Dagblaðið - 23.07.1981, Page 15
jþróttir íþróttir íþróttir
iþróttir iþróttir iþróttir iþróttir
Sigurður Pétursson athugar hér púttlínuna á 6. flötinni. Allt kom fyrir ekki og óheppnin elti hann á röndum — fjórpúttaði.
DB-mynd HK.
„Létt par,” sagði Páll
Ketilsson sannfærandi
RÖD
ÞJODANNA
Eins og fram kemur að ofan er
ísland i 3.—6. sæti eftir fyrri dags
höggleikskeppninnar en Sviar og
írar eru i nokkrum sérflokki. Staða
allra þjóðanna fylgir hér að neðan.
1. Svfþjófl 375 högg
2. (rland 381 —
3.-«. (aland 392 —
3.-6. V-Þýzkaland 392 —
3.-6. Noragur 392 —
3.-6. (talia 392 —
7. Sviss 395 —
8. Danmörk 397 —
9. Frakkland 399 —
10. Spánn 403 —
11. Holland 411 —
12. Austurrld 418 —
13. Finnland 417 —
14. Belgla 426 —
EFTIR FYRSTA DAGINN!
Kári Þorieifsson, þrenna gegn Skagamönnum.
NU LÁGU SKAGAMENN í ÞVÍ
—Vestmannaeyingar sigruðu 5-0 á Akranesi í gærkvöld
Frá Sigþóri Eirikssyni, Akranesi.
Skagamenn voru sundurspilaðir, svo
einfalt var það, þegar þeir léku við
Vestmannaeyinga i bikarkeppni KSÍ á
Akranesi i gærkvöld. Vestmannaeying-
ar sigruðu með flmm mörkum gegn
engu og bókstaflega tættu heimamenn í
sig. Siguriás Þorleifsson átti stórleik.
Langbezti maður á vellinum og réðu
Skagamenn ekkert við hann. Sigurlás
skoraði eitt mark sjálfur, lagði upp
þrjú og Kári bróðir hans skoraði þrjú
af mörkum Vestmannaeyinga. í heild
var lið Eyjamanna geysilega gott i
þessum leik, lék glæsilega knattspyrnu
oft á tiðum sem Skagamenn áttu ekkert
svar við. En þessi stórsigur var þó
Skagamenn áttu kafla í báðum hálf-'
leikjum án þess þó að ógna verulega en
Vestmannaeyingar léku vel, ógnuðu og
skoruðu.
Á 14. mín. var fyrsta markiö skorað.
Giæsimark. Kári gaf fyrir frá hægri inn
í teiginn og Gústav Baldvinsson kom á
fullri ferð. Skallaði knöttinn f bláhorn-
ið uppi. Með glæsilegustu mörkum.
Eftir markið reyndu Skagamenn að
rétta sinn hlut og litlu munaði aö Guð-
birni tækist að jafna. Sú varð ekki
raunin en á 25. mín. fékk Sigurlás
knöttinn. Lék á tvo Skagamenn og gaf
siðan jarðarbolta á Kára, sem skoraöi
með þrumuskoti. Á 28. mfn. áttu
heimamenn að fá vítaspyrnu. Árni
fór í hendi Þórðar Hallgrimssonar en
góður dómari leiksins, Kjartan Ólafs-
son, flautaði ekki. Þetta var þó aug-
ljóst víti. Guðbjörn komst í gegn á 31.
mín., Spyrnti framhjá marki ÍBV.
Sigurlás lék upp hægra megin á 40.mín.
Lék á Guðjón Þórðarson, Bjarni mark-
vörður Sigurðsson hljóp gegn honum.
Lási lyfti knettinum yfir hann en Björn
H. Björnsson bjargaði á marklínu.
Vestmannaeyingar gerðu út um
ieikinn strax í byrjun s.h. Enn var Lási
á ferðinni, gaf á Kára bróður sinn, sem
skoraði. Nákvæmlega eins og annað
markið. 0—3 og 47 mfn. af leik. Skaga-
vörnin vfðs fjarri. Um tima var jafn-
ræði með liðunum en þegar bræðurnir
höndum í Skagavörninni. Á 78. mfn.,
skoraði Sigurlás fjórða markið. Lék
upp hægri vænginn og síðan fyrir
markið. Skoraði úr þvögu 0—4. Á 84
mín. stakk Kári sér laglega gegnum
vörn'ÍA og skoraði sitt þriðja mark f
leiknum, 0—5. Það var eftir góða send-
ingu Valþórs Sigþórssonar. Hinum
megin áttu Jón Áskelsson, Ástvaldur
Jóhannesson og Árni ailir skot
framhjá. Þetta var ekki dagur Skaga-
manna. Sigurlás var maðurinn bakvið
stórleik Vestmannaeyinga. Geysilega
góður og eins og knötturinn væri bók-
staflega límdur við hann á stundum.
