Dagblaðið - 23.07.1981, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ1981.
3
V
MiWUC -
£S6Z£.//rf
„Arnarflug hefur sagt upp fjölmörgum Íslendingum og jafnframt þvi er veriö að ráða útlendinga,” segir fyrrverandi flugvél-
stjórí.
STUÐLA ARNARFLUG OG FLUG-
MÁLASTJÓRN AD RÁÐNINGll
ÚTLENDINGA Á KOSTNAÐ
ÍSLENZKRA FLUGÁHAFNA?
—f lugvélst jóri fær „ekki annað séð en færa verði stimpilinn
í hendur samgönguráðherra”
Valdimar Samúelsson, fyrrverandi
flugvélstjórí hjú Arnarflugi, skrifar:
Komizt hefur upp að Flugmála-
stjórn veitir Arnarflugi undanþágur,
eftir vild, fyrir erlenda flugmenn,
flugvélastjóra og flugvirkja. Þetta er
í trássi við yfirlýsingar Arnarflugs-
manna um að nýta innlenda starfs-
krafta, sem fyrir hendi eru, og einnig
mætti þjálfa upp þá er á kynni að
vanta.
Sumir erlendu flugvélstjórarnir
uppfylla ekki kröfur, sem islenzk lög
kveða á um, m.a. að flugvélstjóri
verði að vera flugvirki að mennt. Það
er nauðsyn, þar eð þeir framkvæma
allar skoðanir á flugvélum fyrir hvert
flug. Arnarflug er skrásett hér og
leigir vélar sínar með áhöfnum. Það
er slæmt og finnst manni að bæði
Arnarflug og Flugmálastjórn ættu að
kynna sér ástandið i atvinnumálum
flugáhafna og flugvirkja, áður en
undanþágur eru veittar. Tugir manna
myndu sækja um stöður þessar, væru
þær augiýstar. Enga auglýsingu þessa
efnis hef ég samt séð
Þetta er enn furðulegra f Ijósi þess,
að Arnarflug neiur sagt upp fjöl-
mörgum fslendingum og jafnframt
því er verið að ráða útlendinga. Til
dæmis hefur Arnarflug sagt upp um
60% vélstjóra og öllum flugvirkjum í
innanlandsflugi, að tveim undan-
skiidum. Allir flugvirkjar í utan-
landsstarfsemi Jteirra eru útlendingar
og einnig liklega um 50% flugmanna.
Arnarflug var stofnað af mönnum
sem allir voru flugáhafnarmeðlimir
og flugvirkjar. Fyrir dugnað þeirra er
fyrirtækið orðið næststærsta flug-
félag fslands. Hvað varð af þessum
hópi manna? Aðeins einn er eftir í
stjórn Arnarflugs.
Hringið''sín“
2fi&
milli kl. 13 og 15,
eðaskrifiö
Þar eð umrætt flugfélag setur ekki
sóma sinn í að nýta innlendan mann-
skap get ég ekki annaö en stungið
upp á að lög verði sett um að
fslendingar hafi forgang að þessum
störfum.
Að auki er mér einnig óskiljaniegt
að Flugmálastjórn skuli leyfa sér og
hafa vald til þess að telexa undan-
þágur sínar umsvifalaust, þegar
beiðni berst frá Arnarflugi, án
nokkurs samráðs við islenzk stéttar-
félög.
Fæ ég ekki annað séð en að færa
verði stimpilinn yfir í hendur sam-
göngumálaráðherra, sem hefur verið
okkur hliðhollari en Flugmálastjórn,
er ég hélt vera verndara flugfólksins.
Allta£P
eitthvað
nýtt og
spennandi
WINNIPEG
28. júlí, 3ja vikna ferð, örfá
sœtilaus.
T0R0NT0
5. ágúst (vikuferð), örfá sæti
laus.
12. ágúst, biólisti.
RIMINI
2. ágúst, biðlisti
12. ágúst, biðlisti
23. ágúst, biðlisti
2. sept., örfá sœti laus
P0RT0R0Z
2. ágúst, biðlisti
12. ágúst, biðlisti
23. ágúst, biðlisti
2. sept., biðlisti
Öll almenn ferðaþjónusta —
hvarsem er oghvertsem er.
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899
Allír vilja
vatns-
þétt þök
Kynntu þér úrvalið af Aquaseal
þakpappa. Mismunandi teg-
undir fyrir mismunandi að-
stæður.
Auk þess sérstök Aquaseal efni
fyrir sprungu- og holufyllingar
og gljúpa fleti.
Rétt láð gegn vaka
OLÍUVERZLUN ÍSLANDS HF.
HAFNARSTRÆTI 5 • REYKJAVÍK
SÍMI 24220
Spurning
dagsins
Hvernig fannst þór
Völsungur standa
sig?
(Spurt á Húsavfk daginn eftlr afl fal.
landsliðið I fótbolta vann Vöfaung
1-0).
Páll A. Höskuldsson: Þeir stóðu sig
vel, úrslitin voru þó sanngjörn.
Friðgeir Axfjörfl (yngri): Ég bjóst við
að landsliðið burstaði þá en Völsung-
arnir stóðu sig bara nokkuð vel.
Smári Sigurðsson: Þeir voru betri en ég
átti von á. Lánsmennirnir í liðinu
styrktu það að vísu mikið. Mér
var sárara um hvað völlurinn fór illa í
leiknum en þó þeir töpuðu!
Haraldur Sigurjónsson: Vel, ég átti
ekki von á að úrslitin yrðu þessi. Völs-
ungar áttu samt ekki skilið að vinna.
Ólafur Samúelsson: Ágætlega, ég hélt
að Völsungar myndu tapa 3—0.