dal buðu fyrirtækin öllum upp á pylsur, samlokur og gos, svo mikið sem hver gat í sig látið. Var svo mikið troðiö i sig að fullorðnir gátu varla staðið upp til að taka þátt i leikjum barnanna sem öll höfðu fengið hinar vinsælu DB-húfur. Stemmningin var þó afbragðsgóð þegar menn tóku sig til, fóru í knatt- leiki, reiptog og fieira. Frá Þjórsár- dal var haldið að Þjóðveldisbænum og hann skoðaöur, þá var einnig hinn sögufrægi bær Stöng skoðaður. Þar nutu menn ágætisveðurs og viðruðu sig með hoppi og hlaupum. Börnin fengu sælgætispoka og blöðrur og varð sumum þeirra að orði að þetta væri eiginlega bara betra en jólaball. Þegar kvöldmatartimi nálgaðist var ekiö sem leið lá að Árnesi þar sem fyrirtækin buðu öllum ferðalöngum upp á þríréttaðan kvöldverð. Þaö var því saddur og hress hópur sem kom í þremur hópferðabílum að Þverholti 11 kl. að veröa 23 á laugardags- kvöldið. Og örugglega bíða allir spenntir eftir næstu sumarferð. -ELA. Veflrið var ákjósanlegt og eftir mMð pytou- og aamlokuát var ágætt eð hvila sig og ræða málináðureni Mkl varferið. Reiptogið fór vel fram og með aðstoð Jónasar Haraldssonar aðstoðarfréttastjóra DB, Sigurðar Hreiöars rit- stjóra Vikunnar og fleiri sterkra manna tókst þessum hlutanum að sigra. Strákamir nutu sin vel í uuverunni og gaisi komst i þá þegar Ijósmyndar- inn nálgaðist „Taktu mynd af mér og mér," sögðu þeir á meðan reynt var að ná bolta af Jóhannesi Reykdal, skrifstofustjóra rítstjómar. DB-myndir Bjamlerfur Bjamleif sson Þráinn Þorieifsson, gjaldkeri DB, stóð sig vel í þessari ferð við að afgreiða pylsumar, eins og jafnan i sumar- ferðalögunum. Haukur Davið Magnússon, 6 ára dóttursonur Bjarnlerfs Ijósmynd- ara, stóð sig vel á leiðinni og söng hástöfum fyrir gesti. Ölafur Eyjólfsson, skrifstofustjóri DB, eiglnkona hans Inga Þórarins- dóttir, Brynhildur K. Andersen, eíginkona Geirs Andersen auglýs- ingastjóra Vikunnar, Sveinn Eyjólfsson, framkvæmdastjóri DB og eiginkona hans, Auður Eydal, gæða sér á pylsum og samlokum í Þjórsárdal.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.