Dagblaðið - 27.07.1981, Side 25

Dagblaðið - 27.07.1981, Side 25
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 27. JÚLÍ 1981. Jöklagleði ’81: TIBRA SKEMMTIR AÐ ARNARSTAPA — hundraðasti hver gestur f ær ókeypis hársnyrtingu Þrír dansleikir verða haldnir að Arnarstapa á Snæfellsnesi um verzl- unarmannahelgina. Hljómsveitin Tíbrá frá Akranesi sér um tónlistina á þeim öllum. Ýmislegt fleira verður brallað á hátíðinni sem hefur hlotið nafnið Jöklagleði ’81. Meðal annars verður knattspyrnukeppni milli hljómsveitar- innar og úrvalsliðs mótsgesta á laugar- daginn. Þá um kvöldið verður kyntur varð- eldur ef veður leyfir. Þar safnast gestir saman og syngja og skemmta sér. Þar kemur fram söngkvintett sem kallar sig Stripp-kvintettinn. Leynigestur há- tíðarinnar verður tvífari tvífara Presleys númer sjö að því er segir í til- kynningu frá aðstandendum Jöklagleð- innar. Hundraðasti hver gestur hennai fær ókeypis hársnyrtingu. Mörg undanfarin ár hefur skemmtur að Arnarstapa verið fastur liður urr verzlunarmannahelgina. Fyrr á árum léku þar hljómsveitir á borð við Brimkló og Hauka. Tíbrá frá Akranesi lofar að allir skemmti sér hið bezta á Jöklagleði.’81. Hún leikur tónlist af ýmsu tagi, aðallega kraftmikið rokk. -ÁT Frá Galtalækjarskógi. Þar er áfengisneyzla stranglega bönnuð. Bindindismótið í Galtalækjarskógi: Fjölskylduskemmtun helgarínnar Þeir sm neyta áfengis eru beðnir um að skemmta sér annars staðar um verzlunarmannahelgina en i Galta- lækjarskógi. Þar verður að vanda haldið bindindismót með fjölbreyttri dagskrá. Hátíðin hefst föstudagskvöldið 31. júlí. Þá verður diskótek á stóra pall- inum. Það verður síðan flutt inn í tjald og gefst fólki kostur á að dansa þar á laugardags og sunnudagskvöld. Það verður hljómsveitin Galdra- karlar sem skemmtir gestum í Galta- lækjarskógi. Meðal annars verður hún með fjölbreytta barnadagskrá asamt félögum í Þórskabarettinum. Hann kemur reyndar víðar við sögu og annast kvölddagskrána á sunnu- dag. Fjúka þá áreiðanlega nokkrir góðir frá • þeim Halla, Ladda og Jörundi. Meðal annarra atriða á bindindis- mótinu í Galtalækjarskógi má nefna guðsþjónustu, hátíðarræðu, varðeld og góðaksturskeppni. Þá er fyrir- hugað að starfrækja tívolí á staðnum. Sérstakar hópferðir verða í Galta- lækjarskóg frá Umferðarmiðstöðinni í Reykjavík á föstudag og laugardag. Bindindismótin i Galtalækjarskógi hafa nú verið haldin í þrettán ár og alla tíð notið mikilla vinsælda sem fjölskylduskemmtunin um verzlunar- mannahelgina. Aðgangur að mótinu kostar 180 krónur fyrir þrettán ára og eldri. -ÁT- W* w pwg íLtfiní Hljómsveitin Tlbrá frá Akranesi leikur á dansleikjunum þremur að Arnarstapa um verzlunarmannahelgina. DB-mynd. Hljómsveitin Friðryk skemmtir öli kvöld útihátfðarinnar f Atlavik. Útihátíð í Atlavfk: DB-mynd: Sigurður Þorri. SKIPULAGT SAM- KOMUHALD END- URREIST EYSTRA Hljómsveitin Chaplin frá Borgarnesi. Einnig kemur fram i Árnesi hljómsveitin Tappi tikarrass. Eitt sinn voru útihátíðir í Atlavík fastur liður um verzlunarmannahelg- ina. Um tíu ára skeið hefur skipulagt skemmtanahald legið þar niðri en nú hefur Ungmenna- og íþróttasamband Austurlands ákveðið að slá upp hátíð um næstu helgi. Það er hljómsveitin Friðryk sem aðallega sér um fjörið í Atlavík. Ekki þótti annað fært en að fá hana því að það var einmitt þar sem Sigurður Karlsson trommuleikari fór fyrst á dansleik, þá sjö ára gamall! Einnig kom Pálmi Gunnarsson Vopnfirð- ingur þar margoft fram á yngri árum. Auk hljómsveitarinnar Friðryks kemur Magnús Eiríksson fram með Mannakorni. Magnús flytur bæði ný lög og eldri. Þá hafa liðsmenn Friðryks og Guðmundur Ingólfsson píanóleikari æft upp hressilegt ÁSGEIR TÓMASSON sveifluprógramm sem telur ein tólf lög. Samkoman í Atlavík hefst á föstu- daginn og stendur fram á mánudag. Á sunnudaginn er venja að gestir taki að hyggja að Lagarfljótsorminum. Austfirðingar segja að hann hafi sjaldnast látið sig vanta á sam- komurnar á þriðja degi. -ÁT-

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.