Dagblaðið - 23.07.1981, Blaðsíða 28
Alusuisse
boðið í
reiknings-
tíma
Hjörleifur Guttormsson iðn-
aðarráðherra hefur nú svaraö
neitun Alusuisse um að korna til
viðræðna um endurskoðun áJ-
samninga. í svari hans er bent á
að það efnisatriði sem Alusuissc
drepur á úr skýrslu Coopers &
Lybrand séu i ósamræmi við
niðurstöður endurskoöcndanna
sjálfra.
Hjörleifur býðst i svari sinu til
að ræða við Alusuisse um hvernig:
eigi að feila niðurstöður súráls-
rannsóknarinnar inn i árs-
reikninga ÍSAL i því skyni að,
reikna út réttar skattgrei ðslur 41-
versins til íslenzka rikisins.
Þá er það harmað að Aiusuisse
skuli hafa hafnað viðræðum um
endurskoðun og látin i Ijós von
um að fyrirtækið breyti afstöðu
sinni fyrr en seinna, þar sem
annars verði að leita annarra leiða
til að ná fram brcytingum á raf-
orkuverði, skattregium og fleiri
atriðum.
-KMU.
Kjartan og
Hjörleifur
ræddust
viðí
morgun
Kjartan Jóhannsson, formaður
Alþýðuflokksins, hélt i morgun til
fundar við Hjörleif Guttormsson
iðnaðarráðherra. Umræðuefni þeirra
mun hafa verið súrálsmálið og væntan-
lega samráð stjórnarinnar við stjórnar-
andstöðuna um þau skref sem stigin
verða i deilunni við Alusuisse. Sem
kunnugt er af fréttum hefur Alþýðu-
flokkurinn lýst því yfir að hann telji að
Alusuisse hafi ekki farið að gerðum
samningum.
Kjartan var ekki sá eini sem Hjör-
leifur hafði boðað á fund sinn.
Trúnaðarmenn starfsmanna í álverinu
höfðu einnig verið boðaðir í viðtal til
iðnaðarráðherra.
-KMU.
„ENGIN LEYNI
SKÝRSLA”
— segir forstjóri Mjólkursamsölunnar um niðurstöður
nef ndar sem kannaði skemmdir á mjólkurvörum
,,Það er mjög mikill mis-
skilningur, sem fram hefur komið í
fréttum, að álitsgerð þessarar nefnd-
ar sé einhver leyniskýrsla,” sagði
Guðlaugur Björgvinsson, forstjóri
Mjólkursamsölunnar, í samtali við
DB í morgun er hann var inntur eftir
því hvort allar niðurstöður nefndar
þeirrar, sem Mjólkursamsalan
skipaði til að kanna orsakir skemmda
á mjólkurvörum, væru komnar fram
í dagsljósið.
Guðlaugur sagði að einn stjórnar-
manna Neytendasamtakanna hefði
haft samband við sig vegna þessa
máls og óskað eftir því að fá að sjá
álitsgerð nefndarinnar. „Ég benti
honum á að þessi nefnd hefði starfað
alfarið á vegum Mjólkur-
samsölunnar,” sagði Guðlaugur,
„það að ef dreifa ætti skýrslunni þá
væri eðlilegast að stjórnendum
mjólkurbúanna gæfist færi á að
kynna sér niðurstöðurnar fyrst, en
nefndin skilaði áliti sl. sunnudag.
Þetta sagðist stjórnarmaðurinn skilja
mætavel og verð ég því að segja að
ég er undrandi að sjá annað haft eftir
honum um þetta mál í einu dag-
biaðanna í morgun.
Mjólkursamsaian hefur birt allar
niðurstöður nefndarinnar, sem skipta
máli, í ítarlegri fréttatiikynningu
þannig að það er mikill misskilningur
að hér sé um einhverja leyniskýrslu
að ræða,” sagði Guðlaugur
Björgvinsson.
-ESE.
Kjartan Jóhannsson kemur tilfimdar við Hjörieif Guttormsson I morgun.
DB-mynd: Siguröur Þorri.
frfálst, úháð dagblað
FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ1981.
Forstjóri ÍSAL:
Birta má
skýrsluna
—en sleppa
kannski
nokkrum töf lum
„Mér þykir mjög sennilegt að birta
megi mestalla skýrsluna en sleppa
kannski nokkrum töflum,” sagði
Ragnar S. Halldórsson, forstjóri ÍSAL,
í samtali við DB í gær. Hann var
spurður hvort hann væri sammála
þeirri skoðun Kjartans Jóhannssonar,
formanns Alþýðuflokksins, að ekkert i
súálsskýrslu Coopers & Lybrand, utan
1—2 töflur, væri þess eðlis að ekki
mætti koma fram fyrir sjónir
almennings.
