Dagblaðið - 27.07.1981, Page 1

Dagblaðið - 27.07.1981, Page 1
J I í í í í ( ( ( 1 7. ÁRG. — MÁNUDAGUR 27. JÚLÍ1981 — 166. TBL. RITSTJÓRN SlÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTl ÍI.-AÐALSÍMI 27022. Ætluðu aó sökkva hvalbátum ff Molotov-kokkteilum” - Ungur Garöbæingur kom lögreglunni á spor manna sem ætluðu að sökkva hvalbátunum og eyðileggja hvalstöðina með — Ætlunin var sú að kveikja í og eyðileggja hvalstöðina í Hvalfirði og sökkva hvalbátunum í Reykja- vikurhöfn. Ég hafði verið beðinn um að útvega fjögur gallon af bensini, sem samsvarar rúmum 40 litrum, en síðan átti að sökkva hvalbátunum með bensinsprengjum, öðru nafni „molótov-kokk teilum”. Það er ungur Garðbæingur sem tekið hefur virkan þátt í starfi umhverfisverndarsinna á sviði hvalvemdar undanfarin ár sem þetta mælir, en i febrúarmánuði sl. hafði hann samband við lögregluna og greindi frá þessum áformum. Hann hafði þá um nokkurt skeið starfað i sambandi við tvo erlenda hvalfriðunarsinna, Breta og Frakka, en að undirlagi þeirra var þriðji maðurinn, brezkur kafari, sendur hingað til lands til að vinna verkið. Viðmælandi DB hafði þá i tæpt ár reynt að drepa þessu máli á dreif en í upphafi var ákveðið að hann skyldi vinna verkið. —Ég fann að þessi mál voru að vaxa mér yfir höfuð og sá mína sæng upp reidda í þessu máli, ef ég hefði ekki samband við lögregluna, segir viðmælandi DB. Lögreglan tók því yfir þetta mál en eins og DB greindi frá i mai sl. kom Bretinn sem leigður hafði verið til þessa verks til landsins en ekkert varð þó úr framkvæmdum. Viðmælandi DB tekur það skýrt fram að þetta verði e.t.v. ekki síðasta tilraunin sem umhverfis- verndarsinnar erlendis gera til að stöðva hvalveiðar Islendinga. — Afstaða okkar fslendinga til hvalveiða sé það illa rökstudd að það sé engan vegin réttlætanlegt að halda hvalveiðunum áfram. Við höfum skipað okkur á bekk með löndum eins og Japan, sem virða engar reglur, og gróðafiknin situr í fyrir- rúmi. Ef islenzku hvalbátunum yrði sökkt og hvalstöðin eyðilögð yrði því fagnað um gjörvallan heim því við eigum okkur formælendur fáa í þessu máli. Það yrði litið á þá sem hetjur sem tækju þátt i slikum verknaði. t Dagblaðinu á morgun birtist ítarlegt viðtal við viðmælanda okkar, þar sem hann kemur fram undir fullu nafni og segir söguna eins og hún gerðist, auk þess sem hann skýrir af- stöðu hvalfriðunarmanna til þessara mála. -ESE. Skipið er smíðað fyrir Hjilmar Gunnarsson útgerðarmann i Skipasmiðastöð Þor- geirs og Ellerts á Akranesi. DB-mynd S. Fjöldi skáta á landsmóti Landsmót skáta var sett í gær á Akureyri. Var þar hið bezta veður, sólskin og hiti. Stendur mótiö alla vikuna og verður ýmislegt til gamans gert eins og venja er á slikum mótum. Fjöldi mánns var þar saman kominn í morgun, og allt hafði farið fram i mesta bróðerni. Um næstu helgi verður fólki heimilt að heimsækja skáta á mótið. Er þá búizt við mikilli umferð í kringum svæðið. DS/DB-myndir Guðmundur Svansson. í SÓL OG BLÍDU f KJARNASKÓGI l ] < \ \

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.