Dagblaðið - 22.09.1981, Qupperneq 23
23
Sjónvarp
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 22. SEPTEMBER 1981.
c
Utvarp
ÞJÓÐSKÖRUNGAR 20. ALDAR - sjónvarp í kvSld kl. 20,45:
Seinni mynd um
Franklin D. Roosevelt
Þessi seinni þáttur um Franklin D.
Roosevelt, bandaríska forsetann sem
dó i stríðslok, er einn af mörgum
þáttum um frægustu stjórnmála-
menn þessarar aldar. Næsti þáttur
verður um Gandhi sem leiddi Ind-
verjatil sjálfstæðis.
Það tók tvö ár að gera þessa þætti
sem unnir eru af kanadískum sjón-
varpsframleiðendum í samvinnu við
blaðamenn hjá stórblaðinu New
York Times. Notaðir eru bútar úr
heimildarmyndum, og varð það því
mikil töf fyrir gerð þáttanna þegar
kvikmyndasafn Bandaríkjanna í
Washington brann til kaldra kola
árið 1978.
En annars var leitað fanga út um
allan heim og fengnar gamlar frétta-
myndir hvaðanæva.
Leitazt er við að gera þættina sem
sannsögulegasta. Framleiðendur
þeirra reyna að gera sér grein fyrir
hvað það var sem gerði valdamenn
20. aldar að þeim persónum sem þeir
voru.
Hvers vegna sóttust þeir eftir
mannaforráðum, hvernig var sálin í
þeim innréttuð og hvað gerði þá hæfa
til að stjórna?
Blaðamennirnir sem leggja sinn
skerf til myndarinnar eru margir
gamlir í hettunni og muna vel eftir
þeim frægu mönnum sem um er fjall-
að, en þeir sem endanlega semja
myndirnar eru ungir og hafa því enga
fyrirfram fastmótaða mynd af
frægðarmönnunum.
Sögumaður i þáttunum er Henry
Fonda, en tónlistin við hana er samin
af ungri kanadískri konu, Patriciu
Cullen. Þá hefur komið út bókin
Portraits of Power (Lýsingar á vald-
höfum), byggð á efni þáttanna.
Og svo við snúum okkur aftur að
Roosevelt þá var hann fjórum
sinnum kjörinn forseti Bandaríkj-
anna, og er það algjört met. Hann
þykir einn af þeirra merkustu forset-
um. Samt var hann í hjólastól vegna
lömunarveiki. Hann gerði umfangs-
miklar ráðstafanir (New Deal) til að
bæta efnahag bandarísku þjóðarinn-
ar á kreppuárunum. Þegar heims-
styrjöldin síðari var komin af stað
reyndi hann eftir megni að halda
Bandarikjunum utan hernaðarátak-
anna en eftir árás Japana á Pearl
Harbour sneri hann við blaðinu.
Hann sat mjög sögulega samninga-
fundi með þeim Churchill og Stalin,
þann frægasta á Yalta. En hann lifði
það ekki að sjá nasista gefast upp.
Þremur vikum áður lézt hann, en
varaforsetinn, Truman, tók við
stjórnartaumunum.
,,Fáir samtíðarmenn munu hafa
jafnmikil áhrif á það hvernig fer um
menningu okkar eins og Roosevelt,”
sagði Churchill um þennan félaga
sinn.
-IHH.
New York — háborg auðs og valda.
En á kreppuárunum dofnaði yfir
efnahagslífinu þar eins og annars
staðar í Bandaríkjunum þangað til
Roosevelt reyndi að blása i það nýju
lifi með ,,New Deal” ráðstöfunum
sínum.
GUNNAR Á HLÍÐARENDA - útvarp í kvðld kl. 21,00:
Lagaflokkur um Njálu
eftir Jón Laxdal
í kvöld verður fluttur lagaflokkur
frá þeim tíma sem sjálfstæðisbarátta
íslendinga var á hápunkti upp úr
aldamótunum. Þá bjuggu þeir Jón
Laxdal tónskáld og Guðmundur
Guðmundsson, oft nefndur skóla-
skáld, báðir á ísafirði og sömdu
saman lagaflokk byggðan á efni
Njálssögu. Guðmundur orti ljóðin en
Jón Laxdal lögin.
Þetta kom út í heftum sem hétu
Gunnar og Njáll, Gunnar og Kol-
skeggur og svo framvegis. Vöktu
þau mikla hrifningu hjá almenningi
og voru rifin út um leið og þau komu
í verzlanir. Á fyrri hluta aldarinnar
voru þau mikið leikin og sungin, en
nú heyrast þau sjaldnar og verður
forvitnilegt að fá tækifæri til að
fylgjast með flutningi þeirra í kvöld.
Flytjendur eru ekki af verri endan-
um: Guðmundur Guðjónsson, Guð-
mundur Jónsson og félagar úr Karla-
kórnum Fóstbræðrum. Undirleikari
er Guðrún Kristinsdóttir.
Þess má geta að Jón Laxdai samdi
fleiri lagabálka úr fornsögunum.
Fyrir allmörgum árum söng Þuríður
Pálsdóttir Helgu fögru í ríkisútvarp-
ið, en það efni er byggt á Gunnlaugs
sögu ormstungu.
Og þótt ekki séu margir sem kunna
þessi lög nú orðið þá eru mörg söng-
lög Jóns Laxdal vinsæl enn þann dag
í dag, eins og t.d. Sólskríkjan (Sú
rödd var svo fögur), við texta Þor-
steins Erlingssonar.
Því má ekki heldur gleyma að Jón
Laxdal var afi núverandi fjármála-
ráðherra, Ragnars Arnalds.
-IHH.
Guömundur Guöjónsson og Guðmundur Jónsson eru meðal flytjenda lagaflokksins um Gunnar á HUöarenda og aörar hetjur
Njálu.
Blaðburðarfólk óskast strax til blaðburðar og
umsjónar fyrir utan á (ekki yngri en 12 ára).
Upplýsingar gefur umboðsmaður í síma 99-
BIAÐIÐ
Pöntunarsími fyrír
hárgreiðs/u í Hafnarfirði
og nágrenni er
54688
HÁRGREIÐSLUSTOFAIM
MEYJAN
Reykja víkurvegi 62. — Simi54638
He/físsandur:
Dagblaðið óskar eftir umboðsmanni strax. Upp-
lýsingar á afgreiðslu Dagblaðsins í síma 91-
27022.
Breiðdalsvík
Dagblaðið óskar eftir umboðsmanni á Breiðdals-
vík. Upplýsingar hjá umboðsmanni í síma 97-
5677 eða á afgreiðslunni í síma 91-27022.
Eskrfjörður
Dagblaðið óskar eftir umboðsmanni á Eskifirði.
Upplýsingar hjá umboðsmanni í síma 97-6331
eða á afgreiðslunni í síma 91-27022.
Þórkötiustaðahverfi Grindavík
Dagblaðið óskar eftir umboðsmanni í Þórkötlu-
staðahverfi Grindavík. Upplýsingar hjá umboðs-
manni í síma 92-8061 eða á afgreiðslunni í síma
91-27022.
MMEBUmi