Skagamenn réðu ekkert við hann. Kári
einnig mjög góður, svo og Valþór og
Fylkir í fyrsta sinn
í undanúrslit
— Sigraði Þór 1-0 ígærkvöld
„Þetta var sanngjarn sigur, hefði meira að segja átt að
vera stærri. Nei, ég á ekkert óskalið f undanúrslitum,” sagði
Lárus Loftsson, þjálfari Reykjavíkurmeistara Fylkis, eftir
að Fylkir sigraði Þór, Akureyrí, 1—0 í bikarkeppni KSÍ ■
gærkvöld á Fögruvölium. Þar með er Fylkir kominn f
undanúrslit bikarkeppninnar f fyrsta skipti i sögu hins unga
félags. Hörður Guðjónsson skoraði eina mark leiksins á
lokamínútunni. Knettinum var spyrnt inn i vítateig Þórs
næstum frá miðju. Hörður stökk upp og sneri baki í
markið. Fékk knöttinn aftan á hnakkann og boltinn sveif í
boga yfir markvörð Þórs. Heldur óvenjulegt mark.
Árbæingar verðskulduðu vissulega sigur í þessum leik.
Fengu miklu betri marktækifæri, voru ákveðnari í þessum
heldur stórkarlalega leik. Sáralítið gerðist lengi vel en á 30.
min. var Ómar Egilsson, hinn hávaxni miðherji Fylkis, í
dauðafæri innan markteigs Þórs. „Mokaði” knettinum
framhjá markinu. Rétt á eftir átti Grettir Gislason
hörkuskot rétt yfir þverslá Þórsmarksins. Akureyringar
fengu sitt bezta færi á lokamír.útu hálfieiksins. Nói Björns-
son alveg frír inni á markteig. Spyrnti framhjá.
í síðari hálfleiknum sótti Fylkir mun meira. Fékk allgóð
færi. Ómar skallaði rétt framhjá og fleiri voru nálægt að
koma knettinum í mark Þórs en það tókst ekki fyrr en á
lokamínútunni. Þór fékk varla færi. Helzt þegar Guðmund-
ur Skarphéðinsson komst í gegn en Ögmundur Kristinsson,
hinn ágæti markvörður Fylkis, varði mjög vel.
Þetta er orðið gott keppnistímabil hjá Fylki þrátt fyrir
heldur slakt gengi í 2. deild. Liðið Reykjavíkurmeistari í
fyrsta sinn og nú i undanúrslitum bikarsins. -hsím.
ÍSLANDSMET
Helga Halldórsdóttir, KR, setti nýtt tslandsmet i 200 m
gríndahlaupi á innanfélagsmóti hjá KR f Laugardal f gær,
hljóp á 28.1 sek. Eldra metið átti Ingunn Einarsdóttir, 30.7
sek. Sigurður T. Sigurðsson reyndi við nýtt íslandsmet í
stangarstökki, 5.29 m, en felldi naumlega. Þá fór
Kristján Gissurarson, KR, vel yfir 4.75 m, felldi á niðurleið.
Stúdentaleikarnir
Nadia Comaneci, Rúmenfu, hlaut tvivegis
tiu i einkunn ú 11. stúdentaleikjunum i
Rúmeniu i gær. Sigraði i fimleikakeppni
kvenna á leikunum og rúmenska sveitin sigr-
aði þá sovézku i sveitakeppninni.
r frjálsiþróttakeppni leikanna urðu úrslit
þessi i kúluvarpi.
1. Mike Carter, USA, 20.19
2. Detief Mortag, A-Þýzkal. 19.35
3. Dalibor Vasicek, Tékk. 19.20
4. Genn. Mikháilov, Sovét, 19.13
Þróttarar
slógu FH út!
