Dagblaðið - 22.09.1981, Qupperneq 4
4,
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 22. SEPTEMBER 1981.
DB á ne vtendamarkaði
, ..... .
r Dóra j Stefánsdóttir v 3
Ýmir og hrein jógúrt af markaðnum:
Ástæðan styttur sölutími og lítil sala
Til okkar hringdi kona sem kvart-
aði yfir því að hrein jógúrt, ýmir og
pakkaskyr væri hætt að fást. Frá
annarri fengum við bréf þar semj
talað var um að jógúrt á ísafirði væri
seld þó komið væri fram yfir síðasta
söludag. Ég hafði samband við Odd
Helgason sölustjóra Mjólkursamsöl-
unnar í Reykjavík og spurði hann út í
þetta.
Oddur sagði að það væri rétt að
hrein jógúrt og ýmir hefðu verið
tekin af markaði ásamt með tveim
tegundum af jógúrt með ávaxta-
bragði. Ástæðan væri sú að í sumar í
kjölfar umræðu um gallaða mjólk
hefði sölutími sýrðu mjólkurvaranna
verið minnkaður úr 11 dögum í 7.
Voru það heilbrigðisyfirvöld sem
styttu timann. Taliö er frá þeim degi
sem mjólkin er gerilsneydd. Þá á eftir
að hleypa hana og pakka og tekur
það tvo daga í viðbót. Sé helgi næstu
tveir dagar falla þeir út líka og þá eru
bara 3 dagar eftir til að dreifa vör-
unni og selja. í þeim búðum sem
ekki væri mikið verzlað endist hins
vegar hver pakkning allt upp i viku
og gætu því kaupmenn ekki komið
allri vörunni út áður en sölutíminn
væri úti. Því hefði Mjólkursamsalan
ekki treyst sér til að halda sínu fjöl-
breytta úrvali af sýrðum mjólkur-
vörum og eðlilegavar það tekið af
markaði sem minnst seldist. Þetta
sagði Oddur að sér og fleirum þætti
leitt. Engin ástæða hefði verið til að
taka þessar vörur af markaöi önnur
og engir gallar fundizt í þeim.
Af pakkaskyrinu sagði hann þær
fréttir að það fengist alltaf í nokkrum
búðum. Skyrið er vegið og pakkaö í
búðinni og þvi treysta margir kaup-
menn sér ekki til að vera með það. En
það fæst alltaf t.d. í verzlun
Mjólkursamsölunnar við Laugaveg.
Þá er þaö stimplunin á jógúrtinni á
ísafirði. Ástæðan til þess að
dagstimplar eru útrunnir er auk þess
sem áður er rætt sú að hún er flutt á
skipum vestur og tekur það drjúgan
tima.
Við neytendur verðum víst að bíta í
þetta mjög svo súra epli. Eins og var
nú gott að fá þessar vörur verðum við
að vera án þeirra þar til stjórnvöld
hafa skoðað málin og vonandi þá
fundið grundvöll til að breyta fyrri
ákvörðun.
/ -DS.
Óánægður með bæsið á hurðunum:
RÉTTUR NEYTAND-
ANS VIRÐIST AF-
SKAPLEGA LÍTILL
— málaferli borga sig ekki
Hreinn Björnsson, Einigrund 4 Akra-
nesi, hringdi:
Ég keypti mér í júní hurðir í húsið
mitt. Voru þetta 7 hurðir og valdi ég
ólitaða furu frá Harðviðarsölunni.
