Dagblaðið - 22.09.1981, Page 14
14
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 22. SEPTEMBER 1981.
Gert er ráð fyrir heagri euatiœgri átt
um ellt land (dag og fram eftir nóttu.
A Norðvosturlandi verður slydda en
rigning austaniands.
Kl. 6 var í Reykjavik hsagviðri, látt-
skýjað og 0; Gufuskálar suðaustan 2,
skýjað og +3; Galtarviti austan 2,
skýjað og +2; Akureyri hœgviöri,
skýjað og +3; Raufarhöfn hœgviðri,
skýjað og +2; Dalatangi norðaustan
5, skýjað, +4; Höfn norðan 1, skýjað
+ 5; Stórhöfði norðvestan 2, látt-
skýjaðog +3.
I Þórshöfn var skýjað og 11, Kaup-
mannahöfn lóttskýjað og 13, Osló
lóttskýjað og 10, Stokkhólmi látt-
skýjaö og 10, London láttskýjaö og
13, Hamborg látUkýjað og 11, Paría
skýjað og 14, Madrid skýjað og 15,
Lissabon lóttskýjað og 14 og New
York skýjaðog 17.
Rannvei); Elín Erlendsdóttir, Flóka-
götu 16, lézt 11. september 1981. Hún
var fædd 7. maí 1902. Foreldrar hennar
voru hjónin Þorbjörg Gísladóttir og
Erlendur Guðmundsson. Rannveig var
elzt af sjö systkinum. Árið 1928 giftist
hún Andrési Andréssyni vélstjóra sem
lézt 1980. Þau eignuðust fjögur börn.
Rannveig verður jarðsungin í dag frá
Dómkirkjunni kl. 13.30.
Jón Guðmundsson fró Gerðum lézt 14.
september. Hann var fæddur 24.
janúar 1911. Hann var sonur hjónanna
Guðmundar Þórðarsonar útgerðar-
manns og Ingibjargar Jónsdóttur.
Eignuðust þau fjórtán börn og var Jón
fimmti í röðinni. Eftir lifa þrjár dætur
og tveir synir. Árið 1958 tók hann við
rekstri Hraðfrystihúss Gerðabátanna
hf., með bræðrum sínum. Starfaði
hann þar í 15—20 ár, eða þar til það
var selt. Eftirlifandi kona Jóns er
Sigríður Björnsdóttir, eignuðust þau
þrjú börn. Útför Jóns verður gerð frá
Dómkirkjunni í dag, 22. sept., kl. 15.
Hallgrimur Vilhjólmsson tryggingafull-
trúi lézt 14. september. Hann var
fæddur 11. desember 1915. Han var
um langt árabil tryggingafulltrúi hjá
Tryggingastofnun ríkisins á Akureyri.
Hann var kvæntur Ásgerði Guðmunds-
dóttur frá Akureyri. Hallgrímur verður
jarðsunginn frá Akureyrarkirkju í dag,
22. september, kl. 13.30.
Hans Wiedbusch, Grenimel 24 Reykja-
vík, lézt 17. sept.
Gísli Sighvatsson frá Sólbakka, Garði,
andaðist 19. september.
Dagnýr Bjarnleifsson andaðist 20.
september.
Guðrún J. Kristmundsdóttir frá
Kirkjubóli, Skutulsfirði, lézt 20.
september.
Kristin Viktoría Gísladóttir, Jaðri
Garði, andaðist 20. september.
Ragnar Ólsen fyrrverandi veghefils-
stjóri, Skipasundi 84, verður jarðsung-
inn frá Fossvogskirkju 23. september
kl. 15.
Gunnlaugur Jónsson fyrrverandi
starfsmaður hjá Eimskipafélagi íslands
verður jarðsettur frá Fossvogskirkju
23. september kl. 13.30.
Stefania Brynjólfsdóttir frá Starmýri
lézt 20. september. Hún verður
jarðsungin frá Fossvogskirkju 25.
september kl. 10.30.
Spilakvöld
Bridgedeild
Breiðfiröinga
Tvímenningskeppni verður i Hreyfilshúsinu á
fimmtudaginn 24. september, og hefst kl. 19.30.
Þátttaka tilkynnist í síma 71208 (óskar) og 32562
(Ingibjörg).
Iþróttir
Knattspyrnuleikir sem enn eru óleiknir í 2. flokki
vegna frestana, einnig leikir samkvæmt mótaskrá:
Þriöjudagur 22. september
Rm. Melavöllur, Valur-Fram A, kl. 18.30.
