Dagblaðið - 27.07.1981, Síða 1
J
I
í
í
í
í
(
(
(
1
7. ÁRG. — MÁNUDAGUR 27. JÚLÍ1981 — 166. TBL. RITSTJÓRN SlÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTl ÍI.-AÐALSÍMI 27022.
Ætluðu aó sökkva hvalbátum
ff
Molotov-kokkteilum”
- Ungur Garöbæingur kom lögreglunni á
spor manna sem ætluðu
að sökkva hvalbátunum og eyðileggja
hvalstöðina
með
— Ætlunin var sú að kveikja í og
eyðileggja hvalstöðina í Hvalfirði og
sökkva hvalbátunum í Reykja-
vikurhöfn. Ég hafði verið beðinn um
að útvega fjögur gallon af bensini,
sem samsvarar rúmum 40 litrum, en
síðan átti að sökkva hvalbátunum
með bensinsprengjum, öðru nafni
„molótov-kokk teilum”.
Það er ungur Garðbæingur sem
tekið hefur virkan þátt í starfi
umhverfisverndarsinna á sviði
hvalvemdar undanfarin ár sem þetta
mælir, en i febrúarmánuði sl. hafði
hann samband við lögregluna og
greindi frá þessum áformum. Hann
hafði þá um nokkurt skeið starfað i
sambandi við tvo erlenda
hvalfriðunarsinna, Breta og Frakka,
en að undirlagi þeirra var þriðji
maðurinn, brezkur kafari, sendur
hingað til lands til að vinna verkið.
Viðmælandi DB hafði þá i tæpt ár
reynt að drepa þessu máli á dreif en í
upphafi var ákveðið að hann skyldi
vinna verkið.
—Ég fann að þessi mál voru að
vaxa mér yfir höfuð og sá mína sæng
upp reidda í þessu máli, ef ég hefði
ekki samband við lögregluna, segir
viðmælandi DB.
Lögreglan tók því yfir þetta mál
en eins og DB greindi frá i mai sl.
kom Bretinn sem leigður hafði verið
til þessa verks til landsins en ekkert
varð þó úr framkvæmdum.
Viðmælandi DB tekur það skýrt
fram að þetta verði e.t.v. ekki
síðasta tilraunin sem umhverfis-
verndarsinnar erlendis gera til að
stöðva hvalveiðar Islendinga. —
Afstaða okkar fslendinga til
hvalveiða sé það illa rökstudd að það
sé engan vegin réttlætanlegt að halda
hvalveiðunum áfram. Við höfum
skipað okkur á bekk með löndum
eins og Japan, sem virða engar
reglur, og gróðafiknin situr í fyrir-
rúmi. Ef islenzku hvalbátunum yrði
sökkt og hvalstöðin eyðilögð yrði því
fagnað um gjörvallan heim því við
eigum okkur formælendur fáa í þessu
máli. Það yrði litið á þá sem hetjur
sem tækju þátt i slikum verknaði.
t Dagblaðinu á morgun birtist
ítarlegt viðtal við viðmælanda okkar,
þar sem hann kemur fram undir fullu
nafni og segir söguna eins og hún
gerðist, auk þess sem hann skýrir af-
stöðu hvalfriðunarmanna til þessara
mála. -ESE.
Skipið er smíðað fyrir Hjilmar Gunnarsson útgerðarmann i Skipasmiðastöð Þor-
geirs og Ellerts á Akranesi. DB-mynd S.
Fjöldi skáta á landsmóti
Landsmót skáta var sett í gær á
Akureyri. Var þar hið bezta veður,
sólskin og hiti. Stendur mótiö alla
vikuna og verður ýmislegt til gamans
gert eins og venja er á slikum mótum.
Fjöldi mánns var þar saman kominn í
morgun, og allt hafði farið fram i
mesta bróðerni. Um næstu helgi
verður fólki heimilt að heimsækja
skáta á mótið. Er þá búizt við mikilli
umferð í kringum svæðið.
DS/DB-myndir Guðmundur Svansson.
í SÓL OG BLÍDU f
KJARNASKÓGI
l
]
<
\
\