Dagblaðið - 22.09.1981, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 22. SEPTEMBER 1981.
5
Girðing umhverfis Litla-
Hraun breytti tæptega miklu
— segir Jón Bjarman fangaprestur
„Mér finnst tæplega þess virði að
eyða þessum 880 þúsundum í girðingu
umhverfis fangelsið að Litla-Hrauni,”
sagði Jón Bjarman fangaprestur í sam-
tali við DB. „Miklu nær væri að nota
peningana til byggingar fangelsisins
uppi í Árbæ, sem framkvæmdir hófust
við fyrir nokkrum árum. Það hús á að
koma í stað fangageymslunnar við
Síðumúla og Hegningarhússins við
Skólavörðustig, en þau hús eru bæði
óhæf sem fangageymslur. Það fyrr-
nefnda var upphaflega bílageymsla og
Hegningarhúsið er rúmlega aldar gam-
alt.
Núna er girðing umhverfis hluta
fangelsisins að Litla-Hrauni, íþrótta-
svæðið og lagerinn er þó utan girðing-
arinnar. Ég held að girðing umhverfis
allt svæðið myndi tæplega breyta miklu
og svo ber einnig að hafa í huga að
strok fanga af Litla-Hrauni eru frekar
fátíð.
Af viðtðlum við Eyrbekkinga í
blöðum hefur mátt sjá að þeir hafa
ekki miklar áhyggjur af girðingarleys-
inu og þeir fangar sem strjúka fara ekki
niður á Eyrarbakka, þeir fara lengra,”
sagði Jón Bjarman fangaprestur.
SA.
Dagblaðsvinningur í viku hverri:
Einhver DB-
áskrifandi
fær hljóm-
flutningstæki
—svari hann spumingunum rétt
Vinningur vikunnar í áskrifendaleik
Dagblaðsins er að þessu sinni Crown-
hljómflutningstæki frá Radíóbúðinni.
Hér er um samstæðu að ræða sem inni-
felur plötuspilara, kassettutæki, útvarp
og tvo hátalara, hvorki meira né
minna. Heildarverðmæti þessa glæsi-
lega vinnings er 6.200 krónur.
Crown-settið er nitjándi vinningur-
inn í þessum leik Dagblaðsins. Þegar
hafa átján áskrifendum DB hlotnazt
veglegir vinningar; reiðhjól, sólar-
landaferðir, tölva, myndsegulband og
hljómflutningstæki.
Og enn er nóg eftir af óútgengnum
vinningum. Leikurinn verður í gangi
fram í miðjan nóvember og þar til á
hver einasti áskrifandi Dagblaðsins
möguleika. Og þeir sem lesa Dagblaðið
en fá það ekki í áskrift ættu að drifa sig
í að gerast áskrifendur. Ekki aðeins fá
þeir Dagblaðið ódýrara heldur eiga þeir
kost á glæsilegum vinningum.
Leikurinn gengur þannig fyrir sig að
einhvem dag vikunnar birtast á baksíð-
unni spurningar tengdar smáaugiýsing-
unum. Næsta dag birtist síðan, innan
um smáauglýsingarnar, nafn eins
áskrifanda og gefst honum kostur á að
svara spumingunum. Svari hann rétt er
vinningurinn hans.
-KMU.
Nýtizku vélar hafa veríð teknar 1 notkun á Höfn við siidarsöltunina. Eins og sjá
má er mesta rómantikin farín af söltuninni. DB-mynd: Ragnar Imsland.
Fyrsta sfídin
á Homafjörð
Fyrsta síldin kom til Hafnar í laugardag. Síldin þótti ekkert til að
Hornafirði um helgina. Notuðu hrópa húrra fyrir, fremur smá og
menn á nokkrum reknetabátanna mögur. Menn gera sér vonir um að
tækifærið að komast heim í helgarfrí heldur fari að rofa til og stærri og
og lönduðu í leiðinni. Á föstudag feitari síld fari að veiðast.
voru saltaðar 306 tunnur og 204 á -DS/Júlía, Höfn.
DB-mynd: Sigurður Þorri.
Plötuspilarí, útvarp, kassettutæki og tveir hátalarar eru vinningur vikunnar.
Freestyle dansar
(Disco, Disco
Jazz, Funky Jazz,
Hustle, Country og
western
dansar o.fl.)
KONU-BEAT -
Góð hreyfing fyrir
dömur á
öllum aldri.
„Aerobic dancing",
það allra nýjasta
frá USA, kennt í
Freestyle
dönsunum og í konu-
beattímum. Rock'n Roll
• ~ *
— Eitt það vinsælasta í dag.
nsiuniossonRR
INNRITUN DAGLEGA FRA 10-12 og 13-19
íSÍMUM 20345, 38126, 24956, 74444
Börn yngst 4 ára.
Barnadansar,
samkvæmisdansar.