Rm. Melavöllur, Valur-Fram B, kl. 20.00.
Miðvikudagur 23. september:
Rm. Víkingsvöllur, Víkingur-KR, kl. 18.00.
Námskeið ■ glermálun
og leðurvinnu
Kvenfélag Bústaðasóknar heldur námskeiö i gler-
málun og leðurvinnu. Hefjast þau i dag, 22. scptem-
ber. Upplýsingar hjá Björgu í síma 33439 og Sigríöi í
sima 74002 og 35382.
Gagnkvæm sjúkrahjálp
við ferðamenn
Dagana 7. og 8. september sl. fóru fram viðræður
við Breta um mögulegan samning um gagnkvæma
sjúkrahjálp fyrir ferðamenn er dveljast um stundar-
sakir i hinu landinu.
Viðræður þessar eru framhald viðræðna er fram
fóru í Reykjavik fyrr i sumar um almennan samning
um almannatryggingar milli landanna.
Nú þegar liggja fyrir drög að samkomulagi i öllum
meginatriðum og er þess að vænta að gengið veröi
endanlega frá samningum seinna i haust er aðilar
hafa lokið athugunum sinum á samningsuppkastinu.
Svipaðar viðræður fóru einnig fram við Luxem-
borgarmenn í júlí sl. og er þess vænzt að gengið
verði frá samningum viö þá snemma á næsta ári.
AA-samtökin
í dag þriðjudag verða fundir á vegum AA-samtak-
anna sem hér segir: Tjarnargata 5 (s. 12010), græna
húsið, kl. 14 og 21; Tjamargata 3 (s. 91-16373),
rauða húsið, kl. 12 (samlokudeild) og 21; Neskirkja
kl. 21.
Akureyri, (s. 96-22373) Geislagata 39 kl. 21; ísa-
fjörður, Gúttó við Sólgötu kl. 20,30, Keflavik (s. 92-
1800), Klapparstíg 7 kl. 21, Keflavíkurflugvöllur kl.
11,30, Laugarvatn, Barnaskóli kl. 21, Ólafsvík,
Safnaðarheimili kl. 21, Siglufjöröur, Suðurgata 10
kr. 21, StaðarfeU Dalasýslu(s. 93-4290) kl. 19.
í hádeginu á morgun, miðvikudag, verða fundir sem
hérsegir: Tjarnargata 5 (s. 91-12020) kl. 12 og 14
Samvinnuferðir/Landsýn
til Puerto Rico
Samvinnuferðir-Landsýn hefur nú hafið kynningu
og sölu á haust- og vetrarferðum sínum. Hefur vetr-
ardagskráin ekki i annan tíma verið fjölbreyttari,
megináherzlan er lögð á stuttar ferðir til stórborga,
en einnig boðið upp á lengri ferðir til sólarstranda.
Auk hinna hefðbundnu sólarferða til Miami og
Kanaríeyja efnir Samvinnuferðir-Landsýn til hóp-
ferðar í beinu leiguflugi til Puerto Rico í Karabiska
hafinu. Ferðin stendur yfir í 17 daga, frá 2. til 18.
október og er þetta fyrsta íslenzka hópferðin á
þessar slóðir. Verði hefur tekizt að stilla mjög í hóf
og er ferðin fáanleg fyrir allt frá kr. 7.900,- fyrir
flug, gistingu og islenzka fararstjórn.
Af helgarferðum til stórborga skal fyrst telja
hópferð til Parísar dagana 25.-29. september.
Aftur er þar um að ræöa fyrstu hópferðina á þennan
stað frá íslandi i beinu leiguflugi og er verð fyrir
þessa fimm daga i París frá kr. 3.280,- fyrir flug,
gistingu með morgunveröi og íslenzka fararstjórn.
Auk Parisarferðarinnar verður farið í leiguflugi til
Dublin í lok október og vikulega er efnt til helgar-
feröa til London. Sérstakar hópferðir fyrir aðildar-
félaga verða farnar fimm sinnum til London og er
verð þeirra ferða kr. 2.890,- fyrir flug, gistingu með
morgunverði og íslenzka fararstjórn.
ÚTSÝNIÐ FRÁ 0SLÓ,
HLÉSKÓGUM 0G BERLÍN
í gærkvöld var býsna gott á boð-
stólum hjá ríkisfjölmiðlunum. Vissu-
lega fór það svo; að" eftir að maður
var setztur við kassann var hægara
sagt en gert að standa upp úr stólnum
góða aftur og því varð minna úr út-
varpshlustun en ef til vill hefði verið
ástæða tU.
