Dagblaðið - 23.07.1981, Síða 10
10
r
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ1981.
\
Handtökumálið í Skúlagarði:
„EINS OG ÆÐIRYNNIA
YFIRLÖGREGLUÞJÓNINN”
- segir forstöðumaður Skúlagarðs sem f luttur var í járnum í fangageymslu
á Raufarhöfn—segir lögregluþjóna vera hina verstu fjárplógsmenn
„Ég hélt að eitthvað alvarlegt
hefði komið fyrir þegar lögreglu-
mennirnir ruddust inn á einkaskrif-
stofu mina. Yfirlögregluþjónninn var
eitthvað svo undarlegur til augnanna
og engu líkara en að æði hefði runnið
á hann,” sagði Þórarinn Björnsson,
forstöðumaður félagsheimilisins að
Skúlagarði í Kelduhverfi, í samtali
við DB, en eins og skýrt hefur verið
frá var Þórarinn fluttur í járnum til
Raufarhafnar sl. sunnudag fyrir að
neita að greiða lögreglumanni kaup
fyrir gæzlu á dansleik sem haldinn
var í Skúlagarði.
„Yfirlögregluþjónninn heimtaði
að ég greiddi þennan reikning, en ég
neitaði eins og ég hafði gert áður um
kvöldið á þeim forsendum að ein-
ungis tveir lögreglumenn hefðu átt að
vera við gæzlu, en ekki þrír. Ég sat
þarna inni á einkaskrifstofu minni
ásamt gjaldkera hljómsveitarinnar
sem spilað hafði í húsinu um kvöldið
og var að gera upp reikningana. Ég
bað því lögregluna að yfirgefa skrif-
stofuna og benti þeim á að með því
að ryðjast svona inn væru þeir að
fremja húsbrot. Skipti þá engum
togum með það að yfirlögreglu-
þjónninn sagði: — Við verðum að
járna hann, hann er með mótþróa.”
Þórarinn segist þá hafa rétt
hendurnar fram og sagt að þeir gætu
sett á hann handjárn ef þeir vildu, en’
þeir skyldu samt hugsa þetta mál til
enda áður og gera sér grein fyrir því
að þeir yrðu að taka afleiðingunum.
Við svo búið var Þórarinn járnaður.
Á dansleiknum í Skúlagarði voru
rúmlega eitt hundrað manns og var
það mat lögreglustjóraembættisins á
Húsavík að tveir lögreglumenn
skyldu vera við gæzlu. Er venjan sú
að ríkissjóður hefur greitt laun
tveggja lögreglumanna við þessi
gæzlustörf, en samkomuhaldarinn
hefur þurft að greiða umfram-
kostnað ef fleiri lögregluþjónar hafa
verið fengnir til gæzlu.
Að sögn Þórarins mættu þrír lög-
regluþjónar á dansleikinn og vakti
það nokkra athygli manna að einn
lögregluþjónanna var frá Þórshöfn,
en þangað er um eitt hundrað kíló-
metra leið frá Skúlagarði. Dans-
leikurinn sjálfur fór svo mjög frið-
samlega fram, en auk lögregluþjón-
anna voru þrír dyraverðir, við gæzlu,
„allt ágætismenn og góðir við gæzlu,
þó ekki hafi þeir handjárn,” sagði
Þórarinn.
„Að dansleiknum loknum komu
lögregluþjónarnir að máli við mig og
hljómsveitarmeðlimi og fóru fram á
að við greiddum þriðja lögreglu-
manninum kaup fyrir gæzlu og sýndu
okkur reikning upp á rúmar 600
krónur því til staðfestingar. Ég
neitaði að sjálfsögðu að greiða reikn-
inginn,” segir Þórarinn, ,,en benti
lögreglumönnunum á að ef við
„Maðurinn var undir áhrifum
áfengis og var að trufla okkur við
störf og því ekki um annað að ræða
en handtaka hann,” sagði Jóhann
Þórarinsson, yfirlögregluþjónn á
Raufarhöfn, er hann var inntur eftir
þvi hvers vegna Þórarinn Björnsson,
forstöðumaður Skúlagarðs, var
handtekinn.
„Málið snýst um það,” sagði
Jóhann, „að ég var að innheimta
gæzlukostnað af hljómsveitarmönn-
um er húsvörðurinn blandaði sér í
málið. Hann lét öllum illum látum og
þar sem hann var greinilega undir
áhrifum áfengis og hélt uppteknum
hætti, þrátt fyrir aðvaranir okkar, þá
var ekki um annað að ræða en að
handtaka hann.”
hefðum rangt fyrir okkur þá væri
bezt að láta lögreglustjórann á Húsa-
vík fá reikninginn til innheimtu. Ég
hefði ekki í hyggju að hlaupast af
landi brott og þvi væri hægt að ná í
mig ef ég ætti að borga þennan reikn-
ing.”
