Dagblaðið - 22.09.1981, Síða 2
2
—KARLMENN ATHUGIЗ
Ef þú ert einn af þeim sem hafa misst hárið, þá færðu
hér tækifæri til að leysa málið. Sendu inn línu, og þú
munt fá sendar upplýsingar um hvernig hárígræðsla er
framkvæmd og hvernig þú getur brugðizt við ef þú
hefur áhuga á að fara til Bretlands og fá hárígræðslu.
Þeir sem hafa áhuga sendi nafn og heimilisfang til:
Pósthólf 193 Garðabæ.
EIGNANAUST HF.
SKIPHOLTI5
SÍMAR 29555 OG 29558
OPIÐ KL. 1-5 LAUGARDAGA OG SUNNUDAGA.
Ba/dursgata
2ja herb. ósamþykkt kjallaraíbúð, verð kr. 200.000,00.
Dvergabakki
3ja herb. 83 ferm íbúð á 3. hæð, mjög vönduð og góð eign,
verð kr. 500.000,00.
Melgerði
3ja herb. 70 ferm risíbúð í tvíbýli, verð kr. 400.000,00.
Hörgshfíð
Einstaklingsíbúð til sölu. Verð tilboð.
Hafívaigarstígur
2ja herb. stór íbúð á jarðhæð, verð kr. 370.000,00.
Vesturberg
3ja herb. íbúð á jarðhæð, 83 ferm, verð 500.000,00.
Ljósheimar
3ja herb. íbúð á 4. hæð, 80 ferm, fæst helzt í skiptum fyrir
sams konar eign með stórum stofum.
Leirubakki
4 herb. plús eitt herb. í kjallara, mjög fallegt tréverk, vönd-
uð eign, verð kr. 700.000,00.
Lækjarkinn
3 svefnherbergi plús tvær samliggjandi stofur og 2 stór her-
bergi í kjallara, alls 120 ferm, bílskúr, verð kr. 780.000,00.
Kaplaskjólsvegur
5 herb. íbúð á 4. hæð og í risi, alls 140 ferm, verð kr.
650.000,00.
Breiðás
5 herb. stór sérhæð, falleg ræktuð lóð, fagurt útsýni,
bílskúrsréttur, verð kr. 700.000,00.
Átfheimar
4 herb. íbúð, 110 ferm, á 3. hæð, fæst í skiptum fyrir góða
3ja herb. íbúð.
Reykjavegur — Mosfefíssveit
Einbýlishús sem er 4 stór svefnherbergi, 2 samliggjandi
stofur, eldhús og bað plús 50 ferm bílskúr, verð
1.000.000,00.
Esjugrund, Kjalarnesi
Sökklar að raðhúsi, allar teikningar fylgja, búið að greiða
öll lóðargjöld. Verð 180.000.00.
Sandgerði
Einbýlishús, 140 ferm plús 50 ferm bílskúr, verð kr.
850.000,00.
Sandgerði
3ja herb. 110 ferm íbúð í tvíbýlishúsi, verð kr. 240.000,00.
Selfoss
Einbýlishús á 2 hæðum, stór bílskúr, verð kr. 600.000,00.
Skerjafjörður
Höfum verið beðnir að útvega góða byggingarlóð fyrir
mjög fjársterkan kaupanda.
Óskum eftí'r
3ja herb. íbúð á Grundunum Kópavogi eða Fossvogi.
einbýlishúsi í gamla bænumn, með bílskúr, einbýlishúsi
eða góðri sérhæð í Kópavogi, sérhæð eða raðhúsi í Heima
hverfi, Langholti eða Laugarnesi.
SKOÐUM 0G METUM ÍBÚÐIR
SAMDÆGURS.
GÓÐ 0G FLJÖT ÞJÓNUSTA
ER KJÚR0RÐ OKKAR.
AUGLÝSUM ÁVALLT í DAGBLAÐINU
Á ÞRIÐJUDÖGUM OG FIMMTUDÖGUM.
EIGNANAUST,
Þ0RVALDUR LÚÐVÍKSSON HRL.
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 22. SEPTEMBER 1981.
. I 'r ^ #?
|~wj t— .
1 | ; - |
L' |
rr" 1 I
! • f • í | f
Matreiðslumaður sat af sér hluta af sekt fremur en aö greiða hana til þess að kynnast fangelsismálum af eigin raun.
DB-mynd: Einar Ólason.
Fangelsismál:
„Varhugavert að leggja
um of trúnað á hvítþvegnar
sögur síafbrotamanna”
—fangaverðir sýndu virðingarverða stillingu
Matreiðslumaður skrifar:
Ég valdi þann kost að sitja af mér
hluta af sekt fremur en að greiða
hana — beinlínis til þess að kynnast
fangelsismálum okkar af eigin raun.