Víst heyrði ég sjöfréttirnar í út-
varpinu sem ég man lítið úr bitastætt
— nema jú ágætan pistil ljúfUngsins,
fyrrum starfsmanns okkar hér á Dag-
blaðinu, Atla Rúnars Halldórssonar,
sem heldur uppi merki Ríkisútvarps-
ins hljóðvarps í Osló. Greinargóður'
piltur sem greinilega fylgist vel með í
norskri pólitík og kemur þvi áheyri-
lega til skila. Það er nokk kostulegt
til þess að vita, að eiginmaðurinn
Brundtland skuli ef til vill verða ráð-
herra í hægristjórninni þegar eigin-
konan Brundtland hverfur úr vinstri-
stjórninni þar i landi. Það má vera
býsna gott samkomulag á því heimili
— og svo halda menn að það skorti
eitthvað annað en vilja tU að ná
„sáttum” á flokksheimili þeirra
Geirs og Gunnars!
Ég heyrði byrjun á ágætu erindi
Um daginn og veginn eftir Kristrúnu
Guðmundsdóttur í Hléskógum. Þar
var, eins og í svo mörgum öðrum
erindum um þetta sama efni, stokkið
úr einu í annað. Meðal annars var
rætt um þá réttmætu kvörtun höfuð-
borgarbúa að sitja ekki við sama
borð og ýmsir aðrir landsmenn þegar
kemur að kosningum; þ.e. að hafa
ekki fullan atkvæðisrétt á borð við
t.d. Vestfirðinga. Kristrúnu þykir
það nú ekki mikið þótt Reykvíkingar
unni landsbyggðarfólki þeirra for-
réttinda að hafa meiri kosningarétt.
Ég get tekið undir það að landsbyggð-
arfólk situr ekki við sama borð og
höfuðborgarbúar á mörgum sviðum
— en ég get ekki tekið undir það að
við eigum endilega að hafa minni
mannréttindi þegar kemur að kosn-
ingum. Er það ekki einmitt þá sem
allir landsmenn eiga að vera jafnrétt-
háir? Nei, Kristrún, forréttindin
mega aldrei vera á svo þýðingarmiklu
sviði sem þessu.
Eftir snoturt, lítið leikrit frá sjón-
varpinu í Jórvíkurskíri var svo sá
dagskrárhður rikisins sem mesta at-
hygli mína vakti: fréttamyndin um
Berlínarmúrinn. Ég varð einu sinni
svo frægur að sjá þennan múr og fara
um hann frá vestri til austurs. Það
fannst mér alveg grínlaust mál.
Fyrir mörgum árum sá ég amerisk-
an skemmtiþátt. Þar í var lítill leik-
þáttur sem hófst vestan við múrinn í
Berlín. Maður nokkur náði sér í stiga
til að skyggnast yfir múrinn — og þar
logaði þá yfir öllu rósrauður bjarmi
frá brosandi alþýðu þess lýðveldis.
Ameríkönum þótti þetta mjög snið-
ugt — enda hafa þeir fæstir komið á
staðinn. Það er nefnilega ekki rós-
rauður bjarmi austan við múrgirt
bjarnarandlitið — hann er grár
björninn sá. Og fólkið brosti ekki til
mín. -ÓV
Afmæil
80 ára er 1 dag, 22. september, frú
Þórunn Elisabet Sveinsdóttir, leik-
kona. Hátúni 8 Rvík. Eiginmaður
hennar var Jakob Einarsson húsgagna-
bólstrari sem látinn er fyrir nokkrum
árum. Um árabil var Þórunn leikkona
á Siglufirði og hér í Reykjavík, auk
þess hefur hún komið talsvert fram í
sjónvarpinu. Á sunnudaginn kemur,
27. þ.m., ætlar afmælisbarnið að taka
á móti vinum og ættingjum i Átthaga-
salnum á Hótel Sögu, mUIi kl. 16 og 19.
Hannesdóttir, Baldursgötu 2 Keflavik.
Hún er erlendis um þessar mundir.
Ýmisiegt
Húsfreyjan
3. tölublað þessa árs er nú komið út. Meðal efnis
blaðsins er frásögn mæöra sem eiga fötluð börn,
grein um að öðlast sjálfsöryggi, hannyrðauppskrift-
ir, mataruppskriftir og fleira. Það eru rúmlega 30 ár
siðan fyrsta blaðið kom út. Nú kostar eintakið 20,00
kr.