Ég fór síðan með hurðirnar og ætlaði
að fá þær bæsaðar hjá málningar-
verkstæði í Reykjavík. í ágústbyrjun
kom ég að sækja þær og greiddi fyrir
með ávísun sem ég dagsetti 15. ágúst í
samkomulagi við manninn sem tók
að sér vinnuna. Þegar heim var
komið og ég fór að skoða hurðirnar
betur sá ég að þær voru verulega illa
bæsaðar. Virtist engu líkara en að
bæsinu hefði hreinlega verið hellt yfir
þær og jafnað með skítugum strá-
kústi. Vildi ég ekki una við að borga
5610 krónur fyrir þessa vinnu og
hafði því samband við manninn og
sagði honum það. Hann sagðist ekki
hlusta á svona röfl, hurðirnar væru
vel málaðar að sínu mati og ekkert
meira með það. Ég sá bara eitt ráð i
þessu, lét loka ávísanareikningnum
minum þannig að hann fengi ekki
greiðslu út úr honum. Nokkru seinna
hringdi lögfræðingur Landssam-
bands iönaðarmanna í mig og til-
kynnti mér að ég yrði að gjöra svo vel
að borga,annars yrði farið í hart með
málið. Mér líkaði þetta ekki alls kost-
ar og hafði því bæði samband við
Málarameistarafélag Reykjavíkur og
Neytendasamtökin en hvorugur aðil-
inn treysti sér til að gera neitt í mál-
inu. Ég sit því uppi með þessar hurðir
sem ég er mjög óánægður með og á
yfir höfði mér málshöfðun fyrir það
að vilja ekki borga offjár fyrir illa
unna vinnu. Er réttur neytandans í
svona málum virkilega enginn?
Svar: Ég hafði samband við Þórð
Gunnarsson lögfræðing og spurði
hann að því hvað helzt væri til ráða í
máli eins og þessu. Hann sagði að í
rauninni væri lítið sem Hreinn gæti
gert. Hann gæti auðvitað fengið
dómkvadda matsmenn hjá bæjarfó-
getanum á Akranesi. Þessir menn
mætu það siðan hvort hurðinar væn'
eins og þær ættu að vera eða ekki. Og
ef ekki, hvort ekki bæri að greiða
minna verð fyrir vinnuna en upp var
sett. En hins vegar væri ákaflega dýrt
að fá svona matsmenn. Gat Þórður
ímyndað sér að ein matsgerð kostaði
allt að 5 þúsund krónum. Er það.
svipað verð og Hreini var gert að
greiða fyrir vinnuna. Þá ætti hann
eftir að fara í einkamál gegn málara-
meistaranum til þess að fá hann til að
lækka veröið. Slík málaferli gætu
tekið alltaðtveim árum.Þórður sagði
að því væri langbezt að reyna samn-
ingaleiðina tiLhins ýtrasta áður en
farið yrði út í frekari aðgerðir. Réttur
neytandans virðist eftir þessu að
dæma ekki vera neitt afskaplega
mikill. -DS.
Nýju kartöf luraar komnar:
Hollar en óneitan-
lega mjög viðkvæmar
Loksins eru komnar á markaðinn
nýjar kartöflur. Mátti víst ekki
seinna vera eins og landsmenn voru
seinþreyttir orðnir á þeim gömlu. Ég
verð þó að játa að ég varð fyrir tölu-
verðum vonbrigðum með þann eina'
poka sem ég hafði keypt af nýjuj
kartöflunum. Þær voru aö sönnu
betri en þær gömlu en samt var af
þeim hálfgert moldarbragð. Það var
líka sama hvað þær voru þvegnar,
alltaf var hýðið dökkt og alls ekki
þannig að mig langaði að borða það,
eins og menn leyfa sér oft með nýjar
kartöflur. En Vonandi hef ég bara
verið óheppin og á eftir að fá betri
kartöflur seinna.
Kartöflur eru mjög hollar svona
nýjar og um að gera að borða nú vel
af þeim. En þær eru viðkvæmar og
verður að fara varlega með þær alveg
frá því að þær eru teknar upp og þar
til þær eru komnar á diskinn. Til
dæmis á að taka þær strax úr
þéttum umbúðum þegar komið er
með þær heim úr búöinni. Síðan er
heiti, raki vaskaskápurinn ekki rétti.
staðurinn til að geyma þær i.
Kartöflur á að geyma á þurrum og
köldum stað, líkt og annað græn-
meti.
