Dagblaðið - 22.09.1981, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 22. SEPTEMBER 1981.
3
Hugulsemi:
Óþekkt kona fær þakklæti fyrir Coke
— betra seint en aldrei
Bryndis og Hákon hringdu:
Fimmtudagskvöldið 17. þ.m. lent-
um við j bílslysi við Eddufell í Breið-
holti.
Hér var um árekstur tveggja bíla
að rasða, Willys-jeppa og Lödu.
Bílarnir skemmdust báðir mikið en
sem betur fer slapp fólkið að mestu
óskaddað. Eins og gefur að skilja
varð okkur öllum mikið um og
vorum því vönkuð en okkur þótti
vænt um elskuleg viðbrögð nær-
staddra, þótt við hefðum litla rænu á
að sýna þakklæti.
Kerfið:
FÁRSJÚKT
FÓLKLÁTIÐ
RÁFA UM
GÖTURNAR
Þegar verið var að taka af okkur
skýrslurnar kom t.d. kona sem
færði okkur stóra Coke og hvarf
síðan á burt. Okkur gafst ekki tæki-
færi til þess að þakka fyrir þessa
hressingu, sem kom sér mjög vel.
Við vonum því að umrædd kona
sjái þessari línur, því við þökkum
henni hér með kærlega fyrir.
Óþekkta konan sem færði vönkuðu
fólki Coke eftir bilslys við Eddufell í
Breiðholti 17. þ.m. fær þakkir fyrir
hugulsemina.
DB-mynd: Ari.
Guðbjörg Björnsdóttir hringdi:
Ég vil taka undir orð Skattgreið-
anda sem gagnrýnir þá afstöðu að
fársjúkt fólk skuli vera látið ráfa um
göturnar, étandi sorp og rænandi á
veitingastöðum, til þess að halda i sér
lifinu.
Þessa vesalings fólk virðist telja
hegðun sina eðlilega en dvelur annað
slagið á sjúkrahúsi sökum næringar-
skorts.
Hvað kemur í veg fyrir að þessu
fólki sé hjálpað, hvort sem það vill
eða ekki? Eða viljum við, sem heil-
brigð teljumst að svona verði farið
með okkur og okkar ef við veikjumst
á þennan hátt?
Starfsfólk sjúkrahúsanna álitur
þetta fólk svo hættulegt að það lætur
hafa yfir þvi lögregluvörð — en þegar
út fyrir veggi sjúkrahússins er komið
er eftirlitinu lokið.
Hver er réttur hins almenna borg-
ara? Er ,,dr. Hansi” meira virði en
börnin okkar, úti að leika sér, eins og
Skattgreiðandi spyr? Hver er ábyrgur
ef eitthvað kemur fyrir?
Er kannski veriö að bíða eftir því
að þetta fólk brjóti nóg af sér til þess
aðhafnaífangelsi?
Kristján Grlmsson, llnumaður: Nei, því
miður tel ég að svo sé ekki og ætti að
verða breyting á.
Steinunn Hallgrlmsdóttlr, afgrelðslu-
stúlka: Nei, alveg örugglega ekki.
Alfreð Kristjánsson, hafnsögumaður:
Égtel það verajafnt.
Magnús Hjaltested, bóndi: Nei, har
er ekki alveg jafn. Þaö fer þó eft
aðstæðum.
Markús Hjaltested, flugafgreiðslumað-
ur: Nei, hann er ekki jafn en ætti að
vera það.
Við teljum
að notaðir VOL VO bílar séu betri en nýir bílar af
ódýrari gerðum.
VOLVO 244 GLÁRG. '81 BEINSK., EKINN 14.000 KM KR. 140.000
VOLVO 245 GL ÁRG. '79 BEINSK., EKINN 54.000 KM KR. 130.000
VOLVO 244 GL ÁRG. '79 BEINSK., EKINN 48.000 KM KR. 120.000
VOLVO 264GLÁRG. '78 SJÁLFSK, EKINN 34.000 KM KR. 130.000
VOLVO 244 DL ÁRG. '78 BEINSK., EKINN 56.000 KM KR. 100.000
VOLVO 244 DL ÁRG. '77 SJÁLFSK., EKINN 50.000 KM KR. 90.000
VOLVO 244 DLÁRG.76 SJÁLFSK, EKINN 77.000 KM KR. 78.000
VOLVO 144DLÁRG. '74 BEINSK., EKINN 111.000 KM KR. 55.000
VOLVO M VELTIRHF
Suðurlandsbraut 16, R.
Sími 35200.
Um Nýtt land:
Betur má ef duga skal
Páll Ásgeirsson, Stöðvarfirði, skrif-
ar:
Það er ekki oft sem fátækur og lítt
menntaður almenningur sér ástæðu
til’ þess að setjast við ritvélina. En
eins og kellingin sagði þá étur maður
ekki skit án þess að gnista tönnum.
Tilefni þessara skrifa er það að mér
barst í hendur eintak af blaði sem
kallar sig Nýtt land. Svo blöskraði
mér allur frágangur blaðsins, málvill-
ur, ambögur og prentvillur, að mér
finnst full ástæða til að tjá mig um
málið á opinberum vettvangi. Svo
ekki sé minnzt á pólitískan málflutn-
ing sem er reyndar ástæðulaust að
fara aðeyðapúðri á.
Ólukkan hefur greinilega viljað
haga því þannig að ekki hefur ráðizt
til blaðsins neinn sem kann móður-
mál sitt til einhverrar hlítar. Allur
málflutningur blaðsins einkennist af
hroka og yfirlæti og einhverri þörf
til að ráðskast með skoðanir fólks.
Setningunum „Nýju landi finnst”
hitt eða þetta og „Við á Nýju landi
viljum” eitthvað er óspart flaggað og
gæti maður freistazt til að halda að
bak við blaðið stæði fjölmennur
hópur fólks, ef ekki væri vitað betur.
Allar þýddar greinar í blaðinu bera
það með sér á málfari og setninga-
skipan úr hvaða máli þær eru þýddar
og ber það þýðendum ekki sérlega
gott vitni.
Efnisöflun öll virðist hafa farið
fram á einhverju hundavaði og
minnir fátt á þá rannsóknarblaða-
mennsku sem hundraðshöfðingi
flokksbrotsins var eitt sinn kenndur
við.
Alls kyns sjálfshrós veður uppi á
öllum síðum en þó tekur steininn úr
þegar farið er að stunda einhvers
konar pólitiska listgagnrýni sem
virðist vera fólgin í því að taka upp
hanzkann fyrir einhver sálmaskáld
úti í bæ sem fela sig á bak við sín
eigin málgögn eða bursta rykið af
margra ára gömlum hljómplötum
sem hafa notið lítillar hylli af sömu
ástæðum og sálmaskáldið.
Nýtt land telur lesendum trú um að
það liggi mikill menningararfur
óbættur hjá garði.
Að lokum fer vel á því að vitna I
söluslagorð þeirra Nýíendinga sem
segir „Vilt þú betra blað”. Víst vilja
islenzkir blaðalesendur betri blöð og
eigi þetta slagorð ekki að vera öfug-
mæli mega Nýlendingar bæta blaðið
sitt verulega.
Páli Ásgeirssyni finnst ritstjórn Nýs lands hampa sjálfri sér of mikið.
DB-mynd: Einar Ólason.
Spurning
dagsins
Telur þú að foreldra-
róttur föður só jafn
ó við rótt móður?
Lovisa Bjargmundsdóttir, húsmófllr:
Manni finnst að svo ætti að vera.
Raddir
lesenda