Dagblaðið - 22.09.1981, Side 8
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 22. SEPTEMBER 1981.
8
r
v
Vélrítun — snnskrrft
Óskum að ráða starfskraft við setningartölvu í prentiðnaði.
Hálfs- eða heilsdagsvinna. Góð laun fyrir góðan starfs-
kraft.
Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál. Uppl. í síma
33840.
77/ leigu
sumarbústaður á fallegasta stað í Kópavogi, ca 35. ferm.
Þarfnast standsetningar og klæðningar að utan sem dregst
frá húsaleigu. Heils árs bústaður og stór garður. Hentugur
fyrir einstakling eða barnlaus hjón. Aðeins leigður reglu-
sömum og skilvísum aðila. Tilboð sendist DB. merkt
„Sumarbústaður 434”.
Stórar flöskur
360 g
Nýtt, gæða-
sjampó meö
gódri lykt
— fyriralla
fjölskylduna.
Gott verð.
Æfingar hjá júdódeild GERPLU verða í vetur á mánu-
dögum — miðvikudögum og föstudögum fyrir yngrí
og eldri nemendur.
Kennari Guömundur Rögnvaidsson.
Nánari upplýsingar í síma 74925 og42015.
__ Tómstundavörur SSSS
T/iir heimHi og skola
NÁMSKEIÐ
Innritun er hafin
í eftirtalin námskeið.
• JÓLAFÖNDUR
• HNÝTINGAR
• TÁGAVINNA
• MYNDVEFNAÐUR
(ofið á vefgrindur)
• GLERSKREYTING
HANDÍD
Laugavegi 26 og Grettisgötu
sími 29595
Skiptar skoðanir um
skólamál í Kópavogi
Tillaga sem gert er ráð fyrir að Boöað hefur verið til almenns skólaeruþrírelztuárgangargrunn-
lögð veröi fram í bæjarstjórn Kópa- borgarafundar um málið i Þing- skólans en í Kársnesskóla.yngri ár-
vogs nk. föstudag, þess efnis að hólsskóla annað kvöld. í gærkvöldi gangarnir. Gert er ráð fyrir að nem-
menntamálaráðuneytinu verði hélt foreldrafélag Menntaskólans i endur Þinghólsskóla færu í Kárs-
boöið að kaupa eöa fá til afnota Kópavogi fund í Kópavogskirkju nesskóla fengi MK fyrrnefnda skól-
Þinghólsskóla undir Menntaskól- um húsnæðismál Menntaskólans en ann til afnota.
ann í Kópavogi þannig að hann geti þau tengjast þessu máli. Dagblaðið leitaði til þriggja
flutt starfsemi sína þangað haustið Þinghólsskóli er annar tveggja manna sem tengjast þessu máli og
1982, hefur valdið úlfaþyt í Kópa- grunnskóla í vesturbæ Kópavogs. ferálitþeirrahéráeftir.
vogi. HinnerKársnesskólinn. j Þinghóls- . -KMU.
Ingólfur Þorkelsson, skólameistari Menntaskólans I Kópavogi, útskrifar stúdenta I Kópavogskirkju.
Hákon Sigurgrímsson, skólanefndarmaður í Kópavogi:
„Væri fróðlegt að leggja
dæmið fyrir skattgreiðendur"
„Hugmynd þessa má rekja aftur til
ársins 1978. Þá óskaði skólanefnd,
sem ég var þá formaður fyrir, eftir
því við bæjarstjórn að kannað yrði
hvort nýta mætti hluta af húsnæði
grunnskólanna í bænum undir fram-
haldsskóla. I framhaldi af þessu skip-
aði bæjarsstjórn nefnd sem í áttu
sæti, auk mín, þeir Andri ísaksson,
Páll Theódórsson, Steinar Steinsson
og Stefnir Helgason. Síðar bættist
Ásgeir Jóhannesson við,” sagði
Hákon Sigurgrímsson, skólanefndar-
maðuríKópavogi.
„Nefndin komst að samhljóða
niðurstöðu og sendi frá sér álit í
desember 1979. Nefndin lagði til að
framhaldsskólinn fengi á næstu árum
bæði Þinghólsskóla og Víghólaskóla
i stað þess að byggt yrði sérstakt hús
undir framhaldsskóla. Það fjármagn
sem ætlað væri í byggingu nýs fram-
haldsskólahúss lagði nefndin til að
færi í uppbyggingu grunnskólanna.
