Dagblaðið - 23.07.1981, Blaðsíða 6
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 1981.
Leiðtogar arabaríkja funda um refsiaðgerðir gegn ísrael:
ErþoHnmæöi Banda-
ríkjanna á þmtum?
—^andarískir embættismenn láta í I jós óánægju vegna stöðugra loftárása
Israelsmanna á Líbanon
ísraelskar orrustuþotur héldu
áfram loftárásum sínum j Suður-
Líbanon í gær. Þær héldu uppi
árásum á umferð á Miðjarðarhafs-
ströndinni í Suður-Líbanon. Vitni að
árásunum segja að um fjörutíu
mannshafifallið.
Bandaríkjamenn hafi látið í ljósi
vaxandi áhyggjur vegna árásanna og
ýmislegt bendir til að þolinmæöi
þeirra sé. nú á þrotum. Caspar Wein-
berger, varnarmálaráðherra Banda-
ríkjanna, sakaði Menachem Begin,
forsætisráðherra fsraels, um að sýna
ekki nægilega stillingu og William
Clark, aðstoðarutanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagði aö Begin hefði
í senn valdið Bandaríkjamönnum
undrun og vonbrigðum.
Rikisstjórn fsraels kemur saman til
fundar í dag til að ræða bardagana
við skæruliða Palestínumanna i
Líbanon og versnandi sambúð ísraels
og Bandaríkjanna. Embættismenn
sögðu að Begin myndi greina stjórn-
inni frá tilraunum Philips Habib,
sáttasemjara Bandaríkjastjórnar, til
að koma á vopnahléi.
Utanríkis- og varnarmálaráðherra
arabaríkjanna koma saman til
fundar í Túnis [ dag til aö ákveða
refsiaðgerðir gagnvart ísrael og
Bandaríkjunum. Það var Yasser
Arafat, leiötogi Frelsissamtaka
Palestinumanna, PLO, sem óskaði
eftir fundinum eftir loftárásir ísraels-
manna á Beirút síðastliðinn föstudag.
Gagnrýni Bandarikjastjórnar
hefur ekki í langan tima verið jafn-
hörð á ísraelsmenn og í gær. Þá
höfðu loftárásir fsraelsmanna á
Líbanon staðið samfleytt í þrettán
daga. Weinberger varnarmálaráð-
herra sagði að Philip Habib hefði
verið að því kominn að koma á sam-
komulagi i eldflaugnadeilu ísraels og
Sýrlands áður en ísraelsmenn gerðu
árásir á Ósírak-kjarnorkuverið í írak
og loftárásir á Beirút í síðustu viku.
Hann sagöi að þessir atburðir
hefðu mjög spillt fyrir friðarumleit-
unum Habibs og möguleikunum á
vopnahléi. Clark aðstoðarutanrikis-
ráðherra sagði að ísraelsmenn gerðu
Bandaríkjamönnum erfitt um vik
með að hjálpa þeim. Síðastliðinn
mánudag frestaði Reagan forseti að
afhenda ísraelsmönnum orrustu-
þotur af gerðinni F-16 eftir að átökin
á landamærum ísraels og Libanon
höfðu harðnað.
Philip Habib átti í gær viðræður
við Elias Sarkis, forseta Líbanon, og
Shafiq Al-Wazzan. Viðræðurnar
stóðu í eina klukkustund. Að þeim
loknum flaug Habib til Saudi-
Arabiu. Begin sagði á þriðjudag að
Habib skyldi aðeins hafa samband
við stjórn Líbanons þar sem fsraels-
menn gætu ekki fallizt á samninga-
viðræður við Palestínumenn, hvorki
beinar né óbeinar. Ýmsir fréttaskýr-
endur segja að þessi afstaða Begins
hafi fyrirfram gert út af við mögu-
leika Habibs á að koma á friði þar
sem yfirvöld í Líbanon hefðu ekkert
vald yfir Palestínumönnum í landinu
en þeir eru taldir vera um 600
þúsund.