Þórarinn segist því næst hafa farið
inn á einkaskrifstofu sína ásamt
gjaldkera hljómsveitarinnar, en
skömmu siðar hafi lögreglan ruðzt
inn, sem fyrr segir. Eftir að Þórarinn
hafði verið handjárnaður með hend-
urnar framréttar, bað hann um að fá
að tala við yfirdyravörðinn en lög-
reglan hafði meinað honum að fylgj-
ast með inn á skrifstofuna. „Því var
neitað,” sagði Þórarinn, „og
skömmu síðar var ég handjárnaður
með hendurnar fyrir aftan bak og
settur út í lögreglubílinn. Þaðan var
— Nú segir Þórarinn að sam-
kvæmt samkomuleyfinu hafi aðeins
tveir lögregluþjónar átt að vera við
gæzlu og þvi hafi hann neitað að
greiða þriðja manninum. Hvað áttu
margir lögregluþjónar að vera við
gæzlu?
„Þetta er ekki rétt hjá Þórarni og
Daníel Guðjónsson, lögreglumaður á
Húsavik, sem gaf út leyfið er mér
sammála hvað það atriði varðar.
Samkoman var á okkar svæði og það
var mitt að taka ákvörðun um það
hvað ég hefði marga menn með mér.
Ég vil og taka það fram að Þórarinn
var aldrei rukkaður um gæzlu-
kostnað heldur snerum við okkur til
hljómsveitarinnar i þvi efni.”
ég svo fiuttur i fangageymslurnar á
Raufarhöfn, þar sem ég varð að dúsa
fram yfir hádegi á sunnudag. Ég var
búinn að biðja um að fá að ræða við
mína nánustu I sima og að hafa sam-
band við oddvitann I sveitinni, en þvf
var öllu neitað. Þá var mér heldur
ekki sagt hvað mér var gefið að sök
og ekki fékk ég heldur að hafa sam-
band við lögfræðing,” segir Þórar-
inn, sem jafnframt neitaði að undir-
rita skýrsluna sem tekin var af
honum á Raufarhöfn.
Þórarinn sagðist nú vera búinn að
kæra þetta mál til sýslumannsins á
Húsavík og þvi væri ekki lokið af
hans hálfu. „Það er mín skoðun að
þessir lögregluþjónar séu verstu fjár-
plógsmenn,” sagði Þórarinn og bætti
því við að ýmislegt myndi vafalaust
— En var ekki eðlilegra að lög-
reglumenn frá Húsavík væru þarna á
vakt?
„Það máe.t.v. segja það, en þetta
er nú einu sinni bara gömul hefð og
lögreglan á Húsavík sér bara um
suðursýsluna. Ég vil líka taka það
fram að það eru mörg fordæmi fyrir
því að lögreglumenn frá Raufarhöfn
hafi verið fengnir til gæzlustarfa í
Skúlagarði og reyndar allt til Ár-
skógsstrandar ef svo hefur borið
undir.”
— Nú býr lögreglumaðurinn í
Kelduhverfi í sama húsi og Skúla-
garður. Var ekki eðlilegra að fá hann
til gæzlustarfa í stað þess að fá mann
alla leið frá Þórshöfn?
„Héraðslögreglumaðurinn sem býr
koma í ljós þegar þessi mál yrðu
skoðuð ofan í kjölinn. Það væri í
sjálfu sér nægilegt rannsóknarefni, af
hverju lögreglumaður hefði verið
kallaður rúmlega tvö hundruð kíló-
metra leið, fram og til baka, frá Þórs-
höfn á stað sem hann hefði ekkert
haft að gera á. Sérstaklega ef tillit
væri tekið til þess að lögreglumaður-
inn í Kelduhverfi byggi í Skúlagarði.
Ekki hefði verið talin ástæða til að
kalla á hann, þó hann hefði hafzt við
hinum megin við þilið allt kvöldið,
sagði Þórarinn Björnsson.
Þórarinn sagðist að lokum vilja
taka það fram að hann hefði ekki
verið ölvaður eins og lögreglan hefði
gefið i skyn um nóttina. Fjöldi vitna
væru því til staðfestingar.
-ESE
í Kelduhverfi baðst undan þvi að
vinna þetta kvöld og því hafði ég
samband við héraðslögreglumanninn
á Þórshöfn.”
— Þórarinn segir einnig að hann
hafi ekki fengið að hafa samband við
sína nánustu, oddvitann í sveitinni
eða lögfræðing. Er það rétt?
„Já. Þeir sem hafa verið hand-
teknir hafa undir þessum kringum-
stæðum yfírleitt ekki fengið að hafa
samband við aðra. Ég hringdi þó i
konuna hans og lét hana vita hvað átt
hafði sér stað,” sagði Jóhann Þórar-
insson yfirlögregluþjónn sem bætti
því við að skýrsla vegna þessa máls
væri nú á leiðinni til sýslumannsemb-
ættisinsá Húsavík.