Akureyri Minister
Bishop of lcelartd
Street Improvement the Main Ih-oject
Akureyrarblaö með
News from lceland
Nýútkomnu septemberblaði News from Iceland
fylgir 20 síðna sérblaö tileinkað Akureyri. Flytur
þaö ýmsar almennar fréttir frá Akureyri en einkum
þó af atvinnulifi og ýmsum framfaramálum bæjar-
ins. Efniö er unnið af Gisla Sigurgeirssyni blaöa-
manni i samvinnu við Alan Rettedal.
News from Iceland kemur út á ensku, mánaðar-
lega — og hefur nú veriö gefið út í sjö ár. Hefur þaö
flutt allar helztu almennar íslandsfréttir en þó með
sérstakri áherzlu á atvinnu- og efnahagslíf svo og
ferðamál Útgáfan tileinkuð Akureyri er ekki fyrsta
sérblaöið, sem fylgir News from Iceland, því
Atlantic Fishing, samanteknar fréttir og greinar um
sjávarútveginn og markaðsmál, fylgir blaðinu nán-
ast annan hvern mánuð. Hefur útgefandi i huga að
gera í framtiðinni öðrum atvinnugreinum svo og
bæjarfélögum sérstök skil i sérblöðum sem fylgja
News from Iceland.
Þótt blaöið dreifist fyrst og fremst til áskrifenda
um allan heim sjá það nú æ fleiri erlendir ferðamenn
í landinu — og á þessu ári hóf útgáfan að þjóna
þeim sérstaklega með samanteknum upplýsingum
um það helzta sem hér er á döfinni í hverjum mán-
uði. Þessu fylgir einnig greinargott yfirlit yfir mat-
sölustaði, danshús, söfn og aðra þá staði sem ferða-
fólk hefur óhjákvæmilega áhuga á. önnur reglu-
bundin útgáfa á ensku af þessu tagi fyrir erlenda
ferðamenn er ekki í landinu.
Útgefandi og ritstjóri News from lceland er Har-
aldur J. Hamar og aðstoðarritstjóri er Haukur
Böðvarsson.
Sýnlngar
Myndlistarsýning
á Mokka
Valdimar Einarsson sýnir á Mokka 22. sept.—13.
okt. Hann er fæddur i Reykjavík árið 1932. Hann
stundaði nám í teikningu og meðferð lita í Mynd-
listaskólanum, Laugavegi 166, á árunum 1956-1958
og naut þar tilsagnar hjá listmálurunum Herði
Agústssyni og Hjörleifi Sigurðssyni. Ennfremur
stundaði hann nám i myndlist i Roosevelt High
School of Art Fresno, Kaliforníu árið 1969. Að öðru
leyti er hér um sjálfsnám aö ræða og frístundastarf.
Valdimar Einarsson býr nú á Húsavík.
GENGIÐ
GENGISSKRÁNING NR. 178 - 22. SEPTEMBER 1981 KL. 09.15. Ferðamanna- gjaldeyrir
Einingkl. 12.00 Kaup Sala Sala
1 Bandarfkjadollar 7.667 7.689 8.457
1 Staríingspund 14.088 14.129 15.541
1 Kanadadollar 6.416 6.434 7.077
1 Dönskkróna 1.0764 1.0795 1.1875
1 Norskkróna 1.3102 1.3139 1.4463 '
1 Sœnskkróna 1.3995 1.4035 1.5439
1 Hnnsktmark 1.7406 1.7455 1.9201
1 Franskur franki 1.4294 1.4335 1.5769
1 Belg. franki 0.2078 0.2084 0.2292
1 Svissn. franki 3.9626 3.9639 4.3603
1 Hollenzk florina 3.0682 3.0670 3.3737
1 V.-þýzktmark 3.3895 3.3992 3.7391
1 (tölsk l(ra 0.00668 0.00670 0.00737
1 Austurr. Sch. 0.4828 0.4842 0.5326
1 Portug. Escudo 0.1199 0.1202 0.1322
1 Spánskurpeseti 0.0825 0.0827 0.0910
1 Japansktyen 0.03390 0.03400 0.03740
1 Irsktound 12.371 12.406 13.646
8DR Isérstök dráttarráttlndll 01/09 8.8989 8.9245
Sknsvarl vsgna ganglaskránlngar 22190.