Dagblaðið - 22.09.1981, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 22. SEPTEMBER 1981.
9
Fyrsta erlenda fréttamyndin send um Skyggni:
10 MÍNÚTNA MYND KOSTAR
SJÓNVARPID 6.000 KRÓNUR
Hiín*iOar vV LaiHÍhúnaOarvrlar hí.
j Suðurlandsbraut 14 — Reykjavík — Sími 38600
Verð ca kr.
75.400
en af sláttur er veittur f rá þessu verði fyrir sendingar milli Norðurlanda og reglubundnar
myndasendingar
„Ef aðrar sjónvarpsstöðvar eiga
ekki pantaðan tíma þá er auðvelt fyrir
íslenzka sjónvarpið að fá fréttamyndir
frá útlöndum. Myndir þessar eru þá
sendar um einn þriggja gervihnatta sem
alþjóðlega fyrirtækið Inter-Sat á, en sá
hnöttur þjónar báðum Ameríkunum,
Evrópu, Afriku og hluta Asíu,” sagði
Gústav Arnar, deildarverkfræðingur
hjá Pósti og síma, í samtali við DB. Á
sunnudagskvöld var í fyrsta skipti sýnd
í islenzka sjónvarpinu erlend frétta-
mynd sem send var frá útlöndum í
gegnum jarðstöðina Skyggni í Mos-
fellssveit. Sú mynd var af skipbrots-
mönnum af Tungufossi, sem sökk út af
strönd Englands á laugardag, er þeir
komu í land.
Fréttamynd þessa tók brezka sjón-
varpið, BBC, og var hún geymd á
myndsegulbandi. Eftir hádegið á
sunnudag höfðu íslenzkir sjónvarps-
menn samband við BBC og þar sem
engin önnur sjónvarpsstöð átti pantað-
an tíma var umrædd fréttamynd send
um gervihnöttinn til íslands. Var tekið
á mótihennii Skyggni.Að sögn Gústavs
Amar þurfti að kalla út starfsmenn á
vakt til að taka á móti myndunum og
athuga varð að öll tæki Skyggnis væru i
lagi fyrir sendinguna, enda sjaldgæft
að myndir séu sendar utan úr heimi í
gegnum jarðstöðina. Samstilla varð
tæki BBC í Englandi og tæki Skyggnis
og að því búnu gat myndasendingin
farið fram.
Gústav sagði að þegar Skyggnir var
tekinn í notkun hefði verið ákveðið að
miða gjaldskrá þessarar þjónustu við
það gjald sem erlendar sjónvarpsstöðv-
ar í Vestur-Evrópu greiða fyrir frétta-
myndasendingar. Ekki er hægt að biðja
um styttri fréttamyndir en tíu mínútna
langar og kostar slík fréttamynd 6
þúsund krónur. Hver mínúta umfram
þann tíma kostar síðan 220 krónur.
Póstur og sími býður upp á afslátt af
þessu verði og t.d. er gjald fyrir mynda-
sendingar milli Norðurlanda mun
lægra. Sé um að ræða reglulegar send-
ingar, sem alltaf eru pantaðar á sama
tíma á hverjum degi, getur gjaldið
minnkað um helming. Ennfremur er
ódýrara að fá fréttamyndir af at-
burðum á borð við ólympíuleikana.
Á sínum tíma bauð Póstur og sími
sjónvarpinu fréttapakka frá Eurovision
en þeir eru 45 mínútna langir og eru
sendir fyrir og eftir hádegi. Fréttapakk-
ar þessir voru boðnir á afsláttarverði.
Að síðustu sagði Gústav að bezt
væri að panta tíma fyrir sendingu með
a.m.k. viku fyrirvara, það væri aldrei
hægt að treysta á að aðrar sjónvarps-
stöðvar væru ekki með pantaðan tíma
þegar þörf væri fyrir fréttamyndir utan
úrheimi. -SA.
DANSSKOLI
Sigurðar
Hákonarsonar
BÖRN — UNGLINGAR — FULLORÐNIR
Kenndir allir almennir dansar, svo sem:
Barnadansar — Samkvæmisdansar — Discodansar —
Gömlu dansarnir — Rock - Tjútt - Dömubeat, o.fl.
Brons-Silfur og Gullkerfi DSÍ
ATH: BARNAKF.NNSLA EINNIG Á LAIJGARDÖGUM.
KENNSLUSTAÐIR:
Reykjavík: Félagsheimili Víkinga v/ Hæðargarð
Þróttheimar v/Sæviðarsund.
Kópavogur: Félagsheimili Kóp. v/Fannborg 2.
Innritun og allar nánari upplýsingar
daglega kl. 10.00—19.00 í síma 41557
74051 og 74651
DANSKENNARASAMBAND ÍSLANDS DSÍ
"I
LADAmmm
Munið að varahlutaþjónusta okkar er í sérflokki. Það var stað-
fest í könnun Verðlagsstofnunar.
ORGEL OG
SKEMMTARANÁMSKEIÐ
Umsjónarmaður og leiðbeinandi Jónas Þórir.
Innritun og uppl. í RÍN hf., sími 17692.
Kennt eftir nýju íslenzku kerfi.
Einnig stutt og ódýr skemmtaranámskeið þar sem fólki
er kennt að komast fljótt og vel af stað.