— unnu 2-1 sigur íframlengingu
Frá Eiriki S. Eirikssyni, Hafnarfirði, f gærkvöld:
Mark Baldurs Hannessonar á 20. mfnútu framlengingar
leiks FH og Þróttar i 8-liða úrslitum bikarkeppni KSÍ dugði
til að koma Sæviðarsundsliðinu f undanúrslit keppninnar.
Þróttur sigraði 2—1 og var sá sigur i flestum tilvikum verð-
skuldaður
Þróttur fékk óskabyrjun í leiknum er Páll Ólafsson skoraði
strax á 6. minútu eftir mistök í vörn FH. Þróttarar voru mun
sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og t.d. fengu Páll og Baldur
upplögð færi en tókst ekki að bæta við mörkum. FH-ingar
voru nærri því að skora eftir aukaspyrnu en eina uppskera
fyrri hár.iiksins hjá þeim var gult spjald til handa Viðari
Halldórssyni.
FH hóf hins vegar síðari hálfleikinn af miklum krafti og á
55. min. jafnaði Ólafur Danivalsson metin eftir varnarmistök.
FH var sterkari aðilinn það sem eftir lifði venjulegs leiktíma
en tókst ekki að bæta við marki.
Þróttur réð hins vegar lögum og lofum í framlengingunni
og átti ein 4 færi áður en Baidur skoraði markið sem skipti
sköpum. Baldur hafði áður í leiknum fengið gult spjald. Undir
lokin gerðu FH-ingar haröa hríð að marki Þróttar og þá
skoraði Óli Dan. mrrk sem dæmt var af vegna brots á mark-
verði.
- stórgóð f rammistaða íslenzka unglingalandsliðsins á EM-unglinga í Graf arholti f gærdag
tslenzka unglingalandsliðið kom
stórkostlega á óvart á fyrsta degi
Evrópumeistaramóts unglinga í
Grafarholti og er i 3.—6. sæti eftir
fyrri dag höggleikskeppninnar.
íslenzku strákarnir léku flestir eins og
„herforingjar” þrátt fyrir að ýmislegt
yrði til þess að hrella þá á leiðinni, rétt
eins og svo marga aðra.
Það varð fljótlega ljóst i gærdag
hvert stefndi. Magnús Jónsson var
fyrstur islenzku strákanna út og þrátt
fyrir „sprengju” á 2. brautinni, sem er
par 3, þar sem hann lék á 6 höggum—
„double par” — !ét hann það ekki
hafa áhrif á sig . .. !auk hringnum á 78
höggum.
Gylfi Kristinsson fór næstur út og
lék yfirvegað allan tímann. Undirrit-
aður fylgdist með honum 18 holurnar
og sérstaklega undir lok hringsins var
Gylfi óheppinn að ná ekki a.m.k.
tveimur „fuglum”. Kon inn á 77 högg-
um einsog V-Þjóðverjir.n Jung sem lék
með honum.
Sigurður Pétursson, sem fyrirfram er
talinn sterkastur unglinganna, byrjaði
geysilega vel. Var tveimur höggum
undir pari eftir 5 holur en þá fór allt
úrskeiðis hjá honum. Hann fjórpúttaði
á 6. braut, sem er par 3, og fór hana á 5
og síðan þrípúttaði hann á 7. braut,
sem er par 4, og fór hana á 6 höggum.
Eftir það lék allt í lyndi þar til á 16.
braut. Þar lenti Sigurður utan vallar —
tókst að hitta eitt ðrfárra trjáa i Grafar-
holtinu og þar fram eftir götunum. Lék
á 7 höggum — 3 yfir pari. Kom inn á 77
höggum.
Gunnlaugur Jóhannsson var fjórði
íslendingurinn út í eldlínuna og hann
spilaði fyrri 9 holurnar eins og hann áv
ozt að sér. Þær síðari urðu hins vegar
erfiðari og hann kom inn á 80 höggum.
Sveinn Sigurbergsson lenti fljótlega
upp á kant við völlinn og eftir fyrri 9
holurnar hafði hann notað 42 högg.
Tók sig saman í andlitinu á þeim síðari
9 og kom inn á 82 höggum. Getur þó
betur.
Sigurður Sigurðsson rak endahnút-
inn á frammistöðu íslenzku strákanna í
gær. Þetta er fyrsta stórmót Sigurðar
og margir voru nokkuð uggandi um
hvernig honum tækist upp í rokinu.