Mehmet
AliAgca
fékk
œvilangt
fangelsi
Mehmet Ali Agca, tyrkneski
hryðjuverkamaðurinn sem viðurkenndi
að hafa skotið á Jóhannes Pál páfa II.
á Péturstorginu í Róm 13. maí siðast-
liðinn, var í gær dæmur í ævilangt
fangelsi. Rétturinn hafnaði kröfu verj-
andans um styttri fangelsisvist. Agca
var ekki viðstaddur réttarhöldin tvo
síðustu dagana og vildi með því mót-
mæla að ítalskur dómstóll skyldi dæma
í máli hans. Hann hafði krafizt þess að
um mál hans yrði fjallað innan
Vatíkansins.
Minning-
amar
báru
Biöncu
ofurliði
Bianca, fyrrum eiginkona söngvar-
ans Mick Jagger, er stöðugt í frétta-
speglinum. Fréttamenn eru stöðugt á
hælum hennar og greina frá því sem
hún tekur sér fyrir hendur. Nýverið var
hún sem oftar stödd i Xenon, diskóteki
fína fólksins í New York. Þá bar svo til
að Mick Jagger, fyrrum eiginmaður
hennar, birtist óvænt á staðnum. Menn
biðu í ofvæni eftir að sjá hver viðbrögð
Biöncu yrðu og áttu ýmsir von á að til
samdráttar hjónanna fyrrverandi kæmi
á ný. Eins og til að ýta undir það setti
plötusnúður diskóteksins lagið Miss
you á fóninn sem Jagger samdi sérstak-
lega handa Biöncu. Þá var sem
minningarnar bæru Biöncu ofurliði og
hún gekk hnarreist úr salnum, án þess
að yrða á kóng eða prest, og keyrði
burtí leigubíl.
Hólmbert
Slökkviliösmenn bera eitt fórnarlambanna út úr rústunum i danssal Hyatt Regency hótelsins i Kansas City um siðustu helgi. 110 manns fórust og 1150 slösuóust, margir
þeirra mjög alvarlega.
110 fórust í hótelharmleiknum
110 manns létu lifiö í danssalnum í
Hyatt Regency hótelinu i Kansas City
um síðustu helgi. Óttazt er að tala
látinna eigi eftir að hækka þar sem
fjölmargir þeirra 150 hótelgesta, sem
fluttir voru í sjúkrahús, voru mjög
alvarlega slasaðir.
Eins og komið hefur fram í fréttum
varð slysið þegar tvær brýr hrundu yfir
dansgólf hótelsins þar sem um tvö
þúsund manns voru saman komin. Um
150 manns féllu niður um leið og
brýrnar og fjölmargir þeirra létu lífið.
Enn er ekki fulljóst hvað olli því að
brýrnar gáfu sig á þessu nýja og, að því
er talið var, fullkomna hóteli. {
hótelinu eru alls 750 herbergi og það
var byggt fyrir aðeins einu ári.
Richard Berkeley, borgarstjóri í
Kansas, sagði með tárin í augunum:
„Þetta er hræðilegur harmleikur.”
Ekkert
sparað
í veizlu
Andrews
prins
Andrew prins, yngri bróðir Karls,
átti 21 árs afmæli ekki alls fyrir löngu.
Prinsinn hélt mikla veizlu af þvl tilefni
og voru gestir um 600. Hljómlistar-
maðurinn heimsþekkti, Elton John,
skemmti i veizlunni, auk þess sem
hljómsveitin Chance kom þar fram.
Bikarmeistamr
Fram hafa nú
leikið 11 leikií
röð í bikar-
keppninni án
taps. Tekst
Hóimbert að
ha/da sigur-
göngunni á-
fram?
BIKARKEPPNI KSÍ
FRAM - ÍBK
LAUGARDALSVÖLLUR
í KVÖLD KL 20.
KefMkingar!
Sœtaferðir frá SBK,
Keflavíkkl 18.30.
Framarar!
Fjölmennið og sjáið
sókndjarfasta liðiðl
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
REUTER