Dagblaðið


Dagblaðið - 10.08.1981, Qupperneq 9

Dagblaðið - 10.08.1981, Qupperneq 9
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 10. ÁGÚST 1981. 1 Erlent Erlent Erlent Erlent Fagnaðarf undir í Suður-Georgíu: CARTER OGSADAT KLÖKKNUÐU BÁÐIR — Sadat var óspar á að hrósa Jimmy Carter „vini smum” er hann sótti hann heim í Georgíu í gær Anwar Sadat, forseti Egyptalands, orðum um Carter og þann hlut er endaði Bandarikjaheimsókn sína í forsetinn fyrrverandi átti í Camp gær með því að skreppa til Georgiu- David samkomulaginu og friðar- ríkis til að hitta Jimmy Carter, fyrr- samningi ísraels og Egyptalands. um Bandarikjaforseta, aðmáli. Báðir klökknuðu þeir Carter og Sadat fór ákaflega lofsamlegum Sadat er þeir hittust og Sadat faðm- Það urðu miklir fagnaðarfundir er þeir Jimmy Carter og Anwar Sadat hittust f Plains f Georgfu f gær. aði Carter innilega að sér er hann kom út úr þyrlunni sem flutti hann til heimilis Carters í Plains í Georgíu. „Ég skal segja ykkur að Jimmy Carter hefur sett mark sitt á sögu Miðausturlanda,” sagði Sadat er hann ávarpaði mörg þúsund áheyr- endur í skóla skammt frá. heimili Carters. ,,Ef ég á að tala um vin minn Jimmy Carter þá þarf ég margar klukkustundir,” bætti hann við. Viðræður Sadats við Regan, sem sigraði Carter í forsetakosningunum i nóvember síðastíiðnum, voru form- legar og svo virtíst sem samband Sadats við Reagan væri engan veginn eins náið og við Carter. Reagan-stjórnin hafnaði þeim tíl- lögum Sadats að Bandaríkin hæfu viðræður við Frelsissamtök Pales- tínu-araba. Er Sadat var inntur álits á Reagan í sjónvarpsviðtali sagði hann: „Hann var mjög vingjarnlegur og gerði sér grein fyrir vandamálun- um og tengslunum á milli okkar svæðis og annarra heimshluta.” Áður en Sadat sneri aftur til Washington þaðan sem hann átti að halda með einkaflugvél til Kaíró hrósaði hann Carter mjög og lýsti honum sem „heiðarlegum, áreiðan- legum, hæfileikamiklum talsmanni mannréttinda. ” Mótmælaganga gegn matvælaskortinum I Póllandi.—Leiðtogar Einingar, sambands hinna óháðu verkalýðsfélaga I Póllandi, koma saman til fundar I Gdansk I dag þar sem ræddar verða efnahagslegar- og félagslegar umbætur og leiðir til að bæta sam- bandið við hin kommúnisku stjórnvöld landsins. Fundurinn á sér stað á sama tima og Viktor Kulikov, yfirmaður Varsjárbandalagshcrjanna, er I heimsókn I PóIIandi í fjórða sinn á þessu ári. Erlendar fréttir Reagan tekur umdeilda ákvörðun: FRAMLEIÐSLA NIFT- EINDASPRENGJUNNAR SKAL NÚ HEFJAST Reagan Bandarikjaforseti hefur gefið fyrirskipun um að hafin skuli framleiðsla á hinni mjög svo umdeildu nifteindasprengju og breytti þar með þeirri ákvörðun sem ríkisstjóm Carters tók í þessu máli fyrir þremur árum. Nifteindasprengjan er,sem kunnugt er, þannig úr garði gerð að hún eyðir öllu lífi á ákveðnu svæði en veldur litlu tjóni á byggingum. Ráðamenn í Washington segja að nifteindasprengjan muni auka á mögu- leika Atlantshafsbandalagsins til að stöðva skriðdrekaárás í Mið-Evrópu þar sem sérfræðingar segja að Varsjár- bandalagið hafi mikla yfirburði yfir Atíantshafsbandaiaginu. Larry Speakes, talsmaður Hvíta hússins, sagði að nifteindasprengjun- um yrði komið fyrir í Bandarikjunum og eins og er væm ekki uppi nein áform um að koma þeim fyrir í Evrópu. Áður en til sliks gæti komið yrðu Banda- ríkjamenn að ræða ítarlega um málið við bandamenn sina í Atíantshafsbanda- iaginu. Margir leiðtogar ríkja \'estur- Evrópu stóðu staðfastíega gegn þeim áformum Carters á sinum tíma að geyma nifteindasprengjur í Evrópu. A tJantic- vatnabátar SÉRSTAKLEGA HAGSTÆTT VERÐ Atlantic-vatnabátarnir eru framleiddir samkvœmt þýzkum öryggisstaðli, „sicherheitsnorm DIN 7871". Bátarnir eru allir með 4 lofthólfum og öryggisventlum. Snúra er þrædd umhverfis bátana. Atlantic 30 Atlantic 40 Atlantic 50 Atiantic 60 240x140 cm, 280x150 cm, 310x165cm, 340x165cm. Atlantic bátarnir eru tilí ýmsum stærðum verö 880 Amasonas verð 1293 Kajak 320 cm, verö 1345 verð 1550 Loftdæla verö 153 verð 1775 Árar verö 215 Komið og leitið nánari upplýsinga INGÓLFSSTRÆT112 SÍMAR 12800 - 14878

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.