Suðan er annað atriði sem verður
að passa. Ofsoðnar kartöflur tapa
bæði bragði og næringarefnum. Én
það fer eftir þroska kartaflanna og
stærð hvað á að sjóða þær lengi. Því
er vandasamara en margir halda að
sjóða kartöflur.
Annars er vel hægt að borða nýjar
kartöflur hráar. Það reyndi ég um
daginn með kartöflur úr einkagarði.
Skornar i örþunnar sneiöar (með
ostahníf) voru þær mjög góðar í hrá-
salati með öðru grænmeti. Á þetta
sérlega við um smáar kartöflur.
Fyrir þá sem ekki geta hugsað sér
kartöflurnar hráar fylgir hér að
síðustu með uppskrift að rétti sem í
eru notaðar soðnar kartöflur. Upp-
skriftin er úr litlu matreiðslubókinni
um kartöflur.
Sænskur pylsuróttur
3 dl smátt saxaöur laukur
40 gr smjör / smjörliki
8 ólitaðar pylsur
1— 2 stk. paprika
1 kg soðnar kartöflur
2— 3 msk. tómatmauk
3— 4 dl mjólk
salt og malaður pipar
1 dl rjómi
saxaður graslaukur.
Látið laukinn krauma í feitinni þar
til hann er ljósbrúnn. Skerið pyls-
urnar á ská í sneiðar og látið þær í
pottinn með lauknum. Hrærið
paprikunni vel saman við. Minnkið
hitann undir pottinum. Skerið
kartöflurnar í sneiðar og setjið þær í
pottinn. Bætið tómatmauki, mjólk
og kryddi saman við og hrærið þessu,
vel saman með trésleif. Látið réttinn
krauma í 5—10 mínútur. Þá
er rjómanum bætt f og látið krauma
áfram í 2 mínútur. Bragðbætt með
salti og pipar ef með þarf.
Borið fram í pottinum eða á djúpu
fati. Stráið söxuðum graslauk yfir.
-DS.
Hitaveitan hækkar
í hverjum mánuði
A.K. skrifar:
Hér kemur ágústseðillinn. Það er
ekkert sérstakt í honum umfram aðra
mánuði nema vaxtaaukalán sem er
reglulegt píningarlán. Þetta hækkar
eftir því sem meira er greitt af því.
Hér kemur mín sundurliðun á liðnum
Annað:
500,00 = leikskóli
148,00 = málning
4037,97 = vaxáaukalán
282,30 = rafmagn(2mán.)
516,99 = hitaveita(l mán.)
og mér þykir hún dýr
278,60 = lífeyrislán
827,00 =gjafir
1340,00 = bíllinn
160,00 = dagblöð(tvö)
108,00 =föt
8198,85
Maturinn er 3319,37 og við vorum
4 í heimili því eitt barn var í sveit til
29. ágúst. 1
Raddir
neytenda
Ég var að lesa Dagblaðiö i dag og
þar var bréf frá húsmóður á Nesinu
með heildarútgjöid kr. 17 þús.
Ég vildi gjarnan að mínir síma-
reikningar og hitaveitureikningar
væru svona lágir. Símareikningar hér
eru yfirleitt um og yfir 600,00 fyrir 3
mán. og hitaveitan er 516,99 fyrir 1
mán. og hún hækkar yfirleitt í hverj-
um mánuði. Hér er ekki verið með
mæli heldur kaupir maður visst magn
af vatni, hvort maður nýtir það allt er
svo annað mál. Beztu kveðjur og
þakkir fyrir margt gott.
Ágúst ruglingslegur
vegna ferðalags
Húsmóðir skrifar:
Það er litið um ágústseðilinn að
skrifa. Matarreikningur er lægri en í
júlí vegna ferðalags i ágúst. Liðurinn
annað samanstendur aöallega af
kostnaði við ferðina, um 6.500 kr.
Þar er innifalið bensín og fleira sem
keypt er i ferðalögum. Svo ágústmán-
uður er hálfruglingslegur hjá mér.