Það var alveg óþarfi að hafa áhyggjur
því Sigurður lék á 80 höggum. Lék
fyrri 9 holurnar á 41 en þær siðari á 39
höggum.
Árangur íslenzku kylfinganna var því
mun betri i gær en við hafði verið
búizt. Ljóst er þó að nokkrar þjóðir
léku undir getu 1 gær, þ.á.m. Frakkar,
Italir og Spánverjar og má búast við
þeim sterkum í dag. í upphafi mótsins
var stefnt á 9.—11. sætið en eftir
glæsilegan fyrri dag höggleiksins
bendir margt til þess að ísland gæti
krækt í sæti í A-riðlinum. -SSv.
— hið otrulega gerðist á 7. braut er Gylfi Kristinsson lék
á pari eftir að hafa tekið víti
DB slóst i för með unglingameistara
tslands, Gylfa Krístinssyni, GS, og
mótherja hans i höggleiknum i gær,
Þjóðverjanum Jung, og fylgdist með
viðureign þeirra allar 18 holurnar á
enda.
Fyrsta brautin var ákaflega
hefðbundin hjá þeim báðum og báðir
náðu parinu, 4, eftir tvípútt. Strax á 2.
braut náði Gylfi hins vegar höggi .af
Jung sem lenti í sandgryfju vinstra
megin flatar, sló inn á og tvípúttaði.
Gylfi var 22 fet frá holu í upphafs-
högginu og tvípúttaði örugglega.
Munurinn jafnaðist út á 3.
brautinni þegar Gylfa mistókst annað
höggið, var of stuttur og þurfti tvípútt
efiir vel heppnað innáskot. Jung lék á
parinu, 4, en Gylfi á 5. Báðir einn yfir.
Jung var svo um 20 fet frá holu í öðru
höggi á 4. braut sem er par 5. Gylfi var
í flatarjaðrinum öðru högginu en
þrípúttaði og fór á parinu. Jung náði
hins vegar „lugli ”. Jung á pari, Gylfi
einn yflr.
Gylfi fór svo illa að ráði sínu á 5.
braut. Þjóðverjinn var heppinn eftir að
hafa lent utan brautar í teighögginú.
Leitartíminn var alveg á þrotum er
boltinn fannst en í látunum höfðu þrír
aðrir óviökomandi boltar fundizt.
Gylfi var um 25 fet frá holu, í flatar-
jaðri, í ööru höggi, en þripúttaði. Báðir
Iéku á 5 höggum Jung 1 yfir, Gylfi 2
jyfir.
Munurinn jafnaði sig upp á 6.
Ibraut, þar sem Gylfi náði auðveldu
Ipari en Jung lék á einu yfir, 4 höggum.
Gylfi 2 yfir, Jung 2 yfir. Á 7. braut
lenti Gylfi í miklum vandræðum.
Upphafshöggið hafnaði utan brautar,
á ósláanlegum stað. Undirritaður
bölvaði i hljóði en Páll Ketilsson, sem
var kylfusveinn Gylfa, hafði ekki
áhyggjur: „Létt par,” sagði hann.
Gylfi tók víti og stillti upp, sló lag-
lega inn á flöt—einum 2 metrum frá
holu. Jung fór eðlilegar að hlutunum
og beint inn á og rétt yfir í öðru höggi.
Siðan kom meistaraatvik hringsins.
Gylfi gerði sér litið fyrir og setti niður
12 metra pútt með a.m.k. 3 metra
brake” á leiðinni. Snilldarpútt.,
Báðir léku 8. brautina eðlilega, en
náðu hvorugur parinu. Báðir á5. Gylfi
3 yfir, Jung 3 yfir. Báðir léku 9.
brautina á pari og voru því báðir á 38
höggum eftir fyrri hlutann. Á 10. braut
náði hvorugur parinu, léku báðir á 5 og
allt fór i taugarnar á Jung. Báðir 4
yfir.
Á 11. holu átti Jung glæsilegt högg,
beint inn á flötina, ca. 8 fet frá.
Tvípúttaði og fór á pari. Gylfi tvípútt-
aði einnig. Gylfi fór svo illa að ráði
sínu á ný á 12. braut, þrípúttaði eftir að
hafa verið í flatarjaðri í þriðja höggi.
Jung náði hins vegar „fugli”. Jung 3
yfir, Gylfi 5 yfir.