Sat ég inni i Steininum að Skóla-
vörðustíg 9 og vegna þess að svo
margt neikvætt hefur verið skrifað
um þann stað og fólkið sem þar gegn-
ir störfum þá tel ég rétt að segja frá
minni reynslu.
Ég var settur inn um kl. 17,
mánudaginn 14. þ.m. og losnaði
ekki fyrr en laust fyrir hádegi
fimmtudaginn 17. Ég sat inni á
fjórða sólarhring og ætti því að hafa
frá marktækri reynslu að segja.
Fæðið var prýðilegt og er ég ágæt-
lega fær um aö kveða upp þann dóm,
því svo vill til að ég er matreiðslu-
maður að mennt.
Ennfremur hefur mikið verið skrif-
að um þjösnahátt og andlegt sem lík-
amlegt ofbeldi fangavarða, en ekki
varð ég var við það — þvert á móti.
Þann tíma sem ég var þarna sýndu
þeir oft virðingarverða stillingu —
við aðstæður sem flestum hefði al-
gjörlega ofboðið.
í sambandi við margrædd símamál
fanga vil ég geta þess að ég átti
greiðan aðgang að síma. Auðvitað
voru þau símtöl hleruð, enda er alveg
sjálfsagt að gera það.
Við fangarnir höfðum nóg af les-
máli og gátum spilað og teflt eins og
okkursýndist.
Það er varhugavert að leggja um of
trúnað á hvítþvegnar sögur síafbrota-
manna. Vænlegt er að hafa hugfast
að fleiri en ein hlið eru á öllum mál-
um. Mætti Dagblaðið taka það til at-
hugunar í þessu sambandi ekki síður
en öðrum.
Flugmálin:
Var flogið inn í
fuglahóp að óþörfu?
—hættulegur leikur efsatt er
7931—1839 skrifar:
Ég rakst á grein í einu dagblaðanna
laugardaginn 12. september sem bar
fyrirsögnina Stuggað við fuglum á
Reykjavíkurflugvelli. í fréttinni er
síðan talað um hættuna sem því
fylgir að fuglar hópi sig saman á flug-
braut.
Þetta varð til þess að ég ákvað að
þegja ekki lengur um atburð sem átti
sér stað úti á landi nú fyrir skömmu.
Ég var flugfarþegi frá Rifi til
Reykjavíkur miðvikudaginn 2.
september. Hér var um áætlunarvél
að ræða, tveggja hreyfla, níu sæta
vél en farþegar sem komu með vél-
inni voru 3 og fóru allir út á Rifi.
Fjórir eða fimm farþegar fóru með
vélinni til Reykjavíkur. 1 vélinni var
einn flugmaður og sáralítill farangur.
Veður var ágætt, gott skyggni og
hægur vindur en þegar lagt var af
stað fór vélin alveg út á brautarenda,
æddi eftir endilangri brautinni. Það
skal tekið fram að ég hef oft flogið
með þessari vél (og öðrum) og veit að
hún þarf ekki nema rúmlega hálfa
brautarlengd þegar hún er létt, fáir
farþegar, lítill farangur og eldsneytis-
geymar um það bil hálfir.
í stað þess að lyfta vélinni fyrr
keyrði flugmaðurinn alla brautina á
enda en þar höfðu safnazt saman
fuglar sem fældust og flugu upp. Um
það leyti sem vélin er að rekast á
fuglahópinn rífur flugmaðurinn vél-
ina upp af brautinni og tekur hjólin
upp um leið og brautinni sleppir.
Ég varð var við högg, sem ég í
fyrstu taldi sjálfum mér trú um að
væri frá hjólabúnaðinum, en þegar
við lentum á Reykjavíkurflugvelli var
ekki um að villast að árekstur hafði
átt sér stað við þessa fugla, því vélin
var blóði drifin neðan til á skrokkn-
um.
Nú vaknar sú spurning hvað flug-
maðurinn var að gera. Var hann að
kenna fuglunum að ekki borgaði sig
fyrir þá að dvelja á flugbrautum eða
var hann bara að skemmta sjálfum
sér með þessu? Ef svo er, er þetta þá
ekki kæruieysi og vítavert ábyrgðar-
leysi í starfi?
. *«V f \ /
7931—1839 segir flugmann á lítilli, tveggja hreyfla áætlunarvél hafa flogið inn í
fuglahóp að óþörfu. DB-mynd: Ragnar Th.