Dagblaðið - 23.07.1981, Síða 27
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 1981.
27
Útvarp
D
I
Útvarp
FARÐU EKKITILEL KUHWED - útvarpsleikritið kl. 20,05:
Dularfullt ferðalag í arabalöndum
Leikritiö i kvöld fjallar um kaup-
manninn Mohallab, sem er á ferða-
lagi ásamt þjóni sinum Welid. Þeir
hitta gamlan mann sem ræður þeim
frá því að leggja leið sina til E1
Kuhwed. Kaupmaður fer ekki að
ráðum hans heldur ákveður að fara
einmitt þangað. Hefst þá furðuleg at-
burðarás.
Höfundur leiksins, Gilnter Eich,
var þýzkur, fæddur við ána Oder árið
1907. Hann las lögfræði og sögu
Kinverja, en sneri sér síðan að ljóða-
gerð og leikrita. Hét fyrsta leikrit
hans Draumar og var flutt í Ham-
borgarútvarpið árið 1951. Viðfangs-
efni hans voru gjarnan af yfirnáttúr-
legum toga spunnin, en í mörgum
verka hans má finna djúpa samúð
með baráttu mannsins, jafnt út á við
sem inn á við. Hann var kvæntur
austurrískri skáldkonu, Ilse
Aichinger, en lézt árið 1972.
Leikritið Farðu ekki til E! Kuhwed
var áður á dagskrá ríkisútvarpsins
árið 1960. Með helztu hlutverk fara
Róbert Arnfinnsson, Helgi Skúlason,
Jón Aðils, Indriði Waage og Helga
Valtýsdóttir. Leikstjóri er Baldvin
Halldórsson, en þýðandi Áslaug
Árnadóttir. Það tekur klukkutima og
kortér í flutningi.
-IHH
I
Róbert Arnfinnsson fer með eitt
aðalhlutverkið f útvarpsleikriti
kvöldsins, Farðu ekld til E1 Kuhwed.
DB-mynd Gunnar Örn.
ÚT í BLÁINN - útvarp í dag kl. 14,00:
Kynna ferðir og útihá-
tíðir um verzlunar-
mannahelgina
— Þátturinn verður með nokkru léttara sniði en venjulega
að taka saman stutt yfirlit um aðrar
ferðir sem eru á boðstólum og við
höfum greint frá í undanförnum
þáttum,” sagði örn.
Út í bláinn hefur nú verið á dag-
skránni um nokkurra vikna skeið.
Það er Sigurður Sigurðarson ritstjóri
og útgefandi ferðablaðsins Áfanga
sem sér um þáttinn með Erni. Enda
fjallar hann um ferðalög og útilíf inn-
anlands auk þess sem þeir félagarnir
skjóta léttri tónlist inn á milli atriða.
„Þátturinn í dag verður með
nokkuð léttara yfirbragði en að
undanförnu,” sagði örn Petersen.
„Við höfum verið með nokkur við-
töl, tiu til tólf mínútur að lengd. Við
hvilum viötölin aö þessu sinni en
sjáum sjálfir um að miðla upplýsing-
unum. Af þeim sjötíu mínútum sem
við höfum til umráöa hefur talað orð
yfirleitt fengið nokkru meira rúm en
tónlistin. Við ætlum í dag að reyna
að hafa jafnt af hvoru eða því sem
næst. Það er eiginlega nauðsynlegt
því að nú eru hvað flestir á vegum úti
eða að huga að ferðalögum, svo að
ekki veitir af að létta dagskrána.”
örn bætti því við að sjáifur væri
hann nýkominn úr ferðalagi af hring-
veginum. Því kæmi vel til greina að
miðla hlustendum af því sem hann
hefur fræðzt um á ferð sinni, smálýs-
ingar frá ýmsum stöðum og annað í
þeim dúr.
- ÁT
„Við teljum það vera fullseint að
segja frá því sem er um að vera um
verzlunarmannahelgina daginn áður
en hún hefst svo að við verðum
timanlega með upplýsingar um
hana,” sagði örn Petersen er hann
var spurður um efni þáttarins Út í
bláinnídag.
„Við segjum frá helztu útihátiðum
verzlunarmannahelgarinnar og
greinum hlustendum jafnframt frá
helgar- og sumarleyfisferðum Ferða-
félags ísiands i Reykjavfk og á Akur-
eyri og Útivistar. Einnig ætlum við
Örn Petersen og Sigurður Sigurðarson umsjónarmenn þáttarins Út i bláinn.
DB-mynd Einar Óiason.
FILMU /fe
Vi. Nautaskrokkar
KVIKMYNDA
VÉLA
\leiga
FILMAN i DAG
VMYNDIRNARA
MORGUN^
jminjjjuuiimiji
UTBEINUM EINNIG
ALLT NAUTAKJÖT
EFTIR ÓSKUM ÞÍNUM
KJÖTMIÐSTÖÐIN Laugalæk 1. s.86511
Núna or rétti tíminn ab gera góft matarkaup
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 41 - SÍMI 20235.
VIDEO
Video — Tæki — Fiimur
Leiga — Saia — Skipti
Kvikmyndamarkaöurinn — bimi 15480.
Skólavörðustig 19 (Klapparstígsmegin).
KVIKMYNDIR
BMW520
Renault 20 TL
Renau/t 14 TL
Renau/t 12 station
Renault 4 TL
árg. 1980
árg. 1979
árg. 1979
árg. 1977
árg. 1980
Renault4 Van F6
RenaultS TS
árg. 1978
árg. 1980
Vantar BMW bifreiðir
á söluskrá.
Opið laugardaga frá kl. 1—6.
KRISTINN GUÐNAS0N HF.
SUÐURLANDSBRAUT 20, SÍMI 86633
GERÐU SJALFUR EIGK) GOS