Snælandsskóli er ekki hálfbyggður
og enn er eftir að byggja lokaáfanga
Digranesskóla.
Ekki er hægt að neita því að um
tíma mun myndast toppur í Kársnes-
skóla. Spá gerir ráð fyrir að jafnvægi
verði komið á 1986. Við lögðum til
að þessum toppi yrði mætt með
lausum kennslustofum en einnig að
salur yrði byggður við Kársnesskóla
og núverandi sal breytt í kennslu-
rými.
Þetta er réttlætanlegt vegna þess að
þarna er verið að spara allnokkurt fé.
Gert var ráð fyrir árið 1979 að bygg-
ing húsnæðis fyrir framhaldsskóla
kostaði 1,5 milljarða gamalla króna.
Þó hann yrði byggður yrði ekki hjá
því komizt að ljúka Snælandsskóla
og Digranesskóla.
Það væri fróðlegt að leggja þetta
dæmi fyrir skattgreiðendur, hvort
þeir teldu fjármunum sínum betur
varið ef ráðizt yrði í byggingu nýs
framhaldsskóla,” sagði Hákon
Sigurgrímsson. -KMU.
Þórir Hallgrimsson,
skólastjóri
Kársnesskóla:
„Verði Þinghólsskóli lagður niður
og nemendur hans sendir í Kársnes-
skóla leiðir það til þess að þrísetja
þurfi Kársnesskóla. Hann er ekki
hannaður fyrir þann fjölda, sem í
honum yrði, bættust nemendur Þing-
hólsskóla við,” sagði Þórir
Hallgrímsson, skólastjóri Kársnes-
skóla.
„Þarna er verið að leysa vandamál
„Aðstaða til náms
skerðist verulega”
Menntaskólans í Kópavogi á kostnað þéttingar byggðar í eldri hverfum.
grunnskólanna. Kársnesskólinn mun Mér finnst það mjög hæpin ráð-
yfirfyllast og aðstaða nemenda til stöfun að leggja stóran hluta skóla-
náms og félagsstarfa skerðast veru- lóðarinnar undir sex til átta lausar
lega. kennslustofur. Slíkt mundi skerða
Ég tel að áætlun sú sem gerð var á verulega leiksvæði nemenda og alla
sínum tíma um nemendafjölda sé aðstöðu þeirra til útileikja. Óþægind-
byggð á hæpnum forsendum. Ekki um sem margsetning skólans þýddi
var gert ráð fyrir fólksfjölgun í vest- fyrir nemendur hefur enginn gaumur
urbæ vegna nýrra íbúðahverfa og verið gefinn.” -KMU.
Ingólfur A. Þorkelsson,skólameistari MK:
„Blandamérekki ídeilurnar”
— „en það verður að leysa húsnæðismál Menntaskólans og það áður
en langt um líður”
„Ég blanda mér ekki í þær deilur
sem nú eru í Kópavogi. En ég segi að
það verður að leysa húsnæðismál
Menntaskólans i Kópavogi og það
áður en langt um líður. Skólinn er nú
í mikilli spennitreyju í húsnæðis-
málum,” sagði Ingólfur A. Þorkels-
son skólameistari MK.
„Við börðumst fyrir því að byggt
yrði yfir skólann. Búið var að teikna
bygginguna, útvega lóð og veita fé til
hennar. Vegna deilna um miðbæjar-
skipuleg og aðallega vegna nýrrar
nemendaspár, sem sérfræðingar frá
Þjóðhagsstofnun gerðu, voru þessi
byggingaráform lögð á hilluna. Menn
töldu að vegna fækkunar nemenda
gæti svo farið að menn stæðu uppi'
með tóma skóla.
Svo komu tillögur frá framhalds-
skólanefnd sem aðallega voru grund-
vallaðar á spá Þjóðhagsstofnunar og
gera ráð fyrir að Þinghólsskóli verði
gerður að framhaldsskóla. Mig
minnir að ég hafi séð þessa tillögu
fyrst í blaði alþýðuflokksmanna í
Kópavogi, frá Guðmundi Oddssyni
bæjarfulltrúa.”
-KMU.