Dagblaðið - 23.07.1981, Side 2
1
________________________________DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ1981.
HVORT ER SKYNSAMLEGRA AÐ EYÐA
SNJÓ OG HÁIKU MED BAKRENNSUS-
VATNIEDA NOTA DÝRARIAÐFERDIR?
V.
—athugasemd vegna upphitunar á bflastæði
Sigurður Grétar Guðmundsson skrif-
ar:
í Dagblaðinu sl. fimmtudag sá ég
aö „starfsmaður í Skeifunni” hafði
hringt og kvartað undan því að hita-
veitan er að láta ganga frá upphitun á
bilastæði sínu.
Aðrir munu svara fyrir fjárfest-
ingar Hitaveitu Reykjavíkur, en ég er
verktaki að umræddu verki, ásamt
Loftorku hf., og vil benda á að þetta
er athafnasvæði fyrir vinnuvélar hita-
veitunnar. í framhaldi af því spyr ég:
Hvort er skynsamlegra að fjarlægja
snjó og eyða hálku með bakrennslis-
vatni, sem er fyrir hendi í dælustöð-
inni og kostar þvi ekkert, eða nota til
þess mannafla og vinnuvélar sem
brenna innfluttu, dýru eldsneyti?
Eftir næsta vetur vona ég aö
„starfsmanni i Skeifunni” verði ljós
hagkvæmni þessarar framkvæmdar.
Þessi staðreynd hefur rúnnið upp
fyrir æ fleiri einstaklingum og fyrir-
tækjum og veit ég ekki um neinn sem
hefur séð eftir útlögðum stofn-
kostnaði í þessum tilgangi. Hins
vegar veit ég um marga er sjá eftir að
hafa ekki látið hita bílastæöi sin.
Viðvíkjandi „ofsjónum yfir
þvf sem forseti íslands gerir
á góðri stund”
Þórarinn Samúelsson, 9419-2773,
skrifar:
í grein í Dagblaðinu 18. júlí 1981
var óskað svara við þremur fyrir-
spurnum. sem varða forseta íslands,
Vigdísi Finnbogadóttur.
Sá er spyr kýs að leyna nafni og
nafnnúmeri en lætur lögfræðingstitil
duga, enda kannski viðeigandi þegar
andi þessara skrifa er gaumgæfður.
Mikið á lögfræðingastéttin gott að
eiga svona vel hugsandi einstaklinga i
röðum sínum, einkum þegar þessi
einstaki „velvilji” beinist að einum
ástsælasta þjóðhöfðingja sem
íslendingar hafa eignazt síðan þeir
sem þjóð hlutú sjálfstæði.
Sé þessi felusveinn ungur hefur
hann kannske ekki séð myndir, sem
margir hengdu upp og víða voru til,
af dönsku konungshjónunum og
þótti ekki skömm að. Sé hann á
miðjum aldri, eða eldri, veröur'þessi
„velvilji” torskildari. Þá hlýtur hann
að hafa séð þessar dönsku myndir og
látið sér vel líka. Hvers vegna er
verið að hnýta í menn fyrir að vilja
Fyrirspum til skrif stofu
forseta íslands
eða dómsmálaráðuneytisins
—lögfræðingur óskar svara
l.ugfræðingur skrifar:
Vinsamlcgasi komið cflirfaiandi
spurnmgum á I ramfæri:
I. Hvcr gaf fyrirmæli um að nop
skyldu hengdar myndir ai fo:>cia
íslands, Vigdisi Finnbogadótlur, i
ýmsum opinbcrum stofnunum nú
upp á siðkastið. meftal annars i stofn-
unum dómskcrfisins?
2. Hvcr kostar þcssar myndir?
3. Hvafta gildi hefur sá gjörningur
forscta aft sæma ungan drcng,
norftur á Ströndum. jarlstign? Sbr. |
78. grein stjórnarskrár iýftvddisins.
þar scm lagt cr blátt baiin við slikum I
gjörningi.
Svar óskast frá skrifstofu forseta |
Islands efta dómsmálaráðuneytin
Umrætt lesandabréf, sem birtist i DB 18.
sjá á vegg mynd þeirrar konu og
þjóðhöfðingja sem á stuttum tlma
hefur verið landi og þjóð til mikils
sóma, borið hróður íslands og mun,
með guðs hjálp, gera það áfram?
Hvað viövíkur ofsjónum yfir þvf
sem forseti íslands gerir á góðri
stund, til gamans fyrir gesti sina eða
gestgjafa og til ljúfrar minni.igar
fyrir ungandreng, finnst mér afstaða
felufræðingsins, vægast sagt, vera
fyrir neðan allar hellur (og honum
sæmandi). Vona ég innilega að
einhver góðviljaður komi aumingja
manninum til hjálpar ef hægt yrði að
lækna þetta andlega harðlífi hans
með vinsemd.
Upphituð aðkeyrsla sjúkrablla við Landspitalann er auð þótt umhvcrfið sé þakið
snjó.
Hvítum samfestingi
stolið af snúru í
Hafnarfirði
— einhver virðist stunda stuld á
samfestingum
Kolbrún Jónsdóttir, Heiðvangi 60
Hafnarfirði, hringdi:
Ég las í Dagblaðinu um daginn að
hvitum samfesdngum hefði verið
stolið af snúrum i Kópavogi. Ég bý í
Hafnarfirði og svo vill tíl, að hvítum
samfestingi var stolið af snúru hjá
mér laugardaginn 11. júlí. Ég hengdi
þvott út það kvöld og kl. 9 á sunnu-
dagsmorguninn var samfestingurinn
horfinn, en ekkert annað hafði verið
tekið. Það er eins og einhver stundi
þennan þjófnað.
Umræddur samfestingur er hvítur,
úr bómull, nr. 36 og alveg nýr. Hann
er hnepptur aö framan, með teygju í
bakið og kvartermum. Það er brotið
upp á þær og litlir spælar við upp-
brotin og einnig á öxlum. Skálmarnar
eru siðar og þröngar og stórir faldir
vasar á mjöðmunum, annars engir.
Ef einhver skyldi geta gefið upplýs-
ingar um þetta þá læt ég síma-
númerin fljóta með: 52688 og vinnus.
54016 þriðjud. og föstud. kl. 9—16.
r
Nú, í byrjun áratug-
arins, er sívaxandi eftírspurn eftir
bílum með lífgandi og þó einfaldan svip, sem
eyða litlu án þess fórnað sé öryggi eða aksturs-
hæfni. Nýju ISUZU Gemini bílarnir fullnægja
þessum kröfum að öllu leyti. Þeir eru stílhreinir og
nýtískulegir í útliti, loftmótstaða er lítil, og hægt er
eða 1817 cnf’ vél með ofanáliggjandi knastás. Og þetta er ekki það eina.
Nýju Geminibílarnir eru búnir ýmsum nýjungum, sem auðvelda
aksturinn og gera hann skemmtilegri. Að ekki sé minnst á fallega IffÉl AI%EII 1% CAMDAIinCIIIC
innréttingu og frábært útsýni. ytUllltlLD jAIVIdANDIINj
Komið og reynsluakið Gemini!
A rmúla 3 Reykjavík Sími38 900