Dagblaðið


Dagblaðið - 20.07.1981, Qupperneq 10

Dagblaðið - 20.07.1981, Qupperneq 10
10 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 20. JÚLl 1981. i t Erlent Erlent Erient Erlent V-þýzka sendiráðinu í Varsjá bárust4400 vegabréfsumsóknir á einum degi: STJÓRNVÖU) HVETJfl FÓLK ÓBHNT AÐ FARA ÚR LANDI —setja varð upp útikamra við vestur-þýzka sendiráðið vegna umsátursástandsins sem þar Hkti Pólverjar flykkjast nú úr landi til að fá sér vinnu og rikisstjórn lands- ins, sem á í hinum mestu erfiðleikum með að sjá landsmönnum fyrir at- vinnu og matvælum, lætur sér það vel líka. Svo mikil aukning hefur orðið á fóiksstraumnum úr landi að segja má að umsátursástand ríki nú við sendi- ráð erlendra ríkja í Varsjá þangað sem Pólverjar hópast dl að fá vega- bréfsáritun. Langalgengasti áfangastaðurinn er Vestur-Þýzkaland. Þangað er búizt við að hálf milljón Pólverja haldi í heimsókn í sumar, sem er tvöfalt meira en var á síðastliðnu ári. Það ár var þó metár hvað þetta atriði varð- aði. Biðraðirnar fyrir utan v-þýzka sendiráðið hafa orðið svo miklar að lögreglan hefur orðið að endurskipu- leggja alla umferð við sendiráðið og komið hafði verið fyrir færanlegum údkömrum fyrir fólk sem lét fyrir- berast i bifreiðum sinum i biðröðinni, jafnvel dögum saman. Kamrarnir voru þó fjarlægðir á ný vegna mót- mæla frá íbúum i hverfinu. Á einum degi nýverið bárust vestur-þýzka sendiráðinu alls 4400 umsóknir. Sendiráðið hefur orðið að tvöfalda fjölda starfsfólks sins og auk þess að taka fullkomna tölvu í notkun. Aðeins um einu prósenti af öllum umsóknunum er hafnað, að því er vestur-þýzkur embætdsmaður segir. Svipaða sögu var að segja frá sendiráðum annarra vestrænna þjóða þó ekki jöfnuðust þær á við það sem átti sér stað við sendiráð Vestur- Þýzkalands. Þannig eru umsóknir til ástralska sendiráðsins það sem af er þessu ári þegar orðnar fjórum sinnum fleiri en á öllu siðasta ári eða 800 á móti 200 á síðastliðnu ári. Langflestir fara Pólverjarnir úr landi með venjuleg ferðamannavega- bréf sem yfirleitt veita þeim ekki heimild til að vinna í því landi sem þeir heimsækja. Starfsmenn sendi- ráðanna gera sér þó fulla grein fyrir því að flestír ferðamannanna fara úr iandi beiniínis tíi að verða sér úti um eitthvert starf. „Við erum ekki vanir að hafa áhyggjur af þvi þó ungiingar hjálpi til við uppskeruna á Vesturlöndum gegn smávægilegum vasapeningum,” sagði einn starfsmaður vestræns sendiráðs. „Við reynum hins vegar að finna þá sem líklegir eru til að ætla sér að setjast að erlendis fyrir fullt og allt.” Þetta er engan veginn eins auðvelt og það kann að virðast. Þó mörg lönd krefjist þess að umsækjendur sýni bréf frá ættingjum erlendis þar sem viðkomandi er boðið í heimsókn, ,,þá leynist venjulega einhvers staðar fjarskyld frænka,” sagði einn sendi- ráðsmannanna. Ef það bregzt má alltaf verða sér úti um heimboð frá „atvinnu-gestgjafa” sem útvegar heimboð gegn ákveðinni greiðslu. Afleiðingin er sú að vaxandi fjöldi Pólverja snýr ekki heim aftur að loknu sumarleyfmu. í síðasta mánuði sóttu 200 Pói- verjar um hæli í Austurríkisem pólit- Pólskir flóttamenn við komuna til Austurrikis, sem er helzti