- ESE
„Maðurinn var undir áhrífum og
við urðum að handtaka hann”
—segir Jóhann Þórarinsson yfirlögregluþjónná Raufarhöfn
„Hann titraði og skaH af bræði”
— segir Aðalheiður Borgþórsdóttir úr hljómsveitinni Lóla um framkomu yfirlögregluþjónsins
„Yfirlögregluþjónninn var svo
æstur að hann bæði titraði og skalf
og ég hef aldrei séð annað eins, þó að
við séum ýmsu vön hérna á Seyðis-
firði,” sagði Aðalheiður Borgþórs-
dóttir, úr hljómsveitinni Lóla á
Seyðisfirði, en hún varð ásamt einum
öðrum liðsmanni hljómsveitarinnar
vitni að þvl er forstöðumaður Skúla-
garðs var handtekinn sl. sunnudag.
Aðalheiður sagði að yfirlögreglu-
þjónninn hefði komið ásamt hinum
lögregluþjórunum þangað sem
hljómsveitinvar og farið fram á að fá
greiddan reikning fyrir gæzlu. „Við
þverneituðum þessu, þar sem við
höfðum í höndum kvittun fyrir því
að Þórarinn hafði greitt leyfisgjald
fyrir samkomunni og löggæzlugjald,
eða samtals 53 krónur,” sagði Aðal-
heiður.
Að sögn Aðalheiðar greip for-
stöðumaðurinn fram i fyrir lög-
reglumönnunum og benti þeim á
þetta atriði og varð það til þess að
yfirlögregluþjónninn varð hálfu verri
viðureignar en fyrr og sagði Aðal-
heiður það greinilegt að athugasemd
forstöðumannsins hefði farið mjög í
skapið á yfirlögregluþjóninum.
„Við vorum svo stödd inni hjá for-
stöðumanninum síðar um nóttina að
loknum dansleiknum er lögreglu-
mennirnir komu aftur og heimtuðu
að við greiddum reikninginn. Er for-
stöðumaðurinn neitaöi, varð yfirlög-
regluþjónninn titrandi af bræði og
fyrirskipaði að forstöðumaðurinn
skyldi handtekinn. Hinir lögreglu-
mennirnir fóru svo með hann út en
yfirlögregluþjónninn varð eftir og
reyndi að þvinga okkur til þess að
greiða reikninginn. Við harðneituðum
og sögðumst ekki greiða neitt nema
skipun kæmi þar að lútandi frá sýslu-
manni. Fór yfirlögregluþjónninn við
svo búið.”
Aðalheiður sagði að allir meðlimir
hljómsveitarinnar hefðu verið sem
steini lostnir yfir þessari framkomu
lögreglumannanna og ekki sagðist
Aðalheiður hafa merkt að forstöðu-
maðurinn hefði verið drukkinn.
-ESE
„Lögreglumenn verða að halda sig innan ramma laganna”
— segir Sigurður Gizurarson, sýslumaður og lögreglustjóri á Húsavík
„Það er rétt að mér hefur borizt
kæra frá Þórarni Björnssyni vegna
þessa máls og ég býst við því að ég
hafi samband við dómsmálaráðu-
neytið í dag vegna þess arna,” sagði
Sigurður Gizurarson, sýslumaður á
Húsavík, er DB hafði samband við
hann vegna „handtökumálsins”.
Sigurður sagðist enn ekki hafa
fengið skýringar á því hvers vegna
lögreglumennirnir mættu þrír á dans-
leikinn, en lögreglustjóraembættið
með Sigurð sem lögreglustjóra hafði
lagt til að tveir lögreglumenn yrðu við
gæzlu. Um það hvort eðlilegt gæti
talizt að lögreglmaður kæmi alla leið
frá Þóshöfn til gæzlu á dansleik í
Skúlagarði, sagði Sigurður að það
væri frekar óeðlilegt, a.m.k. tryði
hann því ekki að lögreglumaðurinn
hefði komið þaðan einn í lögreglubil,
hann hlyti að hafa fengið að sitja I
með lögreglumönnunum frá Raufar-
höfn.
„Lögreglan verður að sjálfsögðu
að halda sig innan ramma laganna
eins og allir aðrir og taka afleiðingun-
um af sínum verkum,” sagði
Sigurður er hann var spurður um
hver yrði framvinda þessa máls.
Sagði Sigurður að það væri ráðuneyt-
isins að ákveða framhaldið, en vísaði
að öðru leyti til fulltrúa síns sem sá
um skýrslutöku í þessu máli.
„Við erum enn ekki búnir að fá
skýrslu frá lögreglumönnunum á
Raufarhöfn,” sagði Adólf Adólfs-
son, fulltrúi sýslumanns í samtali við
DB. Adólf sagði að líklega yrði
skipaður setudómari í þessu máli, en
treysti sér ekki að öðru leyti að segja
til um hvenær málið yrði tekið fyrir.
-ESE
Vi