Ragnar tók skýrt fram að hann
talaði ekki fyrir hönd Alusuisse heldur
væri þetta hans eigin skoðun.
Hingað til hefur aðeins útdráttur úr
skýrslu Coopers & Lybrands verið
birtur og borið við viðskiptaleyndar-
málum. Sjálf skýrslan hefur ekki verið
opinberuð.
-KMU.
Nýr f ram-
kvæmda-
■ ■ r m
stjori
Arnarflugs
Gunnar Þorvaldsson aðstoðar-
framkvæmdastjóri Arnarflugs hefur
verið ráðinn framkvæmdastjóri Arnar-
flugs frá og með 1. september. Hann
tekur við starfi Magnúsar Gunnars-
sonar, sem lætur af störfum að eigin
ósk. Gunnar Þorvaldsson hefur starfað
hjá Arnarflugi frá stofnun þess, fyrst,
sem flugstjóri, flugrekstrarstjóri frá
1978 og aðstoðarframkvæmdastjóri frá
1980.
-ELA.
Forstöðumaður Heilbrigðiseftirlits ríkisins:
Væntiþess að far-
ið verði að lögum
— um margfalt brot mjólkursamlaga að ræða — kæra heilbrigðiseftirlitsins
‘ 1978 felld niður
„Það er einfalt svar við þeirri
spurningu. Heilbrigðiseftirlit ríkisins
tók þessar kvartanir til sérstakrar
athugunar föstudaginn 10. júlí þegar
kvartanir fólks voru sem mestar,”
sagði Hrafn V. Friðriksson forstöðu-
maður heilbrigðiseftirlitsins er DB
spurði hann hvers vegna stofnunin
hefði ekki kært mjólkursamlögin fyrr
en nú.
„Fyrst gerðum við ýmsar
athuganir, vettvangsrannsóknir og
öfluðum upplýsinga til þess aðganga
úr skugga um að þessar kvartanir
ættu við rök að styðjast. Niðurstöður
lágu fyrir á miðvikudag og strax á
fimmtudagsmorgni voru okkar
niðurstöður lagðar fyrir heilbrigðis-
ráðherra og ráðuneytið. Þann sama
dag var kæran Iögð fram og
opinberrar rannsóknar krafizt. Þarna
var ekki um neina töf að ræða,”
sagði Hrafn.
„Við kærðum Mjólkursamsöluna
í Reykjavík í ágúst 1978 vegna meints
brots á stimplun síðasta söludags.
Það mál var að hluta tíl það sama og
þetta sem nú er komið upp. Málið
var lengi í rannsókn og það sem við
heyrðum næst af málinu var eftir ára-
mótin 1979. Þá fengum við til-
kynningu frá rikissaksóknara þar
,sem sagði að rétt hafi þótt að fella
málið niður þar sem það atriði sem
kæran var byggð á, stimplun síðasta
söludags, hafi verið leyft með undan-
þágu,” sagði Hrafn.
—Áttu þá ekki von á því að málið
verði fellt niður aftur?
„Ég vænti þess að ríkissak-
sóknari og lögreglan geri skyldu sína í
þessu máli sem öðrum og fari að
lögum. Hér er um margfalt brot að
ræða sem Mjólkursamsalan hefur
beðizt afsökunar á, en það er að
sjálfsögðu ekki nægjanlegt til að
„Ég hef lítið um þessa kæru að
segja þar sem ég hef ekki séð hana.
Ég var einmitt að biðja lögfræðing
minn að útvega hana þó það sé ekki
blaðamál. Á meðan ég hef ekki séð
kæruna vil ég ekkert tjá mig,” sagði
fella niður kæruna. Þetta er mikið
og stórt mál og ég vona að því verði
fylgt eftir af hálfu neytenda og
blaða. Og auðvitað vona ég að
málið hljóti rétta meðferð,” sagði
Hrafn V. Friðriksson. -ELA.
Guðlaugur Björgvinsson, forstjóri
Mjólkursamsölunnar, er' DB innti
hann álits á kæru Heilbrigðiseftirlits
ríkisins á hendur Mjólkursamsölunni
í Reykjavík og öðrum mjólkursam-
lögum. -ELA.
Forstjóri M jólkursamsölunnar:
Hef ekki séð kæruna
Áskrrfendur
DB athugið
Vinningur i þessari viku er 10
glra Raleigh reiðhjól frú Fólkan-
um, Suðurlandsbraut 8, Reykjavík
og hefitr hann verið dreginn út.
Nœsti vinningur verður kynntur I
blaðinu á mánudaginn.
Nýir vinningar verða dregnir út
vikulega nœstu mánuði.
hressir betur.