Báðir misstu högg á 13. braut —
léku einu yfir pari. Tvípúttuðu báðir
eftir misheppnað annað högg. Jung 4
yfir, Gylfi 6 yfir. Á 14. braut fór
gæfan loks að brosa við Gylfa. Hann
náði parinu, 4, auðveldlega en Jung lék
á 5. Gylfi 4 yfir, Jung 5 yfir. Gylfi
náði síðan öðru höggi af Jung á 15.
braut en hefði átt að ná tveimur, lék á
parinu, 5, en Jung sló út í skurð, tók
viti og lék á 6. Báðir 5 yfir.
Enn náði Gylfi höggi af Jung á 16.
braut, er hann einpúttaði loks eftir
brösótt gengi á brautinni og náði pari.
Jung lék á 5 — einu yfir. Gylfi 6 yfir,
Jung 7 yfir. Báðir náðu parinu, 3,
auðveldlega á 17. brautinni en Jung
skauzt upp að hlið Gylfa á 18.
brautinni, er hann einpúttaði, og náði
„fugli”, Gylfi lék á parinu 4. Báðir
léku því 18 holurnar á 77 höggum.-SSv.
Rak kylf u-
svein sinn
Einn Austurrikismannanna sýndi I
gær þá fádæma óiþróttamannslegu
framkomu að reka kylfusvein sinn upp
I skála eftir aðeins 5 brautir. Gekk
honum illa og hafði allt á hornum sér.
Sauð upp úr hjá honum á 5. brautinni
og þar fékk kylfusveinninn að fjúka.
Málið var tekið fyrír á fundi I gær og
var fallizt á afsökunarbeiðni frá fyrír-
liða austurrisku sveitarínnar.
Síðari 9
voru erfiðar
Greinllegt var að síðari 9 holurnar
I Grafarholtinu reyndust mörgum
kylfinganna erfiðar I gær. Aðeins 16
þeirra 84 keppenda á mótinu tókst að
leika þær undir 40 höggum og þar á
meðal voru fjórir íslendingar. Gylfi
Kristinsson lék þær á 39 höggum og
slikt hið sama gerðu Magnús Jónsson,
Sigurður Pétursson og nafni hans
Sigurðsson.
Walton notaði
„Það erekkert að flötunum — þetta
er bara ég sjálfur,” sagði sá íranna,
sem beztur er skv. forgjöf, Walton að
nafni, eftir að hann hafði komið inn á
76 höggum. Notaði kappinn eigi færri
en 38 pútl á 18 holurnar og þripúttaði
einum fimm sinnum.
T. Antevik frá Sviþjóð lék á parí
vallarins i gær og var langbeztur.
DB-mynd HK.
Svíarnir
í sérf lokki
Sænsku kylfingarnir báru af á fyrsta
degi EM-unglinga i golfi i Grafarholti i
gærdag. Þeir áttu þrjá efstu menn eftir
daginn. Það var Antevik sem stal
senunni er hann lék 18 holurnar á 71
höggl — parí vallarins.
Knutsson og Sellberg frá Svíþjóð
komu næstir með 74 og 75 högg og
reyndar voru einir 5 aðrir með 75 högg.
Þar á meðal var sá er sigraði í
höggleikskeppninni i fyrra, J.
Rasmussen frá Danmörku.
Margir þekktir kylfmgar áttu undir
högg aö sækja og sérstaklega voru
Spánverjarnir slakir miöað við það sem
búizt hafði verið við.
Styttingin
dugði ekki til
Þrátt fyrir að 15. brautin værí stytt
um 40 metra i gær kom það ekki i veg
ifyrír erfiðleika hjá mörgum
jkeppendanna. T.d. tókst Frakkanum
Illouz ekki að Ijúka henni fyrr en hann
jhafði notað 9 höggl
„Ekki nógu vel
upplagður”
„Eg var ekki nógu vel fyrír kallaður
andlega,” sagðl Sigurður Pétursson,
greinilega eilitið vonsvikinn, er hann
hafði loldð við 18. brautina i gær.
„Óheppnin elti mig á röndum, t.d. á 6.
og 7. braut — einkum á 6. flötinni þar
sem ég varð að fjórpútta.
DB á Evrópumeistaramóti unglinga í golf i á Graf arholtsvellinum í gærdag:
ÍSLANDÍ3