stökkpallur þeirra sem ætla sér til Bandarikjanna, Kanada eða Ástraliu. Pólsk stjórnvöld láta sér vel lika fólksstrauminn úr landi. iskir flóttamenn en Austurríki er hinn hefðbundni stökkpallur flótta- manna sem ætla sér að komast tíl Bandaríkjanna, Kanada eða Ástralíu. í síðustu viku skýrði stjórn Vestur- Berlínar frá því að fjöldi pólskra flóttamanna til borgarinnar hefði verið 200 í síðasta mánuði en var um 30 á mánuði á síðastliðnu ári. Vandamál Póllands felst 1 þvf eins og PAP, hin opinbera pólska frétta- stofa, benti á, að margir flóttamann- anna eru hámenntað fólk, það fólk sem pólska þjóðin má sízt við að missa. Þó venjulega hafi verið mikill straumur fólks frá Póllandi á þessum tíma árs, fólks sem ætlar sér að ná í dýrmætan erlendan gjaldeyri, þá virðast hinar löngu biðraðir við sendiráðin nú benda tíl að eitthvað meira standi til. Áður fóru Pólverjar úr landi til að þéna dollara eða þýzk mörk til kaupa á lúxusvörum eins og bifreiðum, sígarettum, áfengi eða jafnvel sumar- bústöðum. Sérstök ríkisstofnun selur bygg- ingarefni til þeirra sem geta borgað með erlendum gjaldeyri en aðrir eiga enga möguleika á að verzla þarna. Eltingarleikurinn við vegabréfin virðist hafa aukizf mjög vegna hins lukna frjálsræðis sem nú ríkir arðandi útgáfu vegabréfa. Það er :kki fyrr en nú fyrir stuttu sem nán- ist hver sem er getur fengið vegabréf. Núna eru Pólverjar ekki svo mjög ið eltast við lúxusvarning heldur vmsar lifsnauðsynjar, svo sem pvottaefni, sápu, salernispappír og fleira sem er mjög stranglega skammtað í Póllandi. PAP-fréttastofan skýrði frá því í síðasta mánuði að á fyrsta fjórðungi þessa árs hefðu meira en 226 þúsund vegabréf verið gefin út sem er næstum 50 prósent aukning frá sið- astaári. Sumir vestrænir stjórnarerindrekar líta á frjálsræði pólskra stjórnvalda í essum efnum sem beina hvatningu 1 Pólverja um að halda utan til innu sem margir þeirra geta ekki :engið heima fyrir. Möguleikinn á formlegri „farandverkamannaáætl- :.;n”, eins og Vestur-Þýzkaland hefur gagnvart löndum eins og Júgóslavíu :>g Tyrklandi, hefur ekki verið útílok- íiður. „Það er engin formleg stefna enn en stjórnvöld virðast vinna að henni,” sagði einn vestrænn stjórnar- erindreki. „Aukið frjálsræði í ferða- lögum kemur mjög vel heim og saman við h'ina nýju frjálsræðis- stefnu stjórnvalda á sama tíma sem frjálsræðið leiðir af sér aukna gjald- eyrisöflun og dregur úr atvinnu- leysi.” Eitt vandamálið felst í því að vega- bréfin gilda venjulega aðeins í ákveðinn tíma og þeir sem brjóta þau timamörk eiga það á hættu að lenda á svörtum lista sem gerir það að verkum að þeir fengju synjun næst er þeir sæktu um vegabréf. Talsmaður stjórnarinnar segir að búizt sé við að 100 þúsund Pólverjar haldi úr landi í þeim tilgangi að fá sér vinnu í lengri tima og að yfirvöld íhugi að framlengja gildistíma vega- bréfa þeirra úr einu ári í þrjú, þar á meðal vegabréf þeirra sem þegar eru komnirúrlandi. (Reuter) Biðraðir hafa mjög einkennt pólskt þjóðlif siðustu mánuði, einkum við verzlanir, en nú eru stærstu biðrað- irnar jafnan við sendiráð Vestur- Þýzkalands.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.