Dagblaðið - 20.07.1981, Síða 25

Dagblaðið - 20.07.1981, Síða 25
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDÁGUR 20. JÚLl 1981. 33 Nokkrar af kartöflunum sem Hafdis sendi okkur. Hún benti á að þetta værí sér- stök steikarstærö en flestar kartöflurnar sem hún á til eru nokkuð minni. Þær fara þó allar i fyrsta flokk. Annar flokkur er ekki seidur. DB-mynd Bj.Bj. Góðar kartöf lur á Dalvík Grænmetið vill ekki selja þær Hafdís Hafiiðadóttir, Stórhólsvegi 8 Dalvík, skrifar: „Nóg til af vondum kartöflum” las ég í pistli DS sl. laugardag. Það eru líka til býsna góðar kart- öflur ef vel er gáð, en vegna undar- legra reglna um dreifingu á kartöfl- um þurfið þið veslingarnir í Reykja- vík og viðar að naerast á „annars flokks kartöflum” eða „svinafóðri”. Mér blöskrar alveg hvernig fólk lætur fara með sig. Ég sendi þér fáeinar kartöflur í poka sem sýnishorn af þvi sem leynist í góðri og vel kældri geymslu á Dalvík við Eyjafjörð. Þessar kartöflur eru teknar upp með höndunum eins og yfirmatsmaður garðávaxta vill að sé gert. Allar líkur benda til þess að þessum kartöflum verði keyrt á haug- ana, 50—60 tonnum. Annars flokks kartöflur reynum við ekki einu sinni að selja,” segir Hafdís í bréfinu. Hún bætti því við í símtali að hvað eftir annað væri búið að tala við for- ráðamenn Grænmetisverzlunar land- búnaðarins, um að selja þessar kart- öflur. Það væri hins vegar ekki hægt og því borið við að Hafdís og hennar fólk væru ekki bændur. Rækta þau þó kartöflur ofan í alla á Ólafsvík og Dalvík svo eitthvað er sú skilgreining skrýtin. Kartöflurnar sem hún sendi mér voru svo fallegar að þær hefðu getað verið að koma beint upp úr garðin- um. Ég borðaði þær með fiski í gær og lét eftir mér að borða hýðið með, nokkuð sem ég gat aldrei gert við kartöflurnar frá „Grænmetinu” sl. haust. Hýðið var strax þannig að enginn heilvita maður lét það ofan í sig. Kartöflurnar hennar Hafdísar voru lika betri á bragðið svo að ég hafði ekki bragöað betri í lengri tima. Grœnmetisverzlunin skemmir En bæði henni og öðrum verður að segja að eftir að þær kartöflur hefðu farið í gegnum hendur Grænmetis- verzlunarinnar hefðu þær ekki verið svona. Ég man eftir því fyrir nokkrum árum að óþverri var hér á kartöflumarkaði. Þá heimsótti ég bónda í Þykkvabæ sem mikið seldi af kartöflum. í stað óþverrans sem ég sá í búðum fékk ég að sjá kartöflur sem voru eins og nýkomnar upp úr garði. Hann sendi mig með kartöflur í bæinn og átti ég þær lengi óskemmdar, þrátt fyrir að ég geymdi þær á sama hátt og aðrar kartöflur. Forráðamenn Grænmetisverzl- unarinnar vilja ekki viðurkenna að vandinn liggi hjá þeim. En það þarf ekki skarpari menn en mig til að sjá að það hlýtur að vera. Þegar kart- öflur fara óskemmdar frá bændum en koma skemmdar í hendur neyt- enda hlýtur milliliðurinn, sem í þessu tilfelli er Grænmetisverzlunin, að vera ábyrgur fyrir skemmdum. Satt að segja undrar mig ekki að kartöflur fari illa hjá Grænmetinu. Bílstjórana hef ég séð henda pokunum af og á bíla með miklum látum. Síðan hef ég séð að kartöflupokum er raðað í himinháa stafla í geymslum Græn- metisins. Ekki fer það vel með þær neðstu. Ég held að meinið sé ein- okunin. Enginn keppir við Græn- metisverzlunina og forráðamönnum hennar má vera nákvæmlega sama hvort einhver kaupir kartöflur eða ekki. Fyrr en óþverrinn er búinn er nefnilega ekki boðið upp á annað. Þeir fáu sem rækta eigin kartöflur eru litlir kallar sem ekki þarf að ótt- ast og því hreiðrar Grænmetisverzl- unin um sig í einokun sinni og býöur okkur óþverra. Svei því. n„ Tvíburarnir þurfa fokdýran — þólitlirséu E.B. skrifar: Ég ætla að senda ykkur örfáar línur með þessum seðli mínum. Ég hef nokkrum sinnum byrjað að halda bókhald en alltaf gefizt upp. Ég vona að sú verði ekki raunin á núna. Það veitir víst ekki af því frekar en áður að reyna að halda í aurana sína. Þessar tölur hjá mér eru óheyrilega háar (649 krónur á mann i mat og hreinlætisvörur). Ég fæ reyndar aldrei neinn fínan mat frekar en margir aðrir. Ég veit ekki hvort þið teljið ung- börn með sem heilan mann en þau mat eru reyndar ekki ódýr í fæði. Eg er með 4 mánaða tvíbura og maturinn þeirra er alveg fokdýr, ég tala nú ekki um á meðan þeir fengu þurrmjólk og dósin dugði í 2 daga. í liðnum annað er m.a. rafmagn og hiti, 420, bíllinn, 1396, afborganir af lánum,966,70, og slíkt mætti lengi telja! Svar: Velkomin í hópinn. Auð- vitað teljum við börnin með og það sem heilan mann. Eins og þú bendir réttilega á eru þau ekki ódýrari á fóðrumenannaðheimilisfólk. -DS ■ rta d'aOPl01 :fíís liöftmi fi . SH11.S B&O! ’f'Oó* t>o 0 e,'SÍ>tl0" to c BB00oCO aS eB°*^.e r6S" 'rÖ te«®er capaci e . 0is^í>Ó°eS itjeo ^eoGofö ?00 0 US sVs tefl'i óoo' ,tTs ,.Petl „„,en hia. eafa Pnf! ‘i.arKa6 ,„aseguT rtnnurP1.® höfum Cristia£öoiLrfseon-^ki ^ gÖJUStÍ^ tjlefni tn Eins og þegar hefur komiö fram í fjölmiðlum hafa fremstu verksmiöjur i sjónvarps- og myndsegulbandafram- leiöslu núþegárgertsamninga um V2000 kerfiö frá Philips, en alls hafa 23 fyrir- tæki samiö um framleiðslurétt, - þeirra á meöal eru Grundig, Siemens, Bang & Olufsen, ITT, Pye, Siera og Zanussi.* ... . Philips V2000 'Vib biöjum Luxor vetvirdmgar á þvi ab vib notubum nafn þeirra i augtýsingu. Luxor hefurekki tangib Iramleibsluleyh ennþé. Þaö fer ekki á milli mála, aö Philips- kerfiö fer nú sigurför um heiminn. Nýjar verksmiöjur í Austurríki og Hollandi koma til meö aö margfalda framleiöslu- afköstin á næstu mánuöum, en langur biölisti liggur fyrir hjá Philips meö umsóknum um framleiösluleyfi. heimilistæki hf Hafnarstræti 3 — Sætúni 8.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.